Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 10
IMPREGILO SpA-verktakinn, sem bauð lægst í Kárahnjúkavirkjun, byggir á aldagamalli reynslu í mannvirkjagerð og hefur komið að byggingu um 160 vatnsaflsvirkjana víða um heim. Hjá Impregilo og dótturfyrirtækjum starfa ríflega 20 þúsund manns og fyrirtækið veltir um 175 milljörðum króna á ári. Móðurfyrirtækið starfar í 50 lönd- um og á um 600 dótturfyrirtæki. Eigendur eru fjölmargir, m.a. þekkt fyrirtæki eins og Fiat og Banco di Roma, en um 75% hlutabréfanna eru á almennum markaði á Ítalíu. Impregilo er stærsta verktakafyr- irtæki Ítalíu og taldist fyrir tveimur árum meðal 20 stærstu slíkra fyr- irtækja í Evrópu í tekjum talið. Forverar Impregilo eru verk- takafyrirtækin Lodigiani og Girola, sem sameinuðust árið 1906, og Impresit, sem stofnað var 1929, þar sem meðal stærstu eigenda voru Fiat-verksmiðjurnar. Árið 1960 sameinuðust þessi fyrirtæki í Impr- egilo þar sem nafnið samanstóð af Impre- úr Impresit, -gi frá Girola og -lo frá Lodigiani. Önnur sameining varð svo árið 1990 þegar Impregilo og Cogefar-Impresit sameinuðust. Byggðu Mont Blanc-göngin Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í nágrenni Mílanó. Það er talið meðal hinna reyndustu á sínu sviði í Evr- ópu og hefur komið að byggingu virkjana í flestum heimsálfum, jafnt í Asíu, Afríku og S-Ameríku sem Evrópu. Impregilo hefur í auknum mæli tekið að sér verkefni utan Ítal- íu og þannig var hlutfall verkefna utan heimalandsins um 60% árið 1998. Meðal verkefna fyrirtækisins á seinni árum má nefna Mont Blanc- jarðgöngin og stíflugerð, bæði eitt og sér eða með öðrum verktökum, í löndum eins og Argentínu, Ghana, Kína, Indlandi, Pakistan, Nígeríu, Hondúras, Venesúela og Íran. Verktaki sem byggir á aldargam- alli reynslu FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍTALSKA fyrirtækið Impregilo SpA átti lægsta tilboð í bæði stíflu og aðrennslisgöng Kárahnjúka- virkjunar, þegar tilboð voru opnuð í stjórnstöð Landsvirkjunar við Bústaðaveg í gær. Fyrirtækið bauð alls rúmar 44 milljarða króna í verkin, þar af fyrir 19,6 milljarða í stífluna. Kostnaðaráætlun Lands- virkjunar fyrir allt verkið hljóðaði upp á tæpa 50 milljarða króna. Þá bauð ítalska fyrirtækið 3% afslátt af heildarupphæðinni ef það fær bæði verkin sem boðin voru út. Nemur afslátturinn 1,3 milljörðum króna. Tilboð barst frá tveimur öðrum fyrirtækjasamsteypum í Kára- hnjúkastífluna. Tilboð ítalska fyr- irtækisins var 82,4% af kostnaðar- áætlun. Sameiginlegt tilboð frá Ístaki hf. og danska fyrirtækinu E. Pihl & Søn AS hljóðaði upp á 27 milljarða króna sem er 13,3% yf- irkostnaðaráætlun. Tilboð frá Eurohydro JV, en að því standa Hochtief Construction AG frá Þýskalandi og Íslenskir aðalverk- takar, hljóðaði upp á 34,4 milljarða króna, sem er 44,9% yfir kostn- aðaráætlun. Hæsta boð 77% yfir áætlun Kostnaðaráætlun Landsvirkjun- ar vegna aðrennslisganga Kára- hnjúkavirkjunar var 26,2 milljarð- ar króna. Lægsta tilboð Impregilo var upp á 24,5 milljarða, sem er 93,9% af kostnaðaráætlun, tilboð Eurohydro var upp á 36,1 milljarð sem er 38,1% yfir kostnaðaráætlun og tilboð Balfour Beatty Group Ltd., en að því stóðu einnig Ístak og E. Pihl & Søn AS, var upp á 46,3 milljarða eða 77,1% yfir kostnaðaráætlun. Flestir bjóðenda buðu frávikstil- boð og afslætti. Tilboðin verða nú yfirfarin af Landsvirkjun og ráð- gjöfum þess. Eftir að tilboð höfðu verið opnuð var upplýst hverjir að- stoðuðu Landsvirkjun við