Morgunblaðið - 10.12.2002, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 11
Dragtir
Ný sending
Matseðill
www.graennkostur.is
10/12-16/12 frá GRÆNUM KOSTI, Skólavörðustíg 8.
Opið mánudaga-laugardaga kl. 11.30-21.00,
sunnudaga kl. 13.00-21.00. Pantanir í síma
552 2028, skrifstofa 552 2607, fax 552 2607.
Þri. 10/12: Pönnukökukaka sívinsæl og
girnileg, ferskt salat,
hrísgrjón og meðlæti.
Mið. 11/12: Marokkóskar kræsingar
m. kúskússalati, fersku salati,
hrísgrjónum og meðlæti.
Fim. 12/12: Grænmetiskarrý og fylltar
samósur, ferskt salat,
hrísgrjón og meðlæti.
Fös. 13/12: Kartöfluboltar í góðum
félagsskap, ferskt salat,
hrísgrjón og meðlæti.
Helgin 14/12 og 15/12:
Austurlenskur spínatréttur.
Mán. 16/12: Grænmetisla la la lasagna
og fleira gott.
Kringlunni, sími 588 1680,
v. Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Gallabuxur
Flauelsbuxur
Ullarbuxur
Peysur
Vesti
Laugavegi 84, sími 551 0756
Stuttir og síðir kjólar
Dragtir og hvítar pífublússur
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222
Nýjar vörur
daglega!
Burt með vsk af völdum vörum
og að auki 10% afsláttur
Snorrabraut 38, sími 562 4362
Kápur stuttar og síðar
Fullt af tilboðum
Ullarjakkar frá kr. 7.900
Mokkakápur frá kr. 9.990
Komið og
skoðið úrvalið
Sloppar frá kr. 4.900
Náttföt frá kr. 2.400
Laugavegi 34, sími 551 4301
Opnum kl. 9 virka daga
Nú er síðasti möguleiki
að fá myndatöku og
stækkanir fyrir jól.
Ef þú ætlar að komast
að dugir ekki að panta
núna, heldur
STRAX
Í öllum okkar myndatökum
eru innifaldar fullunnar
stækkanir.
Ljósmyndastofan Mynd,
sími 565 4207.
www.ljosmynd.is
Ljósmyndastofa Kópavogs,
sími 554 3020.
Passamyndatökur alla virka daga.
FORELDRAR þurfa meiri stuðning
í uppeldishlutverkinu og efla þarf
fræðslu- og forvarnarstarf, m.a. með
því að bjóða upp á ráðgjöf varðandi
uppeldi strax við ungbarnavernd á
heilsugæslustöðvunum.
Þetta voru á meðal hugmynda sem
fram komu í erindi dr. Sigrúnar Að-
albjarnardóttur, prófessors í uppeld-
is- og menntunarfræðum við fé-
lagsvísindadeild Háskóla Íslands, á
ráðstefnu sem Landssamband fram-
sóknarkvenna stóð fyrir um tengsl
uppeldisaðferða og og áfengis- og
vímuefnaneyslu barna og unglinga, í
Norræna húsinu í gær.
Sigrún fjallaði í erindi sínu um
svokallaðar leiðandi uppeldisaðferð-
ir og bar saman við aðferðir foreldra
sem eru afskiptalausir gagnvart
uppeldi barna sinna, eftirlátir eða
skipandi.
Leiðandi foreldrar eru skilgreind-
ir sem foreldrar sem krefjast þrosk-
aðrar hegðunar af börnum sínum,
eru hlýir og uppörvandi og leggja
áherslu á að ræða ýmis mál við börn-
in þar sem bæði sjónarhorn barna og
foreldra fá notið sín.
Sigrún hefur lagt spurningalista
fyrir 1.100 unglinga í níunda bekk í
Reykjavík og hefur m.a. kannað
tengsl milli uppeldisaðferða foreldra
og vímuefnaneyslu unglinga frá 14 til
17 ára aldurs.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknar hennar eru unglingar leið-
andi foreldra ólíklegri til að reykja
daglega, drekka illa, og neyta ólög-
legra efna en aðrir unglingar.
Í erindi sínu vísaði Sigrún einnig í
alþjóðlegar rannsóknir sem sýna að
unglingar foreldra sem eru leiðandi í
uppeldi barna sinna sýna betri
námsárangur í skóla, þau sýna minni
depurð og kvíða, hafa jákvæðara
sjálfsmat og trúa frekar á eigin getu
en unglingar sem fá annars konar
uppeldi. Unglingar sem fá leiðandi
uppeldi eru einnig ólíklegri til að
sýna andfélagslega hegðun.
Sigrún bendir á að foreldrar þurfi
meiri stuðning í uppeldishlutverkinu
og að m.a. yrði hægt að bjóða upp á
fræðslu þar að lútandi í tengslum við
ungbarnavernd en einnig megi ná til
foreldra í gegnum starf leikskólanna
og við upphaf grunnskólagöngu með
samstarfi heimila og skóla og síðar í
gegnum fermingarundirbúninginn.
