Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 61
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 61
AÐ UNDANFÖRNU hafa tveir
þingmenn vinstri grænna, Jón
Bjarnason og Árni Steinar Jó-
hannsson, farið fram á Alþingi og í
fjölmiðlum með dylgjur og óhróður
gegn Aalborg Portland sem nokkur
undanfarin misseri hefur flutt sem-
ent til landsins frá Danmörku. Í
Morgunblaðinu 5. desember halda
þeir áfram brigslyrðum í garð
danska fyrirtækisins. Málflutning-
ur þeirra ber keim forneskju hafta
og forsjárhyggju – pólitísks rétt-
trúnaðar og ríkisforsjár. Stað-
reyndir eru á röngunni.
Því er haldið fram að danska fyr-
irtækið noti alþekktar aðferðir
stórfyrirtækja til þess ýta hinum
smáa af markaði enda hafi evrópsk
risafyrirtæki skipt álfunni á milli
sín þannig að hver fái sitt „heima-
land“. Vondir menn úti í heimi
bruggi launráð gegn Íslandi. Aal-
borg Portland stundi undirboð á Ís-
landi. Þarna eru á ferðinni grímu-
lausir fordómar í garð útlendinga.
Þingmennirnir hafa lagt fram til-
lögu á Alþingi um rannsókn á hend-
ur danska félaginu. Allt er þetta
með ólíkindum. Undanfarinn ára-
tug hefur markvisst verið dregið úr
forsjá stjórnmálamanna á atvinnu-
lífinu. Þeir félagar Jón og Árni
Steinar freista þess að snúa klukk-
unni til baka. Nú í byrjun 21. aldar
er lögð fram á hinu háa Alþingi til-
laga sem beint er gegn fyrirtæki úti
í bæ. Þetta er – eins og sagt er –
tóm steypa.
Á sama tíma er málið til umfjöll-
unar hjá samkeppnisyfirvöldum
sem lögum samkvæmt ber að fjalla
um samkeppnismál. Í umsögn til
Alþingis hvetja Samtök atvinnulífs-
ins og Samtök verslunar og þjón-
ustu til þess að málið verið útkljáð
af réttum yfirvöldum, samkeppnis-
yfirvöldum. Undir það skal tekið.
Þingmenn eiga ekki að freista þess
að slá pólitískar keilur í aðdraganda
kosninga.
Hverjar eru staðreyndir málsins?
Aalborg Portland A/S hóf að flytja
sement til Íslands á haustdögum
2000, stofnaði dótturfélag Aalborg
Portland Íslandi hf. – APÍ. Um
svipað leyti lækkaði Sementsverk-
smiðjan á Akranesi verð á sementi
umtalsvert. Samkeppni hélt innreið
sína eftir liðlega 40 ára ríkiseinok-
un. Neytendur njóta góðs af og Aal-
borg Portland Íslandi var vel tekið,
enda reynsla Íslendinga af dönsku
sementi góð. Margar glæsilegustu
byggingar landsins voru reistar
með Álaborgarsementi á fyrri hluta
20. aldar. Hótel Borg, Þjóðmenn-
ingarhúsið, Landsspítalinn, Landa-
kotsspítali, Landakotskirkja, Vífils-
staðir, Landssímahúsið, hús Jóns
Þorlákssonar við Austurstræti þar
sem nú er Kaffi París, verka-
mannabústaðirnir við Hringbraut,
svo fáeinar séu nefndar.
APÍ hefur boðið Íslendingum
sement sem þolir verðsamanburð
við önnur ríki Evrópu. Aalborg
Portland A/S flytur út sement til 70
landa. Félagið hefur ekki ástundað
undirboð, heldur hefur Íslending-
um boðist sement á svipuðu verði
og til dæmis Englendingum, Írum
og Skotum. Á Bretlandseyjum
hvarflar ekki að mönnum að rægja
hið danska fyrirtæki eða agnúast út
í gott verð á sementi, enda engar
ríkissementsverksmiðjur hjá Eng-
ilsöxum. Fremur en að gagnrýna
Aalborg Portland ber að fagna sam-
keppni á íslenskum sementsmark-
aði eftir 40 ára ríkiseinokun.
APÍ bendir á að Sementsverk-
miðjan á Akranesi hafi kært félagið
til Samkeppnisstofnunar vegna
meintra undirboða á innfluttu sem-
enti. Samkeppnisyfirvöld sáu ekki
ástæðu til þess að grípa til aðgerða
í úrskurði í maí 2002. Í úrskurð-
inum felst, að Samkeppnisráð taldi
að verðlagning APÍ á sementi hafi
ekki verið í andstöðu við ákvæði og
tilgang samkeppnislaga. Úrskurð-
urinn var staðfestur af áfrýjunar-
nefnd samkeppnismála.
Sementsverksmiðjan kærði í árs-
lok 2001 Aalborg Portland A/S í
Danmörku til Eftirlitsstofnunar
EFTA – ESA vegna meintra und-
irboða. Aalborg Portland A/S skil-
aði greinargerð til ESA í janúar
2002. Þar er málið enn til umfjöll-
unar. APÍ hvetur íslensk stjórnvöld
til þess að óska flýtimeðferðar
stofnunarinnar, því það er ólíðandi
að sitja stöðugt undir ásökunum og
dylgjum alþingismanna og fyrir-
tækis í eigu íslenska ríkisins. Það er
dapurlegur vitnisburður og lýsir
málefnafátækt. Afleiðingar verð-
lækkunar Sementsverksmiðjunnar
má sjá í ársreikningi árið 2001. Þá
var um 230 milljóna króna halli og
forsvarsmenn hafa boðað mikinn
hallarekstur 2002. Getur verið að
Sementsverksmiðjan standist ekki
heilbrigða samkeppni?
Það vekur athygli að Sements-
verksmiðjan (SV) keypti á dögun-
um stóran hlut í Einingaverksmiðj-
unni hf. sem fram til þess tíma var í
viðskiptum við Aalborg Portland
Íslandi. Það þarf ekki að taka fram
að sementsviðskipti Einingaverk-
smiðjunnar hafa verið færð yfir til
SV á Akranesi. APÍ telur að kaup-
verð sé um 200 milljónir króna og
að gjaldmiðillinn til seljanda sé að
mestu leyti sement. Samanlögð
velta SV og Einingaverksmiðjunn-
ar fer langt yfir 1 milljarð króna
sem er viðmiðunarmark samkeppn-
islaga um tilkynningarskyld við-
skipti með hlutabréf félaga í öðrum
félögum í sömu atvinnugrein og
samruna félaga. Þessi gjörningur
orkar tvímælis með tilliti til við-
skiptasiðferðis og ákvæða sam-
keppnislaga. Veit ríkisstjórn Ís-
lands að verið er að fjárfesta í
fyrirtækjum sem framleiða steypu-
vörur úti í bæ fyrir almannafé?
Tóm steypa
á Alþingi
Eftir Bjarna Óskar
Halldórsson
„Veit ríkis-
stjórn Ís-
lands að ver-
ið er að
fjárfesta í
fyrirtækjum sem fram-
leiða steypuvörur úti í
bæ fyrir almannafé?“
Höfundur er framkvæmdastjóri
Aalborg Portland Íslandi.