Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 53
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 53 Þá mun Skagfirska söngsveitinni sem löngu er orðin landskunn heimsækja okkur og syngja nokkur lög. Hin landsþekkta og fjölhæfa blús- og dægurlagasöngkona Andr- ea Gylfadóttir mun einnig koma í heimsókn og taka lagið. Að sjálf- sögðu verða sungnir léttir jóla- söngvar í bland við hefðbundna sálma. Ræðumaður kvöldsins er Gunnar Eyjólfsson, leikari. Hann hefur ver- ið einn af fremstu leikurum þjóð- arinnar í áratugi og víst er að ekki hafa margir íslenskir leikarar verið jafn afkastamiklir, jafn áberandi og dáðir á því ári sem er að líða og Gunnar Eyjólfsson þrátt fyrir háan starfsaldur hans. En Gunnar er einnig einlægur trúmaður og því munum við fá að kynnast á aðventukvöldinu. Allir hjartanlega velkomnir á fal- lega og hugljúfa kvöldstund í kirkj- una í hjarta borgarinnar. Að morgni sama dags klukkan 11:00, verður barna- og fjölskyldu- samvera í Fríkirkjunni og í lok hennar verður fuglunum við tjörn- ina gefið brauð að borða samkvæmt fríkirkjuvenju. Börn á öllum aldri eru innilega velkominn. Afmælisfagnaður í Þorlákskirkju SÓKNARNEFND Þorlákskirkju býður til afmælisfagnaðar í Þor- lákskirkju sunnudaginn 8. desem- ber n.k., kl. 20. Tilefnið er að fyrir 20 árum, þann 5. desember 1982, var fyrst messað í Þorlákskirkju. Minnst verður söngstjórans, for- manns sóknarnefndar á þessum tíma og hins dugmikla bjartsýnis- manns við uppbyggingu Þorláks- kirkju, sem féll frá kvöldið fyrir fyrstu messuna í kirkjunni, Ingi- mundar Guðjónssonar. Söngfélag Þorlákshafnar syngur undir stjórn Julians Isaacs og Ró- berts Darlings. Stutt minning- arbrot frá uppbyggingu kirkj- unnar. Jónas Ingimundarson ásamt söngkonunni Arndísi Höllu Ás- geirsdóttur, munu spila og syngja fyrir okkur. Myndir frá bygging- artímanum verða til sýnis í kirkj- unni. Aðventuhátíð á Akranesi AÐVENTUHÁTÍÐ verður haldin í Safnaðarheimilinu Vinaminni, Akranesi, annað kvöld, sunnudags- kvöld, og hefst hún kl. 20. Fjöl- breytt dagskrá verður í tali og tón- um. Kirkjukór Akraness syngur nokkra sálma. Stjórnandi er Sveinn Arnar Sæmundsson. Nýstofnaður ungmennakór Akraneskirkju syng- ur tvö lög og unglingar í æskulýðs- félagi kirkjunnar verða með atriði. Ræðumaður kvöldsins verður Ingi- björg Pálmadóttir, fyrrum ráð- herra. Í lok samverunnar verður kveikt á kertum og sunginn sálmur. Akurnesingar og nærsveitungar eru hvattir til þess að fjölmenna á aðventuhátíðina og njóta þess sem þar verður flutt. Sóknarprestur. Aðventuguðsþjónusta í Fella- og Hólakirkju SUNNUDAGINN 8. desember verð- ur guðsþjónusta í Fella- og Hóla- kirkju kl. 14 þar sem tónlistin verð- ur í fyrirrúmi. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Lenku Má- téová, organista. Inger Línberg Jensdóttir syngur einsöng. Sr. Hreinn Hjartarson predikar og þjónar í þessari guðsþjónustu eins og hann hefur gert mörg und- anfarin ár. Lilja G. Hallgrímsdóttir, djákni tekur þátt í þjónustunni. Skólasystkyni sr. Hreins, sem út- skrifuðust sem stúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík 1955, hafa ávallt fjölmennt í Fella- og Hólakirkju annan sunnudag í að- ventu. Að þessu sinni munu tvö þeirra Inger Hallsdóttir og Kristján Baldvinsson lesa ritningarlestrana. Eftir guðsþjónustuna er boðið upp á veitingar í safnaðarheimili kirkj- unnar. Allir eru hjartanlega vel- komnir. Dagur í Íslensku Kristskirkjunni EINS og undanfarin ár verður 2. sunnudagur í aðventu, „Dagur í kirkjunni.