Morgunblaðið - 10.12.2002, Side 24

Morgunblaðið - 10.12.2002, Side 24
Mikið um að perum sé stolið af jólatrjám TÖLUVERT hefur verið um stuld á ljósaperum af jólatrjám sem sett hafa verið upp víða á Akureyri. Starfsmenn Rafeyrar, sem sjá um jólatré á vegum Kaupfélags Ey- firðinga og tengdra fyrirtækja, við Glerárkirkju, Akureyrarkirkju, í kirkjutröppunum og við verslanir á Byggðavegi og Hrísalundi, hafa haft í nógu að snúast við að setja nýjar perur í stað þeirra sem teknar hafa verið ófrjálsri hendi. Björn Björnsson, rafvirki hjá Raf- eyri, sagði ástandið í ár með allra versta móti. Hann sagði ekki hægt að klína þessum verknaði beint á börnin, því sjálfur hefði hann séð til fullorðins fólks skrúfa perur af trjám. Hann biður fólk um að vera á varðbergi, enda séu þessi ljós sett upp til að lýsa upp skamm- degið og gleðja fólk í jólamán- uðinum. Björn sagði að auk mikils kostnaðar, fylgdi því jafnframt mikil vinna að keyra daglega um bæinn til að bæta við perum. Morgunblaðið/Kristján Björn Björnsson, rafvirki hjá Rafeyri, bætir við perum í jólatréð við Gler- árkirkju en í gærmorgun var búið að taka allar neðstu perurnar í trénu. AKUREYRI 24 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Dagat al S pa ris jóð sins 2003 er komið. Heilsukoddi sem lagar sig að líkamanum. Verð kr. 3.990 Sendum í póstkröfu www.islandia.is/~heilsuhorn Bókhveiti heilsukoddar Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889. SIGRÍÐUR Margrét Oddsdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns IMG á Akureyri af Jóni Birgi Guð- mundssyni sem hóf störf sem verk- efnastjóri bæjarráðs Akureyrar- bæjar um síðustu mánaðamót. Sigríður Margrét hefur B.Sc. próf í rekstrarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur starfað hjá IMG frá árinu 1999 við rannsóknir og ráðgjöf. Fyrirtækið IMG hefur starfrækt skrifstofu á Akureyri frá árinu 1998. Þar starfa fjórir fast- ráðnir starfsmenn og 65 starfsmenn við gagnaöflun. IMG á Akureyri býður fyrirtækjum ráðningaþjón- ustu í nafni Mannafls, markaðs- og viðhorfarannsóknir í nafni Gallup, ráðgjöf og þjálfun í nafni IMG Deloitte. Breytingar hjá IMG á Akureyri NÍNA Arnarsdóttir, 12 ára nemandi við Brekkuskóla á Akureyri, kom heldur betur færandi hendi á barnadeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri í gærmorgun, en þá af- henti hún deildinni 550 þúsund krónur að gjöf. Upphæðina vann hún í spurninga- leiknum Viltu vinna milljón? á Stöð 2, en hún keppti í svokallaðri Barnamessu þar sem börn keppa í þættinum og vinningarnir renna til góðgerðarmála. Þetta er hæsta upp- hæð sem barn hefur unnið í þessum leik til þessa. „Nína stóð sig ótrúlega vel undir því álagi sem fylgir því að taka þátt í þessum leik,“ sagði Þorsteinn J. Vilhjálmsson, stjórnandi þáttarins, og nefndi m.a. lýsinguna, hitann og fólkið í salnum í því sambandi. „En Nína var mjög örugg, rétt eins og hún hefði setið í þessum stól á hverju kvöldi í tvö ár.“ Nína hætti þegar kom að spurningu um hvaða þjóð hefði hreppt heimsmeistaratitilinn í knatt- spyrnu 1978. Áður hafði hún hringt í Styrmi skólabróður sinn og leitað eftir aðstoð en þau hafa verið saman í liði Brekkuskóla í spurn- ingakeppni sjónvarpsstöðvarinnar Aksjón. „Ég er mjög þakklát fyrir hjálpina frá hon- um, hann bjargaði mér alveg,“ sagði Nína. Vissi að hún var mögnuð Magnús Stefánsson, yfirlæknir barnadeild- ar FSA, tók við gjöfinni og sagði við það tækifæri að hann þekkti til Nínu, „og ég vissi að hún var mögnuð, en ekki svona …“ Kvaðst Magnús ekki hissa á að hún hefði hætt þegar að fótboltaspurningunni kom, „við vitum varla hvaða lið eru til hérna í bænum“, sagði hann. Magnús sagði að með framlagi sínu legði Nína sitt af mörkum til að hjálpa öðrum börnum að komast til betri heilsu. „Ég ætla bara að biðja þig um eitt,“ sagði Nína við Magnús, „notaðu eitthvað af þessum peningum til að kaupa dót fyrir krakkana.“ Nína Arnarsdóttir vann rúmlega hálfa milljón í Barnamessu og færði barnadeild FSA Stóð sig ótrúlega vel undir álagi Morgunblaðið/Kristján Þorsteinn J. Vilhjálmsson, umsjónarmaður spurningaþáttarins t.h., Nína Arnarsdóttir, Magn- ús Stefánsson, yfirlæknir barnadeildar, og Guðrún Gyða Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur. Halldór bik- armeistari HALLDÓR Brynjar Halldórs- son bar sigur úr býtum á Bik- armóti Akureyrar í skák um sl. helgi eftir æsispennandi bar- áttu við Þór Valtýsson. Voru þeir Þór jafnir lengi vel en loks sló Halldór Þór út og vann þar með mótið. Í þriðja sæti varð Smári Ólafsson. AKUREYARBÆR hefur auglýst lausar til umsóknar stöður slökkviliðs- stjóra og aðstoðarslökkviliðsstjóra hjá Slökkviliði Akureyrar og rennur um- sóknarfrestur út á Þorláksmessu. Tómas Búi Böðvarsson, núverandi slökkviliðssstjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann myndi stýra slökkviliðinu þar til nýr maður hefði verið ráðinn en eftir það taka við öðru starfi innan bæjarkerfisins. Þá hefur Magnús V. Arnarsson, sem starfað hefur við eldvarnareft- irlit hjá slökkviliðinu, verið ráðinn tímabundið í starf aðstoðarslökkvil- iðsstjóra. Hann tók við stöðunni af Heimi Gunnarssyni, sem á dögunum fékk í hendur starfslokasamning, þar sem honum var jafnframt tilkynnt að hann þyrfti ekki að mæta meira til vinnu á slökkvistöðinni. Í auglýsingu um áðurnefndar stöð- ur kemur m.a. fram að verið sé að endurskipuleggja starfsemina hjá Slökkviliði Akureyrar og að leitað sé að hæfu fagfólki sem hafi áhuga á að takast á við spennandi og krefjandi verkefni. Einnig að mikil áhersla sé lögð á að umsækjendur hafi hæfni í mannlegum samskiptum, góða skipu- lagshæfileika og sýni frumkvæði. Eins og fram hefur komið var gerð úttekt á rekstri Slökkviliðs Akureyr- ar, þar sem m.a. kom fram að stjórn- un slökkviliðsins væri í ólestri og að nauðsynlegt væri að bæjaryfirvöld gripu þar inn í. Framkvæmdaráð samþykkti í kjölfarið aðgerðaráætlun frá sviðsstjóra tækni- og umhverfis- sviðs, þar sem m.a. á að koma á breytingum í stjórnunarliði slökkvi- liðsins. Breytingar hjá Slökkviliði Akureyrar Yfirmannsstöð- ur auglýstar fyrirtaeki.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.