Morgunblaðið - 07.12.2002, Side 40
LISTIR
40 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KOMIÐ er að árlegum aðventutónleikum Söngsveit-
arinnar Fílharmóníu og verða þeir haldnir í Langholts-
kirkju á morgun, sunnudag, kl. 17 og á þriðjudagskvöld
kl. 20.30. Einsöngvari er Sigrún Hjálmtýsdóttir.
„Eins og vænta má verður að nokkru leyti haldið í
hefðir og sungin lög sem eru áheyrendum vel kunn og
ómissandi þáttur á tónleikum sem þessum,“ segir Lilja
Árnadóttir formaður Söngsveitarinnar. „Kórinn mun
þó engu að síður halda áfram að kynna, líkt og síðustu
ár, fyrir íslenskum áheyrendum perlur úr því mikla
safni kórverka sem henta til flutnings á jólaföstu og
verður komið víða við, bæði í tíma og rúmi. Þannig er
elsta verkið frá ofanverðri 14. öld en það yngsta aðeins
nokkurra ára gamalt og verður efnið að þessu sinni
sótt m.a. í smiðju íslenskra, danskra, enskra og þýskra
tónskálda.“
Áheyrendur syngja með kórnum
„Þá nýtur kórinn liðsinnis kammersveitar við flutn-
ing stærri verkanna og eiga áheyrendur þess enn frem-
ur kost að taka undir í þremur lögum. Diddú mun síðan
leiða kórinn í nokkrum verkum auk þess sem hún mun
flytja undurfögur einsöngsverk við undirleik kamm-
ersveitarinnar.“
Stjórnandi söngsveitarinnar er Bernharður Wilk-
inson og konsertmeistari á tónleikunum er Rut Ingólfs-
dóttir. Píanóleikari söngsveitarinnar er Guðríður St.
Sigurðardóttir og raddþjálfari Xu Wen.
Morgunblaðið/Sverrir
Söngsveitin Fílharmónía á æfingu í Langholtskirkju, stjórnandi er Bernharður Wilkinson.
Söngsveitin Fílharmónía
syngur inn jólin
GUÐSPJALLASÖNGVAR eða
fagnaðarsöngvar, sem svonefndir
„gospelsöngvar“ eru, voru iðkaðir í
kirkjum þeldökkra en á seinni árum
hafa þeir ratað upp á tónleikapalla.
Þetta eru sefjandi söngvar, oftast
sungnir af krafti er hafði áhrif á
hreyfiþörf fólks, þrungnir af hrópandi
ákalli, sem er í andstöðu við kyrrláta
og innhverfa íhugun, sem hefur ein-
kennt trúarathafnir kristinnar kirkju
frá upphafi.
Á tónleikum Kvennakórs Reykja-
víkur í Langholtskirkju laugardaginn
30. nóvember var flutt svonefnd gosp-
eltónlist undir stjórn Sigrúnar Þor-
geirsdóttur og naut kórinn aðstoðar
Páls Rósinkranz söngvara, Óskars
Einarssonar píanóleikara og Ásgeirs
Óskarssonar á slagverk. Fyrstu níu
viðfangsefnin voru gospelsöngvar og
öll nema eitt sungin af kórnum við
undirleik píanós og trommu. Í þess-
um lögum var leikið og sungið af
krafti, sem gerir öll lögin svipuð og að
mestu án nokkurra litbrigða í styrk
og hraðinn keyrður áfram, svo að ekki
er þörf á sérstökum stjórnanda, því
uppfærslan var öll án þess að nokkurs
staðar væri slakað á í takti. Að þessu
leyti var flutningurinn þrumandi ein-
litur.
Negrasálmarnir Deep River, Steal
away og Swing low voru sungnir eins
og gerist í venjulegum kórsöng og var
sannarlega léttir að heyra þessi þýðu
lög svona fallega sungin, undir stjórn
Sigrúnar Þorgeirsdóttur, og þá brá
svo við að píanistinn hætti að hamra
og lék hann mjög fallega undir. Hann
setti svo í fullan gang í næstu lögum,
sem voru Every time I feel the Spirit,
Go tell it on the Mountain og Rise up,
Shepherd. Go tell it on the Mountain
var fallega flutt.
