Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
félaganna á hvaða gengi viðskiptin
fóru fram en miðað við síðasta við-
skiptagengi bréfa Þorbjarnar-
Fiskaness er verðmæti 24% hlutar
um 1,4 milljarðar króna.
Fyrir á Grandi 20% hlut í Haraldi
Böðvarssyni hf., 21% í Hraðfrysti-
GRANDI hf. hefur keypt hlutabréf
í Þorbirni-Fiskanesi hf. að nafn-
verði 267 milljónir króna. Eignar-
hlutur Granda hf. er nú 24%, en var
enginn áður. Kaupverð er ekki gefið
upp í tilkynningi hjá Kauphöllinni
en áætla má að það sé um 1,4 millj-
arðar króna. Árleg velta Granda er
tæplega 5 milljarðar króna, en Þor-
björn-Fiskanes veltir ríflega 2,5
milljörðum króna. Grandi keypti
hlutinn í þrennu lagi. Þormóður
rammi-Sæberg hf. seldi Granda öll
hlutabréf sín í Þorbirni-Fiskanesi
hf. að nafnverði um 111 milljónir
króna. Eignarhlutur Þormóðs
ramma-Sæberg hf. var áður 10%.
Þá seldi Ráeyri ehf. öll hlutabréf sín
í Þorbirni-Fiskanesi hf. að nafn-
verði umn 100 milljónir. Eignar-
hlutur Ráreyrar var áður 9%. Rá-
eyri tengist Þormóði
ramma-Sæbergi og keypti sinn hlut
fyrir skömmu af Afli, fjárfesting-
arfélagi. Á sama tíma keypti Ráeyri
einnig tæplega helming hlutafjár í
Þormóði ramma-Sæbergi af Afli.
Loks seldi Skeljungur hf. Granda
hlutabréf í Þorbirni-Fiskanesi hf. að
nafnverði 55,6 kr. milljónir. Eign-
arhlutur Skeljungs er nú 2,49% eða
27,7 kr. milljónir að nafnverði en
var áður 7,49% eða 83 milljónir kr.
að nafnverði.
Ekki kemur fram í tilkynningum
húsi Eskifjarðar hf.,15% í Hrað-
frystihúsinu-Gunnvöru hf., 12% í Ís-
félagi Vestmannaeyja og 10% í
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf.
auk eignarhluta í Stofnfiski hf. og
Deris S.A. í Chile.
Dregið úr áhættu í rekstri
Fjallað er um kaup Granda á
hlutaféinu í Þorbirni-Fiskanesi í
Greiningu Íslandsbanka. Þar segir
meðal annars:
„Fjárfestingar Granda í sjávarút-
vegsfyrirtækjum hafa undanfarin ár
miðast við að draga úr áhættu í
rekstri Granda. Þannig hefur
Grandi aðallega fjárfest í félögum
sem hafa aðra samsetningu afla-
heimilda en Grandi. Með kaupum á
HB má segja að fjárfestingarnar
hafi tekið aðra stefnu en leynt og
ljóst stefndi Grandi að sameiningu
við HB. Það markmið gekk ekki eft-
ir sem kunnugt er. Óljóst er hvort
Grandi stefnir að frekari fjárfest-
ingum í Þorbirni-Fiskanesi og í
kjölfarið sameiningu við félagið. Í
þessu sambandi má benda á að
Grandi á nú þegar 7,6% af eigin
bréfum, fjárhagsleg staða Granda
er sterk og seljanleiki bréfa Granda
nokkuð mikill í samanburði við önn-
ur sjávarútvegsfyrirtæki. Grandi
ætti því að teljast nokkuð vænlegur
sameiningarkostur fyrir hluthafa
annarra sjávarútvegsfyrirtækja.
Hins vegar telur Greining ÍSB að
verð hlutabréfa Þorbjarnar-Fiska-
ness sé hátt miðað við núverandi
gengi hlutabréfa félagsins.“
%
!
$
- 9 - :/;
- B *
& '(
)# *
(
& )+*
,-)+*
&
. -
)+* '+
/ '0 1
2 340
5 3 ,
"3
6&
.3 (
.47 ')+*
&
*'89 :
92* :
"
4 (
: 9 :
;
((
.;);<.
%! %! % !
$
!
