Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 56
MINNINGAR 56 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ég býst við, að það verði nokkur tími liðinn, þar til maður áttar sig á því að svo nákominn vinur og ættingi er lát- inn. Mínar minningar um Sigurlinna eru þannig að þótt ég sé um einu og hálfu ári eldri finnst mér ég hafa alltaf litið svolítið upp til hans. Hann var nú líka alltaf svolítið fyndinn og hafði gott lag á að stríða manni. En ekki minnist ég þess að slíkt hafi nokkurn tíma sært mig eða aðra. Ég held að hann hafi haft þenn- an meðfædda hæfileika og hafi fyrst SIGURLINNI SIGURLINNASON ✝ Sigurlinni Sigur-linnason fæddist í Hafnarfirði 12. júní 1927. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 26. nóv- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Garðakirkju 6. desember. og fremst notað hann til að gera lífið svolítið notalegra og betra í umhverfi sínu. Á síðustu árum minnist ég þess sér- staklega hvað alltaf var skemmtilegt að koma til þeirra Ingi- bjargar að Hraunhól- um. Og hvað það gat verið notalegt að sitja uppi á loftinu og hlusta á frásagnir frá Afríku, skoða myndir frá þeim framandi heimi. Ég held að Sigurlinni hafi komist að því þar, að menning er ekki endilega mest þar sem ytri gæði eru mest áberandi. Aldrei heyrði ég hann fara niðrandi orðum um aðra kynstofna. Að lokum votta ég Ingibjörgu og syni þeirra, Þórhildi dóttur hans og öðrum ættingjum samúð mína. Bergur P. Jónsson. ✝ Kristrún J. Karls-dóttir fæddist í Keflavík 14. ágúst 1928. Hún lést í Sjúkrahúsinu á Húsa- vík 26. nóvember síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Karl Valdimar Runólfsson, ættaður frá Móum á Kjalarnesi, og Berg- þóra Sólveig Þor- bjarnardóttir, ættuð frá Ártúni við Reykja- vík. Bróðir Kristrún- ar er Þorbjörn pró- fessor, kvæntur Svölu Sigurðardóttur. Hinn 12. nóvem- ber 1949 giftist Kristrún Ásmundi Bjarnasyni frá Húsavík, f. 17. febr- úar 1927. Börn þeirra eru sex: Karl verkfræðingur, búsettur í Banda- ríkjunum, kvæntur Bergþóru Guð- björnsdóttur, þau eiga þrjá syni og tvö barnabörn, Bergþóra, starfs- maður Landsbankans á Húsavík, gift Arnari Guðlaugssyni, þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn, Bjarni skipatæknifræðingur, búsettur á Akureyri, kvæntist Birnu Hreið- arsdóttur, þau eiga þrjár dætur, þau slitu samvistir, Jóhanna, launafulltrúi hjá Olíuverzlun Ís- lands hf., var gift Jóni Friðriki Benónýssyni, þau eiga eina dóttur, þau slitu samvistir. Maki Jóhönnu er Erling Ólafur Aðalsteinsson, þau eiga tvö börn, Anna Kristjana, kennari við Grunn- skólann á Flúðum, gift Sigurði Inga Jó- hannssyni, þau eiga þrjú börn, og Sigrún, starfar á Morgun- blaðinu, gift Kjartani Ásmundssyni, þau eiga tvö börn og Kjartan á auk þess einn son. Kristrún ólst upp í Keflavík til 16 ára aldurs þegar foreldr- ar hennar fluttust bú- ferlum til Reykjavíkur. Hún tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1948 úr stærðfræði- deild og lauk prófi frá Kennara- skóla Íslands 1974. Kristrún og Ás- mundur fluttust til Húsavíkur árið 1963 og áttu þau heimili þar upp frá því. Hún var kennari við Grunnskóla Húsavíkur og síðar unglingadeildir Framhaldsskóla Húsavíkur frá 1970–1994. Kristrún var lengi í stjórn Kvenfélags Húsa- víkur, þar af formaður í 10 ár, og í