Morgunblaðið - 07.12.2002, Síða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í GÆR útskrifuðust 26 konur af sjötta og síðasta
námskeiði FrumkvöðlaAUÐAR. Samtals hafa
162 konur útskrifast af námskeiðinu á síðast-
liðnum þremur árum.
Hvert námskeið stóð yfir í fjóra mánuði. Þátt-
takendur tileinkuðu sér hagnýta þekkingu varð-
andi stofnun fyrirtækja og rekstur þeirra og
luku námskeiðinu með því að skila fullmótaðri
viðskiptaáætlun.
Þær sem útskrifuðust í gær eru í stafrófsröð:
Anna Guðmundsdóttir, Anna Katrín Guðmunds-
dóttir, Anna Margrét Guðmundsdóttir, Anna
Sigurborg Ólafsdóttir, Birgitta G.S. Ásgríms-
dóttir, Christine Blin, Dagný Elsa Einarsdóttir,
Erla Magnúsdóttir, Gréta V. Guðmundsdóttir,
Guðbjörg Gissurardóttir, Guðný H. Danívals-
dóttir, Guðrún Jóhanna Halldórsdóttir, Gyða
Guðjónsdóttir, Hallveig Thorlacius, Harpa Guð-
mundsdóttir, Helga Arnalds, Hólmfríður Bene-
diktsdóttir, Hrafnhildur Sif Sverrisdóttir, Ingi-
björg V. Jósefsdóttir, Lilja Bragadóttir, Ólína
Gunnlaugsdóttir, Sigrún Guðjónsdóttir, Tinna
Björk Arnardóttir, Valentína Björnsdóttir, Vera
Roth og Þórhildur Elínardóttir.
Námskeiðið FrumkvöðlaAUÐUR var hluti
verkefnisins AUÐUR í krafti kvenna og fór fram
í Háskólanum í Reykjavík.
Morgunblaðið/Sverrir
26 konur útskrifuðust af sjötta námskeiði FrumkvöðlaAUÐAR.
Síðasta útskrift FrumkvöðlaAUÐAR
STJÓRN bresku smásölukeðjunnar
House of Fraser (HoF) hafnaði í gær
staðgreiðslutilboði TBH Invest-
ments Ltd. í alla hluti í félaginu. Til-
boðið hljóðaði upp á 85 pens á hlut,
sem nemur 197 milljónum punda, eða
26,4 milljörðum króna. Í fréttatil-
kynningu frá Baugi ID, sem á nú um
8% í HoF, kemur fram að fyrirtækið
hafi stutt tilboðið. TBH á 4,7% í HoF,
en ætlun félagsins er að taka HoF af
markaði verði yfirtökutilboði tekið.
Talsmaður Baugs segir að ekki
þurfi að koma á óvart að fyrsta tilboði
hafi verið hafnað. Verðið, 85 pens á
hlut, teljist viðmiðunarverð og auð-
vitað vilji stjórn HoF hækka það.
„Við verðum svo bara að bíða og sjá
hvort TBH hækki tilboðið. Auðvitað
er ekki slæmt fyrir Baug ef þessu til-
boði er hafnað og hærra tilboð kemur
svo fram seinna,“ segir hann.
Gengishagnaður Baugs
500–570 milljónir króna
Hann vill ekki tjá sig um hvort
Baugur hyggist eiga hlut sinn í HoF
áfram eða innleysa gengishagnað,
fari svo að yfirtökutilboði verði tekið.
Talið er að meðalkaupverð Baugs
ID fyrir hvern hlut sé á bilinu 62–65
pens. Miðað við yfirtökutilboðið, sem
nam 85 pensum, hefur eign félagsins
því hækkað í verði um 500–570 millj-
ónir króna. Taka ber þó fram að
brugðið getur til beggja vona með
gengi bréfa í HoF og þar með geng-
ishagnað, auk þess sem Morgunblað-
ið hefur heimildir fyrir því að allt eins
líklegt sé að Baugur eigi bréfin
áfram, verði yfirtökutilboði TBH tek-
ið.