kostn- aðaráætlunina. Var það félagið Karahnjukar Consulting JV, sem er í eigu íslenskra og erlendra verkfræðistofa og ráðgjafa. Verk- fræðistofa Sigurðar Thoroddsen fer þar fremst í flokki íslenskra aðila. Framkvæmdirnar sem um ræðir eru meginstíflan, nefnd Kára- hnjúkastífla, sem á að vera 190 metrar á hæð og 730 metra löng. Fyllingarefnið í stífluna er áætlað 8.400 rúmmetrar. Aðrennslisgöng- in eru frá Hálslóni, alls nærri 40 kílómetra löng og um 7 metrar í þvermál. Tilboð Ítalanna í ferðatöskum Fjölmennt var við opnun tilboð- anna í gær, sem tók lengri tíma en ætlað var, eða upp undir tvær klukkustundir, enda er útboðið hið stærsta sem fram hefur farið hér á landi. Tilboðsgögn voru fyrirferð- armikil og vakti umbúnaður þeirra frá Impregilo nokkra athygli og kátínu viðstaddra. Mættu fulltrúar fyrirtækisins með gögnin í þremur gömlum og grænum ferðatöskum. Útboð opnuð á stíflu og aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar Impregilo átti lægstu tilboðin í bæði verkin Morgunblaðið/RAX Fjölmenni var við opnun tilboðanna í stjórnstöð Landsvirkjunar en hér á fremsta borði eru Páll Sigurjónsson og menn hans frá Ístaki, sem var meðal bjóðenda í verkin tvö. Landsvirkjunarmenn, Friðrik Sophusson forstjóri, Örn Marinósson skrif- stofustjóri og Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi, fylgdust með. VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, segir að niðurstaða útboðsins á Kárahnjúkavirkjun sé ákveðinn léttir. Ávallt sé óvissa um niðurstöðu útboða, hún hafi í þessu til- felli t.d. getað verið sú að allir verktakar hefðu verið langt yfir kostnaðaráætlun. Ljóst sé að Impregilo sé stórt alþjóðlegt fyrirtæki með mikla reynslu í virkjanaframkvæmdum. Valgerður segir að nú hafi enn eitt jákvæða skrefið verið stigið í þá átt að Kárahnjúkavirkj- un rísi, annað slíkt skref hafi verið stigið daginn áður er vígsla fór fram á Kárahnjúkavegi og brúnni yfir Jöklu. Hún minnir á að eftir eigi að fara yfir tilboðin hjá Landsvirkjun og vissara sé að bíða með frekari yfirlýsingar. Niðurstaða útboðsins eigi þó að geta haft jákvæð áhrif á þær viðræður sem fram fari nú vegna fyrirhugaðs álvers Alcoa í Reyðarfirði. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að nú verði ásamt ráðgjöfum fyrirtækisins lagst yfir tölurnar í tilboðunum. Það muni taka sinn tíma, jafnvel 2-3 vikur, þar sem um flókið verkefni sé að ræða. Um leið þurfi að skoða aðra þætti málsins áður en endanleg ákvörðun verði tekin, eins og raforkuverð til álversins og fleira því tengt. „Miðað við það sem á undan hefur gengið og brottfall fyrirtækja sem við höfum talsvert traust lagt á í gegnum tíðina, þá tel ég það bæri- lega útkomu að hafa fengið þrjú tilboð. Það hefði að vísu verið heppilegra að hafa sænsku fyr- irtækin með, ekki síst vegna þess að þau þekkja íslenskar aðstæður mjög vel,“ sagði Friðrik. Ístak var þátttakandi í tilboðum í bæði stíflu og aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar. Páll Sigurjónsson, forstjóri Ístaks, sagðist ekkert vera vonsvikinn þótt tilboð Ístaks hefði verið mun hærra en ítalska fyrirtækisins. „Þetta eru bara leikreglur í tilboðsgerð, stundum fær maður verk og stundum ekki. Það er mjög eðlilegt að mikil dreifing eigi sér stað í tilboðum í svona stórt verk. Ég vil bara segja að það er mjög ánægjulegt fyrir þjóðina og Lands- virkjun að hafi fengið svona góð tilboð, þannig að þessi virkjun geti orðið að veruleika,“ sagði Páll og taldi líklegt að Landsvirkjun