Morgunblaðið - 07.12.2002, Qupperneq 88
HAFINN er undirbún-
ingur að því að búa til
tölvuteiknimynd eftir
sögunum um Benedikt bú-
álf. Benedikt vaknaði til
lífsins árið 1999 þegar
fyrsta bókin um hann
kom út. Nú hafa komið út
þrjár bækur til viðbótar og
fyrr í vetur var sett upp í
Loftkastalanum leik-
uppfærsla um hann.
Nú er höfundurinn,
Ólafur Gunnar Guð-
laugsson, kominn í
samstarf við fyritækið
Caoz hf. um gerð
teiknimynda um álf-
inn.
Caoz hefur reynsluna á
þessu sviði því fyrirtækið
vann til tvennra verð-
launa fyrir Litlu lirf-
una ljótu á síðustu
Edduverð-
launahátíð.
„Ég er hrif-
inn af því, sem
Gunni Karls og
þeir hjá Caoz eru að gera. Mér datt
í hug að hafa samband við þá og
segja þeim að mig langaði að gera
teiknimynd. Þeir voru til í að fara
út í þetta með mér,“ segir Ólafur
um upphafið en hann og Caoz ætla
að byrja á að ráðast í gerð tveggja
mínútna kynning-
arþáttar um Benedikt
búálf.
„Síðan verður farið
með kynningarþátt-
inn til erlendra fjár-
festa. Inn í þessari
vinnu er líka öll karakt-
ervinnsla,“ segir hann, en
líkt og litla lirfan
verður Benedikt
þrívíddar-
teiknimynd.
„Við höfum
alltaf séð betur
og betur að við
höfum þannig
efni í hönd-
unum, að við
þurfum ekki að
skammast okkur
gagnvart öðru,
sem er að gerast
í heiminum á þessu
sviði,“ segir Ólafur.
„Stefnan er að fara
eins langt og hægt er
með þetta efni. Besti
farvegurinn í því er
að gera teiknimynd.
Mig hefur sjálfan langað til að
gera teiknimynd frá því ég var sex
ára gutti.“
Benedikt búálfur í fóstur hjá foreldrum Lirfunnar
TENGLAR
....................................................
www.alfheimar.is
Þrívíður búálfur
Benedikt
búálfur.
88 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 4 og 6. Vit 461
KRINGLA
Sýnd kl. 12.30, 2.40, 4.45, 6.50, 9 og 11.10. Vit 485
ÁLFABAKKI
Sýn
Kvikmyndir.is
4 3 . 0 0 0 G E S T I R Á 1 4 D Ö G U M
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Í ÁLFABAKKA KL. 4 OG 8. B. I. 16. VIT 469.Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna sem ke
Jólamyndin
Kvimyndir.is
Sýnd kl. 6.10.
Fortíðin mun tengja þau!
Gwyneth Paltrow og Aaron Eckhart í
dularfullri, rómantískri mynd sem hefur
fengið lof gagnrýnenda um allan heim.
HL. MBL
SK RadíóX
ÓHT Rás2
HK DV
1/2
Kvikmyndir.com
TILRAUNIN
Sýnd kl. 5.50.
Ísl. texti. B.i. 16.
Yfir 53.000 áhorfendur
WITH
ENGLIS
H
SUBTIT
LES
AT 4
Sýnd kl. 2, 4 með enskum texta 8 og 10.05. B.i. 12.
8 Eddu verðlaun
POSSESSION
GWYNETH
PALTROW
AARON
ECHART
JENNIFER
EHLE
JEREMY
NORTHAM
Sýnd kl. 1.30, 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 1, 2, 4.10, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 4, 8 og 10.05.
1/2MBL
1/2Roger Ebert
Roger Ebert
1/2 Kvikmyndir.is
DV
4 3 . 0 0 0 G E S T I R Á 1 4 D Ö G U M
1/2HL MBL
RadíóX
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna
sem kemur öllum í jólaskap
Jólamyndin 2002
Sýnd kl. 2.
Kvimyndir.is
EYJÓLFUR Eyvindsson, sem
kallar sig Sesar A, er réttnefndur
brautryðjandi í íslensku hiphopi og
um leið gott dæmi um hvernig gera
má hlutina; ekki er bara að hann gaf
út fyrstu íslensku hiphopskífuna sem
fékk almenna dreifingu, heldur hef-
ur hann gert hlut-
ina sjálfur og það
með stæl. Fyrsta
skífa hans, Storm-
urinn á eftir logn-
inu, var ekki bara
góð plata heldur
var útgáfan á heimsmælikvarða,
góður stuðningur á Netinu og platan
gefin út á vínyl. Nú kemur Gerðu-
þaðsjálfur og enn er Sesar að gera
hlutina sjálfur, stýrir útgáfunni frá a
til ö og pakkar diskinum svo inn að
eftir er tekið.
