Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 27
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 27
ÞAÐ ER stundum biðröð viðnytjamarkaðinn Góðahirðinn, þegar opnað er íhádeginu. Fyrir utan bíður
fólk sem er komið til að gera góð
kaup. Innan dyra kennir margra
grasa en varningurinn kemur úr
nytjagámum sem eru á öllum endur-
vinnslustöðvum Sorpu. „Það koma
til okkar tveir flutningabílar fullir af
varningi tvisvar í viku,“ segir Sólrún
Trausta Auðunsdóttir, kölluð Sóla,
sem er verslunarstjóri. „Hingað
koma um 4.000 kúnnar mánaðarlega
og við afgreiðum um það bil 10.000
hluti í hverjum mánuði,“ segir hún
og er greinilega með tölfræðina á
hreinu. „Þegar þú kemur í Góða
hirðinn skaltu gera ráð fyrir að
staldra við í þrjá tíma,“ bætir hún
við.
– Hvað segirðu, þrjá tíma!
„Já, það er svo margt sniðugt til
hérna hjá okkur.“
Sóla segir að fólk slæðist inn til
þeirra til að kaupa jólagjafir enda
hægt að gera reyfarakaup.
„Ég kaupi mínar jólagjafir í Góða
hirðinum. Ég er persónulega mun
hrifnari að notuðum hlutum en nýj-
um og finnst bara notalegt að vita
að hlutirnir hafa farið í gegnum
margar hendur,“ segir hún.
– Hvað hefur þú verið að gefa
héðan til jólagjafa?
„Ég hef verið að kaupa skrítna
hluti eins og gömul eldhúsáhöld og
gamla skauta og skíði. Það er reynd-
ar sjaldgæft að við fáum það síðast-
nefnda til okkar. Annars er hægt að
fá hér alls konar smávöru eins og
skrítna lampa, litla vasa og styttur
eins og stelpur fengu gjarnan í af-
mælisgjöf á áttunda áratugnum.
Stytturnar kosta 100–1.200 krónur,
vasarnir eru á 150–1.000 krónur og
lamparnir eru á 100–3.500.
Hér fást líka bækur; skáldsögur,
ljóð, fræðibækur, ævisögur og
barna- og unglingabækur, íslenskar
og þýddar. Flestar bækurnar kosta
50–200 krónur. Ég held að enginn
geti keppt við okkur um bókaverð í
ár.
Við erum með heilu rekkana af
gömlum vínylplötum sem kosta 150
krónur. Þá er hægt að kaupa alls
konar dúka, ísaumaða, einlita og
köflótta, í öllum stærðum. Þeir eru á
100–600 krónur. Fólk hefur líka ver-
ið að kaupa útsaumaða púða til gjafa
sem kosta 500–1.000 krónur.
Gömul raftæki og fótunuddtæki
fást hér líka og þau síðastnefndu
renna út í hvelli en þau hafa kostað
1.000 krónur.
Skrautleg box undir smákökur og
þess háttar eru alltaf vinsæl til
gjafa. Sum eru gömul og snjáð, sem
gefur þeim skemmtilegt yfirbragð,
en þau kosta 300–800 krónur.
Bollastell og glös eru til í miklu
úrvali. Glösin kosta til dæmis 10–
150 krónur. Ég held að enginn
myndi slá hendinni á móti út-
skornum desertskálum úr kristal
sem kosta 400 krónur stykkið,“ seg-
ir hún og grípur tvær skálar, sem er
að finna í „betri stofunni“, og lyftir
þeim upp í ljósið til að sýna blaða-
manni.
Fólk kaupir líka það sem við köll-
um stríðnisgjafir sem eru hlutir sem
hafa í raun ekkert hagnýtt gildi og
hafa verið framleiddir vegna ein-
hverrar sérvisku. Sumir þessara
hluta hafa verið notaðir sem hjálp-
artæki við eldamennsku eins og
hamborgarapressan, en þær kosta
10–50 krónur. Eitt árið rak á fjörur
okkar nokkurt magn af þessum
pressum, þá fékk kúnninn þær í
kaupbæti.
Hér er líka hægt að fá myndir á
góðu verði. Þetta eru gamlar ljós-
myndir, frægar eftirprentanir og út-
saumsmyndir. Verðið á myndunum
er 300–3.000 krónur.
