Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 287. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 mbl.is
Höfundurinn
örlöglausi
Um ungverska nóbelsskáldið,
Imre Kertész Lesbók 8
Benedikt búálfur
lifnar við
Verður þrívíddarteiknimynd
eins og lirfan ljóta Fólk 88
Meistaraverk
Atla Heimis
Geisladiskurinn Tíminn og vatnið
fær afburðadóm Listir 37
GIORGIO Scaglia, fulltrúi ítalska
fyrirtækisins Impregilo SpA við
opnun tilboða í gerð Kára-
hnjúkastíflu og aðrennslisgöng, er
bjartsýnn á að fyrirtækið muni fá
verkin. Hann segir að niðurstaða
útboðsins hafi ekki komið sér á
óvart. Mikil vinna hafi legið að baki
tilboðsgerðinni og allt verið gert til
að leggja fram tilboð sem yrði sem
næst áætlun Landsvirkjunar.
Innlent og erlent vinnuafl
„Við höfum bæði mannafla og
tæki tilbúin í þetta verkefni hér á
Íslandi, um leið og ákveðið verður
að taka okkar tilboði,“ segir
Scaglia. Fram kom í máli hans að ef
gengið verði að tilboði Impregilo
muni það verða sér úti um íslensk-
an samstarfsaðila. Kvaðst Scaglia
reikna með að vinnuafl yrði bæði
innlent og erlent. Þó yrðu Ítalir
allsráðandi við gerð aðrennsl-
isganganna.
Impregilo er stærsta verktaka-
fyrirtæki Ítalíu og taldist fyrir
tveimur árum meðal 20 stærstu
slíkra fyrirtækja í Evrópu í tekjum
talið.
Aðstoð Keflavíkurverktaka
Ítalska fyrirtækið naut aðstoðar
Keflavíkurverktaka við undirbún-
ing ákveðinna þátta í tilboðsgerð-
inni. Kári Arngrímsson, yfirverk-
fræðingur hjá fyrirtækinu, segir
ekki útilokað að Impregilo muni
bjóða í fleiri verkþætti virkjunar-
innar. Útboð á stöðvarhúsinu og
fleiri stíflum og jarðgöngum sé til
dæmis eftir.
Höfum
mannafla og
tæki tilbúin
ÍTALSKA fyrirtækið Impregilo
SpA átti lægsta tilboð í bæði stíflu og
aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjun-
ar. Tilboð í verkin voru opnuð í
stjórnstöð Landsvirkjunar í gær.
Tilboð Impregilo var undir kostn-
aðaráætlun í bæði verkin sem boðin
voru út. Fyrirtækið bauð alls rúma
44 milljarða í verkin, sem er um 6
milljörðum kr. lægri upphæð en
kostnaðaráætlun ráðunauta Lands-
virkjunar. Bauð fyrirtækið 19,6
milljarða í stífluna og 24,5 milljarða í
aðrennslisgöngin, sem er 93,9% af
kostnaðaráætlun. Auk þess bauð það
3% afslátt af heildarupphæðinni, ef
það fær bæði verkin.
Önnur tilboð yfir áætlun
Önnur tilboð sem bárust í verkin
voru öll yfir kostnaðaráætlun. Sam-
eiginlegt tilboð frá Ístaki hf., E. Pihl
& Søn AS og AF Gruppen ASA í
stífluna hljóðaði upp á 27 milljarða
kr. og tilboð Ístaks og E.Pihl & Søn
AS í aðrennslisgöngin hljóðaði upp á
46,3 milljarða. Eurohydro JV, en að
því standa Hochtief Construction
AG og Íslenskir aðalverktakar, lagði
fram 34,4 milljarða tilboð í stífluna
og 36,1 milljarðs kr. tilboð í að-
rennslisgöngin.
Jákvæð áhrif á álviðræður
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra segir að niðurstaða útboðs-
ins sé ákveðinn léttir. Ávallt sé
óvissa um niðurstöðu útboða, hún
hefði í þessu tilfelli t.d. getað verið sú
að allir verktakar hefðu verið langt
yfir kostnaðaráætlun. Valgerður
segir að ljóst sé að Impregilo sé stórt
alþjóðlegt fyrirtæki með mikla
reynslu í virkjanaframkvæmdum.
Hún segir einnig að niðurstaða út-
boðsins eiga að geta haft jákvæð
áhrif á þær viðræður sem fram fara
nú vegna fyrirhugaðs álvers Alcoa.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að nú verði
lagst yfir tölurnar í tilboðunum með
ráðgjöfum fyrirtækisins. Það geti
jafnvel tekið 2–3 vikur, þar sem um
flókið verkefni sé að ræða. Um leið
þurfi að skoða aðra þætti málsins áð-
ur en endanleg ákvörðun verði tekin,
eins og raforkuverð til álversins og
fleira því tengt.
„Miðað við það sem á undan hefur
gengið og brottfall fyrirtækja sem
við höfum talsvert traust lagt á í
gegnum tíðina, þá tel ég það bæri-
lega útkomu að hafa fengið þrjú til-
boð,“ segir Friðrik.
Lægsta boð 6 millj-
örðum undir áætlun
Impregilo SpA
bauð 44 millj-
arða í stíflu og
aðrennslisgöng
Morgunblaðið/RAX
Beðið var með eftirvæntingu opnunar tilboða í Kárahnjúkavirkjun. Giorgio Scaglia, fulltrúi Impregilo, í forgrunni.
!
"#
$
%&
'
(
)
" #
* # "#
!
+,)
- )! .
-
!
#
/0123
4
522163
557173
67163
588153
57/153
4
'
#
'
#
Impregilo/10
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti stokkaði í gær upp í æðsta ráð-
gjafarliði sínu í efnahagsmálum, er
Paul O’Neill fjármálaráðherra og
Larry Lindsey, efnahagsmálaráð-
gjafi forsetans, sögðu af sér að beiðni
Hvíta hússins.
Stjórnmálaráðgjafar Bush hafa
haft vaxandi áhyggjur af því að sam-
dráttur í bandarísku efnahagslífi
gæti spillt fyrir möguleikum hans á
endurkjöri og er afsögn þeirra
O’Neill og Lindseys álitin tengjast
þessum áhyggjum.
Atvinnuleysi í Bandaríkjunum
jókst til muna í nóvembermánuði og
var þá skráð 6%, sem er það mesta í
átta ár, að því er stjórnvöld í Wash-
ington greindu frá í gær.
Ráðgjafar Bush kváðu ekki kenna
O’Neill um þá erfiðleika sem banda-
rískt atvinnulíf á í um þessar mundir,
en þeir hafa lengi gert sér grein fyrir
að uppstokkun í ráðgjafaliði forset-
ans í efnahagsmálum myndi styrkja
trú kjósenda á því að Bush væri að
gera það sem í hans valdi stæði til að
mjaka málum til betri vegar.
O’Neill er fyrsti ráðherrann í rík-
isstjórn Bush sem fer úr henni. Eft-
irmaður hans hefur enn ekki verið
tilnefndur. „Forsetinn ætlar að fá til
liðs við sig menn sem eru sérfræð-
ingar í efnahagsmálum og njóta
trausts fjármálamarkaðanna,“ sagði
Ari Fleischer, talsmaður Hvíta húss-
ins, um þetta.
Bush stokkar upp
Reuters
Bush Bandaríkjaforseti ásamt Paul
O’Neill, fráfarandi fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna.
Washington. AP, AFP.
Hreinskilni/20
Æðstu efnahagsráðgjafar Bandaríkjaforseta segja af sérYFIRVÖLD í rússnesku borg-
inni Volgograd og hundruð
þúsunda fyrrverandi her-
manna er börðust í seinni
heimsstyrjöld hafa sent beiðni
til Vladimírs Pútíns forseta um
að nafni borgarinnar verði
breytt til fyrra horfs, Stal-
íngrad. Frá þessu greinir
breska blaðið The Observer.
Breytingin yrði „í virðing-
arskyni við þær milljónir
manna sem létu lífið í barátt-
unni gegn nasismanum“, sagði
Vladimír Andropov, aðstoðar-
forseti borgarstjórnarinnar í
Volgograd. „Stalíngrad er
heimsþekkt tákn fyrir sigur
mannkynsins á nasistum og við
viljum að hans verði minnst um
alla framtíð, [markmiðið] er
ekki að minnast Stalíns.“
Aftur til
Stalíngrad