Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 70
UMRÆÐAN 70 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ w w w .f o rv al .is MARGIR dásama hin nýju og glæsilegu mislægu gatnamót sem nýverið risu yfir Reykjanesbraut við Breiddina og tengja saman Breiðholt og Kópavog. Get ég verið þar sammála hvað glæsilegt útlit og arkitektúr varðar, en öðru máli gegnir þegar hönnunargallar brú- arinnar eru skoðaðir, en á þeim eru fleiri umferðarljós en þurfa þykir og skapa þau stórhættu fyrir veg- farendur. Þegar umræðan um þessi gatna- mót stóð sem hæst var lögð meg- ináhersla á að byggð skyldu mis- læg gatnamót til að fækka árekstrum en þess í stað virðist áherslan vera sett á fegurð brúar- innar. Það virðist vera sívaxandi tíska að brúarsmíð gangist undir einhvers konar fegurðarsam- keppni, stundum tekur fegurð ör- yggi vegfarenda fram. Það sama gildir um Höfðabakkabrúna. Þessi gatnamót eiga það sameig- inlegt að í stað slaufa er troðið nið- ur ótæpilegu magni af götuljósum sem valda því að bílar þurfa að stoppa og bíða í tíma og ótíma, í stað þess að geta ekið ótrautt áfram eins og gerist þar sem Ár- túnshöfði gengur yfir Reykjanes- brautina. Þar eru engin ljós, heldur einungis slaufur. Það er löngu vitað að gatnamót með slaufum eru öruggasti kost- urinn. Slík gatnamót eru eitthvað dýrari í byggingu en ekki má gleyma því að þau borga sig fljótt upp með fækkun slysa. Að setja upp og viðhalda götuvitum er einn- ig kostnaðarsamt. Að leggja niður ein umferðarljós þar sem fremur þung umferð er sparar þjóðfélag- inu allt að 20 milljónir á ári sé tillit tekið til bremsu- og dekkjaslits, aukinnar bensíneyðslu og slits á malbiki, að ekki sé talað um tíma- sparnað og minni mengun. Því má nærri geta að væru umferðarljós lögð til hliðar á Kópavogsbrúnni og þeirra í stað settar slaufur myndi slík framkvæmd borga sig upp á skömmum tíma. Þar er nóg pláss fyrir slaufur og dylst það engum sem þar á leið um. Einnig er nægi- legt rými við Höfðabakkabrúna að ekki sé talað um brúna þar sem Réttarholtsvegur mætir Skeiðar- vogi og liggur yfir Miklubraut. Það versta við þessar götuljósa- brýr er að ekki er eins að aka yfir neinar þeirra, og þegar ókunnugir aka upp á þær vita þeir ekkert hvert á að fara nema kannski ef til stendur að aka beint yfir þær. Menn lenda oft í sjálfheldu og vill- ast af leið, og aka því jafnvel yfir umferðareyjar til að komast í rétta stefnu. Til að komast frá Skeið- arvogi og vestur í bæ þarf að beygja til austurs, þvert fyrir um- ferðina á móti, og taka stóran sveig undir brúna til að komast í vest- urátt. Með einfaldri afrein á stöpl- um væri hægt að beygja strax til vesturs áður en komið er inn á brúna og beint inn á Miklubraut. Þá gæti umferðin á móti ekið óhindrað áfram án frekari tafa og slysahættu. Það ætti hver maður að sjá hve frumstætt það er að hugsa ekki fyrst og fremst út í um- ferðaröryggi þegar ráðist er í svo veigamikla og kostnaðarsama framkvæmd sem slík brúarsmíði er. Nú er í umræðunni að byggð skuli mislæg gatnamót við Kringl- una, við stærstu gatnamót landsins þar sem flestir árekstrar verða. Sjálfstæðismenn vilja gatnamót með slaufum en R-listinn vill gatnamót með götuljósum. Sam- kvæmt því sem Ingibjörg