“ Byrjað er með guðs- þjónustu, þar sem kveikt verður á öðru aðventukertinu, síðan verður uppbyggileg fræðsla, bæði fyrir börn og fullorðna. Friðrik Schram prestur kirkjunnar annast fræðslu fullorðinna. Eftir það verður seld pizza og gos og síðan verður föndr- að og átt gott samfélag. Fólk er beðið að taka með sér lím og skæri. Samkoma með léttu sniði verður svo kl. 20.00, þar sem verður mikil lofgjörð, fyrirbænir og vitnisburðir um það sem Guð er að gera í lífi fólks í dag. Allir eru hjartanlega velkomnir. Helgihald á Lækjartorgi HELGISTUND verður á Lækj- artorgi sunnudaginn 8. desember kl. 14 í tengslum við jólamarkað miðborgarinnar. Þar mun kór Nes- kirkju syngja jólasálma og Reynir Jónasson organisti mun þenja nikk- una. Frank M. Halldórsson mun flytja hugleiðingar orð til borg- arbúa. Tökum okkur stund í ann- ríkinu til að staldra við og hugleiða kjarna jólanna. Neskirkja og miðborgarstarf KFUM&K og kirkjunnar. Karlakór Reykjavíkur og Silfurdrengirnir í Hallgrímskirkju MESSA og barnastarf verður sunnudaginn 8. desember kl. 11.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson prédik- ar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Þá mun Karlakór Reykjavíkur syngja í messunni und- ir stjórn Friðriks A. Kristinssonar. En til margra ára hefur Karlakór- inn sungið við messu á aðventu í Hallgrímskirkju. Organisti í mess- unni verður Hörður Áskelsson. Barnastarfið verður undir stjórn Magneu Sverrisdóttur. Um kvöldið kl. 20.00 verða tón- leikar með norska Drengjakórnum Sölvguttene, Silfurdrengjunum, en aðgangur er ókeypis. Þessi drengjakór hefur farið víða um lönd og haldið fjölmarga tónleika og er einn þekktasti drengjakór á Norðurlöndum. Í kórnum eru 65 drengir og 25 fullorðnir söngvarar og verða um 60 þeirra með í förinni til Íslands. Eitt af föstum verk- efnum kórsins er að koma fram í Norska ríkissjónvarpinu á að- fangadagskvöld og í hugum Norð- manna er það ómissandi þáttur jólahaldsins. Það er því mjög ánægjulegt að kórinn skuli syngja hér í Hallgrímskirkju nú á aðvent- unni. Aðventukvöld í Óháða söfnuðinum AÐVENTUKVÖLD/ endurkomu- kvöld verður í Óháða söfnuðinum sunnudagskvöldið 8. desember kl. 20.30. Ræðumaður kvöldsins verð- ur Valdimar Jóhannesson. Kristín Jónsdóttir og Jón Sigurðsson leika saman á fagott og slaghörpu og kór safnaðarins syngur undir stjórn Peter Máté. Á eftir er kirkjugestum boðið að smakka á smákökum. Aðventusöngvar í Seljakirkju SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 8. desem- ber kl. 20 verður boðið upp á fjöl- breytta aðventudagskrá í Selja- kirkju. Seljur, kór kvenfélags Seljakirkju, syngur auk kórs Landsvirkjunar. Verið velkomin í Seljakirkju. Listaflétta LISTAFLÉTTA verður í Lang- holtskirkju í dag, laugardag, kl. 17. „Krakkarnir úr hverfinu“ – Bubbi Morthens, Kristinn Sigmundsson, Einar Már Guðmundsson, Steinunn Sigurðardóttir, Tolli og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Fjallalamb, Ömmubakstur og Ölgerðin kynna góðgerðir í safnaðarheimilinu eftir dagskrá í kirkjunni. Aðgöngumiðar við innganginn (Kr. 1.500 og 1.000). Gerðubergskórinn og kaffisala í Breiðholtskirkju ANNAN sunnudag í aðventu, 8. desember, fáum við ánægjulega heimsókn í Breiðholtskirkju í Mjódd. Þá kemur Gerðubergskórinn, kór félagsstarfsins í Gerðubergi og syngur við messu kl. 14 undir stjórn Kára Friðrikssonar, en sú skemmti- lega hefð hefur skapast að kórinn syngi við messu í kirkjunni þennan sunnudag og hefur sú heimsókn ávallt verið mjög vel heppnuð. Einnig munu þátttakendur í fé- lagsstarfinu í Gerðubergi, þau Eyj- ólfur R. Eyjólfsson, Kristjana V. Jónsdóttir og Valdimar Ólafsson lesa ritningarlestra og bænir. Vak- in skal athygli á því að hér er um að ræða breyttan messutíma frá því sem venjulegast er í Breiðholts- kirkju. Barnastarfið verður hins- vegar á hefðbundnum tíma kl. 11. Að messu lokinni verður kaffi- sala eldri hópsins í Unglingastarfi KFUM&K og Breiðholtskirkju, en þau eru að undirbúa þátttöku í kristilegu æskulýðsmóti í Dan- mörku á næsta sumri. Það er von okkar að sem flestir safnaðarmeð- limir og aðrir velunnarar kirkj- unnar og félagsstarfsins í Gerðu- bergi hafi tækifæri til að taka þátt í guðsþjónustunni og styðja síðan unglingastarfið með því að þiggja veitingar á eftir. Sr. Gísli Jónasson. 