Morgunblaðið - 07.12.2002, Page 92
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
NÚ styttist í að jólaverslunin nái
hámarki, með tilheyrandi umferð
og öllum þeim ys sem einkennir
desembermánuð. Borgir og bæir
eru að verða fullskreyttir og börnin
farin að hlakka til jólanna og biðja
um blessaðan jólasnjóinn. Hinir
fullorðnu láta sig þessa hluti að
sjálfsögðu varða, en ekki síður hitt,
að í dag hófst nýtt greiðslukorta-
tímabil hjá VISA Ísland og Europay
Ísland. Nýjasta kreditkortafyrir-
tækið hérlendis, Kortaþjónustan
hf., er hins vegar ekki með breyti-
leg kortatímabil og hefst því nýtt
tímabil 18. desember.
Með lengingu kortatímabilsins er
korthöfum gert kleift að nota kred-
itkortin í jólainnkaupum og borga
reikninginn í byrjun febrúar.
Hjá VISA og Europay hófst
kortatímabilið í jólaversluninni 9.
desember í fyrra en var lengt um
tvo daga fyrir þessi jól.
Morgunblaðið/Kristinn
Jólaverslunin fer
að ná hámarki
LÖGREGLAN í Hafnarfirði
handtók nýlega fimmtán ára
pilt á skólalóð í Hafnarfirði en
hann var þá á leið heim úr
skóla. Reyndist hann vera með
eina e-töflu innanklæða og við-
urkenndi hann sölu á 30 slíkum
töflum, þó ekki til skólafélaga
sinna heldur til eldri einstak-
linga. Þetta kemur fram á vef-
síðu lögreglunnar í Hafnarfirði.
Pilturinn var handtekinn í
tengslum við rannsókn á inn-
broti og þjófnaði. Í kjölfarið
voru fjórir fimmtán ára piltar
handteknir en lögregla segir að
þeir neyti allir fíkniefna og hafi
ítrekað komið við sögu lög-
reglu. Rannsóknin hefur leitt
til þess að fjögur innbrot hafa
verið upplýst, þar af eitt í
heimahús, auk nokkurra
skemmdarverka sem piltar
þessir hafa staðið að með einum
eða öðrum hætti. Rannsókn
stendur enn yfir.
Fimmtán
ára piltur
játar sölu
á e-töflum FJÁRHAGSLEG staða Lífeyrissjóðs lækna hefur
versnað til muna á síðustu þremur árum en raun-
ávöxtun sjóðsins hefur verið neikvæð öll þessi ár
eða um 4,2% árið 2000, 2,5% í fyrra og um 4,2%
fyrstu átta mánuði þessa árs. Áfallnar skuldbind-
ingar sjóðsins eru metnar á tæp 15% umfram
eignir hans en í lögum um lífeyrissjóði er kveðið á
um að lífeyrissjóðir án ábyrgðar sem reknir eru
með meira en 10% fráviki verði að breyta rétt-
indum, þ.e. auka þau eða minnka. Þess ber þó að
geta að réttindi sjóðfélaga voru aukin 45% á einu
bretti vorið 2000.
Eiríkur Benjamínsson, formaður stjórnar Líf-
eyrissjóðs lækna, segir ljóst að réttindi verði skert
en ekki hafi endanlega verið ákveðið hver skerð-
ingin verður en það verði gert strax upp úr ára-
mótum þegar ársuppgjör og tryggingafræðileg út-
tekt liggur fyrir. Eiríkur segir að réttindi
sjóðfélaga hafi verið aukin um 45% á einu bretti
snemma árs 2000 samhliða breytingum á reglum
sjóðsins um aldurstengd réttindi sjóðfélaga.
