Morgunblaðið - 07.12.2002, Síða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞETTA atvik leiðir hugann að því
að við höfum enga aðstöðu hér-
lendis til að taka við dýrum við
svona aðstæður. Slíkri aðstöðu
þyrfti að koma upp og það er full
þörf á að kanna slík úrræði betur,“
segir Halldór Runólfsson yfir-
dýralæknir um atvik á Keflavík-
urflugvelli í gær, þegar flugstjóri á
breiðþotu hollenska flugfélagsins
KLM óskaði eftir að fá að skilja
trylltan veðhlaupahest eftir í Kefla-
vík. Ellefu veðhlaupahestar voru
um borð í vélinni sem átti að flytja
til Bandaríkjanna, en einn þeirra
trylltist skömmu eftir flugtak í Hol-
landi og tók flugstjórinn ákvörðun
um að millilenda í Keflavík til að
reyna að losna við hestinn. Halldór
Runólfsson, Helgi Sigurðsson sér-
fræðingur í hrossalækningum og
Gunnar Örn Guðmundsson héraðs-
dýralæknir voru kallaðir út vegna
málsins og var flugstjóranum tjáð
að ekki kæmi til greina að skilja
hestinn eftir hér af sóttvarn-
arástæðum og gildandi laga um
innflutning á dýrum. Var flugstjór-
anum boðið upp á að hesturinn yrði
aflífaður og hræið flutt áfram vest-
ur um haf, eða að hann yrði deyfð-
ur með sterkum deyfilyfjum. Kaus
flugstjórinn seinni kostinn og hélt
áfram för sinni í gærkvöld með
hestinn innanborðs, eftir fjögurra
klukkustunda viðdvöl í Keflavík.
Halldór segir að hesturinn hafi
skrámað sig lítillega í látunum en
ekki hafi verið þörf á aðgerð af
þeim sökum. Vel hafi farið um
hrossin í vélinni og aðbúnaður góð-
ur. Hrossin voru í sérrými í þar til-
gerðum gámum en í vélinni er einn-
ig farþegarými og voru tæplega
300 farþegar um borð.
Flugstjóri hjá KLM-flugfélaginu í hrossaflutningum
Vildi skilja trylltan veð-
hlaupahest eftir í Keflavík
TALSVERT af ætluðu þýfi hefur
fundist í húsleit lögreglunnar á dval-
arstað fjögurra Pólverja sem grunað-
ir eru um stórfellda þjófnaði að und-
anförnu. Þrír þeirra eru í gæslu-
varðhaldi og sá fjórði á sjúkrahúsi.
Tekist hefur að koma flestum mun-
unum í hendur réttra eigenda, en
flestir sem hafa endurheimt muni
söknuðu þeirra úr nýlegum innbrot-
um í nágrenni við Selfoss. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu hafa ekki fund-
ist eigendur að öllu góssinu og hvetur
því lögreglan sumarbústaðaeigendur
í nágrenni Selfoss til að líta á bústaði
sína og ganga úr skugga um að þar sé
allt með felldu. Að öðrum kosti óskar
lögreglan eftir því að þeir, sem kann-
ast við munina á myndinni, hafi sam-
band við auðgunarbrotadeild lögregl-
unnar. Líkur benda til þess að sumir
þessara muna séu úr sumarbústöðum
sem brotist hefur verið inn í undan-
farnar fimm vikur. Líklegast er að
farið hafi verið inn í bústaði á Suður-
og Vesturlandi og ekki er víst að þessi
innbrot hafi verið tilkynnt til lögregl-
unnar.
Fjórir Pólverjar
grunaðir um þjófn-
aði í sumarbústöðum
Lögregla
fann mikið
ætlað þýfi í
húsleit
ÞAU eru kannski farin að líta eftir
jólasnjónum sem ætti með réttu að
hylja jörð á þessum árstíma, börnin
á Tjarnarborg. Það er komið fram í
desember en hvergi jólasnjó að sjá.
Og svo er það öll rigningin sem
kemur í staðinn. Ekki að undra þótt
maður sé svolítið hissa.
Morgunblaðið/Golli
Hvar er jólasnjórinn?
MIKIL samkeppni er um versl-
unar- og fyrirtækjalóðir við Eyra-
veg á Selfossi. BYKO hefur verið á
höttunum eftir lóð á Selfossi til að
byggja stóra byggingavöruverslun
og timbursölu. Fyrirtækið Lands-
afl hf. hugðist kaupa lóðina Eyra-
veg 34–36 fyrir hönd BYKO af
hlutafélagi sem átti lóðina og hafði
undirbúið þar framkvæmdir. Auk
þess hafði Landsafl hf. tryggt sér
næstu lóð við hliðina fyrir hönd
BYKO sem hugðist byggja upp
stórt verslunarhús á þremur lóð-
um.
Landsafl fékk gagntilboð frá eig-
endum Eyravegar 34–36 og tók því
tilboði en áður en gengið var frá
endanlegum samningum keypti
fyrirtækið Miðdalur ehf. lóðina af
eigendunum og jafnframt tvær
aðrar lóðir við Eyraveginn af
Fossmönnum ehf. en það félag sel-
ur lóðir í Fosslandinu við Eyraveg-
inn. Með þessu er komið í veg fyrir
að um sinn sé hægt að byggja stór-
hýsi á þremur lóðum við Eyraveg-
inn, en Miðdalur ehf. er að hluta til
í eigu sömu aðila og Húsasmiðjan.