10 ára vígsluafmæli Glerárkirkju Í TILEFNI af 10 ára vígsluafmæli Glerárkirkju verður kirkjuhátíð nk. sunnudag og hefst kl. 14. Þá mun Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vígja kapellu í suð- urálmu kirkjunnar en sú álma er þar með tekin til notkunar sem þjónustuálma. Strax að kap- elluvígslu lokinni er hátíðarmessa í kirkjunni og mun biskup sömuleiðis prédika þar. Í hátíðarmessunni verður helgaður steindur gluggi, gjöf Kvenfélagsins Baldursbráar til kirkjunnar en kvenfélagið er braut- ryðjandi þess mikla verks og hefur söfnunin fyrir glugganum staðið frá því sérstakur sjóður var stofn- aður fyrir 8 árum. Að hátíðarmessu lokinni verða léttar veitingar og kirkjugestum gefst þá tækifæri til að bera augum framkvæmdirnar allar, kapelluna nýju og myndverk Leifs Breiðfjörðs í forkirkjunni. en sýning verka hans undir yfirskriftinni Sigur lífs- ins verður opnuð í dag kl. 14. Við opnun sýningarinnar mun prófess- or Pétur Pétursson flytja erindi um listina og trúna. Allir eru velkomn- ir. Aðventukvöld í Vídalínskirkju AÐVENTUKVÖLD verður í Vídal- ínskirkju sunnuginn 8. desember kl. 20:00, (en ekki kl. 20:30, eins og stendur í Kirkjutíðindunum.). Dag- skrá verður fjölbreytt. . Tveir kór- ar, kór Vídalínskirkju undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar og kór eldri borgara Garðakórinn undir stjórn Kristínar Pjétursdóttur, leiða al- mennan söng og syngja einnig hvor fyrir sig nokkur lög. Einnig verður upplestur, ljóða- flutningur og ræðumaður kvöldsins er Sigurveig Sæmundsdóttir núver- andi skólastjóri Hofsstaðaskóla. Hér gefst kærkomið tækifæri til að eiga enn og aftur góða stund í kirkjunni okkar. Það er sérstaklega notalegt að koma saman nú á að- ventunni og láta þessa stund hjálpa okkur til að gleyma nú ekki hver er ástæða alls jólahaldsins og það er sjálfur Jesús Kristur og fæðing- arhátíð hans. Boðið er upp á kakó og pip- arkökur að lokinni stundinni. Mæt- um vel og gleðjumst saman. Prestar, starfsfólk og sókn- arnefnd Garðasóknar. Það er löngu þekkt að dvöl í skóla og þau áhrif sem nemendur verða þar fyrir móta lífsviðhorf og framtíðarsýn. Margur mun við fráfall Guðmundar Jónsson- ar, fyrrum skólastjóra á Hvanneyri, hugsa til dvalar sinnar á Hvanneyri með þakklæti í huga, sérstaklega þó þeirra kynna sem þar hófust með traustum og góðum skólafélögum, staðarfólki og húsbændum sem þar höfðu forræði mála. Guðmundur átti allan sinn starfsferil á Hvanneyri, bæði sem kennari og skólastjóri. Sá hópur ungra manna sem dvaldi á Hvanneyri undir hans forsjá er fjöl- mennur og þau áhrif sem þeir urðu fyrir á Hvanneyri undir handleiðslu Guðmundar hefur haft mikil og góð áhrif á þróun mála í sveitum landsins. Á ýmsan hátt var þungt fyrir fæti á Hvanneyri á fyrstu árum Guðmundar þar. Miklar þjóðfélagsbreytingar stóðu yfir sem leiddu af sér mikla fækkun fólks í sveitum. Þær raddir heyrðust jafnvel að framtíð bænda- skólanna væri tvísýn, aðsókn að þeim var dræm. Dæmi var um að fjöldi nemenda í yngri deild Hvanneyrar- skólans fyllti ekki tuginn. En skóla- stjórinn var annarar skoðunar. Trú hans á framtíð landbúnaðarins og gildi góðrar menntunar voru þær áherslur sem hann grundvallaði skólastarfið á. Um þennan hug hans og ásetning vitnar frumkvæði Guð- mundar með stofnun framhaldsdeild- arinnar á Hvanneyri Góðum málum fylgir jafnan mikil umræða og gjarn- an skiptar skoðanir. Á slíkum vett- vangi er einatt talað fyrir fleiri en einni leið. Sú var raunin við mótun æðra búnaðarnáms á Hvanneyri. Sér- staklega var þó vistun framhalds- námsins ágreiningsefni, hvort því yrði fyrirkomið á Hvanneyri eða við Há- skóla Íslands. Á Búnaðarþingi