Sólrún borgarstjóri sagði í viðtali fyrir stuttu snýst málið einna helst um að gatnamót með slaufum taka of mikið pláss til að geta verið við- unandi, og þar með séu ljósin betri kostur. Sjálfsagt er hún að hugsa út í það ónæði sem slaufuumferð ylli næstu íbúum, en slaufurnar þurfa alls ekki að vera mjög stórar þar sem umferðarhraði um slaufur er frekar hægur. Erfitt er að ímynda sér hvaða máli það skiptir að hafa gatnamót- in á sem minnstu svæði þegar verið er að ræða um umferðaröryggi og fækkun slysa. Með slaufugatna- mótum fækkar slysum þarna um 90% en með því að setja niður um- ferðarljós allt að 50%. En er allt að 50% fullnægjandi þegar 90% eru í boði? Getur Ingibjörg Sólrún ábyrgst orð sín? Ég efast um að hún sé reiðubúin að fara upp á sjúkrahús til að segja hinum slösuðu að slys- farir þeirra séu viðunandi í skjóli plássins sem hún náði að spara. Umferðarslys valda ekki bara þjáningum, heldur eru þau ótrú- lega kostnaðarsöm fyrir þjóðfélag- ið. Þegar maður slasast alvarlega og tekið er tillit til allra þátta eru tölurnar sláandi. Þar má gera ráð fyrir að tvær bifreiðir gereyðilegg- ist. Sjúkrahúsvist kostar um 100.000 krónur á dag auk aðgerða- og lyfjakostnaðar. Vinnutap og fjárhagstjón geta verið gríðarleg. Þá koma til miskabætur og ör- orkubætur auk kostnaðar vegna endurhæfingar innan og utan stofnana auk umönnunar það sem eftir er ævinnar. Að endingu má gera ráð fyrir að viðkomandi verði ekki skattgreiðandi aftur þar sem hann verður ófær um að stunda vinnu en það eitt skiptir miljóna- tugum í tap fyrir ríkið og það sveitarfélag sem hann er búsettur í. Þá er alltaf einhver kostnaður því fylgjandi að fá slökkvilið og sjúkraflutningamenn á staðinn til að klippa menn út úr bílflökum og koma þeim sem fyrst á sjúkrahús. Það þarf ekki að velta vöngum lengi yfir því hve hagkvæmt það er að setja slaufur í stað ljósa þegar slíkar niðurstöður liggja til grund- vallar. Það er alveg ljóst að því fyrr sem ráðist verður í þess hátt- ar framkvæmd, því betra. Umferðarmannvirki eða umhverfisslys? Eftir Baldur Sigurðsson „Gatnamót með slauf- um eru öruggasti kosturinn.“ Höfundur er framkvæmdastjóri. NÝLEGA var greint frá því í dag- blöðum að talsverðar breytingar eru fyrirhugaðar á lóð Knattspyrnu- félagsins Vals á Hlíðarenda við ræt- ur Öskjuhlíðar, þar sem félagið hef- ur haft aðstöðu frá því um miðja síðustu öld. Fyrir liggur nýtt deili- skipulag þar sem íþróttasvæðið er minnkað um tæpan þriðjung, niður í tæpa 6 hektara. Fram kemur að gert sé ráð fyrir þremur fjölbýlishúsum fyrir námsmenn, 1,7 ha fara undir byggingar til atvinnustarfsemi og heimild verður fyrir byggingu hótels á svæðinu sem hið nýja deiliskipulag nær yfir. Það sem vekur ekki síst at- hygli er að gert er ráð fyrir að rífa 15 ára gamalt íþróttahús, nýja Vals- heimilið! Valur utan hliðarlínunnar Sem Hlíðabúi og Valsari frá barnsaldri sperri ég augu og eyru við þessi tíðindi. Í gegnum tíðina hafa börn og unglingar úr gamla austurbænum og Hlíðahverfinu átt brýn erindi á Valsvöllinn á Hlíðar- enda. Sjálfur á ég ljúfar æskuminn- ingar um óteljandi hlaupaferðir nið- ur á Hlíðarenda og þindarlausa knattleiki á Valsvellinum. Mér er þó löngu ljóst að staðsetning og aðkoma að svæðinu hefur