Morgunblaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 59
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 59
hvað bærðist innra með Þórði Þórð-
arsyni.
Þórður var einn af mestu íþrótta-
mönnum Akraness. Hann og félagar
hans í gullaldarliði Akraness, sem
urðu fyrst Íslandsmeistarar árið
1951, gerðu garðinn frægan og lögðu
grunninn að þeirri knattspyrnuvel-
gengni sem við erum þekkt fyrir.
Með Skagamönnum varð Þórður sex
sinnum Íslandsmeistari og fimm
sinnum markakóngur Íslandsmóts-
ins og hefur aðeins Ríkharður Jóns-
son gert betur, en hann varð marka-
kóngur sjö sinnum. Voru þeir báðir
gerðir að heiðursfélögum Knatt-
spyrnufélags ÍA fyrir framlag sitt til
knattspyrnunnar á Akranesi. Í átján
landsleikjum skoraði Þórður níu
mörk og þætti það dálaglegt afrek í
dag.
Það er með söknuði og djúpri virð-
ingu sem Þórður Þórðarson er
kvaddur hinstu kveðju. Blessun fylgi
minningu hans og samúðarkveðjur
sendi ég eftirlifandi eiginkonu hans,
Ester Teitsdóttur, börnum þeirra og
fjölskyldu.
Gísli Gíslason,
bæjarstjóri á Akranesi.
Þórður Þ. Þórðarson er látinn.
Hann var heiðursfélagi Íþrótta-
bandalags Akraness. Hann var af-
reksmaður í íþróttum eins og sagan
sannar og hann var einn af gull-
drengjum Skagamanna í knatt-
spyrnu. Hann studdi íþróttahreyf-
inguna á margan hátt, m.a. með
fríum flutningum, beinum auglýs-
ingastyrkjum á búninga Skaga-
manna og sömuleiðis með miklu og
kappsfullu aðhaldi bæði í íþróttinni
og í rekstrinum. Það vantaði ekki
kröftugu lýsingarorðin og afdráttar-
lausu skoðanirnar frá Þórði ef hon-
um fannst íþróttahreyfingin ekki
standa sig. Honum tókst alltaf að
hrista upp í mönnum og fékk okkur
til að horfa gagnrýniaugum á stöðu
mála. Þórður var ímynd þessa sterka
einstaklings sem aldrei gafst upp
sem aftur hefur smitað margan
Skagamanninn. Það eru einmitt
þessi einkenni Þórðar sem stuðlað
hafa að sigurgöngu Skagamanna í
íþróttunum.
Þó að Þórður hafi sýnt þennan
harða einstakling út á við, var stutt í
hláturinn og milda tóna. Það var allt-
af jafnskemmtilegt að sjá Þórð og
Ester konu hans saman. Þau hafa
bæði verið með eindæmum vinnusöm
í gegnum árin og allir borið virðingu
fyrir því. En þegar vinnutíminn var
búinn sáust þau oft bara tvö í bíl sín-
um. Það var ákveðin reisn yfir þeim
saman og þá keyrði Þórður í róleg-
heitunum með hana Ester sína og
málin rædd. Barnabörnin eiga eftir
að sakna afa sína þar sem þau eltu
Þórð eins og skugginn.
Þórður og Ester hafa rekið stórt
heimili sem alltaf er fullt út úr dyr-
um, kaffitímarnir hafa margir hverj-
ir verið skrautlegir þar sem allir
orkuboltarnir voru mættir og hver
með sína skoðun á hlutunum. Og þá
hefur Ester án efa þurft að grípa inní
til að stilla hlutina af.
Íþróttabandalag Akraness vill
þakka Þórði Þ. Þórðarsyni fyrir
stuðninginn við íþróttahreyfinguna á
Akranesi.
Við vottum Ester og fjölskyldu
samúð okkar.
Fyrir hönd Íþróttabandalags
Akraness,
Sturlaugur Sturlaugsson
formaður.
Kveðja frá
Knattspyrnufélagi ÍA
Í dag kveðjum við Þórð Þórðarson
bifreiðastjóra og knattspyrnumann
frá Akranesi. Þórður var einn af
bestu knattspyrnumönnum Íslands á
síðari hluta 20. aldar. Hann var lyk-
ilmaður í hinu fræga gullaldarliði
Skagamanna og varð sex sinnum Ís-
landsmeistari með liðinu á árunum
1951–1960. Þórður var fastamaður í
íslenska landsliðinu á þessum árum
og lék alls 18 landsleiki.
