Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 54
MINNINGAR 54 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Valtýr Þór Val-týsson fæddist í Hergilsey í Vest- mannaeyjum 25. maí 1955. Hann lést í Vestmannaeyjum 1. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Valtýr Snæ- björnsson, f. 24. apr- íl 1923, d. 10. febr- úar 1998, og Erla J. E. Gísladóttir, f. 26. október 1927. Systk- ini Þórs eru: 1) Gísli, f. 27. febrúar 1946, 2) Friðbjörn Ólafur, f. 20. febrúar 1950, 3) Snæbjörn Guðni, f. 31. ágúst 1958, 4) Kol- brún Eva, f. 23. maí 1960. Þór kvæntist 23. júlí 1983 Ing- unni Lísu Jóhannesdóttur, f. 9. október 1961. Hún er dóttir Jó- hannesar Tómassonar, f. 13. mars 1921, og Guðfinnu Stefáns- dóttur, f. 8. júní 1923. Þór og Ingunn eignuðust þrjú börn. Þau eru: Valur, f. 21. maí 1983, Erna, f. 9. febrúar 1990, og Aron, f. 26. mars 1996. Þór ólst upp í Vestmannaeyjum og að loknu gagn- fræðaprófi lá leiðin í iðnskólann þar sem hann nam húsa- smíði. Hann vann síðan mörg ár við iðn sína eða allt til ársins 1993 er hann tók við starfi versl- unarstjóra í bygg- ingavöruverslun KÁ, sem hann síðar keypti í félagi við mág sinn. Þór var virkur í íþróttastarfi, framan af sem leikmaður með Þór og ÍBV í handbolta og síðar sinnti hann ýmsum störfum fyrir íþróttahreyfinguna í Vestmanna- eyjum og einnig innan HSÍ. Útför Þórs fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi. Núna ertu farinn, en ég hef ekki ennþá áttað mig á því. Ég skil þetta ekki. Af hverju þú? Besti pabbinn í heiminum! Maðurinn sem sá fyrir öllu, alltaf svo duglegur heima fyrir og í vinnunni. Hvað eigum við að gera? Ég á ávallt eftir að elska þig og gleymi þér aldrei. Ég hugga mig við að eftir 90 ár eða svo verðum við öll komin saman á ný. Ég elska þig. Þín dóttir Erna. Mikill harmur er kveðinn að fjöl- skyldu Þórs vegna ótímabærs fráfalls hans. Þór var drengur góður, mikil til- finningavera og sem barn var hann einstaklega viðkvæmur fyrir órétt- læti heimsins. Með árunum tókst hon- um ágætlega að fela sína viðkvæmu sál og mynda um sig skráp eins og títt er um tilfinningafólk. Við sem best þekkjum, sáum þó við honum og viss- um mæta vel hvað undir bjó. Yngri systkini hans Kolbrún og Guðni muna vel þegar mamma var að lesa söguna um Hans og Grétu fyrir svefninn. Iðulega varð að stöðva lest- urinn vegna þess hve Þór grét mikið yfir örlögum systkinanna. Þórspúkinn, eins og pabbi kallaði hann alltaf, var mikill kappsmaður, líkastur föður sínum í mörgu tilliti. Snyrtimenni fram í fingurgóma og mjög skipulagður. Bernskubrekin voru af ýmsu tagi, öll hans brek eiga það þó sameigin- legt að í dag eru það einungis ljúfar minningar og jafnvel aðhlátursefni. Tónlistaráhuginn var strax áber- andi í lífi Þórs, Bibbi bróðir spilaði Rolling Stones daginn út og daginn inn, Þór smitaðist af dellunni og kunni Stones lögin utanað. Snemma gerðist hann rótari hjá hljómsveitinni Logum og ferðaðist með þeim um allar trissur bæði inn- anlands og utan. Draumurinn var allt- af að læra á hljóðfæri, einhvern veg- inn varð bið á því, en núna fyrir stuttu hóf hann gítarnám, og hafði náð nokk- urri færni í gítarspili. Það var okkur tilhlökkunarefni að njóta samveru hans í góðum hópi nú fyrir jólin. Þór var ákveðinn í að hafa gítarinn með í för. Þór var einstakur fjölskyldumaður, ræktaði sína eigin fjölskyldu af mikl- um myndarskap svo til fyrirmyndar er. Við systkini hans og fjölskyldur okkar nutum góðs af framtakssemi hans í þeim efnum. Segja má að