Morgunblaðið - 07.12.2002, Side 39
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 39
GOLFÍÞRÓTTIN er í stöðugri
sókn hér á landi og hefur verið und-
anfarin ár og nú er svo komið að í
flestöllum bílum sem
aka um þjóðvegi
landsins yfir sumar-
mánuðina eru golfsett
og frekar tvö en eitt.
Bændur í ferðaþjón-
ustu hafa víða brugðið
á það ráð að koma upp
nokkrum holum þann-
ig að þeir sem gista í
nágrenni bæjar þeirra
geti æft sveifluna.
Þrátt fyrir að golfvöll-
um sé ekki hent upp
heldur taki langan
tíma að gera þá og enn
lengri tíma að gera þá
góða þá hefur þeim
fjölgað mikið síðustu
árin. Það var því ekki seinna vænna
að fá bók um golfvelli á Íslandi.
Þegar Edwin var ungur piltur að
skrifa um íþróttir á Morgunblaðinu
ræddum við oft um að það væri
gaman og allt að því nauðsynlegt að
gera úttekt á öllum golfvöllum
landsins. Úttekt í þeim skilningi að
við færum og spiluðum alla velli á
Íslandi og skrifuðum um þá stuttar
greinar þannig að hinn almenni
kylfingur, í sumarfríi um landið,
gæti myndað sér skoðanir á því
hvort það væri þess virði að leggja
lykkju á leið sína til að leika ákveð-
inn völl. Aldrei létum við verða af
þessu en nú hefur Edwin látið til
skarar skríða og uppfyllt þennan
draum okkar – að hluta til.
Í bókinni er fjallað um alla golf-
velli klúbba sem eru innan vébanda
Golfsambands Íslands, en sam-
bandið varð 60 ára á árinu. Bókinni
er ætlað að varpa ljósi á marga fal-
lega og áhugaverða golfvelli sem
staðsetningar sinnar vegna hafa
ekki fengið þá athygli sem þeir eiga
skilið. Á þriðja hundrað myndir
prýða bókina og eru þær flestallar
mjög fallegar og þótt skrifaður
texti í bókinni sé ekki mikill, aðeins
stuttur texti með hverri mynd, opn-
ar hann nýjar víddir fyrir mér.
Næst þegar ég leik golf mun ég
örugglega horfa meira
í kringum mig á nán-
asta umhverfi og njóta
þess ekki síður en úti-
verunnar og góða
loftsins. Steingrímur
Hermannsson, formað-
ur Umhverfisverndar-
samtaka Íslands og
fyrrum forsætisráð-
herra, ritar formála að
bókinni og bendir á að
golf sé holl og góð
hreyfing og alls ekki
eyðilegging á góðum
göngutúr. Edwin hefur
þetta að leiðarljósi í
bókinni og texti hans
við myndirnar er góð-
ur. Strax á síðu 9 sýnir Edwin þeim
er þetta ritar, svo ekki verður um
villst, að við golfiðkun undanfarinna
ára hafa ekki öll skilningarvitin ver-
ið nýtt til fulls. Í texta með mynd-
inni er bent á hvernig Akrafjallið
myndar glæsilegan bakgrunn einn-
ar brautarinnar á Garðavelli á
Akranesi. Manni hefði stundum
verið nær að njóta útsýnisins en að
berjast við að telja öll höggin. Þá
hefði maður örugglega komið
ánægðari heim.
Annað gott dæmi um snjallan
texta með góðri mynd er lýsingin á
því þegar búið er að spila sjö holur
í Grafarholtinu og lagt í þá áttundu
en þá „brosir Reykjavíkurborg við
kylfingum“ og „klúbbhúsið situr í
brekkunni hægra megin“. Ég hafði
aldrei tekið eftir þessu góðlátlega
brosi borgarinnar en þegar myndin
er skoðuð og textinn lesinn liggur
þetta auðvitað í augum uppi.
