Morgunblaðið - 07.12.2002, Side 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 15
BANDARÍSKA flugfélagið United
Airlines, annað stærsta flugfélag í
heimi, á í alvarlegum fjárhagserfið-
leikum og óvissa ríkir um framtíð
þess. United hafði sótt um 1,8 millj-
arða Bandaríkjadala ríkisábyrgð, um
150 milljarða króna, en var á mið-
vikudag neitað um ábyrgðina. Talið
er líklegt að fyrirtækið muni sækja
um greiðslustöðvun til að geta end-
urskipulagt reksturinn og reyna að
koma í veg fyrir gjaldþrot. The Wall
Street Journal segir góðar líkur á að
það muni takast. United hefur tryggt
sér 1,5 milljarða Bandaríkjadala
lánasamning, nálægt 130 milljörðum
króna, sem það getur nýtt fari það í
greiðslustöðvun.
United er með um 20% hlutdeild á
bandaríska markaðnum og einnig
mikið net víða um heim, en kostnaður
fyrirtækisins á sætiskílómetra er sá
hæsti í Bandaríkjunum og fyrirtækið
tapar um 7 milljónum Bandaríkja-
dala á dag, eða sem nemur um 600
milljónum króna.
Viðskipti með hlutabréf félagsins
voru stöðvuð um tíma á fimmtudag,
en lækkun bréfanna yfir daginn var
68%, eða úr 2,12 dölum í 1 dal. Fyrir
11. september í fyrra var gengi bréfa
United yfir 30 dalir á hlut en þegar
viðskipti hófust að nýju 17. septem-
ber var gengið komið niður í 17,50 og
hefur farið lækkandi síðan.
Lokaverð hlutabréfa United Air-
lines í Kauphöllinni í New York í gær
var 0,92 dalir á hlut og lækkaði um
8,0% yfir daginn.
Öll nema Southwest
rekin með tapi
United er ekki eina flugfélagið í
Bandaríkjunum sem á í erfiðleikum,
því öll helstu flugfélögin, fyrir utan
lággjaldaflugfélagið Southwest Air-
lines, eru rekin með tapi. Samanlagt
er reiknað með að tap bandarískra
flugfélaga verði sem svarar um eða
yfir 700 milljörðum króna.
Nokkur önnur af stærstu flug-
félögum Bandaríkjanna hafa farið í
greiðslustöðvun eða gjaldþrot á síð-
ustu árum. US Airways, sem United
hætti í fyrra við að sameinast eftir að
hafa fengið neikvætt svar frá yfir-
völdum, er eitt þessara félaga, en það
er nú í greiðslustöðvun. TWA hafði
þrisvar sótt um greiðslustöðvun síð-
asta áratuginn þegar American Air-
lines keypti það í fyrra og varð við
það stærra en United og þar með
stærsta flugfélag heims. Um áratug
áður lentu fjögur af helstu flugfélög-
um Bandaríkjanna í alvarlegum fjár-
hagserfiðleikum. Pan Am og Eastern
urðu gjaldþrota, en America West og
Continental komust út úr greiðslu-
stöðvun og eru enn starfandi.
Reuters
United Airlines á
barmi gjaldþrots
Tapar 600 millj-
ónum króna á dag
MAGNÚS Norðdahl forstjóri Aco-
Tæknivals hf. hefur sagt upp starfi
sínu en mun starfa til 30. júní á
næsta ári. Magnús, sem tók við
starfinu í október í fyrra, segir að
ástæður uppsagnarinnar séu þær að
nú séu tímamót hjá honum. Tekist
hafi að laga rekstur fyrirtækisins
mikið og nú langi hann að gera aðra
hluti, en óvíst sé hvað það verði,
fyrst þurfi hann að ljúka þessu
verki.
AcoTæknival var rekið með 188
milljóna króna tapi á fyrstu níu
mánuðum ársins en á sama tímabili í
fyrra var tap þess 861 milljón króna.
Eigið fé var neikvætt um 140 millj-
ónir króna í lok september og meðal
eigna í efnahagsreikningi er 279
milljóna króna reiknuð skattinneign
vegna yfirfæranlegs skattalegs taps.
