Morgunblaðið - 07.12.2002, Síða 14
FRÉTTIR
14 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FÉLAGSMÁLARÁÐ Reykjavík-
urborgar hefur áhuga á að teknar
verði upp viðræður við félagsmála-
ráðuneytið og Svæðisskrifstofu um
málefni fatlaðra um að Fé-
lagsþjónustan taki við umsjón og
rekstri svonefndrar frekari lið-
veislu við fatlaða Reykvíkinga.
Samþykkt var á fundi borgar-
ráðs fyrir skömmu að skipa fjög-
urra manna starfshóp til að greina
fyrirkomulag á þjónustu við fatl-
aða og leggja mat á möguleg sam-
legðaráhrif af aukinni samþætt-
ingu á þjónustu ríkis og borgar við
fatlaða.
Samþykkt borgarráðs var af-
greidd í framhaldi af tillögu sem
samþykkt var á fundi Félagsmála-
ráðs í seinasta mánuði um að fara
formlega fram á viðræður við ríkið
og svæðisskrifstofu um málefni
fatlaðra varðandi þetta mál.
Frekari liðveisla við fatlaða fel-
ur lögum samkvæmt í sér marg-
háttaða aðstoð við ýmsar athafnir
daglegs lífs, enda sé hún nauðsyn-
leg til þess að koma í veg fyrir
stofnanavistun. Starfshópur sá
sem borgarráð skipaði á að skila
niðurstöðum sínum í janúar á
næsta ári og í framhaldi af því
verður tekin afstaða til þess hvort
óskað verður eftir viðræðum við
ríkið um að Félagsþjónustan taki
að sér að sinna frekari liðveislu við
fatlaða.
Kanna mögu-
leika á frek-
ari liðveislu
við fatlaða
Borgarráð
Reykjavíkur
HAFÞÓR Hafsteinsson, forstjóri Atl-
anta, segir að villandi umræða og
rangar upplýsingar um rammasamn-
ing flugfélagsins við utanríkisráðu-
neytið vegna flutninga fyrir Atlants-
hafsbandalagið (NATO) hafi verið
flugfélaginu skaðlegar. Haldi þessi
villandi umræða áfram sé hætta á enn
meira tjóni og hún geti jafnvel komið
niður á flugöryggi félagsins. Í raun sé
um að ræða atvinnuróg og til greina
komi að flugfélagið leiti réttar síns
fyrir dómstólum. „En það er auðvitað
alltaf erfitt að berjast við svona vind-
myllur,“ sagði hann.
Arngrímur Jóhannsson, annar
stofnandi Atlanta, sagði að umræðan
setti viðskiptasamninga í uppnám og
einnig íslenskt viðskiptaorðspor.
Aldrei á stríðsátakasvæði
Á blaðamannafundi í gær ítrekaði
Hafþór að aðeins sé um að ræða
rammasamning milli Atlanta og Flug-
leiða sem kunni að koma til fram-
kvæmda ef utanríkisráðuneytið, í
samráði við NATO, ákveður svo og að
undangengnu samráði við flugfélagið
og að fengnu samþykki þeirra. „Ekki
undir neinum kringumstæðum kem-
ur til greina að vélar frá Atlanta fljúgi
með hergögn og hermenn inn á
stríðsátakasvæði,“ sagði hann. Í
rammasamningum væri ekki minnst
einu orði á vopn, hermenn, Írak eða
neitt slíkt. Þessi samningur gæti í
raun átt við hvaða leiguflug sem er.
Hafþór benti á að skv. trygging-
arskilmálum væri Atlanta óheimilt að
fljúga inn á stríðsátakasvæði. Atlanta
hefur í áranna rás stundað flutninga á
margs konar hjálpargögnum fyrir
Rauða krossinn svo og flutninga á
friðargæsluliðum fyrir Sameinuðu
þjóðirnar. Á blaðamannafundinum
sagði Hafþór að flug Atlanta fyrir SÞ,
breska varnarmálaráðuneytið og ut-
anríkisráðuneytið fyrr á þessu ári til
Afganistan hafi ekki verið inn á
stríðsátakavæði skv. skilgreiningu
tryggingarfélaganna, því átökum hafi
verið lokið og uppbyggingarstarf tek-
ið við. Aðspurður sagði Hafþór að er-
lend áætlunar- og leiguflugfélög hafi
gert algjörlega sambærilega samn-
inga við yfirvöld í þeirra heimalönd-
um. Kastljósinu hafi verið beint að ís-
lensku flugfélögunum algjörlega að
ástæðulausu.
Ranghugmyndir
Á síðustu tveimur vikum hafi Atl-
anta fengið ógrynni af tölvupósti, hátt
á annað þúsund, frá aðilum víðsvegar
um heim. Hafþór sagði að ekki væri
að finna beinar hótanir í póstinum en
því gjarnan haldið fram að flugfélagið
væri orðið lögmætt skotmark. Tölvu-
póstur hafi einnig borist flugfélögum
sem Atlanta væri í samstarfi við.