árið 1958 lagði þáverandi landbúnaðarráð- herra erindi fyrir þingið um skipan menntunar í búvísindum. Ég minnist þess ekki að í annan tíma hafi verið tekið jafnharkalega á í neinu máli á Búnaðarþingi meðan ég átti þar sæti. En lyktir málsins voru ótvíræðar. Ríf- lega tveir þriðju hlutar þingfulltrúa GUÐMUNDUR JÓNSSON ✝ GuðmundurJónsson, fyrrver- andi skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri, fæddist á Torfalæk í Austur- Húnavatnssýslu 2. mars 1902. Hann andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 28. nóv- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkj- unni 6. desember. studdu ályktun um skipan háskólanáms í búvísindum sem áfram yrði vistað á Hvanneyri. En þrátt fyrir þessa mikilvægu afstöðu Bún- aðarþings var enn sótt fast eftir að deildin yrði flutt til Reykjavíkur. Meira að segja skaut þessi umræða enn upp kollinum við þá víðtæku umfjöllun um skipan há- skólamenntunar á Ís- landi sem fram fór á Al- þingi á síðustu árum nýliðinnar aldar. En sú umræða var veik, hvort heldur talað var í norður eða suður. Ný lög um búnaðarfræðslu sem Alþingi sam- þykkti árið 1999 mæltu fyrir um að háskólanám í landbúnaði skuli vistað á Hvanneyri. Þegar hér var komið við sögu var hálf öld liðin frá því að fyrstu nem- endur framhaldsdeildarinnar tóku við prófskírteinum úr hendi Guðmundar Jónssonar. Allt frá þessum tíma hefur rótfesta þessa starfs verið að styrkj- ast. Það eru vissulega margir traustir og góðir menn sem að þessari starf- semi hafa hlúð í hálfa öld en nafn Guð- mundar ber þó hæst. Landbúnað- arháskóli á Hvanneyri er góður minnsvarði um störf Guðmundar Jónssonar að málefnum búnaðar- fræðslu á Íslandi og eiga rætur í þeirri viljafestu og framsýni sem ein- kenndu störf hans. Ekki er að efa að vel hefði verið séð fyrir námi í búvís- indum við Háskóla Íslands en mikið hefði verið öðruvísi að litast um á Hvanneyri ef þær framfarir í skóla- haldi og uppbyggingu sem leitt hafa af veru framhaldsdeildarinnar þar hefðu ekki orðið að veruleika. Guð- mundur kom víða við í störfum sínum á langri og góðri lífsleið sem hvar- vetna skilja eftir sig merki og góð spor enda var hann virtur af verkum sínum. Guðmundur átti á margan hátt gott ævikvöld. Hann naut mikilla vinsælda nemenda sinna og var því tíður gestur í þeirra hópi. Það duldist ekki að þar kunni Guðmundur vel við sig. Guð- mundur ferðaðist tíðum upp að Hvanneyri, þar var hann mikill au- fúsugestur og naut vel þeirrar rækt- arsemi sem Hvanneyringar sýndu honum. Kona Guðmundar, Ragnhild- ur Ólafsdóttir frá Brimnesgerði við Fáskrúðsfjörð, sem er látin, stóð fyrir stóru heimili á Hvanneyri og gest- kvæmni. Það hlutverk rækti hún af mikilli prýði. Eftirlifandi ástvinum þessara heiðurshjóna eru sendar inni- legar samúðarkveðjur. Egill Jónsson Seljavöllum. Mig langar að kveðja þig vinur með nokkrum orðum. Ég man þegar ég hitti þig fyrst á Norðfirði fyrir einum 30 árum og þú kynntir þig Pál Ólafsson „ekki skáld“, en þar held ég að þú hafir ekki haft rétt fyr- ir þér því þú varst mjög skapandi maður og allt lék í höndum þínum. PÁLL ÓLAFSSON ✝ Páll Ólafssonfæddist í Kefla- vík hinn 27. septem- ber 1938. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 19. nóv- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Keflavíkur- kirkju 27. nóvember. Oft var maður búinn að koma í skúrinn hjá þér til að fá að gera við bíl- inn en fljótlega var maður orðinn áhorf- andi. Páll var búinn öllum kostum sem prýða má einn mann og tel ég mig gæfusaman að hafa fengið að eignast hann að vini. Oft hjálpaði hann mér að sjá ljósið þegar mér fannst eitt- hvað dimmt framundan. Ég vil votta ættingj- um Páls samúð mína. Páll Ólafsson, þakka þér ógleym- anlegar stundir. Þinn vinur Trausti. MINNINGAR Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.