Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 57
Sýnd kl. 4. Ísl tal Vit 448
ÁLFABAKKI KRINGLA AKUREYRI KEFLAVÍKÁLFABAKKI AKUREYRI/KEFLAVÍK
Kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 Kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 474
1/2HK DV ÓHT Rás2
SV Mbl RadíóX
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Sýnd kl.9.Vit 479
ÁLFABAKKI KEFLAVÍK ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI
RadíóX
DV
kemur öllum í jólaskap
Sýnd kl. 9. Auka sýning.
AKUREYRI
4 7 . 0 0 0 G E S T I R Á 1 7 D Ö G U M
Roger Ebert
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Í ÁLFABAKKA KL. 4 OG 8. B. I. 16. VIT 469.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 9. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 6. Vit 468
HL MBLKvikmyndir.is
07.12. 2002
5
6 0 0 0 7
9 7 5 1 5
6 12 18 30
36
04.12. 2002
3 6 11
28 30 43
4 41
Fimmfaldur
1. vinningur
næsta laugardag
Einfaldur
1. vinningur
næsta miðvikudag
HÖRÐUSTU aðdáendur
J.R.R. Tolkiens og Hringa-
dróttinssögu létu sig hafa það
að bíða yfir nótt til að næla
sér í miða á sérstaka forsýn-
ingu á Turnana tvo. Salan fór
fram í Nexus við Hverfisgötu,
sem stendur fyrir sýningunni,
og voru um 400 miðar í boði.
Sýningin, sem verður í
Laugarásbíói klukkan 20 á
fimmtudaginn, er sú fyrsta á
Íslandi á öðrum hluta Hringa-
dróttinssögu.
Þeir fyrstu voru mættir í
biðröðina við Nexus um
ellefuleytið á laugardags-
kvöld en miðasala hófst
klukkan 17 á sunnudag. Á
hádegi var komin 80 manna
biðröð og uppúr því fjölgaði
stöðugt. Miðarnir seldust síð-
an upp á tveimur tímum.
Selt var í númeruð sæti að eigin
vali og er innifalið í miðaverðinu,
2.500 krónum, popp, kók og pizzur.
Myndin verður sýnd ótextuð og án
hlés.
„Við erum algjörlega á móti hléi í
bíómyndum. Ég skil alveg að bíóin
vilji selja popp og kók í hléi en
miðaverð hjá okkur er bara hærra í
staðinn,“ segir Gísli Einarsson, eig-
andi verslunarinnar, sem er ánægð-
ur með hvernig til tókst. „Ég er
mjög ánægður. Síðast vorum við
svo lengi að þessu.“
Í fyrra seldust ekki nema 250
miðar í fyrstu atrennu á Hringa-
dróttinssögu: Föruneyti hringsins
og tók nokkra daga að verða upp-
selt. „Í fyrra voru margir mjög
spenntir en enginn vissi hvort þetta
yrði virkilega gott eða ekki. Það
átti enginn von á því að þetta yrði
svona gott. Því eru menn helmingi
spenntari fyrir næstu mynd,“ segir
Gísli um þennan aukna áhuga.
Fyrsta myndin sem var forsýnd á
vegum Nexus var Star Trek: First
Contact fyrir um fimm árum.
Næsta mynd sem verður forsýnd á
vegum verslunarinnar er síðan Star
Trek: Nemesis í janúar.
Í biðröð yfir nótt
Nexus-forsýning á Hringadróttinssögu
Um 400 miðar voru í boði á sérstaka forsýningu á Hringadróttinssögu.
Morgunblaðið/Sverrir
Biðin var löng hjá sumum eftir miðunum
og gott að koma vel búinn.
TENGLAR
.....................................................
www.nexus.is
HAFIÐ eftir Baltasar Kormák verður
sýnt á Sundance kvikmyndahátíðinni
nafntoguðu sem fram fer í Salt Lake
City í Bandaríkjunum dagana 16.–26.
janúar næstkomandi.
Myndin, sem sótt hefur verið af rúm-
lega 52 þúsund manns hér á landi, verð-
ur sýnd í flokknum Alþjóðakvikmyndir,
eða World Cinema.
Alls bárust skipuleggjendum hátíðar-
innar 832 myndir en einungis 120 þeirra
komast að, þar á meðal 25 sem sýndar
verða í flokknum Alþjóðakvikmyndir.
Hafið á
Sundance
Sigurður Skúlason hlaut Eddu-
verðlaun á dögunum fyrir hlut-
verk sitt í Hafinu.
SPARISJÓÐUR Hafnarfjarðar bauð til tónleika á sunnudag í tilefni þess að
100 ár verða liðin frá stofnun bankans þann 22. desember næstkomandi. Tón-
leikarnir voru haldnir í Kaplakrika fyrir fullu húsi.
Björgvin Halldórsson kom fram ásamt karlakórnum Þröstum og stór-
söngvarinn Kristján Jóhannsson steig á svið. Til viðbótar skemmtu viðstödd-
um Borgardætur og Bubbi Morthens og fjöldi annarra góðra gesta.
Hátíðarhöldum SPH er þó ekki lokið því afmælisins verður minnst á Þor-
láksmessu og viðskiptavinum boðin afmæliskaka. Auk þessa stendur Spari-
sjóðurinn fyrir flugeldasýningu milli jóla og nýárs.
Stórsöngvarar á skemmtun
Sparisjóður Hafnarfjarðar fagnar aldarafmæli
Morgunblaðið/Sverrir
Björgvin Halldórsson skemmti gestum ásamt karlakórnum Þröstum á tón-
leikum í tilefni aldarafmælis Sparisjóðs Hafnarfjarðar um helgina.
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll