Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 33
KVEIKT verður á bæjarjóla-
trénu á Selfossi klukkan 16 í
dag og jólasveinarnir koma þá í
bæinn og skemmta fólki. Jóla-
tréð stendur við Tryggvatorg á
litlu hringtorgi við brúarsporð
Ölfusárbrúar. Þetta er árlegur
viðburður og von á fjölda fólks
til athafnarinnar.
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 33
NOKKRIR af snjöllustu hagyrðing-
um landsins munu leiða saman hesta
sína á kvæðaþingi sem efnt verður
til á Hótel Selfossi þriðjudagskvöld-
ið 10. desember næstkomandi.
Kvæðaþingið er haldið að frum-
kvæði Guðna Ágústssonar landbún-
aðarráðherra, til styrktar og efling-
ar handknattleiksdeild Selfoss. Á
þinginu munu takast á fulltrúar af
Alþingi annars vegar og fulltrúar
þjóðarinnar hins vegar.
Fulltrúar Alþingis verða Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, Jón Krist-
jánsson, heilbrigðis- og trygginga-
ráðherra, og Steingrímur Sigfússon,
formaður vinstri grænna, allt vaskir
hagyrðingar með gott orð á sér.
Knáir fulltrúar þjóðarinnar verða
Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprest-
ur, Flosi Ólafsson, leikari, og Hákon
Aðalsteinsson, náttúrulífsmaður af
Austurlandi. „Ég hef alla tíð verið
áhugamaður um handboltann á Sel-
fossi, minnugur mjaltavélarinnar, og
þar eru nú efnilegir strákar. Þetta er
alltaf barátta um afkomu og hér hef-
ur verið kallaður saman hópur
manna sem vill blása þeim kraft í
brjóst,“ sagði Guðni Ágústsson.
Von á gestum víða að
Þinghaldið hefur átt langan að-
draganda og vandað er til liðsöflun-
ar. Ómar Ragnarsson fréttamaður
stjórnar keppninni og mun hann sjá
um að etja liðunum saman en Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
mun blása mönnum baráttuanda í
brjóst, kasta fram fyrstu stökunni
og ræsa keppendur. Bjarni Harðar-
son, ritstjóri og forynjufræðingur,
er sérlegur talsmaður keppninnar.
„Það er auðvitað mjög líklegt að
þarna verði einhverjir fulltrúar ann-
arra heima á ferðinni sem munu
kveða. Það eru til dæmis sagnir um
það að Gunnar á Hlíðarenda hafi
kveðið í haugnum og risið upp. Þetta
heyrðu menn, en eins og menn vita
þá eru þeir Gunnar á Hlíðarenda og
Guðni Ágústsson miklir vinir og ekki
ósennilegt að Gunnar verði á sam-
komunni og líklegt að hann kveði í
gegnum Guðna. Annars held ég að
glæsileiki Gunnars og hetjuljómi
fylgi Guðna,“ sagði Bjarni sem
kvaðst eiga von á því að til samkom-
unnar komi gestir alls staðar af
landinu en ætlunin væri að fylla hús-
ið.
Alþýðan og valdið
munu takast á
„Annars er þetta svolítið merkileg
keppni því þarna munu takast á al-
þýðan og valdið og það er við hæfi á
kosningavetri að þessir aðilar takist
á. Þarna eru fulltrúar þriggja flokka
og ég held það komi fram fyrirboði
um hvernig þeim muni ganga á þess-
um kosningavetri. Víst er að Hákon,
Hjálmar og Flosi sem eru miklir
kvæðakappar munu ekkert gefa eft-
ir í átökunum. Guðni Ágústsson er
verndari keppninnar og lykilmaður í
að koma henni á og Ómar Ragnars-
son mun örugglega magna upp
stemmninguna. Ég held jafnvel að
þetta verði eins og í hestaati til forna
þegar menn öttu fram hrossum sín-
um. Guðni stendur nærri alþýðunni í
Flóanum og víst er að hann mun
fylgja eftir vísum í áttina að þing-
mönnum og krefjast snarpra svara.
Þá mun Ómar gæta hlutleysis og
egna menn. Ég er alveg sannfærður
um að skáldanáttúra þessara manna
mun blómstra á þriðjudagskvöldið
og vænti þess að hún rísi hátt,“ sagði
Bjarni Harðarson, upplýsinga-
fulltrúi kvæðaþingsins á Selfossi.
