Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 50
MESSUR Á MORGUN 50 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ F yrir u.þ.b. átta árum mynduðu ungar kon- ur í Sjálfstæðis- flokknum hóp sem þær kölluðu Sjálf- stæðar konur. Konurnar komu fram með ný sjónarmið í jafnrétt- ismálum og gagnrýndu jafnframt sjónarmið þeirra sem þá voru mest áberandi í umræðu um jafn- réttismál. Sjálfstæðar konur lögðu áherslu á að konur væru ein- staklingar og þær ættu að ná ár- angri í stjórnmálum vegna þess að þær væru frambærilegir einstaklingar en ekki vegna þess að þær væru konur. Síðla árs 1994 stóðu Sjálfstæðar konur fyrir fundaherferð um allt land til að kynna hugmyndafræði sína. Ásdís Halla Bragadóttir, sem þá var framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið af þessu til- efni. „Meginhvatinn að því að við vilj- um vekja athygli á nýjum hug- myndum um jafnréttisbaráttu og stöðu kvenna, er að það hefur allt- of lítill árangur náðst í þessum efn- um,“ segir Ásdís Halla. „Sjálf- stæðar konur telja að það sé vegna þess að rangar aðferðir hafi verið notaðar. Vinstrisinnaðar áherzlur hafa verið ríkjandi og konur skil- greindar út frá hópum, fremur en litið sé á þær sem sjálfstæða ein- staklinga. Það er hins vegar nauð- synlegt til að ná fram raunveru- legu jafnrétti. Það er okkar sannfæring að með því að færa kvennapólitíkina til hægri, í átt að frelsinu, náum við þeim varanlegu lausnum sem þarf, í stað þeirra skammtímalausna sem einkennt hafa kvennabaráttu undanfarinna ára.“ Það er áhugavert að velta fyrir sér hvort þessar nýju áherslur Sjálfstæðra kvenna hafa breytt einhverju og hvort að átta ára bar- átta þeirra hafi skilað einhverjum árangri. Það er að sjálfsögðu erfitt að meta árangur af hugmynda- fræðilegri baráttu. Nýafstaðið prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík bendir hins vegar ekki til þess að konur innan flokksins hafi verið að ná miklum árangri með nýjum baráttuaðferðum. Sem kunnugt er varð niðurstaða próf- kjörsins sú að konur annaðhvort stóðu í stað eða færðust neðar á framboðslistann. Viðbrögð við þessum úrslitum hafa verið með ýmsum hætti. Sumir, jafnt karlar sem konur, hafa lagt áherslu á að það sé úrelt að horfa á kynjaskiptingu. Þarna hafi einstaklingar verið að keppa um hylli kjósenda. Keppnin hafi ekki staðið milli karla og kvenna. Hvernig á hins vegar að skýra útkomu kvennanna sem tóku þátt í prófkjörinu? Ef við gefum okkur að einstaklingar hafi verið að keppa og bæði kynin hafi átt jafna möguleika væri eðlilegast að skýra þetta með því að segja að kon- urnar hafi ekki verið nægilega frambærilegar. Ef þessi skýring er ekki rétt og það eru einhverjar tæknilegar skýringar á slakri út- komu kvenna hlýtur um leið að vera komin ástæða til að styrkja stöðu kvenna á framboðslistanum. Ef það er enn svo að kynferðið hamlar framgangi kvenna í stjórn- málum hlýtur að þurfa að taka á því með einhverjum hætti, þó ekki væri nema af þeirri ástæðu einni að hætt er við að konur kjósi síður lista sem er fyrst og fremst skip- aður körlum. Þrátt fyrir að kjósendur í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins ættu ekki að kjósa konur á framboðs- listann vegna þess að þær eru kon- ur töldu margir nauðsynlegt að kjósa unga karla á listann, að nokkru leyti vegna þess að þeir eru ungir. Það voru ekki margir sem viðruðu þá skoðun sína fyrir prófkjörið að þörf væri á því að fjölga konum í þingflokknum, en margir töldu hins vegar brýnt að ungu fólki í þingliðinu yrði fjölgað. Enginn virtist telja það niðurlægj- andi fyrir ungu mennina að þeir væru kosnir að nokkru leyti vegna þess að þeir eru ungir. Þó að flestir geti verið sammála um að við val á framboðslista eigi flokkarnir fyrst og fremst að leit- ast við að velja frambærilegustu einstaklingana þá vita allir að það er margt annað sem ræður vali. Að þessu sinni virðist búseta fram- bjóðenda hafa skipt afar miklu máli. Raunar virðast