Ekki þekki ég til allra þeirra
valla sem bókin fjallar um en ef sá
stutti texti sem fylgir myndunum
er jafnsannur og snjall og við þá
velli sem ég þekki til þá er ljóst að
settið verður tekið oftar með í ferð-
um næsta sumar en hingað til. Það
hefur til dæmis lengi staðið til að
spila völlinn á Skagaströnd enda oft
ekið þar framhjá eftir þjóðvegi 1.
Þar verður leikið næsta sumar og
gott ef Vestfirðirnir verða ekki
farnir einnig því þar leynast góðir
vellir ef marka má myndirnar.
Ég sagði hér að framan að Ed-
win hefði látið draum okkar rætast
að hluta til. Bókin er góð en hún er
í stóru broti og því hvorki höfð með
í bílnum né í golfpokanum. Hins
vegar má nota hana til að undirbúa
sig heima og til þess er hún góð
auk þess sem hún er geysilega fal-
leg. Ég hefði kosið að höfundur
hefði gefið völlunum einhverja ein-
kunn þó svo það hefði sært ein-
hverja. Slíkt hefði aukið notagildi
bókarinnar til muna og vakið at-
hygli á þeim klúbbum sem gera vel
og vonandi hvatt hina til enn frek-
ari dáða.
Golf er fallegt
BÆKUR
Íþróttir
Edwin R. Rögnvaldsson, myndvinnsla
er í höndum Friðþjófs Helgasonar. Eureka
Golf gefur út en bókin er 151 síða í
stóru broti.
GOLFHRINGUR UM ÍSLAND
Skúli Unnar Sveinsson
Edwin R. Rögnvaldsson
ANNA Pálína Árnadóttir hefur
lengi verið fremsta vísnasöngkona
okkar, djassskotin vel, og auk þess
hefur hún sungið inn á einhverjar
bestu barnaplötur íslenskar sem
gefnar hafa verið út og þar hefur
eiginmaður hennar, Aðalsteinn Ás-
berg, samið flestöll lög og ljóð. Það
hefur hann einnig gert á vísnaplöt-
um Önnu Pálínu. Á nýjustu geisla-
plötu hennar, Guð og gamlar kon-
ur, eru tíu textar af tólf eftir hann
en aðeins eitt lag; Sara og Klara,
sem er tangó í bláum fíling. Það er
sérdeilis vel lukkað eins og flest
sem þau vinna saman, og bassa-
leikur Gunnars Hrafnssonar
príma.
Þetta er dálítið öðruvísi diskur
en þeir sem við höfum átt að venj-
ast frá hendi Önnu Pálínu, lítið um
frumsamin lög heldur stútfullur af
klassískum vísnalögum þar sem
norrænir höfundar eru í öndvegi
og auk þess söngdansar.
Það hefur dregist úr hömlu að
fjalla um þennan disk en það skipt-
ir ekki öllu því hann er jafn fersk-
ur og hann var í vor er Anna Pál-
ína kynnti hann á frábærum
tónleikum í Hafnarborg í Hafn-
arfirði. Í leiðinni hélt
hún upp á áttræð-
isafmæli móður sinn-
ar. Anna Pálína er
ómótstæðileg á sviði;
útgeislunin slík að
maður situr oft bros-
andi með tárin í aug-
unum þegar henni
tekst sem best upp.
Diskurinn um guð
og gömlu konurnar
hefst á sömbu eftir
Fransmanninn
Danny Brillant: Guð
(Dieu). Þessi samba
hefur mikið verið
spiluð á betri út-
varpsstöðvum og er fallega sungin
af Önnu Pálínu með fínu undirspili
hrynsveitarinnar og sér í lagi er
gaman að heyra Gunnar Gunnars-
son á hammondorgelið. Þar ríkir
sami persónulegi innileikinn og í
píanóspili hans. Vísnasöng Alfs
Cranners og Klaus Hagerups um
Skammlausu gömlu konuna (Den
skamløse gamle dame) túlkar Anna
Pálína af sannri tilfinningu fyrir
þeirri gömlu konu sem „kann“ að
meta púrtvín og leikur Gunnar þar
einn undir á píanó. Aftur á móti
eru söngvarnir Vorið kom (Val-
borgs visa) og Það var eitt sinn
(Det var ein gong) ekki eins vel
heppnaðir í flutningi, of poppaðir
að mínu viti, og ekki lifnaði
Trubble (Vandkvæði) Olles Ad-
olphsons fullkomnlega til lífsins í
útsetningu fimmmenninganna. Það
gerði aftur á móti Nature Boy,
sem maður gjörþekkir frá Nat
King Cole og Coltrane.