Kvæðaþing á Selfossi í undirbúningi 10. desember að frumkvæði landbúnaðarráðherra
Fulltrúar þings
og þjóðar munu
kveðast á
Morgunblaðið/Sig. Jónsson
Stjórnarmenn handknattleiksdeildar Selfoss, Ágúst Mortenz og Bergur
Guðmundsson, fara yfir forna fyrri parta hjá Bjarna Harðarsyni, í miðið,
upplýsingafulltrúa kvæðaþingsins.
LISTAMENN og annað hand-
verksfólk verður með hand-
verksmarkaðinn að Stað á
morgun, sunnudaginn 8. des-
ember frá kl. 14 til 18. Hinn sí-
ungi Steini Spil, sem reyndar
heitir Þorsteinn Guðmundsson,
ætlar að leika jólalögin á nikk-
una sína fyrir gesti markaðar-
ins.
Jólatré og
jólasveinar
á Tryggva-
torgi
Selfoss
Jólamarkaður
Eyrarbakki
ALÞJÓÐADAGUR fatlaðra er 3.
desember og notaði Sjálfsbjörg á
Suðurlandi daginn til að veita fyr-
irtækjum og stofnunum viðurkenn-
ingar fyrir gott aðgengi. Athöfnin
fór fram á Hótel Eldhestum í Ölfusi,
sem var eitt þeirra fyrirtækja sem
hlutu viðurkenninguna.
Svanur Ingvarsson, formaður
Sjálfsbjargar á Suðurlandi, setti at-
höfnina og sagði m.a. að þetta væri
leið Sjálfsbjargar til að vekja at-
hygli á aðgengismálum á jákvæðan
hátt og um leið að þakka þeim sem
gefa þeim málum gaum. Svanur
sagði að aðgengi hefði snarbatnað
á síðastliðnum árum. Hér á Suður-
landi jafnvel meira en víða annars
staðar, sem sýnir sig m.a. í því að 8
viðurkenningar eru veittar og 6
þeirra eru veittar hér á Suðurlandi.
Aðgengi er mjög mikilvægt fyrir
okkur sem eigum erfitt með að
komast um, en það nýtist öllum
sagði Svanur ennfremur.
Næsta ár, árið 2003, verður ár
fatlaðra og verður það vonandi öll-
um hvatning til að bæta hag fatl-
aðra á öllum sviðum. Þá er sérstök
ástæða til að taka þau fyrirtæki og
stofnanir, sem hlotið hafa við-
urkenninguna, sér til fyrirmyndar.
Þau fyrirtæki og stofnanir sem
hlutu viðurkenningu Sjálfsbjargar
eru: Húsasmiðjan, Kjarninn, Mið-
garður og Árvirkinn öll staðsett á
Selfossi, Hótel Eldhestar í Ölfusi og
Hjúkrunarheimilið Ás íHveragerði.
Ragnheiður Kristiansen, upplýs-
ingafulltrúi Sjálfsbjargar, kynnti
gestum heimasíðu Sjálfsbjargar og
fékk unga stúlku, Pálínu Agnesi
Kristinsdóttur, til að opna nýjan
gagnagrunn sem inniheldur upp-
lýsingar um aðgengi um allt land.
Landinu er skipt eftir landshlutum
og auðveldar það fólki að kynna sér
hvar aðgengi er gott. Gagnagrunn-
urinn kemur sér vel, t.d. þegar fólk
er að skipuleggja ferðir, þar sem
fatlaðir eru með í för. Stöðunum er
raðað eftir póstnúmeraröð, þannig
að á Suðurlandi koma fyrst fyr-
irtæki á Selfossi því þar er lægsta
póstnúmerið. Þeir staðir sem
merktir eru með Sjálfsbjarg-
armerkinu eru þeir staðir sem hlot-
ið hafa viðurkenningu Sjálfs-
bjargar fyrir aðgengi. Ragnheiður
benti gestum einnig á bók sem gef-
ur upplýsingar um allt um aðgengi
og heitir hún: Aðgengi fyrir alla.
Hreinn Óskarsson, skógarvörður
í Haukadalsskógi, sagði frá verk-
efni sem þar er nú unnið. Í sumar
var hafist handa við að gera skóg-
inn aðgengilegan öllum og fékkst
til þess verkefnis ein milljón úr
pokasjóði. Svæðisvinnumiðlun lagði
til starfsmenn og Bláskógarbyggð
veitti sálrænan stuðning. Einnig
komu nemendur í Fjölbrautaskóla
Suðurlands og Menntaskólanum að
Laugarvatni og unnu við verkefnið
í einn dag. Sú vinna sem innt var af
hendi þann dag hefði tekið starfs-
menn Haukadalsskógar nokkrar
vikur að vinna. Áframhald verður á
vinnu við stíga næstu tvö til þrjú ár
að minnsta kosti.