þessi bú- seturök jafnvel hafa ráðið örlögum sumra frambjóðenda miklu frekar en hæfileikar viðkomandi. Þetta á reyndar ekki við um Reykjavík- urkjördæmin. Einnig virðist aldur frambjóð- enda hafa skipt talsverðu máli. Krafan um endurnýjun virðist hafa leitt til þess að ungir fram- bjóðendur hafi að nokkru leyti staðið betur að vígi en þeir sem eldri voru. Þetta sést bæði í próf- kjörum Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar. Fáir virðast hafa áhyggjur af því að of fátt eldra fólk sitji á Al- þingi. Nú eru fimm þingmenn eldri en sextugir á Alþingi og tveir af þeim eru að hætta þingmennsku. Af þeim 63 þingmönnum sem sitja á Alþingi í dag eru 86% á aldrinum 40–60 ára. Í stærstu og öflugustu ríkjum heims, eins og Bandaríkj- unum og Kína, er talið sjálfsagt mál að velja menn sem komnir eru á sjötugs- og áttræðisaldur til for- ystu, en hér á landi virðist almennt litið svo á að svo gamalt fólk hafi ekkert til þjóðmálanna að leggja. Raunar er krafan um endurnýjun í stjórnmálum svo sterk hér á landi, að fólk sem setið hefur á þingi í tvö kjörtímabil er talið „gamalt og þreytt“. Það er því kannski ekki furða þótt sumir telji það þarfa- verk að ýta burt þingkonum á miðjum aldri, sem setið hafa á Al- þingi í tvö eða þrjú kjörtímabil. Það vantar jú unga menn til starfa með „nýjar hugmyndir“. Ungir menn og gamlar konur Þrátt fyrir að kjósendur í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins ættu ekki að kjósa konur á framboðslistann vegna þess að þær eru konur töldu margir nauðsynlegt að kjósa unga karla á listann, að nokkru leyti vegna þess að þeir eru ungir. VIÐHORF Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Áskirkju syngur. Organisti Kári Þormar. Árni Bergur Sig- urbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11. Hljómsveit ungmenna undir stjórn Guð- mundar Sigurðssonar. Foreldrar hvattir til þátttöku með börnum sínum. Guðsþjón- usta kl. 14. Organisti Guðmundur Sigurðs- son sem stjórnar Kór Bústaðakirkju. Prest- ur sr. María Ágústsdóttir. Aðventutónleikar Kórs Átthagafélags Strandamanna kl. 16.30. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur. Marteinn H. Friðriksson leikur á orgel. Helgistund fermingarbarna kl. 17. Að- ventukvöld Kiwanis kl. 20. GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Sex ár liðin frá vígslu kirkjunnar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Tónleikar Kirkjukórs Grensáskirkju kl. 20. Sr. Ólafur Jóhannsson. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs- þjónusta kl. 10.15. Sr. Kjartan Örn Sig- urbjörnsson. Organisti Kjartan Ólafsson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Páls- syni. Karlakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti Hörður Áskelsson. Umsjón barnastarfs Magnea Sverrisdóttir. Tónleikar kl. 20 með norska drengjakórnum Sölvguttene. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðrún H. Harðardóttir og sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Organisti Douglas A. Brotchie. Messa kl. 14. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga Soffía Konráðs- dóttir. LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS: Hringbraut: 3. hæð: Guðsþjónusta kl. 10.30. Prestur Ingileif Malmberg. Org- anisti Stefán Kristinsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Messa og barnastarf kl. 11. Prestur Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Org- anisti Ólafur W Finnsson. Félagar úr Kór Langholtskirkju leiða söng. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan er farið í safn- aðarheimilið. Kaffisopi eftir messuna. Listaflétta laugardaginn 7. des. kl. 17. „Krakkarnir úr hverfinu“ – Bubbi Morthens, Kristinn Sigmundsson, Einar Már Guð- mundsson, Steinunn Sigurðardóttir, Tolli og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Fjallalamb, Ömmubakstur og Ölgerðin kynna góðgerð- ir í safnaðarheimilinu eftir dagskrána í kirkjunni. Aðgöngumiðar við innganginn. LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjarts- son prófastur vígir hið nýja orgel Laug- arneskirkju og prédikar. Með honum þjóna sr. Bjarni Karlsson og Sigurbjörn Þorkels- son meðhjálpari. Kór Laugarneskirkju syngur undir stjórn Gunnars Gunn- arssonar. Laufey Geirlaugsdóttir syngur einsöng og fullrúar lesarahóps flytja texta. Sunnudagaskólinn er í höndum Hildar Eir- ar, Heimis og Þorvaldar. Að athöfn lokinni býður sóknarnefnd upp á kaffiveitingar í safnaðarheimilinu. Orgeltónleikar kl. 16. Gunnar Gunnarsson leikur á orgelið og Sig- urður Flosason leikur á saxófón. Aðgangur ókeypis. Kvöldmessa kl. 20.30. Djass- kvartett Gunnars Gunnarssonar leikur. Kór Laugarneskirkju syngur. Þorvaldur Hall- dórsson syngur einsöng. Prestshjónin Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir þjóna, ásamt Sigurbirni Þorkelssyni með- hjálpara. Að messu lokinni er boðið til fyr- irbæna við altarið en messukaffið bíður svo allra í safnaðarheimilinu í umsjá Sig- ríðar Finnbogadóttur kirkjuvarðar. NESKIRKJA: Messa kl. 11. Tónlistaratriði frá nemendum Do-Re-Mi. Kór Neskirkju syngur. Organisti Reynir Jónasson. Prestur sr. Frank M. Halldórsson. Sunnudagaskól- inn og 8 og 9 ára starf á sama tíma. SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngur falleg jólalög. Organisti Viera Man- asek. Prestur sr. María Ágústsdóttir. Sunnudagaskólinn á sama tíma. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Aðventukvöld kl. 20.30. Endurkomukvöld. Kaffi og smakk- að á smákökunum. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barna- og fjöl- skyldusamvera kl. 11 í Fríkirkjunni og í lok hennar verður fuglunum við Tjörnina gefið brauð samkvæmt fríkirkjuvenju. Kl. 20.30: Aðventukvöld Fríkirkjunnar í Reykjavík. Kór Fríkirkjunnar verður með fjölbreytta tónlist- ardagskrá, jafnt hefðbundna sem óhefð- bundna tónlist og verður það allt undir stjórn Carls Möller og Önnu Sigríðar Helga- dóttur. Undirleik annast kvartett Carls Möller. Meðal tónlistarflytjenda eru Andrea Gylfadóttir og Skagfirska söngsveitin. Ræðumaður kvöldsins er Gunnar Eyjólfs- son leikari. Allir velkomnir. Safnaðarstarf Fríkirkjunnar, sr. Hjörtur Magni Jóhanns- son. ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Börn verða borin til skírnar. Prestar og sunnudagskólakennarar sjá um helgihaldið sem samanstendur af miklum söng, sögum og leik. Brúðurnar góðu líta inn. Kaffi, djús og kex í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni. Aðventukvöld kl. 20. Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum. Hátíð- arræðu flytur Eva María Jónsdóttir dag- skrárgerðarkona. Joseph Ognibene leikur á franskt horn. Kirkjukórinn og Gospelkór- inn syngja undir stjórn Kirsztinu Kalló Szklenár organista. Fermingarbörn sýna helgileik. Heitt kakó og smákökur í safn- aðarheimilinu. Prestarnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. (Ath. breyttan messutíma). Gerðubergskórinn syngur. Þátttakendur úr félagsstarfinu í Gerðu- bergi flytja ritningarlestra og bæn. Að messu lokinni verður kaffisala til styrktar starfi æskulýðshóps Breiðholtskirkju og KFUM & K. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Annar sunnudagur í aðventu (8. des). Sunnudagaskóli kl. 11. Aðventuhátíð um kvöldið. Camerartica sér um tónlistarflutning kvöldsins. Málefni: Ragna Marinósdóttir, formaður Umhyggju, kynnir félagið. Stjórnun og undirbúningur er í höndum sóknarnefndar Digra- neskirkju. Aðventuhátíðin hefst kl. 20.30. (Sjá nánar: www.digraneskirkja). FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11 í kirkjunni undir stjórn Elínar El- ísabetar Jóhannsdóttur. Guðsþjónusta Kl. 14 þar sem tónlistin verður í fyrirrúmi. Prestur: Sr. Hreinn Hjartarson. Djákni: Lilja G. Hallgrímsdóttir. Organisti: Lenka Mát- éová. Kór kirkjunnar syngur. Einsöngvari Ólafía Línberg Jensdóttir. Inger Hallsdóttir og Kristján Baldvinsson lesa ritning- arlestra. Veitingar í safnaðarheimilinu eftir guðsþjónustu. GRAFARVOGSKIRKJA: Annar sunnudagur í aðventu. Sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason. Umsjón: Bryndís og Signý. Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson. Sunnudagaskóli kl. 13 í Engjaskóla. Sr. Bjarni Þór Bjarnason. Umsjón: Bryndís og Signý. Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson. Útvarpsguðsþjónusta kl. 11. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur ásamt Barna- og unglingakór kirkjunnar. Stjórnandi: Oddný J. Þorsteinsdóttir. Einsöngur: Kristín María Hreinsdóttir og Arnþrúður Ösp Karlsdóttir. Fiðla: Hjörleifur Valsson. Organisti: Hörður Bragason. HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Gísli Jónasson prófastur setur sr. Sigfús Krist- jánsson í embætti prests við kirkjuna og þjóna báðir í messunni ásamt sr. Írisi Kristjánsdóttur. Kór kirkjunnar syngur og leiðir safnaðarsöng. María Guðmunds- dóttir syngur einsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13. Aðventutónleikar Kórs Hjallakirkju kl. 20. Kórinn syngur aðventu- og jólalög frá ýms- um löndum og tímum. Sigrún Hjálmtýs- dóttir syngur einsöng og Lenka Mátéová leikur undir á orgel. Söngstjóri Jón Ólafur Sigurðsson. Við minnum á bæna- og kyrrð- arstund á þriðjudag kl. 18 og Opið hús á miðvikudag kl. 12. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn- aðarheimilinu Borgum kl. 11. Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Nemendur úr fjórða bekk Kársnesskóla syngja undir stjórn Þór- unnar Björnsdóttur kórstjóra og flytja helgi- leikinn Hljóðu jólaklukkurnar. Undirleik annast Guðrún Mist Sigfúsdóttir og Stein- unn Aradóttir sem leika á fiðlur, Örn Ýmir Arason sem leikur á kontrabassa og Þor- kell Helgi Sigfússon sem leikur á selló. Kópamessa kl. 20. Félagar úr kór Kópa- vogskirkju leiða söng, fermingarbörn lesa ritningarlestra og leiða bænir. Kvennakór Reykjavíkur kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur kór- stjóra. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. LINDAKIRKJA í Kópavogi: Fjölskylduguðs- þjónusta í Lindaskóla kl. 11 fyrir alla ald- urshópa. Skátar afhenda friðarljós frá landinu helga. Allir velkomnir. Sr. Guð- mundur Karl Brynjarsson. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. „Við kveikjum tveimur kertum á“. Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar. Organisti: Pavel Manásek. Ung- lingakór Hallgrímskirkju syngur. Aðventu- söngvar kl. 20. Fjölbreytt aðventudagskrá. Seljukór kvenfélagsins og Kór Landsvirkj- unar syngja. SAFNKIRKJAN í Árbæ: Aðventumessa sunnudag kl. 14. Organisti Ingimar Páls- son. Tilvalið tækifæri að leyfa börnunum að upplifa einfalt helgihald í gamalli torf- kirkju. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguðs- þjónusta kl.11. „Dagur í kirkjunni“. Fræðsla fyrir börn og fullorðna. Friðrik Schram kennir. Síðan verður seld pitsa og gos og við eyðum deginum saman við föndur og samfélag. Fólk taki með sér lím og skæri. Samkoma kl. 20. Þar verður mik- il lofgjörð, fyrirbænir og vitnisburðir um það sem Drottinn er að gera í lífi fólks. Heimasíða kirkjunnar er: www.kristur.is FRÍKIRKJAN VEGURINN: Aðventuhátíð kl. 16.30. Mikið um að vera. Trúðar, tónlist í höndum yngri kynslóðarinnar, brúðuleik- hús, kakó og piparkökur. Allir velkomnir. FÍLADELFÍA: Laugardagur 7. desember. Bænastund kl. 20. Kristnir í bata kl. 21. Sunnudagur 8. desember. Almenn sam- koma kl. 16.30. Ræðumaður Vörður L. Traustason. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu sér um lofgjörðina. Barnastarf fyrir 1 til 12 ára meðan á samkomu stendur. Allir hjart- anlega velkomnir. Mömmumorgnar alla föstudagsmorgna kl. 10–12. Allar mæður hjartanlega velkomnar. Unglingasamkoma föstudagskvöld kl. 20.30. Allir unglingar hjartanlega velkomnir. Guðspjall dagsins: Teikn á sólu og tungli. 2. sunnudagur í jólaföstu. (Lúk. 21 ). Morgunblaðið/RAX Hólar í Hjaltadal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.