Morgunblaðið - 07.12.2002, Síða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BÆNAKALL múslíma sem leikið
er fyrir utan Listasafn Reykjavíkur
í Hafnarhúsinu í tengslum við sýn-
ingu í safninu hefur farið fyrir
brjóstið á nokkrum vegfarendum
sem hafa látið starfsfólk safnsins
hafa það óþvegið.
„Mikill meirihluti sem hefur tjáð
sig við okkur um bænakallið sem
við spilum fyrir utan safnið þrisvar
á dag hefur verið undrandi og for-
vitinn og spurt hvað sé um að vera.
Þetta hefur því þjónað þeim til-
gangi að kynna sýninguna. En því
miður hefur í undantekningartilvik-
um gerst að fólk hefur tekið þessu
illa og þá látið ýmsa fordóma og
ókurteisi dynja á afgreiðslufólki,“
segir Eiríkur Þorláksson, forstöðu-
maður Listasafns Reykjavíkur.
Sýningin sem hann talar um kallast
Milli goðsagnar og veruleika þar
sem dregin er upp mynd af stöðu
nútímalistar í arabaheiminum með
úrvali verka eftir listamenn frá fjöl-
mörgum arabalöndum. „Við höfum
reynt að segja fólki að tilgangurinn
sé ekki að móðga eða særa neinn
heldur að gefa fólki færi á að kynn-
ast öðrum hliðum þess þjóðlífs sem
er að finna í arabalöndunum,“ segir
Eiríkur um viðbrögð safnsins við
kvörtununum. „Við höfum hvatt
fólk til að reyna að takast á við eigin
fordóma og sýna þolinmæði. Fólk
hefur verið að býsnast yfir hversu
framandi þetta sé og spyr hvaða er-
indi þetta eigi hér á landi. Þessi til-
felli eru fá en verða alltaf áberandi
fyrir það hvað þau eru hvöss og
hastarleg og því miður lenda þau á
röngum aðilum.“
Eiríkur segir að ekki hafi komið
til tals að leggja niður bænaköllin
vegna kvartananna. „Það væri
ótrúleg þröngsýni ef Íslendingar
gætu ekki þolað það að kynnast öðr-
um menningarheimum með jafn-
saklausum hætti og þarna er.“
Á sýningunni eru annars vegar
verk sem tengjast trúarbrögðum,
kynferði og pólitík. Hins vegar get-
ur að líta afturhvarf til hefðarinnar
sem dregur listamennina að sagn-
fræðilegum og trúarlegum uppruna
sínum.
Eiríkur segir sýningunni almennt
hafa verið tekið mjög vel. „Ég held
að það sé mjög forvitnilegt fyrir Ís-
lendinga einmitt á þessum tíma að
átta sig á að í arabalöndunum þrífst
mikið og fjölbreytt menningarlíf og
hefur gert í mun fleiri aldir en Ís-
land hefur verið byggt. Sú mynd
sem við höfum af þessum heimi nú
um stundir er fyrst og fremst lituð
af pólitískum fréttum óeirða og
stríða sem er ekki sú mynd sem
blasir við meginþorra almennings í
löndunum. Tilgangurinn með sýn-
ingunni er því að varpa ljósi á
mannlífið og menninguna.“
Starfsfólk Listasafns Reykjavíkur mætir
fordómum vegna íslamskrar listasýningar
Kvartað yfir bænakalli
tengdu sýningunni
NÝBYGGING Kennaraháskóla Ís-
lands á Rauðarárholti, Hamar,
var tekin formlega í notkun í gær
að viðstöddum menntamálaráð-
herra, starfsliði skólans og öðrum
gestum.
Hér er um að ræða fyrsta húsið
af fimm nýjum byggingum sem
gert er ráð fyrir í deiliskipulagi
svæðisins frá 1996.
Nýja húsið er svokölluð
Menntasmiðja skólans og sam-
einar bókasafn og gagnasmiðju og
er kjarninn í stoðþjónustu hans. Í
húsinu eru rúmgóðir fyrirlestra-
salir, vel búnar kennslustofur og
lessalur fyrir nemendur.
Í kynningarriti sem gefið var út
um nýbyggingu Kennarháskólans
segir að við hönnun hennar hafi
áhersla verið lögð á góð tengsl
við eldri byggingar og að lengd
hússins og breidd stokkanna
tveggja, sem myndi aðra og þriðju
hæð svari til lengdar og breiddar
eldri byggingar.
Húsið opið í dag
Grönn form og langar línur,
björt sjónsteypa og koparslegnir
fyrirrspegli eldri bygginguna. Þá
setji tekk og flísar svip á húsið og
gler leiki óvenjustórt hlutverk
Húsið verður til sýnis fyrir al-
menning í dag milli klukkan 13 og
16.
Morgunblaðið/Sverrir
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og Ólafur Proppé, rektor KHÍ, ræðast við í nýbyggingu skólans í gær.
Nýtt húsnæði KHÍ tekið í notkun
SÉRSTAKAR reglur verða settar
um upplýsingagjöf vátryggingartaka
við töku vátrygginga og heimildir vá-
tryggingarfélaga til þess að afla upp-
lýsinga í tengslum við persónutrygg-
ingar verða takmarkaðar frá því sem
verið hefur, samkvæmt nýju frum-
varpi til laga um vátryggingarsamn-
inga, sem Valgerður Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra kynnti á ríkis-
stjórnarfundi í gær.