Flugfélögin hafi áhyggjur af málinu
og hafi leitað skýringa og væru sum í
daglegu sambandi. Enn hafi þó ekki
komið til þess að samningum væri rift
en Hafþór sagði að haldi umræðan
áfram á þessum nótum væru líkur til
þess að hún ylli félaginu fjárhagsleg-
um skaða og gæti hugsanlega komið
niður á flugöryggi. „Eins og hefur
komið fram í þessum tölvupóstum þá
er verið að vísa til öfgahópa í heim-
inum og það er ekkert launungarmál
að þegar er verið að senda þúsundir
ef ekki hundruð þúsunda tölvupósta
um allan heim og vekja athygli á ís-
lensku flugfélögunum með þessum
hætti, þá hljóta öfgahópar að komast í
þessi skilaboð. Við skulum vona að
það komi ekki til þess en auðvitað gef-
ur þetta mönnum ranghugmyndir
sem geta endað illa,“ sagði hann.
Vill ekki nafngreina
Hafþór lýsti allri ábyrgð á hendur
þeim sem bæru ábyrgð á þessari vill-
andi umræðu. Hann vildi þó ekki
nafngreina þá sem bæru ábyrgð en
taldi að blaðamenn gætu getið í eyð-
urnar. Aðspurður sagðist hann ekk-
ert vilja tjá sig um Ástþór Magnússon
eða Frið 2000. „Ég held að menn hafi
verið á nokkrum villigötum með að
einblína ekki á samninginn sem slíkan
því hann kveður skýrt á um að ekki er
verið að tala um flutning á vopnum
eða neitt slíkt og ákvörðunarréttur-
inn er alltaf flugfélagsins,“ sagði Haf-
þór „en úr því að umræðan fór af stað
hefðu menn átt að einblína á stað-
reyndir frekar en að gefa sér hlutina.“
Aðspurður sagði hann það ekki vera
hlutverk flugfélagsins að vega og
meta hvort yfirlýsingar stjórnmála-
eða embættismanna hafi verið misvís-
andi. „Við erum hér fyrst og fremst í
flugrekstri en ekki pólitískri um-
ræðu,“ sagði hann.
Hafþór Hafsteinsson, forstjóri Atlanta, um rammasamning við utanríkisráðuneytið
Villandi umræða
skaðar Atlanta
Segir erlend
flugfélög hafa
gert sambærilega
samninga
DR. Anna Gunnþórsdóttir hefur verið
ráðin sem lektor við viðskiptaháskóla
Ástralíu, Australian Graduate School
of Management in Sydney, sem býður
upp á meistara-
og doktorsnám.
Anna lauk BA-
prófi í sálarfræði
við Háskóla Ís-
lands 1994. Hún
nam stjórnmála-
sálfræði og stjórn-
málahagfræði við
háskólann í Stony
Brook, New York,
í tvö ár. Þaðan lá
leið hennar til há-
skólans í Arizona, þar sem hún nam
tilraunahagfræði hjá Vernon Smith,
sem nýverið fékk Nóbelsverðlaun í
hagfræði fyrir störf sín á þessu sviði.
Anna kláraði doktorspróf i stjórnun
frá Arizona-haskóla árið 2001. Dokt-
orsritgerð hennar fjallar um tilrauna-
hagfræði.
Anna Gunnþórs-
dóttir lektor
viðskiptahá-
skóla Ástralíu
Anna
Gunnþórsdóttir
ELDRI borgarar fjölmenntu á
áhorfendapallana í Ráðhúsi Reykja-
víkur á fimmtudag þegar fyrri um-
ræða um fjárhagsáætlun borgarinn-
ar fyrir árið 2003 fór fram. Til
stendur að leggja niður félagsstarf í
fimm af fjórtán félagsmiðstöðvum
eldri borgara í Reykjavík. Minnihlut-
inn í borgarstjórn, Sjálfstæðisflokk-
ur og F-listi, hvatti á fundinum
R-listann til að falla frá þessum fyr-
irætlunum sínum og sagði að þegar
væri byrjað að segja starfsfólki upp
en niðurstaða um málið liggur ekki
fyrir úr borgarstjórn.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði
skýrslu um framtíðarsýn í heima-
þjónustu, félagsstarfi og þjónustu-
íbúðum, sem lögð var fram í félags-
málaráði, innihalda mörg falleg orð
en það breytti ekki þeirri staðreynd
að R-listinn ætli að hætta öllu skipu-
legu félagsstarfi aldraðra í fimm
þjónustumiðstöðvum borgarinnar.
Þá kæmu margar gjaldskrárhækk-
anir fram í fjárhagsáætlun borgar-
innar sem gætu haldið vöku fyrir
gamla fólkinu. Tímagjald fyrir
heimaþjónustu verði hækkað um
30%, hækkun á þjónustugjöldum í
íbúðum um 11,7% sem og fyrir nám-
skeið. Verð fyrir mat og kaffiveiting-
ar og akstur vegna heimsendingar á
mat hækki um 13%. „Það er kannski
hernaðarlist R-listans að demba bara
nógu miklu á gamla fólkið í einu
þannig að það eigi erfitt með að snú-
ast til varnar,“ sagði Guðrún Ebba.