aldrei verið not- endavæn, allra síst fyrir yngstu not- endurna. Bústaðavegurinn, einhver mesta umferðaræð höfuðborgar- svæðisins, hefur alltaf skorðað Hlíð- arenda rækilega frá nágrannahverf- unum. Eftir að Bústaðavegurinn var færður í aukana hér um árið, upp í Öskjuhlíðina og nær Hlíðarenda, var Valur nánast kominn út af vellinum, út fyrir hliðarlínuna. Hið nýja deili- skipulag sem kynnt var um daginn bætir í engu þar um, þvert á móti er sýnt að Valssvæðið verði afgirt á alla vegu af miklum umferðarmannvirkj- um. Miðlægur sess Hið nýja deiliskipulag vekur spurningar um hvaða hugsun liggi því til grundvallar. Ég lít svo á að starfsemi íþróttafélaganna sé fyrst og fremst uppeldisstarf, að helstu skjólstæðingar þeirra séu börn og unglingar. Íþróttafélögin í gömlu Reykjavík eru með elstu stofnunum í þjóðfélaginu. Valur er rúmlega ní- ræður og KR varð hundrað ára fyrir stuttu, svo dæmi séu nefnd. Stórir hópar barna og unglinga hafa sótt til íþróttafélaganna allt frá því að Reykjavík fór að taka á sig mynd og svo mun verða áfram. Saga þessara félaga er og verður rækilega samofin sögu borgarinnar. Íþróttafélögin hafa því unnið sér sterkan þegnrétt í borgarsamfélaginu og enginn efi rík- ir um gildi íþróttastarfs fyrir alla aldurshópa. Þess vegna er ekki hægt að draga aðra ályktun en þá að starf íþróttafélaganna verðskuldi e.k. mið- lægan sess í skipulagi borgarinnar. Rætur Vals í austurbænum Áttum okkur líka á því að íþrótta- félögin eiga sér landfestar í vissum hverfum. Sem slík gegna þau býsna merku hlutverki í siðmenningunni. Þau veita útrás vissri frumstæðri til- finningu hjá mörgum okkar, eins konar ættflokkakennd, um að til- heyra hópi sem berst fyrir og ver sitt svæði. Það erum við og svo þau í hin- um hverfunum! Valur er íþróttafélag þess hluta gömlu Reykjavíkur sem liggur austan Lækjar, sem og Hlíða- og Holtahverfisins. Allar hugmyndir sem heyrðust um tíma um að flytja Val í Grafarvog hljóma því annar- lega. Hvað segðu Vesturbæingar um að flytja KR upp á Kjalarnes? Klambratún heimavöllur Tími breytinga er þó augljóslega runninn upp hjá Val. Fátt mælir gegn því að starfsemi félagsins verði fundinn nýr og hagfelldur staður innan síns hefðbundna hverfis og er þar kominn kjarni þessara skrifa. Mér sýnist sem skipulagsyfirvöldum í Reykjavík og hugsanlega forsvars- mönnum Vals einnig hafi yfirsést langeðlilegasti kosturinn fyrir fram- tíðaraðstöðu félagsins. Klambratún er í nokkurra hundraða metra fjar- lægð frá Hlíðarenda, um 10 hektara svæði sem ætlað er til útivistar en hefur nýst illa sem slíkt. Borgarbúar virðast ekki sækja mikið í túnrækt- ina á Klambratúni. Hugmyndin um slík græn svæði er barn síns tíma og líklega úrelt, hafi hún nokkurn tíma verið virkilega nothæf við okkar að- stæður. Klambratún er ekki Hyde Park og verður ekki. Öskjuhlíðin, þarna rétt hjá, þykir mun álitlegra útivistarsvæði til að skokka, viðra hundinn o.