Magnús segir að markaðurinn sé
mjög erfiður um þessar mundir og
að miðað við markaðsaðstæður telji
hann að vel hafi tekist til um rekst-
urinn. Mikið átak hafi þurft til að
laga reksturinn jafnmikið og gert
hafi verið á jafn skömmum tíma og
Magnús segist telja að framtíð fyr-
irtækisins sé björt.
Hluthafafundur samþykkti 14.
júní síðastliðinn heimild til stjórnar
um 100 milljóna króna aukningu
hlutafjár og Magnús segir að þörf sé
á nýju hlutafé inn í fyrirtækið. Hann
segir að verið sé að leita að fjár-
festum, það gangi hægt, en þó finni
hann fyrir áhuga. Hann segist von-
ast til að ljúka hlutafjáraukningunni
áður en hann lætur af störfum.
Gott að vera vitur eftir á
Spurður að því hvort til greina
komi að reyna að laga stöðu fyr-
irtækisins með samruna við svipað
fyrirtæki segist Magnús ekki sjá
það fyrir sér. Hann segir of mikið
lagt upp úr sameiningum fyrir-
tækja, þær séu erfiðar og árang-
urinn af þeim sé misgóður. Samein-
ing Aco og Tæknivals var samþykkt
í júlí í fyrra og spurður að því hvort
sá samruni hafi ef til vill verið mis-
tök segir Magnús að það sé alltaf
gott að vera vitur eftir á. Ef sú vitn-
eskja sem nú liggur fyrir hefði legið
fyrir þegar samruninn var ákveðinn
hefði ef til vill ekki orðið af honum.
Það hefði hins vegar enginn séð fyr-
ir að upplýsingageirinn yrði fyrir
jafnmiklum samdrætti og raun ber
vitni. Menn hafi búist við að jákvæð
þróun myndi verða á þessum mark-
aði í ár en í staðinn hefði þróunin
verið neikvæð.
Síðastliðinn mánudag tilkynnti
AcoTæknival um að Magnús Bergs-
son framkvæmdastjóri kjarnasviðs
hefði ákveðið að láta af störfum og á
þriðjudag var tíu starfsmönnum
sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Á
fyrstu níu mánuðum ársins var með-
alfjöldi starfsmanna 192 en meðal-
fjöldinn var 218 á síðasta ári. Í árs-
byrjun 2001 störfuðu samtals 280
manns hjá fyrirtækjunum Aco og
Tæknivali.
Forstjóri AcoTækni-
vals lætur af störfum
Markaðurinn
erfiður og hluta-
fjáraukning
gengur hægt
Morgunblaðið/Ásdís
Magnús Norðdahl, forstjóri Aco-
Tæknivals.
ÞORBJÖRN-Fiskanes hefur
undirritað samning um sölu á
tveimur bátum í eigu félagsins
og sá þriðji er til sölu. Bátarnir,
sem seldir hafa verið, eru Ólafur
GK, sem kom nýr til landsins frá
Kína um mitt síðasta ár, og neta-
og trollbáturinn Ágúst Guð-
mundsson GK.
Ólafur hefur ekkert verið
gerður út síðan hann kom til
landsins, meðal annars vegna
samdráttar á þorskveiðiheimild-
um. Hann hefur nú verið seldur
til Grænlands. Ágúst Guð-
mundsson hefur ekki verið gerð-
ur út í ár og sömu sögu er að
segja af Gauki GK, en hann er til
sölu. Ágúst hefur verið seldur
aðila, sem hyggst nota hann við
sverðfiskveiðar við Mexíkó.
Þorbjörn-Fiskanes hefur nú
selt sjö báta frá því fyrirtækin
Þorbjörn, Fiskanes og Valdimar
sameinuðust. Fyrirtækið gerir
nú út 10 skip og báta.
Vertíðarbáturinn Ólafur GK kom til landsins í fyrra og hefur honum
aldrei verið haldið til veiða. Hann er nú á leið til Nuuk á Grænlandi.
Tveir bátar seld-
ir til útlanda
STÆRSTI banki Frakklands, BNP
Paribas, varð hlutskarpastur í sam-
keppni um hlut franska ríkisins í
Crédit Lyonnais, að því er kemur
fram í The Economist.