stjórn Kvenfélagasambands Suð- ur-Þingeyjarsýslu um árabil. Síð- ustu árin starfaði hún með hand- verkshópnum Kaðlín á Húsavík. Útför Kristrúnar verður gerð frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Vorið 1963 fluttust til Húsavíkur frá Reykjavík hjónin Kristrún J. Karlsdóttir og Ásmundur Bjarnason ásamt börnum sínum fjórum, því yngsta nokkurra mánaða gömlu, það elsta varð eftir í Reykjavík í umsjá móðurforeldra. Á Húsavík fjölgaði börnunum um eitt svo þau urðu alls sex. Er norður kom tók Ásmundur að vinna við útgerð Helga Flóventsson- ar þar sem hann var hluthafi og einkum vann hann næstu árin við síldarsöltunarstöð fyrirtækisins í fé- lagi við Kaupfélag Þingeyinga. Og húsmóðirin hafði ærið að starfa við heimilishaldið á þeim árum. Ásmund þekktu Húsvíkingar frá því hann ólst upp á Húsavík og höfðu fylgst með hans íþróttaferli og afrekum á þeim vettvangi. En færri vissu hver kona hans var. Kristrún fæddist í Keflavík. For- eldrar hennar voru Karl Runólfsson, járnsmiður, og kona hans Bergþóra Sólveig Þorbjarnardóttir. Í Keflavík ólst Kristrún upp fram á táningsár er fjölskylda hennar flutti til Reykjavíkur. Þegar Kristrún var sjö ára gömul upplifði hún atburð sem henni var minnisstæður til æviloka og hún skrifaði um í Bergmáli, Árs- riti Kvenfélagasambands Suður- Þingeyjarsýslu. Í grein þessari rifj- aði Kristrún upp þann hörmulega atburð sem varð í Keflavík 30. des. 1935 þegar jólatrésskemmtun var haldin í húsi Ungmennafélags Kefla- víkur og eldur varð þar laus og barst með ógnarhraða um húsið svo að við ekkert varð ráðið og sex manns fór- ust og þrír létust síðar af völdum brunasára: Samkomuhúsið gjöreyði- lagðist á hálfri klukkustund. Krist- rún var meðal 180 barna á aldrinum 6–14 ára sem jólatrésskemmtunina sóttu. Komst hún út úr húsinu nauð- uglega svo og bróðir hennar Þor- björn, sem var árinu eldri en Krist- rún. Í Keflavík lagði Kristrún stund á sund og hlaut þar eitt sinn titilinn Sunddrottning Suðurnesja sem þá þótti eftirsóknarverður titill enda mikill sundáhugi þar um slóðir á þeim tíma. Og á unglingsárum starf- aði hún um skeið við Sundlaug Keflavíkur. Í Reykjavík stundaði Kristrún nám við Menntaskólann í Reykjavík og lauk þar stúdentsprófi úr stærðfræðideild 1948. En á þeim tíma sóttu stúlkur fremur nám í máladeild. Kristrún var snemma spengileg og bar sig vel á velli meðan heilsa entist. Hún átti því snemma aðdá- endur meðal ungra manna. Ég minnist þess þegar Kristrún var orðin kennari við Gagnfræðaskóla Húsavíkur að kunnur maður í þjóð- lífinu á þeim tíma kom í skólann til að kynna nemendum alþjóðlegan fé- lagsskap sem hafði m.a. starfað á Ís- landi. Ég gekk með gestinum inn á kennarastofu í frímínútnahléi þar sem við ræddum um stund við kenn- arana sem þar sátu. Á leið okkar fram á gang að loknu spjalli innti hann mig eftir einni kennslukonunni sem á kennarastofunni var og hver hún væri. „Kristrún Karlsdóttir,“ svaraði ég. Þá varð honum að orði: „Já, var þetta Kristrún? Mér fannst það. Við vorum allir bálskotnir í henni strákarnir.