Landsafl telur að kominn hafi
verið á kaupsamningur þegar
gagntilboði þeirra var tekið í lóð-
ina Eyravegur 34–36. Mun fyrir-
tækið láta reyna á það og fer málið
fyrir Héraðsdóm Suðurlands á
mánudag.
Eftirsótt svæði
„Það er alveg klárt að þetta er
mjög eftirsótt svæði hér á Selfossi
sem sést á því að tvö stærstu
byggingafyrirtæki landsins kepp-
ast við að ná þar í lóðir. Fossmenn
hafa selt BYKO eina lóð og Miðdal
ehf. tvær lóðir en það er félag sem
Árni Hauksson forstjóri Húsa-
smiðjunnar er í fyrirsvari fyrir.
Hvað svo sem býr að baki þessum
átökum þá er það klárt að fyr-
irtæki líta á það sem álitlegan kost
að setja sig hér niður með starf-
semi sína,“ sagði Guðmundur Sig-
urðsson framkvæmdastjóri Foss-
manna ehf.
Hörð samkeppni er milli fyrirtækja um verslunarlóðir á Selfossi
Dómstólar fjalla um lóðakaup
Morgunblaðið/Sig. Jónsson
Horft er yfir svæðið sem tekist er á um á Selfossi. Næst er lóðin Eyravegur
34–36 en fjær er verslunarhús Húsasmiðjunnar á Selfossi.
ÁRLEG jólasöfnun Hjálparstarfs
kirkjunnar hefur farið vel af stað í ár
og nú þegar hafa safnast ríflega 6
milljónir króna sem nota á til að
byggja vatnsbrunna í Mósambík.
Að sögn Jónasar Þ. Þórissonar,
framkvæmdastjóra Hjálparstarfs
kirkjunnar, er þetta betri byrjun en
mörg undanfarin ár og greinilegt, að
hans mati, að vatnsöflunarverkefnið
höfðar til ungra sem aldinna.
Sem dæmi nefnir hann að 23 ára
stúlka hafi gefið 90 þúsund krónur í
söfnunina, eða andvirði þess sem
kostar að byggja einn brunn. Þá gaf
þjóðþekktur fjölmiðlamaður sem
kominn er á eftirlaun sömu upphæð.
Viðbrögð við fyrirsögn söfnunar-
innar: Hann er að drepast úr þorsta,
hafa þó verið nokkuð misjöfn.
„Þeim sem málvandir eru fannst
þetta vera eitthvað niðrandi og að við
værum kannski að tala niður til Afr-
íkubúans. Við bendum hins vegar á að
við tökum oft svona til orða líkt og við
segjum: ég er að drepast í bakinu, ég
er að drepast í höfðinu, ég er að drep-
ast úr stressi, eða hvað það nú er.“
Jónas segir að markmiðið sé fyrst
og fremst að vekja fólk til umhugs-
unar því hér sé um dauðans alvöru að
ræða fyrir þá sem ekki hafa hreint
vatn. Flestir hafi líka tekið skilaboð-
unum á þann hátt sem ætlast var til.
Fyrir þá sem vilja leggja söfnun-
inni lið er bent á gíróseðla sem sendir
hafa verið inn á hvert heimili að
upphæð 2.500 kr. Þá er hægt að
styrkja söfnunina með frjálsum fram-
lögum á heimasíðu Hjálparstarfsins:
www.help.is og með 1.000 kr. fram-
lagi með því að hringja í söfnunarsím-
ann 907 2002.
Söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar
Tveir einstak-
lingar hafa
gefið brunna
ÞRÍR menn, 18 og 19 ára gamlir,
voru í gær dæmdir í fangelsi í Hér-
aðsdómi Reykjaness fyrir líkams-
árás fyrir utan skemmtistað í
Grindavík í maí í fyrra. Einn mað-
urinn, sem er átján ára, hlaut 30
daga dóm en hinir 45 og 60 daga.
Dómurinn er skilorðsbundinn.
Mennirnir réðust á sér tíu árum
eldri mann og veittu honum högg og
spörk í andlit og skrokk. Við það
hlaut fórnarlamb þeirra sár á höfði
sem sauma þurfti saman og skrámur
og rispur frá höfði og niður á fætur,
en auk þess brotnaði beintindur á
lendarhryggjarlið.
Árásarmennirnir voru dæmdir til
að greiða fórnarlambinu skaðabæt-
ur.
Þrír dæmdir
fyrir líkamsárás
EIN UMSÓKN barst um rekstr-
arleyfi fyrir þráðlaus notendakerfi
á örbylgju skv. auglýsingu Póst- og
fjarskiptastofnunarinnar sem rann
út 18. nóvember sl. Umsækjandinn,
Gagnaveitan ehf., hefur fengið út-
hlutað leyfi frá stofnuninni en kerf-
ið er einkum ætlað fyrir þráðlausan
netaðgang. Að sögn Sigurjóns
Ingvasonar, forstöðumanns leyfis-
veitinga hjá Póst- og fjarskipta-
stofnun, eru tveir leyfishafar fyrir á
sama tíðnisviði, Lína.net og Fjarski
ehf.
Ein umsókn
barst
♦ ♦ ♦