Páll Rósinkranz söng tvö lög, sem
ekki voru tilgreind í efnisskrá, en
hann er „pro“ í sinni tónlist, sem er
borin uppi af „ornamental“ tónmynd-
un, andstæðri hinni sléttu tónmyndun
kórsins. Þannig var gospelsöngur
kvennakórsins, sem er agaður í slétt-
um söng, aldrei gæddur þeim tón-
breytingum, sem Páll hefur aftur á
móti fullt vald á. Þetta á einnig við um
hrynrænar tilfærslur (synkópur),
sem gegna því hlutverki að vera mót-
vægi við hina föstu hrynskipan
rytmaundirleiksins. Þess vegna
myndaðist aldrei sú sveifla í söng
kórsins, sem er aðal gospelsöngs og á
líka að einkenna negrasálmana.
Tónleikunum lauk með hefðbundn-
um jólalögum, aðallega frönskum og
enskum, og þar var söngur kórsins
samkvæmt því venjulega og nokkuð
fallega útfærður. Píanóleikur Óskars
Einarssonar var og hljómþýður og
með allt öðrum blæ en í gospellög-
unum. Það getur verið bragðbætir að
því að flytja einstaka gospellög á tón-
leikum, en nærri heilt „prógramm“ er
einum of mikið, auk þess sem
Kvennakór Reykjavíkur býr ekki að
þeirri kunnáttu sem hæfir slíkri tón-
list sem er sprottin upp í samfélagi,
sem trúlega enginn kórmeðlima hefur
komist í snertingu við.
Að syngja slétt
eða skreytt
TÓNLIST
Langholtskirkja
Kvennakór Reykjavíkur flutti „gospel“-
söngva, negrasálma og jólalög. Laug-
ardaginn 30. nóvember.
KÓRSÖNGUR
Jón Ásgeirsson
Í FLJÓTU bragði eru ekki mikil
sammerki með þessum verkum. Eitt
glaðhlakkalegt skandinavískt barna-
leikrit um ofvirkan og uppátækja-
saman hrakfallabálk, hitt ágengt am-
erískt raunsæisverk um nauðg-
unartilraun og afleiðingar hennar
fyrir fórnarlamb og geranda.
Kannski eru snertipunktarnir helst í
því að bæði verkin hafa refsingar í
forgrunni.
Í Emil í er það einangrunarvistin í
smíðakofanum með hinni vonlausu
listþerapíu, hjá Mastrosimone er það
vonleysi þess að koma lögum yfir
nauðgara og rökræður um það hvað
skuli þá að gert.
Annað sem verkin eiga sammerkt
er að þau gera kröfur til þeirra sem
vinna uppfærslur á þeim sem geta
bakað illa búnum leikhúsum og óvön-
um leikurum mikla erfiðleika. Í til-
felli Emils eru það hinar tíðu svið-
skiptingar sem leikgerðin gerir ráð
fyrir. Þess sjást merki í sýningu
Leikfélags Hornafjarðar að Guðjón
Sigvaldason hafi ætlað að brjóta leik-
gerðina upp og laga hana að aðstæð-
um, en það hefur ekki fyllilega tekist
í bráðabirgðahúsnæði því sem félag-
ið hefur yfir að ráða að þessu sinni.
Sviðsskiptingar taka alltof mikinn
tíma og þó reynt sé að brúa hann
með söng eða atriðum sem leikin eru
til hliðar, vaknar sú spurning hvort
ekki hefði verið hægt að finna ein-
faldari lausn sem stöðvaði flæðið í
sýningunni ekki jafn mikið. Hvað
leikinn varðar þá þótti mér að fyrir
utan ágæta spretti hjá flestum leik-
endum skorti nokkuð á kraftinn og
gleðina sem þarf til að láta þessa
sögu lifna á sviðinu. Oft hefur Guðjón
Sigvaldason náð að leysa leikhópa úr
læðingi með afdráttarlausari hætti
en hér, og á örugglega eftir að gera
það á ný.