„Réttindi hafa aldrei verið skert í Lífeyrissjóði
lækna þannig að þegar málið er skoðað í víðara
samhengi erum við í mjög góðum málum.“
„Það er hins vegar búið að halda fund og senda
bréf þannig að sjóðfélagarnir vita af fyrirhugaðri
skerðingu þótt ekki liggi enn fyrir hver hún verð-
ur. Staðan hefur þó heldur skánað síðustu mánuði
en ekki nóg. Þetta er þriggja ára niðursveifla sem
flestir sjóðir hafa lent í. Það er auðvitað auðvelt að
vera vitur eftir á. Við erum þó heppnir að því leyti
að við eigum minna af hlutabréfum en við stefnd-
um að, stefnan er 50% en við erum ekki nema í
rúmum 30%.“
Stefnir í skerðingu réttinda
hjá Lífeyrissjóði lækna
Neikvæð raunávöxtun
á sjóðnum þrjú ár í röð
BJÖRGUNARAÐGERÐIR vegna
Guðrúnar Gísladóttur KE 15, sem
liggur á um 40 metra dýpi við strend-
ur Lófóten í N-Noregi, hefjast af
fullum krafti í dag. Allt björgunarlið-
ið er komið til N-Noregs og allur
búnaður tiltækur en í gær kom nóta-
og netaskipið Stakkanes, sem var
leigt frá Ísafirði vegna björgunar-
innar, til hafnar í Lófóten. Innan-
borðs voru sex af þrettán Íslending-
um, sem munu taka þátt í aðgerð-
unum.
Haukur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Íshúss Njarðvíkur,
sem keypti skipið af fyrri eigendum,
segir að alls muni á fjórða tug manna
koma að aðgerðunum. Norskur
verktaki, Riise Underwater Engin-
eering, muni sjá um allt starf neð-
ansjávar, um 20 manns á hans veg-
um komi að verkinu. Heildarkostn-
aður vegna björgunaraðgerðanna
gæti farið í um 200 milljónir króna.
„Það er allt tilbúið til að hefjast
handa og ég geri ráð fyrir því að
formlega verði byrjað á verkinu [í
dag],“ segir Haukur. Tvö skip verði
fest við akkeri hvort sínu megin við
skipið, Stakkanesið og skip sem kaf-
ararnir noti. Þar verði unnið allan
sólarhringinn en stefnt sé að því að
skipið verði híft upp af hafsbotni fyr-
ir jól.
„Við reiknum með því að selja það,
það er hugmyndin sem er efst á baugi
í dag. Við eigum engan kvóta og ætl-
um auðvitað ekki að fara að gera út.“
Aðalbækistöð björgunarliðsins verð-
ur í Leknesi. Haukur segir aðgerðina
byggjast á því að hann hafi náð til sín
hópi af afburðafólki, hann sé mjög
ánægður með hversu vel hafi tekist
til að velja björgunarlið.
Björgunarað-
gerðir að hefjast
Guðrún Gísladóttir hugsanlega seld
EMBÆTTI ríkislögreglustjóra
barst í gær svar frá hollenskum
lögregluyfirvöldum vegna rann-
sóknar á dauða 16 ára íslensks pilts
í Hollandi í sumar.
Ríkislögreglustjóri sendi bréf til
Hollands þar sem boðin var fram
aðstoð við rannsókn, komið á fram-
færi upplýsingum um málið og ósk-
að eftir aðgangi að málsgögnum í
Hollandi.
Svarið viljayfirlýsing
Gísli Pálsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra,
segir að í svarinu hafi hollensk lög-
regluyfirvöld lýst vilja á samstarfi
íslenskra og hollenskra réttarlækna
við rannsókn málsins en í svarinu
sé hvergi vikið að ósk um aðgang
að málsgögnum. Aðspurður segir
Gísli að ríkislögreglustjóri muni
ítreka þessa ósk sína. Um leið verði
Hollendingum send gögn sem emb-
ættið hafi aflað í málinu.
Aðstoð
þegin en
ekki minnst
á málsgögn
VÍS lækkaði vexti af bílalánum sín-
um um síðustu mánaðamót. Vextir af
óverðtryggðum lánum félagsins eru
11,8% en af verðtryggðum lánum
8,3%.
Vextir af bílalánum VÍS fyrir
lækkunina voru þeir sömu og eru hjá
Sjóvá-Almennum tryggingum og
Tryggingamiðstöðinni eða 12,4% af
óverðtryggðum lánum og 8,8% af
verðtryggðum lánum. Vextir af bíla-
lánum eignarleigufyrirtækjanna
Glitnis, Lýsingar og SP-fjármögnun-
ar eru einnig 12,4% og 8,8%.
Samkvæmt upplýsingum frá
tryggingafélögunum hafa vextir af
bílalánum lækkað á undanförnum
mánuðum að mestu í takt við al-
menna lækkun vaxta fjármálastofn-
ana.
VÍS lækkar vextina
af bílalánum sínum
/0
1 #23
45
/62
" 6
#%
7 62
" 6
#%
=68
==8
==8
=8
' 8
' 8