Á milli atriða skemmti tónlist-
armaðurinn Ólafur Þórarinsson,
best þekktur sem Labbi í Mánum,
gestum með söng og gítarspili. Í
lokin var gestum boðið að skoða
Hótel Eldhesta og síðan að þiggja
veitingar.
Viður-
kenningar
fyrir gott
aðgengi
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Svanur Ingvarsson, formaður
Sjálfsbjargar á Suðurlandi, ásamt
fulltrúum fyrirtækjanna sem hlutu
viðurkenningu fyrir gott aðgengi.
Pálína Agnes Kristinsdóttir opnar
nýjan gagnagrunn um aðgengi,
Ragnheiður Kristiansen kynning-
arfulltrúi Sjálfsbjargar fylgist með.
Hveragerði
FIMMTUDAGINN 5. desember hélt
Félag eldri borgara á Eyrarbakka
hátíðafund í nýju húsnæði sem Ár-
borg lætur í té.
Félagar fjölmenntu og eldri borg-
arar frá Stokkseyri sátu þennan
merkisfund í sögu félagsins.
Guðfinna Sveinsdóttir bauð gesti
velkomna og stýrði samkvæminu.
Fram voru reiddar hinar ágætustu
veitingar sem félagskonur höfðu
útbúið.
Bæjarstjóri Árborgar, Einar
Njálsson, afhenti félaginu húsnæðið
og bað starfseminni alls velfarnaðar.
Húsnæðið er í miðju þorpinu, þar
sem Landsbankinn hafði sína af-
greiðslu fram að því að lokað var. Hús
þetta gengur undir nafninu Breiða-
blik (einnig Búðarhamar) og var reist
árið 1916 af Andrési Jónssyni kaup-
manni. Þótti þá með glæsilegri versl-
unarhúsum á landsbyggðinni. Þarna
verður hin ákjósanlegasta aðstaða
fyrir félagsstarfsemina, góður og
bjartur salur til samkomuhalds fé-
lagsins og einnig mikið rými í kjall-
ara, þar sem fram gæti farið margs
konar handverk. Félagið hefur sjálft
aflað borða, stóla og annars sem til
þarf svo starfsemin geti gengið vel.
Árrið 1991 ákváðu eldri borgarar
að stofna félag svo þeir gætu komið
saman á eigin forsendum.
Fundir, með spilamennsku og
fleiru eru tvisvar í viku og árlega er
farið í lengri og skemmri ferðir. Þá er
vert að geta árlegrar Góugleði sem
jafnan er fjölsótt úr nágrannabyggð-
um.
Með þessu nýja húsnæði opnast
möguleikar á að auka starf félagsins.
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Stjórn félagsins ásamt bæjarstjóra. Frá vinstri: Gyðríður Sigurðardóttir,
Guðrún Thorarensen, Guðfinna Sveinsdóttir, Eiríkur Runólfsson, Sigurður
Eiríksson og Einar Njálsson bæjarstjóri.
Eldri borgarar eign-
ast nýtt húsnæði
Eyrarbakki
ÁRLEGUR jólamarkaður
Vinnustofu fatlaðra að
Gagnheiði 39 á Selfossi
hófst í gær 6. desember
með því að kveikt var á
jólatrénu sem Rotary-
klúbbur Selfoss gaf staðn-
um og Einar Njálsson bæj-
arstjóri opnaði markaðinn
formlega. Á markaðnum
eru boðnar til sölu vörur
sem unnar hafa verið í
Vinnustofunni og kennir
þar margra grasa. Þeir eru
margir sem bíða eftir þessum
markaði ár hvert og sækjast eftir
þeim vörum og listmunum sem þar
eru til sölu. Markaðurinn er opinn
alla virka daga klukkan 9–16 fram
til 19. desember.
Jólamarkaður hjá
Vinnustofunni
Morgunblaðið/Sig. Jónsson
Nokkrir starfsmanna Vinnustofunnar með
muni sem eru til sölu á jólamarkaðnum nú í
desember.
Selfoss