Verðlagshækkanir eftir tveggja
ára stöðnunartímabil
Björk Vilhelmsdóttir, formaður fé-
lagsmálaráðs, sagði þá sem fá bætur
frá Félagsþjónustunni eða Trygg-
ingastofnun ríkisins ekki greiða neitt
fyrir heimaþjónustu og heldur ekki
þá sem þurfi mest á henni að halda og
geti sótt um undanþágu frá greiðslu
gjaldsins. Fyrir aðra hækki tíma-
gjaldið úr 230 krónum á tímann í 300
krónur sem vissulega sé 30% hækk-
un. Aðrar gjaldskrárhækkanir séu
einungis verðlagshækkanir, þær
komi nú inn eftir tveggja ára stöðnun
í verðskrá. Hún sagði önnur sveitar-
félög hafa farið þá leið að tekjutengja
gjald fyrir heimaþjónustu. „Við höf-
um ekki farið út í það hér hjá borg-
inni því það er þörfin sem ræður því
hvort fólk þurfi að þiggja þessa þjón-
ustu,“ sagði Björk.
Guðrún Ebba, Guðlaugur Þór
Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokks, og Ólafur F. Magnússon,
borgarfulltrúi F-lista, sögðust vita til
þess að starfsmanni félagsstarfsins
hafi verið sagt upp störfum. Björk
fullyrti að það hefði verið ákveðið að
engum yrði sagt upp fyrr en 1. janúar
og hét því að komast til botns í því
hvort það væri rétt að fólki hefði ver-
ið sagt upp. Síðar á fundinum sagði
hún að félagsmálastjóri hefði staðfest
við sig að engum hefði verið sagt upp
störfum. Starfsmönnum félagsþjón-
ustunnar hafi verið sent bréf í síðustu
viku þar sem tilkynnt var að málinu
væri frestað þar til í janúar, eða þar
til niðurstaða lægi fyrir úr borgar-
stjórn.
Fundir væru fyrirhugaðir á þess-
um fimm stöðum í næstu viku, þar
sem forsvarsmenn félagsþjónustunn-
ar, félagsmálastjóri og framkvæmda-
stjóri Þróunarsviðs muni kynna fyr-
irhugaðar breytingar. Það hefði verið
betra að halda fundina fyrr og eitt-
hvað hafi misfarist í ferlinu þegar
breytingarnar voru kynntar.
Hernaðarlist R-listans
að demba nógu
miklu á gamla fólkið
Morgunblaðið/Kristinn
Eldri borgarar fylgdust með fundi í borgarstjórn Reykjavíkur.
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
tveggja ára fangelsisdóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir Atla Erni
Sævarssyni og Brynjari Tómassyni,
fyrir að framvísa til sölu 36 föls-
uðum húsbréfum sem hvert var að
nafnvirði 1 milljón króna. Þriðji
maðurinn var sakfelldur í héraðs-
dómi og hlaut einnig tveggja ára
dóm en hann áfrýjaði ekki til
Hæstaréttar.
Mennirnir voru ákærðir fyrir að
hafa staðið saman að því að fram-
vísa til sölu 36 fölsuðum verðtryggð-
um húsbréfum Íbúðalánasjóðs,
hverju að nafnvirði 1 milljón krónur.
Þá var Brynjar einnig ákærður fyrir
brot á lögum um ávana- og fíkniefni.
Þegar mennirnir voru handteknir
hafði þeim tekist að fá rúmlega 24,5
milljónir króna lagðar inn á banka-
reikninga sína. Þeir játuðu brot sitt.
Fram kom fyrir dómi að Brynjar
hafði ekki átt þátt í að falsa bréfin
en hann samþykkti að nafn hans og
kennitala kæmi fram á hluta hús-
bréfanna. Taldi Hæstiréttur ekki
efni til að líta svo á að þáttur Brynj-
ars í brotunum væri slíkur að gera
ætti mun á refsingu hans og ann-
arra ákærðu. Málið dæmdu hæsta-
réttardómararnir Gunnlaugur
Claessen, Árni Kolbeinsson og Ingi-
björg Benediktsdóttir.
Tveggja ára
fangelsi fyrir
húsbréfafals
♦ ♦ ♦
TÍU til tólf bílar lentu í árekstrum
eða utan vegar á u.þ.b. fimmtán
mínútna tímabili síðdegis í gær
þegar skyndilega myndaðist mikil
hálka á Hellisheiði. Lögreglunni
fóru að berast tilkynningar um
óhöpp á heiðinni kl. 16.40. Tilkynnt
var um meiðsl á fólki í einum
árekstri en þau eru talin minnihátt-
ar.
Eignatjón varð á ellefu bílum í
umferðaróhöppum í og fyrir neðan
Hveradalabrekku. Þrjá bíla varð að
draga af vettvangi með dráttarbíl.
Aðgerðum á vettvangi lauk kl.
18.40. Vegagerðin var kölluð til og
gerði hún ráðstafanir vegna hálk-
unnar.
Mikil hálka á
Hellisheiði
♦ ♦ ♦