Samkvæmt upplýsingum við-
skiptaráðuneytisins eru þessi ákvæði
nýmæli í íslenskum vátryggingarétti
en þau tengist mjög umræðu sem
verið hefur hin seinustu ár um hag-
nýtingu upplýsinga, m.a. úr gagna-
grunnum um heilsufar fólks.
Frumvarpið var samið af nefnd
sem skipuð var 1999. Kveður það í
ýmsum atriðum á um aukna neyt-
endavernd og er m.a. skerpt á ákvæð-
um um upplýsingaskyldu vátrygging-
arfélaga gagnvart vátryggingartaka,
við gerð vátryggingarsamninga,
meðan samningur gildir og í uppgjöri
bóta. Sambærileg ákvæði er ekki að
finna í gildandi lögum.
Valgerður segir að um mikilvægt
og stórt lagafrumvarp sé að ræða og
mikil vinna hafi farið fram við und-
irbúning þess og gerð. Það feli í sér
töluverðar breytingar á lagaumhverfi
vátryggingarsamninga og breytta
hugsun þar sem frumvarpið byggist á
neytendavernd.
Frumvarpið kveður einnig á um að
verksvið úrskurðarnefndar í vátrygg-
ingarmálum verði útvíkkað og eiga
möguleikar neytenda til þess að fá
skjóta og ódýra úrlausn ágreinings-
efna sinna að stóraukast verði frum-
varpið að lögum, að mati höfunda
frumvarpsins.
Í frumvarpinu eru einnig ákvæði
um ábyrgðartakmarkanir og varúð-
arreglur, svo og um uppgjör bóta.
Valgerður segir að reikna megi með
að breytingarnar gætu haft í för með
sér kostnaðarauka fyrir vátrygging-
arfélög. Ekki hefur þó verið lagt mat
á hversu mikill sá kostnaðarauki
verður. Talið er ljóst að tryggingar-
félögin muni þurfa að breyta upplýs-
ingakerfum sínum og endurskoða
skilmála vátrygginga.
Valgerður stefnir að því að frum-
varpið verði afgreitt á vorþinginu.
Frumvarp viðskiptaráðherra
um vátryggingarsamninga
Heimild til að afla
persónuupplýs-
inga takmörkuð
RÚMLEGA þrítugur maður var í
gær dæmdur í 45 daga fangelsi
fyrir að stela sjö oststykkjum í
verslun 10–11 við Austurstræti í
Reykjavík í ágúst í sumar. Verð-
mætið var 3.683 krónur. Maður-
inn var stöðvaður á leið út úr
versluninni með ostinn í plast-
poka, eftir að hafa gengið framhjá
afgreiðslukössum án þess að
bjóða borgun. Játaði hann á sig
þjófnaðinn bæði við lögreglu og
öryggisverði verslunarinnar. Bar
hann því við að hafa ætlað að selja
ostinn á hálfvirði í Kolaportinu og
afla sér þannig fjár fyrir valíum.
Maðurinn á að baki langan sak-
arferil og hefur m.a. hlotið 13
dóma fyrir þjófnað og tilraun til
þjófnaðar, síðast í apríl í fyrra var
hann dæmdur í 30 daga fangelsi.
Við ákvörðun refsingar nú var þó
til þess litið að verðmæti ostanna
þótti lítið.
45 daga fangelsi
fyrir að stela ostum
„ÞAÐ er nú ekki mikið að segja
frá. Ég sofnaði nú bara undir
stýri,“ segir Halldór Már Þór-
isson þegar Morgunblaðið hafði
tal af honum í gær en hann ók
jeppa sem fór út af veginum um
Fellabök í Steingrímsfirði og
hafnaði úti í sjó á fimmtudag.
Halldór er sölumaður hjá
Wurth á Íslandi og lagði upp í
söluferð frá heimili sínu í Súða-
vík um klukkan sex um morg-
uninn.
„Ég var þreyttur og búinn að
stoppa nokkrum sinnum á leið-
inni. Það voru ekki nema 10 mín-
útur síðan ég stoppaði síðast og
fór út og viðraði mig,“ segir
Halldór. Hann vaknaði þegar
bíllinn fór út í grófa möl í veg-
kantinum en þá var orðið of seint
að koma í veg fyrir að hann færi
út af. Bíllinn fór niður þriggja
metra háan kant, yfir stórgrýti
og stöðvaðist úti í sjó. Jeppinn
hélst á réttum kili en fór að halla
mikið til vinstri eftir að hann
stöðvaðist. Halldór losaði þá bíl-
beltið, opnaði hurðina farþega-
megin og klöngraðist út. Bíllinn
hallaði þá svo mikið að Halldór
gat stigið á drifskaftið og hoppað
í land.
Slapp ómeiddur
en blautur í land
Halldór var algjörlega ómeidd-
ur en blautur í fæturna. Rafkerfi
jeppans þoldi sjóbaðið ekki eins
vel því flautan fór á fullt og ljós
kviknaði á kösturunum framan á
jeppanum. Jeppinn gat því varla
farið fram hjá vegfaranda sem
kom aðvífandi og ók hann Hall-
dóri til Hólmavíkur. Sjórinn var
að flæða að þegar jeppinn fór í
sjóinn og tveimur tímum síðar,
þegar dráttarbíll kom á staðinn,
var jeppinn orðinn hálffullur af
sjó. Halldór segir að þrátt fyrir
að ekki séu miklar skemmdir sjá-
anlegar á jeppanum sé hann
ónýtur enda þoli rafkerfi bílsins
ekki að vera á kafi í sjó.
Tryggingarnar munu þó vænt-
anlega bæta tjónið enda var bíll-
inn kaskó-tryggður.
Sofnaði undir stýri og ók út í sjó