hann hafi tekið að sér að hóa saman liðinu þegar honum fannst það tímabært. Hann sá einnig um að koma okkur í kynni við tengdafólk sitt, Fífilgötu- fjölskylduna, mikið sómafólk. Við fjöl- skylda Þórs erum ævinlega þakklát því fólki fyrir hve vel þau tóku á móti bróður okkar frá byrjun. Nánast báru hann á höndum sér alla tíð. „Hvað heitir hún þarna systir þín, sem var að koma frá útlöndum,“ sagði Þór við Tomma bróður, endur fyrir löngu. Tommi sneri sér fruntalega að Þór, fannst hann full gamall fyrir systur sína. Svaraði stuttaralega: „Hún heitir Ingunn.“ Eftir það varð ekki aftur snúið, sambandið dafnaði og óx. Börnin orð- in þrjú, Valur 19 ára, Erna 12 og Aron 6 ára. Það eru grimm örlög þessara barna að sjá nú á eftir elskulegum föður, sem hefir ásamt móðurinni skapað þeim allt það öryggi, sem börn geta á annað borð búið við. Mamma okkar Erla Gísladóttir þarf nú að sjá á bak stóra sterka stráknum sínum, eitt- hvað, sem allir foreldrar óttast mest af öllu. Gæfa Ingunnar og barnanna á þessum erfiðu tímum er að vita af öllu því frábæra fólki, sem að þeim stend- ur. Samtakamáttur stórfjölskyldunn- ar er mikill og saman skulum við vinna úr þeirri sorg, sem skall svo fyr- irvaralaust á við fráfall Þórs bróður. Það húmar að kvöldi, lítil börn að leik. Brosandi andlit, mér hulin, ég þerra burt tárin. Veraldleg gæði fá engu breytt, syngjandi lítil börn. Ég heyri regndropa falla til jarðar, sit, og þerra burt tárin. Það húmar að kvöldi, ég þerra burt tárin. Horfi á börn að leik, held áfram, þar sem frá var horfið. ( Jagger/Richards.) Fjölskyldan Smáragötu 2. Þór var aufúsugestur þegar hann knúði dyra hjá Fífilgötufjölskyldunni er Ingunn mætti á vettvang með hann upp á arminn. Gjörvilegur drengur en nokkrum árum eldri en stelpan. Því gætti smátregðu hjá okkur hinum sem eðlilegt er þegar litla systir og annar tvíburinn á í hlut. En hann var fljótur að yfirvinna fyrirstöðuna og gerðist von bráðar fullgildur meðlim- ur fjölskyldunnar. Hann styrkti hóp- inn, gerði hann skemmtilegri, betri, litríkari. Þór var fullur atorku, greiðvikni, húmors, ákveðni, skipulagni. Og Stones, bestir, flottastir. Dyggari fylginautur þeirrar sveitar er vand- fundinn. Enda fengum við ósjaldan að hlýða á þá á góðum stundum heima hjá Ingunni og Þór, svo undir tók. Sjálfur var hann farinn að daðra við tónlistargyðjuna og plokka gítar- strengi. Kannski ekki orðinn liðtækur í rokksveit allra rokksveita, en hann var farinn að lita gleðistundir okkar með gítartónum. Samband Þórs og Jóhannesar tengdapabba er sérkapítuli. Það var tær tónn í því, hlýja, gagnkvæm virð- ing og vinátta. Þau eru ófá ferðalögin sem þeir ásamt mömmu og Ingunni fóru innanlands og utan. Og ekki eru þeir færri kaffibollarnir sem Jóhann- es sötraði í Húsey í félagsskap Þórs eftir sund. Pabbi, kominn á níræðis- aldur og búinn að sjá á eftir flestum sinna vina fyrir ætternisstapann. Það var engu líkara en að Þór fyllti að ein- hverju leyti upp í tómarúmið sem þeir skildu eftir. Nú hafa hann og mamma misst tengdason og einlægan félaga og vin. Þór var íþróttakappi þar sem hand- boltinn réð ríkjum. Sem smiður var hann afkastamaður og völundur góð- ur. Og þar kippti honum í kyn föð- urins, Valla Snæ. Hann var ráðinn af KÁ til að stofna verslunina Húsey, sem Tómas mágur hans gekk síðar inn í með Þór þegar þeir keyptu versl- unina. Þór nálgaðist reksturinn af sama skörungsskap, skipulagsgáfu og útsjónarsemi og annað sem hann tók sér fyrir hendur. Fyrirtækið blómstraði. Fyrir