tæki tilboði ítalska fyrirtækisins, enda væri það mun lægra en önnur sem bárust í verkið. „Við hefðum gjarnan viljað fá þessi verk, en það voru aðrir sem buðu betur,“ segir Stefán Friðfinnson, forstjóri Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) um tilboðin í Kárahnjúkastíflu og að- rennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar sem opnuð voru hjá Landsvirkjun í gær. Tilboð Eurohydro JV, sem ÍAV stendur að ásamt þýska fyrirtæk- inu Construction AG, nam um 70 milljörðum í bæði verkin en Impregilo bauð samtals 44,1 milljarð. „Okkur finnst þetta tilboð afskaplega lágt og við gætum ekki mætt því. Hinsvegar er þetta mikið alvörufyrirtæki. Þetta eru auðvitað afskaplega ánægjulegar fréttir fyrir Lands- virkjun, því við áttum ekki von á að það kæmi til- boð á þessu verðlagi.“ Impregilo naut aðstoðar Keflavíkurverktaka við undirbúning ákveðinna þátta í tilboðsgerð- inni vegna Kárahnjúkavirkjunar. Kári Arn- grímsson, yfirverkfræðingur hjá Keflavíkur- verktökum, sagði að ekki væri um formlegt samstarf að ræða og fyrirtækið ætti ekki aðild að tilboðunum. Ítalirnir hefðu aðallega verið að- stoðaðir við upplýsingagjöf margskonar, m.a. um reglugerðir, vinnulöggjöf og starfsumhverf- ið almennt. „Við höfum verið þeirra augu og eyru hér á landi,“ sagði Kári. „Það er ekki hægt annað en að hafa einhverja íslenska aðila til aðstoðar í svona stórum verk- um. Við höfum ekki verið í stíflugerð og jarð- gangagerð en það er aldrei að vita nema við vinnum eitthvað meira með þeim. Og áreiðan- lega eru fleiri íslenskir verktakar en við sem hafa áhuga á því,“ sagði Kári en að hans sögn fékk ítalska fyrirtækið einnig aðstoð frá Suð- urverki. Hann taldi ekki útilokað að Impregilo myndi bjóða í fleiri verkþætti virkjunarinnar, útboð á stöðvarhúsinu og fleiri stíflum og jarð- göngum væru t.d. eftir. Verktaki sem kominn væri af stað í verkefninu nyti hagræðis af því. Fulltrúar Impregilo hefðu sagt sér að fyrirtæk- ið stefndi að því að hafa starfsmenn sem flesta innlenda. Þeir hefðu hrifist að aðstæðum hér, vinnuumhverfi og verksalanum, Landsvirkjun. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist vera ánægð með niðurstöðu útboðsins Niðurstaðan ákveðinn léttir Morgunblaðið/RAX Giorgio Scaglia, fulltrúi Impregilo, ráðfærir sig við sérfræðinga Landsvirkjunar. FULLTRÚI Impregilo við opnun tilboð- anna, Giorgio Scaglia, sagði að athöfn lok- inni við Morgunblaðið að niðurstaðan hefði í raun ekki komið sér á óvart, mikil vinna hefði legið að baki tilboðsgerðinni og allt verið gert til að leggja fram tilboð sem yrði sem næst áætlun Landsvirkjunar. Hann sagði Kárahnjúkavirkjun sniðna fyrir fyr- irtækið, ekki síst þar sem það væri að ljúka við svipað verkefni í S-Afríku um þessar mundir, bæði hvað varðar stærð stíflunnar, hönnun virkjunarinnar og umhverfi. „Við höfum bæði mannafla og tæki tilbú- in í þetta verkefni hér á Íslandi, um leið og ákveðið verður að taka okkar tilboði,“ sagði Scaglia. Aðspurður hvort fleiri fyr- irtæki en Impregilo stæðu að baki tilboðinu sagði Scaglia svo ekki vera í dag, hvað sem síðar yrði. Ef Landsvirkjun myndi ganga að tilboðinu myndi Impreglio verða sér úti um íslenskan samstarfsaðila. Hann sagðist reikna með að vinnuafl yrði bæði innlent og erlent, þó yrðu Ítalir allsráðandi við gerð aðrennslisganganna. Scaglia sagðist að endingu vera bjartsýnn á að fyrirtækið fengi verkið. Erum bjartsýnir á að fá verkið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.