Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 289. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 mbl.is
Fékk nóg
af Ameríku
Marín Rós Karlsdóttir komin aftur
til Keflvíkinga Íþróttir 9
Nína Arnarsdóttir gaf vinningsfé
úr Barnamessu Akureyri 24
Bjartsýnn
rithöfundur
Andri Snær Magnason fékk
bjart́sýnisverðlaunin Listir 28
KÆMI til sameiningar Granda og Þorbjarnar-
Fiskaness, í kjölfar kaupa Granda á 24% hlut í
ÞF, yrði það annað stærsta sjávarútvegsfyr-
irtæki landsins með veiðiheimildir sem svarar
til ígilda um 42.000 tonna af þorski eða um 9,5%
heildarinnar. Aðeins Brimir, sjávarútvegssvið
Eimskipafélagsins, yrði stærra. Aflaheimildir
þess eru um 51.000 þorskígildistonn, eða 11,4%
heildarinnar. Samherji yrði þá í þriðja sæti með
um 35.400 þorskígildistonn eða 8% heildarinn-
ar.
„Því er ekkert að leyna að einhvern tíma get-
ur komið til þess að menn leggi mat á kosti
mjög náins samstarfs milli Granda og Þorbjarn-
ar-Fiskaness. Það hlýtur að fylgja í kjölfarið.
Það er þó ekkert ákveðið í gangi enn, ekkert
hefur formlega verið samþykkt, en áhuginn er
fyrir hendi,“ segir Árni Vilhjálmsson, formaður
stjórnar Granda hf., í samtali við Morgunblaðið.
Grandi hefur gengið frá kaupum á tæplega
fjórðungshlut í Þorbirni-Fiskanesi í Grindavík.
Áætlað verð þess hlutar er um 1,4 milljarðar
króna.
Verði um nána samvinnu félaganna að ræða
er ljóst að hún getur skilað þeim báðum miklu.
Grandi gerir út 5 togara, þar af þrjá frystitog-
ara og dótturfyrirtæki Granda gerir út loðnu-
skipið Faxa RE og rekur tvær fiskimjölsverk-
smiðjur, aðra í Reykjavík en hina í Þorlákshöfn.
Þorbjörn-Fiskanes gerir út 10 skip og báta.
Bæði fyrirtækin eru svo með öfluga fiskvinnslu.
Hagnaður Granda fyrstu 9 mánuði ársins var
um 1,4 milljarðar króna. Þorbjörn-Fiskanes
hagnaðist um tæpar 800 milljónir króna á sama
tímabili, samtals eru þetta 2,2 milljarðar. Velta
þessara tveggja fyrirtækja þetta tímabil var 7,9
milljarðar króna. Þar af var velta Granda 4,5
milljarðar.
Velta Brimis var á sama tímabili um 11,3
milljarðar og hagnaður ríflega 2 milljarðar.
Velta Samherja fyrstu 9 mánuði árins var 9,7
milljarðar króna og hagnaður um 2 milljarðar
króna.
Samanlagður kvóti um
42.000 þorskígildistonn
!"##"$
Grandi kaupir/18
Áhugi fyrir mjög „nánu samstarfi“ Þorbjarnar-Fiskaness og Granda
KRISTJÁN Jóhannsson óperusöngvari, bræður hans,
Jóhann Már og Svavar Hákon, skemmtu vistmönnum
á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri í gærkvöldi með
söng ásamt systursyni sínum, Erni Viðari Birgissyni.
Tilefnið var að í gær kom út geisladiskur með söng
föður þeirra, Jóhanns Konráðssonar – Jóa Konn, eins
og hann var jafnan kallaður – og bæklingur þar sem
lífshlaup hans er rakið. Ágóði af sölu disksins og
bæklingsins rennur til styrktar hjartalækningum við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Jóhann hefði orðið
85 ára í nóvember síðastliðnum, en tuttugu ár eru lið-
in 27. desember nk. frá því hann lést. Ekkja Jóhanns
og móðir bræðranna, Fanney Oddgeirsdóttir, býr nú
á Hlíð og hlýddi á sönginn ásamt fjölda annarra vist-
manna sem kunnu vel að meta heimsókn Konn-
aranna, eins og þeir eru kallaðir nyrðra. Þeim var vel
fagnað, en þess má geta að áður en þeir hófu upp
raust sína voru sýndar gamlar sjónvarpsmyndir með
söng Jóa Konn ásamt viðtölum við nokkra vini hans.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Með stórsöngvarann í broddi fylkingar: Bræðurnir Svavar Hákon og Jóhann Már Jóhannssynir, Örn Viðar
Birgisson, systursonur þeirra bræðra, og Kristján Jóhannsson syngja fyrir vistmenn á Hlíð.
