Morgunblaðið - 07.12.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
S M Á R A L I N D
s í m i 5 4 4 2 1 4 0
12
82
/
T
A
K
T
ÍK
2
6.
11
´0
2
Hnífaparasett
Margar tegundir
18/10 GÆÐASTÁL
kr. 10.790.-
24 stk.
Það er eins gott að þríburarnir fái skattastefnu flokksins með móðurmjólkinni svo þeir
verði ekki með neitt skattalækkunarrugl þegar þeir koma til vits og ára.
Rannsóknarsetur um smáríki
Smáríkjafræði
í brennidepli
ÁMIÐVIKUDAG sl.undirrituðu rektorHáskóla Íslands
og formaður Samtaka iðn-
aðarins samstarfssamning
um stjórn og starfsemi Al-
þjóðamálastofnunar og
Rannsóknarseturs um
smáríki við Háskóla Ís-
lands. Formaður stjórnar
þessara stofnana er Bald-
ur Þórhallsson, dósent í
stjórnmálafræði við HÍ.
– Segðu okkur fyrst,
hvað er Alþjóðamálastofn-
un HÍ?
„Alþjóðamálastofnun
HÍ er rannsóknar-
fræðslu- og þjónustustofn-
un. Rannsóknarsetur um
smáríki starfar innan
hennar. Alþjóðamála-
stofnun er vettvangur fyr-
ir þverfaglegt samstarf á sviði al-
þjóðamála og smáríkjarannsókna.
Þeir sem standa að þessu eru auk
Háskóla Íslands utanríkisráðu-
neytið, Samtök iðnaðarins og
Samtök atvinnulífsins. Alls eiga
nærri hundrað fræðimenn aðild
að stofnuninni, þar af um sextíu
erlendir fræðimenn.“
– Hvenær hófst undirbúningur
að stofnun Rannsóknarstofnunar-
innar um smáríki og hver er hug-
myndin á bak við hana?
„Hugmyndin kviknaði fyrir
nokkrum árum þegar ég var að
vinna að doktorsritgerð um stöðu
smærri ríkja innan Evrópusam-
bandsins en formlegur undirbún-
ingur hófst haustið 2001. Það er
vaxandi áhugi fræðimanna
beggja vegna Atlantsála á smá-
ríkjafræðum sem kemur skýrt
fram á þeim erlendu ráðstefnum
sem ég hef sótt í stjórnmálafræði.
Þó nokkur hópur fræðimanna í
Evrópu sérhæfir sig í smáríkja-
málum, en þeir eru færri en
þekktari í Bandaríkjunum. Eftir
að hafa kannað hug manna þótti
öllum tilvalið að koma saman í
miðju Atlantshafinu.“
– Þetta fékk þá góðan byr?
„Já, það er óhætt að segja að
hugmyndin hafi fallið í góðan
jarðveg bæði hér heima og er-
lendis og hefur hún hlotið fjölda
viðurkenninga og styrkja. Hug-
myndin hlaut verðlaun í hug-
myndasamkeppninni Upp úr
skúffunni, árið 2001, sem haldin
er á vegum Nýsköpunarsjóðs at-
vinnulífsins og Rannsóknarþjón-
ustu HÍ. Verkefnið hefur hlotið
þróunarstyrk frá Þjónustustofn-
un frumkvöðla og fyrirtækja,
Impru, Norfa og Nordic-Baltik-
sjóðnum. Erasmus-áætlun ESB
hefur einnig veitt Rannsóknar-
setri um smáríki styrk til að halda
sumarskóla á Íslandi og gerð
námsefnis á netinu. Kofi Annan,
aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
hefur einnig lýst yfir áhuga sínum
á að stofnanir Sameinuðu þjóð-
anna vinni með Rannsóknarsetr-
inu að rannsóknum á smáríkjum.“
– Tilgangur og markmið?
„Tilgang og markmið má
flokka í þrennt. Í fyrsta
lagi á Rannsóknarsetur
um smáríki að vera
leiðandi í rannsóknum
og fræðslu á samskipt-
um og stöðu smáríkja í
alþjóðakerfinu. Í öðru lagi er
markmið að auka rannsóknir og
fræðslu um sérstöðu smáríkja og
auka gæði og framboð náms um
smáríkja- og alþjóðafræði í
grunn- og framhaldsnámi á há-
skólastigi bæði hér á landi og er-
lendis. Og í þriðja lagi er hér um
þjónustustofnun að ræða fyrir at-
vinnulífið og hið opinbera en Al-
þjóðamálastofnun og Rannsókn-
arsetrið bjóða fram krafta sína til
að vinna að þjónustuverkefnum á
sviði alþjóðamála. Við munum
einnig gangast fyrir ráðstefnum,
umræðufundum og fyrirlestrum
um efni sem tengjast starfssviði
stofnunarinnar.“
– Hvaða ríki teljast smáríki?
„Það er spurning í sjálfu sér.
Sumir vilja meina að það séu ríki
með innan við eina milljón íbúa,
en aðrir vilja draga línuna mun
hærra eða við allt að tíu milljónir.
Sjálfum finnst mér þetta fara að
mestu eftir því hver samanburð-
urinn er hverju sinni og þykir
mér þægilegra að tala um smærri
ríki í stað smáríkja í þessu sam-
bandi. Stærð ríkja er ekki ein-
göngu hægt að meta eftir íbúa-
fjölda, það verður t.d. að taka
tillit til stærðar og getu stjórn-
sýslu ríkja þegar mat er lagt á
áhrif þeirra í alþjóðakerfinu.“
– Hvernig starfar setrið?