“ En í ljós kom að hann og Kristrún höfðu verið á sama tíma nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík. Það var því mikið kapp- hlaup meðal þessara ungu aðdáenda sem gerðu hosur sínar grænar fyrir hinni ungu glæsilegu stúlku. Hlut- skarpastur á því skeiði varð sprett- hlaupari frá Húsavík, Ásmundur Bjarnason, sem um þær mundir skipaði sveit vaskra íþróttamanna íslenskra sem þá báru hróður Ís- lands víða. Ásmundur og Kristrún voru gefin saman í hjónaband í Reykjavík 12. nóv. 1949. Kynni okk- ar Kristrúnar hófust ekki fyrr en 1970 er hún gerðist kennari við Gagnfræðaskóla Húsavíkur. Þar störfuðum við saman í 17 ár og bar aldrei skugga á samstarf okkar. Hún var samviskusöm, bar með sér góðan þokka, glaðvær og hýr í við- móti. Hún ákvað eftir að hafa kennt fáein ár við skólann að ná sér í kennsluréttindi og 1973–1974 lagði hún stund á og lauk kennslurétt- indanámi frá Kennaraskóla Íslands, jafnhliða því sem hún starfaði við Gagnfræðaskóla Húsavíkur. Þar kenndi hún ýmsar greinar en lengst kenndi hún þar íslensku. Hún hafði metnað til að ná sem bestum ár- angri. Fagnaði ef vel gekk en þótti miður ef á annan veg fór en vænt- ingar stóðu til. Og sjaldnast ná kennarar til allra nemenda sinna á táningsaldri, þeim árum þegar ung- lingarnir eru í mótun og finnst sum- um flest nauðsynlegra og skemmti- legra en tileinka sér persónu, tíð, hátt og mynd í málfræðinámi. Og ekki öruggt að sá vísdómur hafi ætíð ratað rétta leið til allra þrátt fyrir góðan vilja. Það þekkja málfræði- kennarar manna best. En með seiglu, lagni og lipurð tókst Krist- rúnu að ná til nemenda sinna og koma til skila því efni sem fyrir var lagt. Kristrún kenndi til ársins 1994 og hafði þá kennt í 24 ár. En um þær mundir fór heilsa hennar og þrek að bila. Eins og margir kennarar, ekki síst á landsbyggðinni, kom Kristrún við sögu félagsmála. Á Húsavík var hún varabæjarfulltrúi 1974–1978. Í stjórn sjúkrasamlagsins á staðnum sat hún 1974–1978. Starfaði lengi í Kvenfélagi Húsavíkur og gegndi formannsstöðu þar um skeið. Einnig sat hún í stjórn Kvenfélagasam- bands S- Þingeyjarsýslu. Öll sín störf rækti hún af kostgæfni og sam- viskusemi, samvinnufús og gott með henni að starfa. Eftir að Kristrún hætti kennslu 1994 starfaði hún ásamt nokkrum konum í félagsskap sem þær nefndu Kaðlín. Þar voru stundaðar hann- yrðir af ýmsum toga, gerðir búta- saumsdúkar og fengist við prjóna- skap og fleira. Var þetta jafnframt söluvarningur og skiptust konurnar á við söluna. Stundum bar útlend- inga að garði til að skoða og kaupa og kom sér þá vel málakunnátta Kristrúnar en hún hafði dvalið um tíma í Bandaríkjunum á yngri árum og hafði gott vald á enskri tungu. Kristrún var ekki óvön því að vinna ýmislegt í höndum því að meðan börnin voru að alast upp saumaði hún öll föt á þau, svo og á sjálfa sig, því að ekki veitti af að drýgja tekj- urnar á mannmörgu heimili. Á síðustu árum hrakaði heilsu Kristrúnar. Hún bar sig þó vel og brá á léttara hjal þegar um heilsuna var spurt. En séð var til hvers dró og fengu læknar þar ekki að gert. Síðustu vikurnar dvaldi hún á Heil- brigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík, þar sem hún lést þriðjudaginn 26. nóv. sl. Börn þeirra Ásmundar og Krist- rúnar eru öll á lífi: Karl, verkfræð- ingur í Bandaríkjunum, Bergþóra, starfar hjá útibúi Landsbanka Ís- lands á Húsavík, Bjarni, skipatækni- fræðingur á Akureyri, Jóhanna, launafulltrúi hjá Olís í Reykjavík, Anna Kristjana, húsfrú í Syðra- Langholti í Hrunamannahreppi og kennir við grunnskólann á