Að baki TBH stendur Skotinn
Tom Hunter, sem á móðurfélag fyr-
irtækisins, Westcoast Capital. Hun-
ter er viðskiptafélagi Philips Greens,
sem keypti sem kunnugt er Arcadia
fatasmásölukeðjuna, en Baugur
græddi sem nam átta milljörðum
króna á þeim viðskiptum. Hann segir
að tilboðið í HoF nemi 11,6-földum
væntanlegum tekjum. Í tilkynningu
frá honum, og Baugi reyndar líka,
segir að starfsemi HoF þarfnist tals-
verðrar endurnýjunar. Nauðsynleg-
ar breytingar krefjist fjárfestingar
og muni taka tíma.
„Ekki góð tímasetning“
Í tilkynningu frá stjórn HoF kom
fram að hún teldi 85 pens á hlut vera
of lágt verð miðað við rekstur, eignir
og horfur. Þá sagði að stjórnin liti til-
boð sem þjónuðu hagsmunum hlut-
hafa ávallt jákvæðum augum, en
tímasetning tilboðs TBH væri ekki
góð. „(HoF) telur að þessi umleitan
hafi verið tímasett til að valda sem
allra mestri truflun meðan á jóla-
versluninni stendur, en það getur
ekki verið hluthöfum House of
Fraser í hag,“ segir í tilkynningunni.
Tom Hunter vísaði þessari staðhæf-
ingu á bug og sagðist ekki telja að
hinn almenni viðskiptavinur hefði
áhyggjur af eignarhaldi fyrirtækis-
ins.
Sagt var frá tilboði Tom Hunter í
House og Fraser í breska blaðinu
Evening Standard í gær. Þar kom
fram að þó stjórn HoF sé ávallt opin
fyrir tilboðum sem hún telji vera í
þágu hluthafanna sé hún þeirrar
skoðunar tilboð Hunters endurspegli
ekki raunverulegt virði fyrirtækisins.
Þá segir að Hunter útiloki ekki að
leggja fram formlegt tilboð beint fyr-
ir hluthafana sjálfa. Hann vonist hins
vegar til að fá tækifæri til að hitta
stjórnina í næstu viku til að ræða
málin.
Lokaverð hlutabréfa House of
Fraser hækkaði um 10,89% í Kaup-
höllinni í Lundúnum í gær og var
lokaverð þeirra 86,50 pens á hlut.
Yfirtökutilboði
í HoF hafnað
Baugur ID
studdi tilboðið
ÓSKAR Eyjólfsson, framkvæmda-
stjóri Frumherja hf., mun væntan-
lega innan tíðar eignast meirihluta í
félaginu, eða 50,16%. Gert er ráð fyrir
að í kjölfarið verði óskað eftir af-
skráningu Frumherja af tilboðsmark-
aði Kauphallar Íslands.
Frá því var greint í tilkynningu til
Kauphallarinnar í gær að Íslands-
banki hefði gert samning um kaup á
hlutafé í Frumherja að nafnverði
35.030.802 krónur, eða sem nemur
42,87% af hlutafé félagsins, fyrir hönd
óstofnaðs einkahlutafélags í eigu Ósk-
ars. Gengi bréfanna er 9,01. Kaup-
verð þessa tæplega 43% hlutar er því
rúmlega 315 milljónir króna.
Óskar, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri Frumherja frá árinu
1997, segist hafa mikla trú á félaginu.
Það sé vel rekið og með mjög gott og
hæfileikaríkt starfsfólk. Hann segir
að engar breytingar séu fyrirhugaðar
á starfsemi Frumherja.
Samningurinn um kaupin á hlutafé
Frumherja er gerður með fyrirvara
um áreiðanleikakönnun fjármögnun-
araðila, sem er Íslandsbanki. Óskar á
fyrir hlutafé að nafnverði 5.956.889
krónur, eða sem nemur 7,29% af
hlutafé félagsins. Samtals mun Óskar
því eiga 50,16% af hlutafé félagsins
eftir samninginn, beint og í gegnum
einkahlutafélag sitt. Íslandsbanki sá
um ráðgjöf vegna kaupanna.
Seljendur hlutafjárins eru Sjóvá-
Almennar tryggingar hf., sem selur
12,87% af hlutafé félagsins, Íslensk
endurtrygging hf. selur 11,97%, Vá-
tryggingafélag Íslands hf. selur
9,64%, Tryggingamiðstöðin hf. selur
7,84% og Hekla hf. selur 0,55%. Eign-
arhlutur seljenda í Frumafli eftir
kaupin er enginn.