Konnara-
kvartett
tekur lagið
Fanney Oddgeirsdóttir og Haukur Heiðar Hauks-
son, sonarsonur hennar. Aftar situr Gunnar – betur
þekktur sem Nunni Konn – bróðir Jóhanns heitins.
FORSTJÓRAR nokkurra
stærstu safna heims hafa
sameinast um að lýsa því yfir
að þeir muni ekki senda um-
deilda fornmuni aftur til upp-
runalandanna, að sögn BBC.
Segir í yfirlýsingunni að dýr-
gripirnir séu sameiginleg eign
mannkyns og safnastarfið
komi öllum til góða. Ekki sé
hægt að bera aðferðir við að-
drætti safnanna á sinni tíð
saman við framferði lista-
verkaþjófa nútímans.
Fullyrt er í skjalinu að al-
menningur hafi aðeins getað
lært að meta forna menning-
arheima að verðleikum fyrir
tilstuðlan safnanna. Umrædd
söfn eru 18, m.a. í Sankti Pét-
ursborg og New York.
Margar kröfur um skil
Ýmsar þjóðir hafa á und-
anförnum áratugum gert
kröfur um að skilað verði
frægum munum. Danir skil-
uðu sem kunnugt er Íslend-
ingum handritunum og nýlega
hefur Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra sett
fram hugmyndir um að ís-
lenskum forngripum í dönsk-
um söfnum verði skilað hing-
að til lands. Grikkir vilja fá
svonefndar Elgin-lágmyndir
frá British Museum, sem
fluttar voru þangað á 19. öld.
Egyptar fagna nú 100 ára af-
mæli þjóðminjasafns síns og
að sögn AFP-fréttastofunnar
notaði talsmaður safnsins
tækifærið í gær og hvatti til
þess að stolnum fornmunum
yrði skilað.
Neita að
skila dýr-
gripum
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti skip-
aði í gær John Snow, forstjóra bandaríska
járnbrauta- og flutningafyrirtækisins CSX,
í embætti fjármálaráðherra Bandaríkjanna
í stað Paul O’Neill sem sagði af sér að beiðni
forsetans fyrir helgi. Markmið Bush með
mannabreytingum í ríkisstjórnarliðinu er
að freista þess að snúa vörn í sókn í efna-
hagsþróuninni í landinu.
„John Snow verður lykilmaður sem ráð-
gjafi í efnahagsmálum og mikilvægur tals-
maður stefnu ríkisstjórnar minnar um hag-
vöxt, sköpun nýrra starfa og opnari og
alþjóðlegri viðskipti,“ sagði Bush. „Hann
verður frábær liðsmaður í ríkisstjórninni.“
Bush, sem í síðustu viku hóf uppstokkun
á ráðgjafaliði sínu í efnahagsmálum, boðaði
ennfremur í gær sérstakar aðgerðir til að
búa betur að atvinnulífinu. Stjórnmálaskýr-
endur telja að dragist samdráttarskeiðið í
bandarísku efnahagslífi á langinn kunni það
að ógna endurkjörsmöguleikum Bush í for-
setakosningunum 2004.
Lítil viðbrögð markaða
Lítil viðbrögð var þó að merkja á Wall
Street og öðrum verðbréfamörkuðum
Bandaríkjanna í gær eftir að fréttirnar bár-
ust af skipun Snows. Gengi hlutabréfa á
Wall Street var lítið eitt lægra í viðskiptum
gærdagsins en það varð strax eftir afsögn
O’Neills.
Manna-
skipti
skýrast
Reuters
Snow og Bush í Washington í gær.
Bush gerir Snow að
fjármálaráðherra
Washington. AP, AFP.
Langur ferill/20
♦ ♦ ♦
STJÓRNVÖLD í Indónesíu og fulltrúar að-
skilnaðarsinnaðra uppreisnarmanna frá
Aceh-héraði náðu í gær miklum áfanga að
því að binda enda á vopnuð átök sem staðið
hafa svo til óslitið í 26 ár, með því að und-
irrita friðarsamning sem felur í sér að hér-
aðið hljóti víðtæk sjálfstjórnarréttindi en
ekki fullt sjálfstæði.
Samkomulagið er mikill áfangasigur fyrir
ríkisstjórn Megawati Sukarnoputri, forseta
Indónesíu, þar sem stríðið í Aceh var al-
mennt álitið mesta ógnin við ríkisheild þessa
fjölmennasta múslimaríkis heims.
Aceh-átökin eiga sér rætur aftur á
nítjándu öld. Uppreisnin, sem enn stendur
yfir, hófst árið 1976. Á síðustu tíu árum hafa
um 12.000 manns látið lífið í átökunum, sem
stundum hafa verið kölluð „stríðið gleymda“.
„Gleymdu
stríði“ lýkur
Genf. AP.
Hálf milljón
fyrir börnin