Svo er hægt að kaupa ódýra hluti,
gera upp og gefa. Fólk hefur verið
að kaupa kommóður. Þær hafa kom-
ið hingað í litum eins og bleiku eða
lillabláu. Verðið fer eftir aldri, efni
og stíl, verðið er frá 1.500–6.000
krónur. Stundum eru þetta vandaðir
hlutir úr gegnheilum og góðum
viði.“ – Í hvaða ásigkomulagi eru
hlutirnir venjulega þegar þeir koma
til ykkar?
„Veistu, sumt af þessu dóti er eins
og það hafi verið tekið beint af hill-
unni þinni en annað er verr farið.“
Þegar gengið er um markaðinn,
sem er á jarðhæð Sjálfsbjarg-
arhússins í Hátúni 12, má finna ým-
iss konar jóladót og tágakörfur sem
hægt er að skreyta og hafa heima
hjá sér eða gefa. Körfurnar kosta
50–350 krónur. Nokkur gervijólatré,
sem virtust sem ný, stóðu umkomu-
laus og biðu eftir eigendum en þau
kosta 800–1.500 krónur.
Þarna er líka að finna barn-
leikföng í fjölbreyttu úrvali eins og
tuskuleikföng á 10–250 krónur.
Eins og áður segir rennur ágóð-
inn af versluninni til líknarfélaga. Á
þessu ári skipta Tourette-samtökin
og CP-félagið, sem er stuðnings-
félag þeirra sem eiga við hreyfifötl-
un að stríða, með sér 900 þúsund
krónum. „Mér finnst jákvætt að
hlutir öðlist framhaldslíf á þennan
hátt,“ segir Sóla. „Einnig er gott að
vita til þess að ágóðinn fer til góðra
málefna.“
Í lokin er ekki úr vegi að segja frá
stelpunni sem var að skrifa jóla-
gjafalistann sinn um daginn en á
honum stóð: „Svo langar mig í eitt-
hvað „öðruvísi“ úr Góða hirðinum.“
Ódýrt í jóla-
pakkann
Morgunblaðið/Kristinn
Hrafnkell Brynjarsson og Sólrún Trausta Auðunsdóttir, starfsmenn í Góða
hirðinum, með hluti sem þau gætu hugsað sér að gefa til jólagjafa.
Hægt er að fá „öðruvísi“ jólagjafir í Góða
hirðinum, sem er nytjamarkaður Sorpu.
Ágóðinn fer til góðra málefna.
ÞEGAR Samkeppnisstofnun
kannaði verðmerkingar í sýning-
argluggum 345 verslana á höf-
uðborgarsvæðinu í byrjun desem-
ber kom í ljós að
59% verslana í Smáralind og
50% verslana í Kringlunni voru
með óaðfinnanlegar verðmerk-
ingar. Verslanir við Laugaveg/
miðbæ voru með óaðfinnanlegar
verðmerkingar í 45% tilvika.
Að sögn Kristínar Færseth
deildarstjóra hjá Samkeppn-
isstofnun er þetta mun lakari nið-
urstaða en á sama tíma í fyrra.
Heildarniðurstaða sýnir að
verðmerkingar voru í lagi í 48%
tilvika sem er lakari niðurstaða
en fyrir sl. jól en þá voru verð-
merkingar í lagi í 57% tilvika.
Kristín bendir á að með því að
verðmerkja ekki í sýning-
argluggum geri kaupmenn sig
seka um brot á rétti neytenda.
Samkvæmt samkeppnislögum er
skylt að verðmerkja í sýning-
argluggum í því skyni að auð-
velda neytendum verðsamanburð
og þar með stuðla að samkeppni.
Kristín segir að í samkeppn-
islögum frá árinu 2000 komi fram
að heimilt séað beita sektum við
brotum af þessu tagi.
Þegar hún er spurð hvort
stofnunin hafi fram að þessu
sektað verslanir fyrir brot á verð-
merkingarlögum segir hún að í
sumar hafi samkeppnisráð sektað
verslun um 400.000 krónur vegna
brota á lögunum.
Kristín segir að full ástæða sé
til að grípa í taumana þegar hún
er innt eftir því hvort niðurstöður
sem þessar veiti ekki Samkeppn-
isstofnun ástæðu til aðgerða.
Innan við helmingur verslana
með verðmerkingar í lagi
!
!
"
#$#
% &'
www.avon.is
Snyrtivöruverslun
opin allan sólarhringinn