Franski fjármálaráðherrann,
Francis Mer, kom fjármálaheiminum
í opna skjöldu í lok nóvember með því
að tilkynna að hluturinn yrði seldur
þeim banka sem bjóða myndi hæsta
verðið innan sólarhrings. Áður hafði
verið talið öruggt að hlutur ríkisins
yrði seldur, án útboðs, til Crédit Agr-
icole, stórs banka sem þjónar frönsk-
um bændum.
Ákvörðun ráðherrans þykir marka
stefnubreytingu ríkisstjórnarinnar,
en Mer hafði áður gefið í skyn að hann
myndi ljúka verki fyrirrennara síns,
sósíalistans Laurent Fabius. Ætlun
Fabiusar hafði verið að til yrði stór
franskur þjóðarbanki og hluti af
þeirri ráðagerð hafði verið að láta
Crédit Lyonnais renna inn í Crédit
Agricole.
Mer þraut hins vegar þolinmæði
þegar Crédit Agricole neitaði að
borga uppsett verð, 44 evrur á hlut.
BNP Paribas bauð 58 evrur á hlut, 2,2
milljarða evra, eða 49% meira en al-
mennt markaðsvirði.
Forstjóri Crédit Lyonnais, Jean
Peyrelevade, þykir hafa beðið hnekki
í málinu. Agricole bauð aðeins 44 evr-
ur á hlut í uppboðinu, en bankinn þyk-
ir vera svifaseinn þar sem erfitt er að
fá samþykki „landsbyggðarbaróna“
fyrir skjótum aðgerðum.
Sá möguleika er sagður fyrir hendi
að BNP Paribas bjóði í allan Crédit
Lyonnais-bankann, um leið og tak-
mörkunum á yfirtökum linnir í lok
júní á næsta ári. Stjórnarformaður
BNP Paribas neitar því að ætlunin sé
að yfirtaka bankann. Með sameiningu
við Crédit Lyonnais myndi BNP
Paribas auka hlutdeild sína á fjárfest-
ingabankamarkaði í Frakklandi úr 8 í
14%.
Talið er að nú stefni í baráttu um
yfirráð yfir Crédit Lyonnais milli
AGF, dótturfyrirtækis þýska trygg-
ingafyrirtækisins Allianz, sem á 10% í
bankanum, og BNP Paribas. Að mati
The Economist er líklegt að BNP
Paribas standi uppi sem sigurvegari.
Stefnir í
baráttu
um Crédit
Lyonnais
LÍMTRÉ hf. á Flúðum er fyrsta fyr-
irtækið í dreifbýli á Íslandi sem fær
vottað gæðakerfi samkvæmt alþjóð-
lega gæðastjórnunarstaðlinum ISO
9001 og þriðja fyrirtækið í bygging-
ariðnaði hér á landi. Valgerður Sverr-
isdóttir iðnaðarráðherra afhenti for-
svarsmönnum fyrirtækisins skírteini
til staðfestingar á vottuninni við at-
höfn á skrifstofu félagsins fyrir
skömmu.
Vottunin nær til hönnunar, fram-
leiðslu og sölu á vörum úr límtré. Guð-
mundur Ósvaldsson framkvæmda-
stjóri segir að vottunin hafi þá
þýðingu að viðskiptavinir geti betur
treyst þjónustu fyrirtækisins og að
þeir fái vörur sem uppfylla skilyrði
gæðastaðalsins. Þeir starfsmenn
Límtrés sem unnið hafa að því að
koma upp gæðakerfinu vinna nú að
því að byggja upp samsvarandi kerfi í
verksmiðju Flexilam í Portúgal en
hún er að mestu í eigu Límtrés hf. og
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Unnið hefur verið að þessu verk-
efni í fjögur ár. Guðmundur segir að
úttekt á vinnunni hafi verið frestað
þar til nú til þess að hún gæti farið
fram samkvæmt 2000 útgáfu af ISO
9001 staðlinum. Er Límtré þriðja ís-
lenska fyrirtækið sem fær vottun
samkvæmt þeirri útgáfu. Vottun hf.
annaðist úttektina.
Límtrésframleiðsl-
an fær gæðavottun