skömmu gengu þeir til liðs við Húsasmiðjuna með Húsey en áfram með Þór við stjórnvölinn. Var ljóst að það var Þór léttir að fyr- irtækið var orðið hluti af stærri liðs- heild og að hann gat sleppt áhyggjum af ýmsum þeim þáttum sem fylgja rekstri lítils fyrirtækis í ólgusjó harðrar samkeppni nútímans. Hann leit björtum augum á framtíðina. Brotthvarf Þórs var eins og annað sem einkenndi hann. Hann var aldrei að tvínóna við hlutina. Þeir voru af- greiddir. Höggið var þungt, snöggt og óvænt. Í miðjum fótboltatíma á sunnudagsmorgni. Við stöndum eftir vönkuð og skilningsvana. Fjörutíu og sjö ára góður drengur, faðir, eigin- maður, geislandi af lífsorku og lífs- gleði. Hver ræður eiginlega för? Til- finningarnar eru blendnar. Sorg en gleði og þakklæti. Gleði að til skuli drengir eins og Þór og þakklæti að hann skuli hafa verið hluti af okkur. Missir okkar er mikill. Hvað þá þinn, kæra systir og mágkona, kæri Valur, kæra Erna og kæri Aron. En við er- um förunautar ykkar um þennan djúpa dal og við munum af besta mætti styðja ykkur að taka þau þungu spor sem framundan eru, án Þórs, án föður ykkar. Við sendum aldraðri móður Þórs og systkinum hans einlægar samúðarkveðjur. Megi Guð sefa sorg ykkar og geyma góðan dreng. Stefán og Halldóra, Margrét Rósa og Gylfi, Fanney, Iðunn og Ágúst. Húsið okkar er uppljómað. Stofan er setin af flestum þeim sem okkur eru kærastir. Þór situr með gítarinn sinn og spilar af krafti og innlifun. Við syngjum hástöfum, hver með sínu nefi, og við njótum stundarinnar til hins ýtrasta. Þessi stund er ein af mörgum sem við í Fífilgötufjölskyld- unni höfum átt saman. Glens og gleði, háværar samræður, skopsögur og spaug hafði einkennt fjölskylduboðin og nú bættist nýr þáttur við. Þór, sem hafði stundað gítarnám af kappi að undanförnu, mætti með gítarinn sinn og söngbækurnar. Við höfðum átt margar frábærar stundir saman, en þessi stund á laugardegi fyrir hálfum mánuði var ein af þeim bestu. Nú sit- um við hnípin og sorgin sem nístir er svo mikil að okkur finnst sem við get- um ekki afborið hana. Í hjörtunum óma vein þar sem áður hljómaði söng- ur. Valtýr Þór, okkar kæri vinur, mágur og svili, er allur. Við minnumst hans þar sem hann fór um fullur af lífskrafti og orku sem hreif með sér. Hann var hreinn og beinn. Hann sagði skoðun sína umbúðalaust, var hreinskiptinn og heiðarlegur. Þar var líka að finna hlýtt hjarta og við- kvæmni sem þeir sem næstir honum stóðu þekktu svo vel. Við kveðjum hann og þökkum samfylgdina sem ætíð hefur verið góð. Við sendum samúðarkveðjur til fjölskyldu hans og ástvina og biðjum um styrk fyrir okk- ur öll til þess að við megnum að láta allar góðu minningarnar mýkja og græða sárin sem nú þjá svo mjög. Erna og Egill Egilsson. Árið er 1978. „Hvað heitir hún, þessi systir ykkar sem var að koma frá útlöndum?“ Við Stebbi fengum þessa spurningu á balli í Höllinni. Ég leit á manninn íbygginn og svaraði: „Þór, hún heitir Ingunn.“ Þar með var teningunum kastað og við þekkjum framhaldið, úr varð farsælt og gott hjónaband. Það fór ekkert á milli mála með það, hann elskaði þessa stelpu. Okkar leiðir lágu síðan saman sem fjölskylduvinir og viðskiptafélag- ar. Það var virkilega gaman að starfa með honum á þessum vettvangi, byggingabransanum. Við vorum ólík- ir og bættum hvor annan upp, tel ég. „Gott team,“ sagði hann. Þór var for- kunnarduglegur og ósérhlífinn, með harðan skráp en mjúkur hið innra. Það veit ég vel. Hann var hreinskil- inn, kom ávallt beint að efninu og var