„Um áramótin verður ráðinn
forstöðumaður og einn fastur
starfsmaður og setrið verður rek-
ið í húsakynnum Háskóla Íslands.
Sjálfur er ég formaður stjórnar,
en í stjórn eru 11 einstaklingar,
auk mín 3 fræðimenn frá HÍ, fjór-
ir erlendir fræðimenn og 3 aðilar
til viðbótar frá utanríkisráðuneyt-
inu, Samtökum iðnaðarins og
Samtökum atvinnulífsins.“
– Nefndu okkur í lokin dæmi
um verkefni ...
„Sumarskólinn sem ég gat um
áðan er gott dæmi, en þar verða
nemendur í smáríkja-
fræðum frá a.m.k. tíu
ríkjum. Þá höfum við
fengið styrk til að
halda námskeið í smá-
ríkjafræðum á netinu
sem vonandi verður tilbúið næsta
haust. Strax á næsta ári verður
ýtt úr vör útgáfu ritraðar þar sem
efnið verður greinar í smáríkja-
fræðum. Ennfremur er stefnt að
endurútgáfu á helstu fræðitext-
um um hegðun smærri ríkja í al-
þjóðakerfinu. Opnunarráðstefna
setursins verður í byrjun júlí og
haustið 2004 er stefnt að stórri
vísindaráðstefnu.“
Baldur Þórhallsson
Baldur Þórhallsson er nýráð-
inn dósent í stjórnmálafræði við
HÍ. Fæddur á Selfossi 1968, lauk
BA-prófi í stjórnmálafræði við
HÍ 1991, meistaraprófi við Há-
skólann í Essex 1994 og dokt-
orsnámi við sama skóla 1999.
Stundakennari við HÍ 1995–
2000, lektor frá 2000 til 2002. Þá
er hann formaður stjórnar
Alþjóðamálastofnunar og ný-
stofnaðs Rannsóknarseturs um
smáríki við HÍ. Maki er Felix
Bergsson og börn á hann tvö,
Álfrúnu Perlu, 10 ára, Guðmund,
12 ára.
… þægilegra
að tala um
smærri ríki
KOSIÐ verður í annað sinn á árinu
til sveitarstjórnar í Borgarbyggð í
dag, laugardaginn 7. desember. Á
kjörskrá núna eru alls 1.793 og eru
það 17 fleiri en þegar kosið var í
maí. Gert er ráð fyrir fyrstu tölum
strax um kl. 22 á laugardagskvöld
og ef ekkert óvænt kemur upp á má
búast við því að lokatölur liggi fyrir
undir miðnætti.
Á fundi bæjarstjórnar Borgar-
byggðar 17. nóvember sl. var sam-
þykkt tillaga bæjarráðs og yfir-
kjörstjórnar Borgarbyggðar þess
efnis að kosið yrði aftur í Borg-
arbyggð, vegna ógildingar félags-
málaráðuneytisins á sveitarstjórn-
arkosningunum er fram fóru hinn
25. maí 2002, og fari kosningarnar
fram laugardaginn 7. desember
2002. Ný kjörskrá gildir fyrir kosn-
ingarnar og var viðmiðunardagur
hennar 16. nóvember sl. Engar
breytingar verða varðandi önnur
atriði og eru sömu og óbreyttir
framboðslistar í kjöri og voru 25.
maí sl.
Þrjár kjördeildir
Samkvæmt samþykkt um stjórn
og fundarsköp Borgarbyggðar
skiptist sveitarfélagið í eftirtaldar
þrjár kjördeildir: Lyngbrekkukjör-
deild, fyrir svæðið vestan Langár.
Borgarneskjördeild, fyrir svæðið
milli Langár og Gljúfurár. Þing-
hamarskjördeild fyrir svæðið ofan
Gljúfurár.
Kjörfundir verða fyrir Lyng-
brekkukjördeild í félagsheimilinu
Lyngbrekku frá kl. 11 til kl. 20. Í
Borgarneskjördeild verður kosið í
Grunnskólanum í Borgarnesi frá
kl. 9 til kl. 22. Fyrir Þinghamars-
kjördeild verður kosið í félagsheim-
ilinu Þinghamri á Varmalandi frá
kl. 11 til kl. 20.
Kjósendur eru hvattir til að at-
huga vel í hvaða kjördeild þeir eiga
að kjósa. Á kjördag hefur yfirkjör-
stórn aðsetur í Grunnskólanum í
Borgarnesi og þar fer fram talning
atkvæða. Sími yfirkjörstjórnar á
kjördag er 898-9277.
Opið hús hjá flokkunum
Á kjördag verða flokkarnir allir
með opið hús og bjóða upp á kosn-
ingakaffi. Sjálfstæðismenn verða
með opið hús í Sjálfstæðishúsinu á
Brákarbraut 1, Borgarnesi, þar
sem þeir bjóða upp á kaffi og
jólasmákökur. Einnig bjóða þeir
upp á akstur á kjörstað. Framsókn-
armenn verða með opið hús að
Borgarbraut 1-3 á kjördag og bjóða
upp á kaffi og akstur á kjörstað.
Borgarbyggðarlistinn verður með
kosningakaffi í Félagsbæ að Borg-
arbraut 4, í Borgarnesi á kjördag.
Kosið til sveitarstjórn-
ar í Borgarbyggð í dag
Borgarnesi. Morgunblaðið.