Það þarf brot af snilli
til að flytja lagið eins
og Anna Pálína gerir og
hammond Gunnars og
gítar Kristinn marka
stemninguna vel eins og
kongótrommur Péturs
og bassi Gunnars í fínni
túlkun söngkonunnar á
glæsilagi Bengts
Ahlfors: Har du visor
min vän (Aðeins vísna-
söng). Aftur á móti
fannst mér Rósin (The
Rose) heldur of fallega
sungin – vil hana
hrárri. Kjærlighetsvisa
(Enginn jafnast á við þig nefnist
texti Ásgeirs Árnasonar) Halfdans
Sivertsens er aftur á móti príma
og það er eini söngurinn sem Að-
alsteinn Ásberg hefur ekki léð ís-
lensk orð utan ljóð Jónasar Árna-
sonar við enskt þjóðlag: Í sal hans
hátignar. Túlkunin á Stormskers-
Mæju (Stormskärs Maja) eftir
Lasse Mårtenson og Benedict Zill-
iancus er einstaklega falleg og er
mér til efs að Anna Pálína hefði
getað sungið þetta þannig fyrir
nokkrum árum. Rödd hennar, sem
oft var heldur hvell, hefur mildast
mjög og titurtóni beitir hún sér-
deilis smekklega þegar það á við
og það sem best er; henni tekst
oftast að gæða lögin sem hún túlk-
ar nýju lífi.
Semsagt: vísnasöngur einsog
hann gerist bestur á norðurslóðum.
Vísnasöngur af
bestu sort
TÓNLIST
Geisladiskur
Anna Pálína söngur, Gunnar Gunnarsson
hammondorgel og píanó, Kristinn Árna-
son gítar, Gunnar Hrafnsson bassa og
Pétur Grétarsson trommur og slagverk.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson leikur á
gítar í einu lagi og samdi flesta texta.
Dimma 9. 2002.
ANNA PÁLÍNA ÁRNADÓTTIR: GUÐ OG
GAMLAR KONUR
Anna Pálína Árnadóttir
Vernharður Linnet
VIÐSKIPTI mbl.is
Galakjólar
Laugavegi 53
KAMMERHÓPUR Salarins, KaSa,
býður stórfjölskyldunni til klass-
ískrar jólaveislu í Salnum kl. 16 á
morgun, sunnudag. Tónleikarnir
eru í Tíbrárröðinni og verða þar
flutt vinsæl kammerverk og jóla-
lög.
KaSa-hópinn skipa að þessu
sinni:
Nína Margrét Grímsdóttir, pí-
anó, Peter Máté, píanó, Áshildur
Haraldsdóttir, flauta, Auður Haf-
steinsdóttir, fiðla, Sif M. Tulinus,
fiðla, Helga Þórarinsdóttir, lág-
fiðla, Sigurður Bjarki Gunnars-
son, selló, og Bryndís Halla Gylfa-
dóttir, selló. Flytjendur sjá um
tónleikaspjall og verslunin 12 tón-
ar verður með kynningu í anddyri
Salarins.
Ókeypis aðgangur fyrir yngri
en 20 og eldri en 60.
Morgunblaðið/Jim Smart
Peter Máté, Nína Margrét Grímsdóttir og Áshildur Haraldsdóttir skipa
KaSa-hópinn að þessu sinni.
Klassísk jóla-
veisla í tónum