stundum misskilinn fyrir það. Hann var mikill keppnismaður og þetta var kappleikur hjá honum. En þessi leik- ur, sá stærsti, hefur verið flautaður af í hálfleik, fyrirliðinn rekinn af velli, áhorfendur og stuðningsmenn horfa undrandi hver á annan, við höfum tapað leiknum. Númer eitt var hann fjölskyldumaður og hugsaði um það fyrst og fremst, síðan kom áhugamál- ið og vinnan sem var að byggja upp góða verslun. Þetta er þyngra en tár- um taki og ólýsanlegt, ég veit að fjöl- skyldan mun alltaf standa sterk sam- an og þétt við bakið á Ingunni og börnunum. Hafðu þökk fyrir sam- starfið, kæri vinur, og öll munum við sakna þín. Ingunn, við stöndum með þér sem einn klettur. Tómas. Enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Þór Valla vinur minn og mágur er allur aðeins 47 ára að aldri. Þessi ungi og glæsilegi maður er horfinn á braut langt um aldur fram. Það er sár harmur kveðinn við fráfalls Þórs vit- andi það að við eigum ekki eftir að deila fleiri samverustundum með honum í gleði og sorg. Margur saknar góðs vinar en mestur er missir og söknuður ástvina hans. Elsku Ingunn, Valur, Erna, Aron, Erla, Minna og Jóhannes, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og bið guð að styrkja ykkur og lýsa fram á veg- inn í ykkar miklu sorg. Minning um góðan dreng lifir. Birgir Þór Sverrisson. Þór frændi dáinn. Maður hugsar bara: Nei, það getur ekki verið. Við sitjum bara stjörf og bíðum eftir að einhver komi og segi við okkur að það verði allt í lagi með Þór. Þetta er allt svo óraunverulegt. Það er eins og mann sé að dreyma og reyni að vakna. Lífið er stundum svo ósann- gjarnt, maður á besta aldri og í fullu fjöri tekinn burt frá fjölskyldunni sinni fyrirvaralaust. Hann elsku Þór okkar skilur eftir sig stórt skarð í fjöl- skyldunni sem enginn getur fyllt. Við munum ávallt hugsa um hann, hversu yndislegur og góður maður hann var. Mig langar til að þakka fyrir allar yndislegu stundirnar sem ég og fjöl- skylda mín áttum með Þór og vona að guð hjálpi okkur að vera sterk á þess- um erfiða tíma til þess að sigrast á þessari miklu sorg. Missir okkar er mikill og vona ég innilega að elsku Þór okkar hafi það gott hjá afa Valla, því ég veit að afi er ánægður að fá loksins einhvern til sín þótt hann hefði nú ekki viljað fá Þór strax til sín. Elsku Ingunn, Valur, Erna, Aron, amma og fjölskylda, nú verðum við öll að standa saman til þess að sigrast á þessari miklu sorg og halda minning- unni um yndislegan mann á góðum stað í hjarta okkar. Með trega í hjarta kveð ég þig, elsku Þór. Megir þú lifa í hjarta okkar allra að eilífu. Þín systurdóttir Sædís Eva. Ég veit varla í hvorn fótinn ég á að stíga, uppáhalds frændi minn hann Þór er dáinn langt fyrir aldur fram. Alla mína ævi hef ég litið ofboðslega mikið upp til þín. Þú tókst mikinn þátt í uppeldi mínu og hefur aðstoðað mig á marga vegu í lífinu, fyrir það vil ég þakka þér, elsku frændi. Ég kem ávallt til með að sakna þín og gleymi þér aldrei. Þín frænka Hulda. Ég var í beinni útsendingu þegar síminn hringdi og ég fékk fréttirnar. Hressi útvarpsmaðurinn varð sleg- inn. Ég kom ekki upp orði. Þetta getur ekki staðist, var það fyrsta sem kom upp í huga mér. Þór, einn mesti orku- bolti sem ég hef kynnst, fallinn frá. Það eru ekki nema um tvær vikur síðan við skemmtum okkur saman í afmælinu hjá pabba. Þar var hann fullur af lífi og fjöri og naut sín með gítarinn á lofti og stjórnaði hópsöng með fjölskyldunni en gleymdi samt sem áður ekki að leggja mér línurnar um