Grandi kaupir fjórðung
í Þorbirni-Fiskanesi
„GRANDI hefur lagt á það áherzlu
á undanförnum árum að eiga hlut-
deild í öðrum fyrirtækjum í sjávar-
útvegi. Nú gerðist það í ár að við
seldum það sem
við áttum í Þor-
móði ramma-
Sæbergi, um 20%
hlut, og þessa
dagana erum við
að ganga frá sölu
á 22% hlut okkar
í HB á Akranesi
og fáum greitt
með hlutafé í
Eimskipafélag-
inu. Það er því að
fækka þeim félögum sem við eigum
hlutdeild í,“ segir Árni Vilhjálms-
son, stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri Granda, í samtali við
Morgunblaðið.
„Við höfum komið að rekstri ann-
arra fyrirtækja til að njóta góðs af
öðruvísi aflasamsetningu en hjá
okkur. Það var til dæmis rækja hjá
Þormóði ramma-Sæbergi og upp-
sjávarfiskur hjá HB. Í haust vorum
við með ákveðnar þreifingar hjá
Haraldi Böðvarssyni um nánari
tengsl félaganna, en þær runnu all-
ar út í sandinn. Nú þegar við erum
að kaupa í Þorbirni-Fiskanesi, er
það gert með von um gott samstarf
í framtíðinni. Við áttum töluverða
rekstrarsamvinnu við HB, meðal
annars um skipti á afla. Við létum
þá hafa þorsk og fengum í staðinn
ufsa og einnig eitthvað af karfa.
Við keyptum líka af þeim sjófryst
karfaflök, sem við unnum meira hjá
okkur, í bitaskurð og pökkun og
einng var um samvinnu á loðnu-
vertíð að ræða.
Við viljum nú efna til svipaðrar
samvinnu við Þorbjörn-Fiskanes,
því eðli málsins samkvæmt hlýtur
að draga úr samvinnu okkar við
HB, eftir að Eimskip keypti þar
meirihluta, en þá kemur ÚA þar inn
í staðinn fyrir okkur.
Því er ekkert að leyna að ein-
hvern tíma getur komið til þess að
menn leggi mat á kosti mjög náins
samstarfs milli Granda og Þor-
bjarnar-Fiskaness. Það hlýtur að
fylgja í kjölfarið. Það er þó ekkert
ákveðið í gangi enn, ekkert hefur
formlega verið samþykkt, en áhug-
inn er fyrir hendi,“ segir Árni Vil-
hjálmsson.
Gert með
von um gott
samstarf
Árni
Vilhjálmsson
SR-mjöl kaupir í EGC
SR-mjöl hf. hefur gengið frá kaupum
á 25% eignarhlut í grænlenska félag-
inu East Greenland Codfish A/S
(EGC). EGC hefur með höndum út-
gerð grænlenska nótaveiðiskipsins
SIKU GR 18-1 sem hefur til umráða
um 30% af grænlenska loðnukvótan-
um. Á síðasta veiðitímabili jafngilti
það um 35.000 tonnum af loðnu.
Kaupverð eignarhlutarins, sem SR-
mjöl hf. greiddi með eigin fé, er trún-
aðarmál milli hlutaðeigandi.
„SR-mjöl hf. væntir þess að SIKU
GR 18-1 muni landa sem mestu af
afla sínum í verksmiðjur SR-mjöls
hf. og að það verði til hagsbóta fyrir
bæði félögin,“ segir í frétt frá SR-
mjöli.
SIKU hét áður Guðmundur VE og
var í eigu Ísfélags Vestmannaeyja.
Grænlenzka útgerðin er að hluta til í
eigu Íslendinga.
MAREL hf. og Dis ehf. hafa und-
irritað samstarfssamning sem felur
í sér að Marel mun markaðssetja
og dreifa Dis sótthreinsunar-
kerfinu á aðalmörkuðum sínum út
um allan heim. Í fréttatilkynningu
frá Marel segir að kerfið sé bylt-
ingarkennd nýjung sem sé viðbót
við heildarlausnir fyrirtækisins og
muni auka enn á heildarþjónustu
við viðskiptavini.
Í tilkynningunni segir einnig að
rannsóknir hafi sýnt 99% árangur
sótthreinsunarkerfisins gegn bakt-
eríum. Kerfið, sem er algerlega
sjálfvirkt, notar sérstaka aðferð til
að framleiða þoku með Byotrol
sótthreinsivökva en hún er svo fín
að hún ber sótthreinsiefnið til
staða sem erfitt er að ná til með
hefðbundinni sótthreinsun, að því
er segir í fréttatilkynningunni.
Hörður Arnarson frá Marel hf. og
Ólafur Ragnarsson frá Dis ehf.
handsala samninginn.
Marel semur
um sótt-
hreinsikerfi