Aðrir fyrirlesarar á ráðstefnunni í
voru Hulda Guðmundsdóttir, hóp-
meðferðarstjóri á göngudeild LSH,
sem fjallaði um forvarnir á með-
göngu og fyrstu ár nýja barnsins,
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, verk-
efnisstjóri Geðræktar, og Marsibil
Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri
Götusmiðjunnar.
Tengsl uppeldisaðferða og vímuefnaneyslu unglinga
Börn leiðandi uppalenda
neyta sjaldnar vímuefna
GSM-kerfið hefur aldrei verið skil-
greint sem öryggiskerfi, enda víða
gloppur í því, og auk þess ber Lands-
símanum engin skylda umfram önn-
ur fjarskiptafyrirtæki að tryggja
GSM-samband, hvort heldur í Reyk-
hólahreppi eða annars staðar.
Þetta segir Heiðrún Jónsdóttir
hjá Landssímanum vegna frétta af
slæmu fjarskiptasambandi í Króks-
fjarðarnesi í Reykhólahreppi.
„Við erum með alþjónustukvöð að
því er snertir fastlínusíma, þ.e. tal-
símasambandið, en það eru engar
slíkar kvaðir vegna GSM-kerfisins.
Það hefur aldrei verið skilgreint sem
öryggiskerfi og það vekur að mínu
viti einfaldlega upp falska öryggis-
kennd hjá fólki að ætla að gera því
skóna. NMT-kerfið er þarna á stóru
svæði en misgott að sögn en ef menn
eru með þokkalegt loftnet á síman-
um eiga menn að vera inni. En það er
heldur engin kvöð á okkur vegna
þess frekar en vegna GSM-kerfis-
ins.“
Heiðrún segir að Síminn hafi feng-
ið bréf frá hreppnum í vor og því hafi
verið svarað. „Við áréttuðum að við
höfum engar skyldur að þessu leyti.
Við erum að byggja upp GSM-kerfið.
Það er tímafrekt og kostnaðarsamt
og við höfum fyrst og fremst verið að
byggja það upp á þéttbýliskjörnum.
Við erum að gera áætlanir núna hvar
við ætlum að byggja upp GSM-kerfið
á næsta ári og þá verður þetta erindi
tekið til skoðunar rétt eins og önnur
erindi af svipuðum toga sem okkur
hafa borist.“
Engin kvöð
á Símanum
að tryggja
GSM-samband
TRÉ ársins 2002 voru útnefnd við
athöfn við bæinn Stóru-Giljá í Aust-
ur-Húnavatnssýslu um helgina. Tré
ársins eru tvö samstæð grenitré
sem standa á hörðum bala í garð-
inum sunnan við íbúðarhúsið á
Stóru-Giljá. Magnús Jóhannesson,
formaður Skógræktarfélags Ís-
lands, útnefndi tré ársins við at-
höfnina og afhenti sérstakar við-
urkenningar við það tækifæri. Í
grein sem Páll I. Kristinsson á
Blönduósi ritar í nýútkomnu Skóg-
ræktarriti fjallar hann um tré árs-
ins 2002 og segir annað tréð hafa
mælst 9,7 metra haustið 2001 og
hitt tréð 9,1 metra. Trén standa um
þrjá metra frá íbúðarhúsinu. „Erf-
itt er fyrir þau að braggast við þak-
brúnir húsins og glíma þar við
norðanáttina, sem er oft þurr og
köld,“ segir í grein Páls. Í dag búa
tvær fjölskyldur á Stóru-Giljá,
hjónin Sigurður Erlendsson og
Þóra Sverrisdóttir með þrjú börn
sín, ásamt Erlendi Eysteinssyni og
Helgu Búadóttur, sem eru for-
eldrar Sigurðar.
Tré ársins 2002 eru tvö samstæð
tré við Stóru-Giljá í Víðidal.
Tré ársins á
Stóru-Giljá
MEIRIHLUTI efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis mælir með
samþykkt frumvarps fjármálaráð-
herra, Geirs H. Haarde, sem leggur
það m.a. til að heimilt verði að draga
frá tekjum af atvinnurekstri eftir-
stöðvar rekstrartapa frá síðustu tíu
árum í stað átta ára eins og verið hef-
ur. Meirihluti nefndarinnar leggur
þó til nokkrar breytingar á fyrir-
liggjandi frumvarpi. Til dæmis legg-
ur hann til að í ákvæði til bráða-
birgða verði rekstraraðilum einvörð-
ungu heimilt á rekstrarári 2003 að
nýta rekstrartöp aftur til rekstrar-
ársins 1994 eða í níu ár, „þannig að
tap verði ekki endurvakið með aft-
urvirkum hætti,“ eins og segir í
nefndaráliti meirihlutans.
Mælir með sam-
þykkt skatta-
frumvarps
♦ ♦ ♦