Framkvæmdastjóri Frumherja
eignast meirihluta í félaginu
FRAMKVÆMDASTJÓRI McDon-
ald’s, Jack Greenberg, hefur sagt
starfi sínu lausu frá og með næstu
áramótum. Greenberg tók við
stjórn McDonald’s fyrir fjórum ár-
um og að sögn The Wall Street
Journal hefur honum ekki tekist að
auka sölu fyrirtækisins, sem er
stærsta veitingahúsakeðja í heimi.
WSJ segir einnig að Greenberg hafi
staðið fyrir breytingum og nýjunum
hjá fyrirtækinu, en sala hafi ekki
verið í samræmi við væntingar og
hagnaður hafi dregist saman í sjö
af síðustu átta ársfjórðungum. Þá
hafi markaðsverð fyrirtækisins
lækkað verulega undir hans stjórn
og á undanförnum mánuðum hafi
verð hlutabréfa verið í sjö ára lág-
marki.
Eftirmaður Greenbergs verður
fyrrverandi varaformaður stjórnar
McDonald’s og fyrrum formaður
McDonald’s International, Jim
Cantalupo, en hann hætti störfum
hjá fyrirtækinu snemma á þessu
ári. Næstráðandi í höfuðstöðvum
McDonald’s verður Charlie Bell,
sem nú stýrir starfsemi fyrirtæk-
isins í Evrópu. Fimmtán ára gamall
hóf hann störf hjá McDonald’s í
heimalandi sínu Ástralíu og hefur
síðustu 27 árin unnið sig jafnt og
þétt upp innan fyrirtækisins.
Reuters
Framkvæmdastjóri
McDonald’s segir upp
● EASYJET, sem sameinaðist Go fyrr
á þessu ári og er stærsta lággjalda-
flugfélag Evrópu, flutti tæplega 11⁄2
milljón farþega í síðasta mánuði,
sem er 115% fjölgun frá sama mán-
uði í fyrra. Sætanýting véla easyJet
lækkaði úr 85,2% í fyrra í 80,5% í ár.
Ryanair flutti 11⁄4 milljón farþega í
síðasta mánuði og sætanýting fé-
lagsins batnaði, fór úr 79% í nóv-
ember í fyrra í 84% í ár.
Lággjaldaflugfélög hafa verið að
auka hlut sinn á flugmarkaðnum og
hafa pantað nýjar flugvélar á sama
tíma og hefðbundnu flugfélögin hafa
lagt vélum og hætt við pantanir á nýj-
um vélum.
Reuters
Farþegafjöldi easyJet
tvöfaldast
● SÆNSKIR neytendur sneiða hjá
villtum þorski í kjölfar frétta af bágu
ástandi þorskstofna. Á sama tíma
hefur norskur eldisþorskur haldið
innreið sína í sænska stórmarkaði.
Framboðið er enn sem komið er
mjög takmarkað, aðeins um eitt
tonn af flökum á viku.
Þorskneysla Svía hefur dregist
saman um 50% á síðustu sex mán-
uðum, að því er fram kemur á frétta-
vefnum fis.com. Ástæðan er einkum
stöðugur fréttaflutningur af slæmu
ástandi þorskstofna í Eystrasalti og
Norðursjó að undanförnu. Á sama
tíma hefur umræðan um þorskeldi
gerst æ háværari. Fisksalar hafa
gripið þessa umræðu á lofti og aug-
lýsa eldisþorskinn í fiskborðinu sér-
staklega og höfða þannig til umhverf-
isvitundar sænskra neytenda. Þeir
segjast geta selt mun meira af eld-
isþorski og framleiðendur hafi lofað
þeim að magnið muni tvöfaldast
strax á næsta ári. Þeir telja þó að
eldisþorskurinn muni ekki ryðja villta
þorskinum út af markaðnum til lengri
tíma litið, heldur aðeins auka fram-
boðið. Hér sé í raun um ólíkar vörur
að ræða en eldisþorskurinn hafi
þann kost að framboðið er stöðugt.
Verðið á honum sé hinsvegar of hátt.
Svíar vilja
eldisþorsk