Þeir fjölmörgu sem fylgdust með
knattspyrnunni á þeim tíma muna
vel eftir Þórði því það var virkilega
gaman að sjá hann leika. Hann var
„ekta senter“; líkamlega sterkur,
fljótur og fylginn sér, góður skot-
maður, afbragðs skallamaður og
mikill markaskorari.
Það var ekki bara á knattspyrnu-
vellinum sem knattspyrnan á Akra-
nesi fékk að njóta krafta Þórðar.
Hann var um árabil í knattspyrnu-
ráði Akraness og vann þar góð störf.
Þær voru líka ófáar ferðirnar sem
hann ók ÍA-liðinu í leiki, bæði meðan
hann var sjálfur leikmaður og einnig
eftir að hann var hættur að leika.
Þórður lagði mikið af mörkum við
ýmsar framkvæmdir sem íþrótta-
hreyfingin á Akranesi stóð að, en þar
má m.a. nefna byggingu íþróttahúss,
gerð æfingavalla og byggingu áhorf-
endastúku. Framlag hans til þessara
framkvæmda verður seint fullþakk-
að.
Þórður naut virðingar í knatt-
spyrnuhreyfingunni, hann var heið-
ursfélagi Íþróttabandalags Akraness
og Knattspyrnufélags ÍA, auk þess
sem hann var sæmdur gullmerki ÍSÍ
og KSÍ.
Fyrir hönd Knattspyrnufélags ÍA
sendi ég fjölskyldu Þórðar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Félagar í
Knattspyrnufélagi ÍA minnast hans
með virðingu og þökkum.
Hörður Helgason, formaður
Knattspyrnufélags ÍA.
Á mínum uppvaxtarárum fóru allir
knattspyrnukappleikir fram á gamla
Melavellinum við Suðurgötu. Mér er
það enn í barnsminni, þegar gul-
klæddir Skagamenn héldu innreið
sína á þann leikvang. Þeir hlupu inn á
völlinn í einni skipulagðri röð, stilltu
sér upp á miðjum vellinum og heils-
uðu í báðar áttir. Það var reisn og
stolt í þessari framkomu og ekki var
hún síðri frammistaðan, þegar sjálf-
ur leikurinn hófst. Þetta var gullald-
arliðið frá Akranesi og þótt þeir
Skagamenn hafi teflt fram mörgum
snjöllum leikmönnum og liðum síð-
ustu hálfa öldina, og með allri virð-
ingu fyrir þeim, kemst enginn í hálf-
kvisti við þessa frumherja, við þann
ógleymanlega dýrðarljóma sem
geislaði af þessu fræga Akranesliði
með þá Ríkharð og Þórð í broddi
fylkingar. Já, Þórður var „senter“,
fremstur meðal jafningja, fremstur í
sókninni, fremstur í fylkingu ellefu
snillinga. Beinn í baki, stór og stæði-
legur, eldfljótur og markaskorari
„par excellence“. Þeir hafa ekki langt
að sækja það, strákarnir hans, Teitur
og Óli, hnarreistir, skapmiklir sjent-
ilmenn í leik og starfi.
Ég var aðdáandi Þórðar og Rikka
og Donna og allra hinna og naut
þeirra forréttinda nokkrum árum
síðar að leika gegn þeim og með þeim
og skynja og skilja þann metnað og
það stolt sem þeir höfðu gagnvart
sínu góða bæjarfélagi, enda máttu
þeir svo sannarlega vera það, marg-
faldir Íslandsmeistarar og máttar-
stólpar í íslenska landsliðinu. Þeir
ruddu brautina fyrir önnur bæjar-
félag að feta í fótspor þeirra og í
rauninni var það ein af markverðustu
og merkilegustu tímamótunum í ís-
lensku íþróttalífi, þegar strákarnir af
Akranesi komu, sáu og sigruðu.
Þórður Þórðarson var þar félagi
og foringi og jafnan þá sem endra-
nær var hann fastur fyrir en kurteis,
hógvær en hnarreistur, vígreifur en
vinur og yndislegur samferðamaður.