Flúðum, Sigrún, prófarkalesari við Morgun- blaðið. Við leiðarlok eru efst í huga góð kynni og samstarf um árabil þar sem Kristrún með sinni hýru lund og glöðum hlátri létti jafnan and- rúmsloft meðal þeirra sem með henni störfuðu. Ásmundi og börnum þeirra hjóna og öðrum aðstandend- um er vottuð innileg samúð. Blessuð sé minning Kristrúnar Karlsdóttur. Sigurjón Jóhannesson. Í dag, þegar við kveðjum Krist- rúnu, tengdamóður okkar, er hugur okkar fullur sorgar og trega. Krist- rún eða amma Didda eins og börnin kalla hana lést eftir langvinn veik- indi þriðjudaginn 26. nóvember síð- astliðinn. Þegar heilsan brestur er lífið eilíf barátta og að lokum þverr allur þróttur og lífsneisti. Hún tengdamóðir okkar kvaddi þennan heim, sátt við alla menn og búin und- ir ferðalagið mikla. Kristrún var gift eftirlifandi eig- inmanni sínum, Ásmundi, í 53 ár. Það er langur tími, svo langur að erfitt verður að hugsa til tengda- föður okkar í framtíðinni án þess að Kristrún komi þar við sögu. Heimili Kristrúnar og Ásmundar var lengst af á Uppsalavegi 20 á Húsavík eða uppi á hól eins og kallað var og uppi á hól var það sannarlega. Útsýni stórfenglegt en veðrátta erf- ið eins og gefur að skilja. Einhvern veginn tókst Kristrúnu með óbilandi þrautseigju og elju að rækta garð með ótal rósum og trjám sem ekki hefðu átt að þrífast við þessar að- stæður. Innanhúss var ræktunar- og sköpunargleðin líka ríkjandi; plöntur, skreytingar, hannyrðir og margir hlutir hvaðanæva úr veröld- inni sem þau hjón höfðu eignast á ferðum sínum erlendis, ferðum sem bæði höfðu yndi af. Já, hún Kristrún var iðjusöm, hún var eiginlega alltaf að. Nú síðustu árin áttu hannyrðir allan hennar hug og bera heimili okkar þess ríkulegt vitni. Á meðan heilsan leyfði fengum við alltaf konunglegar móttökur þegar við komum að sunnan. Á hátíðar- stundum í fjölskyldunni tókst Krist- rúnu ætíð að galdra fram stórfeng- legar veislur, að því er virtist án nokkurrar áreynslu og af því hafði hún sannarlega gaman. Kærar þakkir fyrir samfylgdina. Blessuð sé minning Kristrúnar Karlsdóttur. Sigurður Ingi Jóhannsson, Arnar Guðlaugsson, Kjartan Ásmundsson, Erling Aðalsteinsson. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, – augun spyrja eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? Lítill sveinn á leyndardómum lífs og dauða kann ei skil: hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til, hann vill fá að hjúfra sig að hennar brjósti sætt og rótt. Amma er dáin – amma finnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann – lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir – amma kyssir undurblítt á kollinn hans. breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum.) Með þessum örfáu orðum viljum við kveðja ömmu okkar. Minning hennar lifir allt í kringum okkur og hvort sem er á degi eða nóttu umvef- ur hún okkur hlýjum örmum. Valgerður, Gyða og Ásbjörn. Ég er ekki enn alveg búin að átta mig á því að elsku amma sé farin yfir í hinn betri heim og eigi aldrei eftir að koma aftur. Þrátt fyrir að ég viti innst inni að það var best fyrir hana að fá hina eilífu hvíld af því að hún var orðin svo veik. Það er svo sárt að hugsa til þess að ég á aldrei eftir að hitta hana aftur. Það eru svo ótal margar minn- ingar sem rifjast upp þegar komið er að kveðjustund