Hvað varðar vandann við Auga
fyrir auga þá lýtur hann að þeim leik-
stíl sem verkið kallar á, en það er að
mestu skrifað í amerískum raunsæ-
isstíl sem útheimtir algera tilfinn-
ingalega innlifun. Á sama tíma er
verkið tæknilega erfitt í sviðsetn-
ingu, í því eru ofbeldisatriði sem
kalla bæði á mikla nákvæmni og
hamslausan kraft. Auga fyrir auga er
því ákaflega krefjandi viðfangsefni
og vægast sagt vogað af Leikfélagi
Vestmannaeyja að takast á við það.
Það verður að segjast eins og er að
leikhópurinn nær ekki fyllilega að
uppfylla kröfur verksins. Best geng-
ur þeim þegar höfundur brýtur
raunsæisrammann með eintölum en í
tilfinningaspenntum hápunktum í
framvindunni náði hópurinn ekki
fyllilega þeim algera trúverðugleika
sem verkið gerir ráð fyrir. Hvað
varðar ofbeldið þá var nauðgunartil-
raunin afar vel unnin og illþolandi á
að horfa eins og vera ber, en síðara
atriðið, þegar fórnarlambið svarar
nánast í sömu mynt, varð ekki að
þeim dramatíska hápunkti sem því
er ætlað.
Að sjálfsögðu var margt vel gert
innan þeirra takmarkana sem fyrr
var getið og allir leikendurnir ná að
gera skýrar „týpur“. Sigríður Diljá
Magnúsdóttir er sköruleg sem fórn-
arlambið. Júlíus Ingason dregur upp
skýra mynd af einstaklega ógeðfelld-
um náunga. Ásta Steinunn Ástþórs-
dóttir skilaði vel kómískum hliðum
hinnar einföldu Terry og náði svo inn
að kvikunni í eintalinu um sína
nauðgunarreynslu. Guðný Kristjáns-
dóttir er hin rúðustrikaða rök-
hyggjukona Patty og komst ágæt-
lega frá þessu vanþakkláta hlutverki.
Umgjörð; leikmynd, búningar og
hljóðmynd var vel unnið þó hin stíl-
færða leikmynd væri að mínu mati
ekki sérlega viðeigandi.
Leikfélag Vestmannaeyja er þessi
árin að stíga sín fyrstu skref eftir að
hafa legið í dvala. Viljinn til góðra
verka er greinilega til staðar og með
mann eins og Andrés Sigurvinsson í
liðinu er framtíðin björt. Hér glíma
þau við krefjandi verkefni og hafa
ekki fullnaðarsigur, en örugglega
áfangasigur í átt að frekari listræn-
um þroska í takt við hinn augljósa
metnað.
Glæpur og refsing
Atriði úr leikritinu Auga fyrir auga.
LEIKLIST
Leikfélag Hornafjarðar
Leikfélag Vestmannaeyja
Höfundur: Astrid Lindgren, leikstjóri:
Guðjón Sigvaldason, lýsing: Þorsteinn
Sigurbergson, tónlistarstjóri: Þórir Ólafs-
son. Sunnudaginn 1.
desember 2002.
EMIL Í KATTHOLTI
Þorgeir Tryggvason
Höfundur: William Mastrosimone, þýð-
andi: Jón Sævar Baldvinsson, leikstjóri:
Andrés Sigurvinsson, leikmynd: Bjarni
Ólafur Magnússon, tónlist: Andri Ey-
vindsson, Aron Björn Brynjólfsson og
Viktor Smári Kristjánsson, lýsing: Hjálm-
ar Brynjúlfsson. 30. nóvember 2002.
AUGA FYRIR AUGA
ALDA Ingibergsdóttir sópran-
söngkona hefur gefið út geisladisk,
þar sem hún syngur íslensk og er-
lend lög. Meðleikari hennar er
Ólafur Vignir Albertsson. Sérstak-
ur fengur er að því að á diskinum
eru nokkur lög eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson sem hafa ekki oft
heyrst í hljóðritunum, en það sama
á við um lög eftir Ragnar H. Ragn-
ar og Þórarin Jónsson, og lag Jóns
Þórarinssonar, Jeg elsker dig, sem
hér heyrist í íslenskri textaþýðingu
Böðvars Guðmundssonar og disk-
urinn dregur nafn sitt af.