Goðsögn í lifanda lífi.
Ég þakka Þórði fyrir samfylgdina,
fyrir framlag hans til íþróttanna, fyr-
ir góð kynni. Hann var alla tíð glæsi-
legur fulltrúi síns fólks og sinnar
kynslóðar. Fjölskyldu Þórðar flyt ég
hugheilar samúðarkveðjur.
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ.
Fleiri minningargreinar um Þórð
Þórðarson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
ARINBJARNAR KOLBEINSSONAR
læknis.
Sigþrúður Friðriksdóttir,
Magnús Kolbeinsson,
Andri Arinbjarnarson,
Sturla Arinbjarnarson, Anna Margrét Ólafsdóttir,
Kolbeinn Arinbjarnarson, Björk Bragadóttir
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR
frá Vík í Mýrdal,
sem lést á Droplaugarstöðum mánudaginn
2. desember, verður jarðsungin frá Neskirkju
mánudaginn 9. desember kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á
líknarfélög.
Pétur Jón Geirsson,
Gylfi Geirsson, Steinunn Ingólfsdóttir,
Geir Gylfason, Jóhanna Gylfadóttir.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
LILJA MATTHILDUR FRANSDÓTTIR
frá Króki,
verður jarðsungin frá Oddakirkju í dag, laugar-
daginn 7. desember, kl. 11.00.
Jarðsett verður í Kálfholtskirkjugarði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingólfur Guðmundsson frá Króki,
Hólmfríður Rannveig, Ólafur Sigfússon,
Ingólfur Magnússon, Þorbjörg Fjóla Sigurðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS ÓLAFSSONAR
frá Hamri í Hamarsfirði,
Hátúni 17,
Eskifirði.
Valdís Ármann,
Guðjón Ármann Jónsson, Herborg Jónasdóttir,
Ólafur Jónsson, Jónína Ragnarsdóttir,
Árni Þórður Jónsson, Hallfríður María Pálsdóttir,
Þóra Sólveig Jónsdóttir, Sigurður Aðalsteinsson,
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur vinarþel og samúð við andlát og
útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR ÓLAFSDÓTTUR,
Víðigrund 55,
Kópavogi.
Þorvaldur Þorvaldsson,
Margrét Helga Ólafsdóttir,
Ásta Guðmundsdóttir, Ólafur Ástþórsson,
Ólafur Hafsteinn Einarsson, Margrét S. Stefánsdóttir,
Ingibjörg Hrönn Einarsdóttir, Jón Bjarnason,
Þröstur Einarsson,
Rúnar Hrafn Einarsson, Birna Eggertsdóttir,
Þorvaldur Árni Þorvaldsson, Sigríður Elka Guðmundsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, sonur, bróðir og afi,
ÖRN TRAUSTASON,
verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju mánu-
daginn 9. desember kl. 11.00.
Jarðsett verður í Hafnarfjarðarkirkjugarði.
Doris Traustason,
Sveinn Daníel Arnarson, Ásta Halldóra Styff,
Ingibjörg Erna Arnardóttir, Jóhannes Ægir Baldursson,
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
systkini og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og mikinn hlýhug við andlát ástkærs
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
PÁLS ÓLAFSSONAR,
Hringbraut 48,
Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við félögum úr Útivist
fyrir allan stuðninginn og starfsfólki Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja fyrir frábæra umönnun
og hlýtt viðmót.
María Erla Pálsdóttir, Hrafn Árnason,
Svala Kristín Pálsdóttir, Randver R. Ragnarsson,
Guðný Pálsdóttir,
Rannveig, Jón Einar og Karen Ösp Randversbörn,
Benedikt Hjalti og Grétar Már Sveinssynir,
Sindri Páll Benediktsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SVAVA GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR,
Garðvangi,
Garði,
áður Klapparstíg 6,
Sandgerði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Garðvangi mánudaginn 25. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Garðvangs fyrir hlýju og góða umönnun.
Stefán Magnússon,
Jóhann Magnússon,
Hlöðver Magnússon, Helena Ösp Fuglø,
Hólmberg Magnússon, Kristín Eyjólfsdóttir,
Sigurður Magnússon, Hervör Þorkelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.