hvernig ég ætti að ná mér í kvon- fang, eins og hann átti til þegar við hittumst. Hver hefði getað trúað því þegar ég leit inn hjá honum í heimsókn minni til Eyja fyrir tæpum tveimur vikum að það yrði í síðasta skipti sem við ættum svo gott spjall, eins og öll önn- ur skipti þegar við settumst niður. Ávallt fór ég til baka fullur af sjálfs- trausti, eldmóði og áhuga en það er einmitt það sem einkenndi hann. Með því að fjárfesta í stund með honum smitaðist ég auðveldlega af öllu því sem í honum bjó. Sterkar skoðanir, hreinskilni og hvernig hann kom ávallt hreint og beint fram var það sem ég leitaði eftir í fari hans. Ég fékk skoðanir hans umbúða- laust í hverju því sem ég tók mér fyrir hendur. Mér er það sérstaklega minnis- stætt nú í sumar þegar ég var að vandræðast með atvinnutilboð sem mér stóðu til boða og við settumst nið- ur og ræddum þau fram og til baka. Þegar ég kvaddi hann fannst mér allir vegir vera mér færir og að ekkert fengi mig stöðvað. Hvatningin sem hann veitti mér var ómetanleg, ekki bara þá, heldur ávallt bæði í starfi og einkalífi. Allt sem hann tók sér fyrir hendur og sér- staklega drifkrafturinn með fyrirtæk- ið og hversu menn voru yfirleitt ánægðir með hans störf og árangur virkaði mjög hvetjandi á mig. Oftar en ekki leit ég til hans og hugsaði með mér að svona vildi ég vera. Ég sendi Ingunni, Val, Ernu, Aroni og öllum öðrum aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur. Jóhannes Egilsson. Kveðja frá árgangi ’55 í Vestmannaeyjum Harmafregn berst um bæinn okk- ar, sorgin ryður sér farveg og tekur með sér gleðina og eftirvæntingu jólanna, blessuð jólaljósin missa birtu og skin. Nú er erfitt að skilja og enn erfiðara að bera þá þungu byrði sem sorgin neyðir okkur til að axla. Byrðin þunga, sú hörmulega stað- reynd að vinur okkar og skólafélagi Þór Valtýsson er látinn. Viðbrögð sorgar eru að leita uppi hvert minn- ingarbrot og raða þeim saman í eina mynd svo ekkert glatist né gleymist, því er svo ljúfsárt að minnast hans Þórs, minnast leiks hans á skólalóð- inni í sumarsól barnæskunnar þar sem fótboltinn og leikgleði Eyjapeyj- ans mætast í fögnuði sigurvegarans. Minnast unglingsárana þegar orkan og lífsgleðin geislaði af ungum manni og lífið þá svo áhyggjulaust og dæma- laust skemmtilegt, þegar við í samein- ingu upplifum timburmenn hippatím- ans, rétt fáum að prufa mussurnar og síða hárið að ógleymdri tónlistinni sem fangaði Þór eins og flest okkur hin, og Rolling Stones aðdáandinn Þór Valtýs varð rótari hjá hljómsveit- inni Logum, þá voru gullár í árgangn- um okkar og tilveran virtist eilíf. Og samleið okkar í gegnum lífið til vits og ára gerði okkur samheldnari og vináttuböndin urðu sterkari, ár- gangsmótin minntu á ættarmót stór- fjölskyldunnar þar sem við öll skipt- um máli, bæði líf okkar og velferð. En nú er komið að hinstu kveðju- stund, skólasystkin úr árgangi 1955 í Vestmannaeyjum kveðja Þór Valtýs- son með þökk, virðingu og söknuði. Við vottum eiginkonu, börnum, fjölskyldu og vinum Þórs dýpstu sam- úð og biðjum Guð um að gefa þeim styrk. Sú sorgarfregn barst okkur sl. sunnudag 1. desember að félagi okkar og vinur Valtýr Þór Valtýsson hefði orðið bráðkvaddur þá um morguninn. Menn setur hljóða þegar menn í blóma lífsins eru burt kallaðir fyrir- varalaust. Þór var einn af þessum fé- lögum sem íþróttahreyfingin gat allt- af leitað til, ávallt reiðubúinn að leggja góðum málum lið. Hann fór VALTÝR ÞÓR VALTÝSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.