Alda hefur fallega og góða söng-
rödd og styrkur hennar er hve
tandurhreint hún syngur, hve
röddin er jöfn og góð á öllum radd-
sviðum og sérstaklega fín í hæð-
inni. Textaframburður hennar er
góður og skýr, einkum í íslensku
lögunum. Veikasti hlekkur radd-
arinnar er sá, að þegar Alda syng-
ur veikt örlar á því að meiri fókus
eða stuðning vanti í víbratóið. Það
einkennir diskinn hve Alda leggur
sig fram um að vanda sig við söng-
inn. Allt gott um það, en stundum
er það á kostnað túlkunarinnar.
Þeir sem hafa séð og heyrt Öldu
syngja augliti til auglitis vita að
hún hefur sterka útgeislun, hlýju
og mikinn söngsjarma. Því miður
skilar það sér misvel á geisladisk-
inum. Hér er allt vandað og vel
gert, en það vantar meira líf í
sönginn. Hún hefði þurft að gefa
sér betur lausan tauminn í mús-
íkinni. Það hefði ekki endilega
þurft að vera á kostnað vandvirkn-
innar; – kannski hefði hentað henni
betur að taka upp fyrir framan
fullan sal af fólki og gefa út „live“
upptökur, svo hennar músíkalski
söngur nyti sín eins vel og hann
gerir á tónleikum.
En þar sem músíkin nær tökum
á Öldu er hún líka virkilega góð.
Lag Sveinbjörns Sveinbjörnssonar
Til næturinnar, við ljóð Ólínu
Andrésdóttur, er fallega sungið,
látlaust og blítt og Alda mótar orð
og hendingar þannig að í því skap-
ast kyrrlát stemmning, sem rís fal-
lega í síðasta erindi lagsins, þar
sem ljóðmælandi biður himna-
drottninguna að koma að svæfa
sig. Í lagi Sveinbjörns, Álfunum, í
þýðingu Jakobs Jóhannessonar,
nær Alda að skila vel til hlustand-
ans húmornum í textanum og bros-
inu í röddinni. Lög Jóns Ásgeirs-
sonar við ljóð Halldórs Laxness
eru öll sérstaklega hrífandi í flutn-
ingi Öldu, túlkunin er vel upp-
byggð og grunduð og fallega mót-
aðar styrkleikabreytingar gefa
lögunum dýpt og ljóðræna dýna-
mík. Í aríu Mozarts, Durch Zärt-
lichkeit und Schmeicheln, úr Brott-
náminu úr kvennabúrinu, sýnir
Alda hvers megnug hún er í léttri
óperulýrík og syngur virkilega fal-
lega. Framburður á s-unum er þó
full íslenskur. Besta verkið á
geisladiskinum er þó ótvírætt loka-
lagið, Glitter And Be Gay, úr
Candide eftir Bernstein, en þar fer
saman frábærlega músíkölsk túlk-
un Öldu, húmor og glimrandi flott-
ur kóloratúr.
Ólafur Vignir Albertsson er hér
upp á sitt allra besta. Hann er
framúrskarandi meðleikari sem
fylgir söngkonunni vel, án þess að
vera of hógvær.
Góð rödd en betri í
lifandi flutningi
TÓNLIST
Geislaplötur
Alda Ingibergsdóttir syngur lög eftir Jón
Þórarinsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Jón Ásgeirsson, Ragnar H. Ragnar, Þór-
arin Jónsson, Sigfús Halldórsson, Moz-
art, Lehàr, Jóhann Strauss, Arditi, Gersh-
win og Bernstein. Meðleikari á píanó er
Ólafur Vignir Albertsson.
Útg.: Alda Ingibergsdóttir/Fermata
2002.
ÉG ELSKA ÞIG
Bergþóra Jónsdóttir