Sesar er með sérstakan rappstíl
sem fellur mönnum misjafnlega í
geð, og sker sig einnig úr með bók-
legu málfari, sjá til að mynda línuna
„því ekki vil ég verða að blöðru / sem
rótlaust um loftið svífur / uns með
hvelli undir lok líður“ úr titillagi skíf-
unnar. Annars eru rímurnar á plöt-
unni almennt mjög góðar og margar
eins konar hiphopævisaga Sesars
sem gerir skífuna persónu- og
skemmtilega. Um miðbik hennar er
lagaþrenna sem segir söguna þótt
ekki sé það í tímaröð. „Gerðuþað-
sjálfur“ segir frá því er Sesar er að
basla við útgáfuna staurblankur,
„það er erfitt að sofna með tóman
maga / synjun á kortið í marga
daga“. „List ein“ segir frá því er Ses-
ar byrjaði í graffinu, þeim sem hann
kynntist á þeim tíma og þess er hann
sneri sér að tónlistinni. Þriðja lagið í
þeirri syrpu er svo „Veni Vidi Vici“,
þar sem hann segir frá því hvað knýi
hann áfram í hiphopinu, það er ekki
löngun í auð og ekki lítur hann á sig
sem einhvern siðapostula; „það sem
ég vil frekar / er virðing“ því „virðing
er meira virði / en nokkru sinni ein-
hver króna“.
Músíkin á Gerðuþaðsjálfur er
mjög vel heppnuð og Sesar leikur sér
víða með formið, sjá skemmtilegan
takt í „Allar hendur“, mjög góðan
kraftmikinn grunn á „List ein“ með
innblásnu víbrafónsinnskoti og svo
má telja. Lagið „Smellurinn“ er líka
vel samið og „Kaldar kveðjur“ ekki
síður. Tónlistarlega er þessi skífa
Sesars eins konar yfirlit yfir stíla og
stefnur án þess þó að verða nokkurn
tímann sundurlaus. Víða gæðir lif-
andi hljóðfæraleikur lögin meira lífi;
í „Smellnum“ eru það blásarar og
víða raf- og kontrabassaleikur, getið
er víbrafóns og sjálfur leikur Sesar á
Leslie-orgel. Lagabútar víða að eru
líka vel notaðir, sjá mjög flottan pí-
anóbút í „Hjartalaginu“ og svo má
telja. Að þessu leyti er platan mikil
framför frá þeirri síðustu og með
bestu hiphopskífum ársins.
Ýmsir leggja Sesari lið á skífunni
sem styrkir hana til muna. DJ Magic
fer á kostum í hverju laginu af öðru
og á einnig skemmtilega einleiks-
kafla, BlazRoca á góðan leik í „Ban-
analýðveldinu“, Freydís stendur sig
mjög vel í „Köldum kveðjum“ og
rímurnar hjá Vivid Brain í því lagi
eru afbragðsgóðar, en flutningurinn
köflóttur. Sesar þakkar líka vel fyrir
sig; í lokalagi disksins, sem heitir því
lýsandi nafni „Kveðja og þakkir“,
nafngreinir hann þá sem lagt hafa
honum lið og þakkar fyrir sig. Vel að
verki staðið.
Sesar A er sér á báti í íslensku hip-
hopi, hann er sjálfstæðastur allra,
sannkallaður einyrki í íslensku hip-
hopi, góður rímnamaður og óvenju-
legur flytjandi. Hann hefur látið þau
orð falla að þetta verði síðasta skífa
sín að sinni, sem er hið versta mál,
hann ruddi brautina og hefur verið
iðinn við tilraunamennsku með form-
ið sem aðrið geta tekið mið af. Von-
andi er þetta bara spé.
Tónlist
Leikið með
formið
Sesar A
Gerðuþaðsjálfur
Boris
Gerðuþaðsjálfur, diskur Eyjólfs Eyvinds-
sonar sem kallar sig Sesar A. Lög eftir
Sesar A, ýmist einan eða í samvinnu við
aðra; Samúel Jón Samúelsson, Gísla
Galdur Þorgeirsson, Hjörleif Jónsson og
Kristin Ágústsson. Textar eftir Sesar
nema Allar hendur sem hann semur með
Kjartani Iversen, Bananalýðveldið sem
hann semur með Erpi Eyvindssyni og
Kaldar kveðjur sem hann semur með
Freydísi Kristófersdóttur og Jóni Árna-
syni. Samúel Jón leikur á básúnu, Kjartan
Hákonarson á trompet, Hrafn Ásgeirsson
á barítónsaxófón, Hjörleifur Jónsson á
vibrafón og Valdimar Kolbeinn Sig-
urjónsson á kontra- og rafbassa. Sjálfur
spilar Sesar á B3 Leslie-orgel í nokkrum
lögum. Boris gefur út. Diskurinn fæst í
BT.
Árni Matthíasson
Morgunblaðið/Jim Smart
Sesar A gerir allt á plötunni Gerðuþaðsjálfur; rappar, semur, flytur, stýrir
upptökum og pakkar disknum svo inn að eftir er tekið.
Hjónaband Nicolas Cage og Lisu
Marie Presley fór í vaskinn
vegna gamallar unnustu Cage.
Nánir vinir Presley hafa haldið
því fram að hið skammvinna og
stormasama hjónaband hafi end-
anlega farið í hundana eftir að
Cage eyddi nóttu heima hjá
barnsmóður sinni, leikkonunni
Kristinu Fulton, en þau eiga sam-
an 11 ára dreng, Weston að nafni.
Sagt er að Presley hafi aldrei
sætt sig við að eiga stjúpson og
alltaf haft horn í síðu móður hans.
En það var samt Cage sem sótti
um skilnaðinn á dögunum og síð-
ustu fregnir herma að sjálfskip-
aður konungur poppsins, Michael
Jackson, sé nú æstur í að vinna
aftur fyrrum eiginkonu sína, hana
Lisu Marie.
FÓLK Ífréttum