þ.h. Miklabrautin í stokk Klambratún er miðsvæðis í þeim hverfum sem Valur þjónar. Börnum og unglingum stafar mun minni um- ferðarógn af Rauðarárstíg, Flóka- götu og Lönguhlíð en Bústaðaveg- inum. Miklabrautin þarf svo að fara í stokk eins og rætt hefur verið um og þá er Klambratúnið nánast orðið eins og bakgarður fyrir meginhluta Hlíðahverfisins. Klambratúnið gæti þá orðið miðlægt og afar aðgengilegt íþrótta- og útivistarsvæði. Þar væru leikvellir fyrir alla aldurshópa, leik- vangur og knatthús sem færa líf og fjör á svæði sem sáralítil not eru af í dag en liggur þó á einhverju dýr- mætasta landi í allri Reykjavík. Það verður ekki betur séð en huga þurfi að slíkum breytingum nákvæmlega núna þegar hvort eð er á að rífa nið- ur og byggja nýtt undir merki Vals. Valur og íþróttir austan Lækjar Eftir Björn Guðbrand Jónsson „Hið nýja deiliskipu- lag vekur spurningar um hvaða hugsun liggi því til grundvallar.“ Höfundur er framkvæmdastjóri og býr í Hlíðunum. GILDI starfsmanna fyrir fyrir- tæki hefur farið ört vaxandi á und- anförnum árum. Verðmestu eignir fyrirtækja eru ekki lengur vélar og húsnæði, heldur er menntun starfs- fólks það verðmætasta sem fyrir- tæki á. Fyrirtæki sem vilja sækja á ný mið þurfa frjóa og velmenntaða einstaklinga. Erlendis hafa menn verið meðvitaðir um þetta, þar nota fyrirtæki mikla fjármuni í háskóla- menntun starfsfólks og greiða fyrir frumrannsóknir innan háskóla. Þessi fjárfesting byggir á þeirri staðreynd að þekking er það verð- mætasta sem fyrirtæki á. Ef fyr- irtæki veit meira en keppinauturinn þá verður það ofan á og verður fyrst til að markaðssetja nýjungar. Hér á landi eru tengsl atvinnu- lífsins við háskóla enn á frumstigi. Háskólamenntun er í mörgum til- vikum ekki metin sem skyldi. Oft er sagt að heimurinn sé að verða eitt atvinnusvæði og hvað háskóla- menntað fólk varðar er þetta stað- reynd. Sem dæmi má nefna að ef maður bætir við sig MBA gráðu og fær það ekki metið frá atvinnurek- enda getur hann allt eins farið að vinna erlendis í starfi við hæfi. Í há- skólum landsins liggur fjársjóður atvinnulífsins, þar eru stundaðar þær frumrannsóknir sem nauðsyn- legar eru hverri grein. En háskól- arnir hafa líka að geyma aðra auð- lind. Auðlind sem með réttri meðferð er óþrjótandi og það eru þeir stúdentar sem stunda þar nám hverju sinni. Stúdentar eru að leggja á sig margra ára nám til þess að verða sem hæfastir ein- staklingar. Nokkrir halda áfram innan háskóla við rannsóknir og kennslu en langflestir sækja út á atvinnumarkaðinn að námi loknu. Háskólar eru gull- og demantanám- ur fyrirtækja, um þá gilda sömu lögmál og um aðrar námur, maður fær miklu meira út úr þeim við að grafa og leggja á sig vinnu en að tína bara af yfirborðinu. Hver króna sem fer í verkið skilar sér margfalt til baka. Tengsl milli fyr- irtækja og háskóla þurfa að stór- aukast ef við viljum nýta að fullu þá gjöfulu auðlind sem hugvit og ný- sköpun er. Einn vettvangur sem í boði er í byrjun hvers árs eru Framadagar http://www.framadag- ar.hi.is , á þeim vettvangi tengjast fyrirtæki beint við nemendur og selja sig sem framsækna vinnustaði og ákjósanlega samstarfsaðila í framtíðinni. Mannauðurinn er mesti fjársjóður jarðar, fyrirtæki verða að virkja mannauð háskólanna með virkara hætti en verið hefur til að dafna í harðnandi samkeppni. Fjársjóður atvinnulífsins Eftir Inga Þór Finnsson Höfundur er nemi við Verkfræðideild Háskóla Íslands. „Tengsl milli fyrirtækja og háskóla þurfa að stóraukast.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.