sem þessari. Til dæmis hvernig amma beit í neðri vörina þegar hún hló, hve garðurinn á Uppsalavegi 20 var ævintýralega flottur, hve mikinn metnað hún hafði varðandi nám okkar barnabarnanna og svona gæti ég haldið endalaust áfram. Fyrstu minningar mínar frá Upp- salaveginum eru hvað mér þótti saumaherbergið hennar ömmu ótrú- lega spennandi. Saumavélin stóð alltaf tilbúin á borðinu, út úr skápn- um flæddu óendanlega margar gerð- ir af efnum, gólfið var alþakið þráð- um og spottum og svo rúsínan í pylsuendanum, kassinn sem var undir skrifborðinu. Hann var fullur af tómum tvinnakeflum sem hægt var að raða upp á ótrúlega marga vegu. Á öllum heimilum barna ömmu og barnabarna er að finna hluti sem hún bjó til. Ég man t.d. eitt sumarið sem ég var fyrir norðan, þá sá ég saumablað með stelpu á forsíðunni sem var í ofboðslega fallegum „prinsessukjól“. Ég varð alveg dol- fallin yfir þessum kjól og amma tók greinilega eftir því af því að fyrir næstu jól fékk ég sendan alveg eins kjól, meira að segja úr alveg eins efni. Ömmu fannst mjög gaman að velta íslensku máli fyrir sér og ég man oft eftir henni sitjandi inni í eld- húsi að leysa krossgátur. Jafnvel þegar hún lá veik á sjúkrahúsinu voru staflarnir af krossgátublöðum allt í kring. Elsku afi, missir okkar allra er mikill en þinn er þó mestur. Þú veist að við styðjum þig öll og ég vil að þú vitir hvað mér þykir vænt um þig. Elsku amma, takk fyrir allt. Þín, Nanna Rún. Þá er hún fallin frá, ástkær amma okkar, eftir löng og erfið veikindi og er erfitt að horfa á eftir henni en við huggum okkur við það að vita að núna er hún á betri stað. Garðurinn á Uppsalavegi 20 var ömmu alltaf mjög hugleikinn, eyddi hún ófáum dögunum þar og þegar við lítum til baka er alltaf mjög minnisstætt þegar við vorum að leika okkur í garðinum hennar ömmu. Þá var það oftar en ekki fót- bolti sem við vorum í, við vissum vel að það var ekki vinsælt hjá ömmu að við værum nálægt fallegu blómun- um hennar með boltann en aldrei gerðist það að hún skammaði okkur fyrir það, heldur var hún alltaf jafn- ánægð með okkur. Þannig var það alltaf þegar við komum í heimsókn og er ömmu lýst mjög vel á þann hátt. Það var alltaf gaman að koma við hjá ömmu eftir skóla og spjalla um daginn og veginn, hún var alltaf til í að heyra hvað væri um að vera í kringum okkur, hvort sem það var í skóla eða íþróttum. Það var aldrei komið að tómum kofunum hjá þeim ömmu og afa og áttum við ófáar gleðistundirnar þar. Amma var virkilega góð í öllu sem sneri að handavinnu og eigum við öll barnabörnin eitthvað fallegt sem hún bjó til handa okkur; teppi, vett- linga eða húfur, alls kyns hluti sem hafa komið sér virkilega vel og er hún alltaf að hluta til með okkur í gegnum þessa hluti. Amma Didda var ein af virtustu og bestu kennurum sem hafa kennt á Húsavík og erum við bræður báðir til vitnis um það og erum við sam- mála um að aldrei hafi það bitnað neitt á okkur þó að amma hafi verið að kenna okkur. Hún var ákveðin í tímum, svo þegar við hittum hana utan tíma var tekið við þetta jafn- aðargeð sem einkenndi hana alltaf. Sem dæmi um vinsældir hennar sem kennara var það eitt árið að hún var kosin árshátíðardrottning á árshátíð Framhaldsskólans á Húsavík. KRISTRÚN J. KARLSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.