Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 15
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 15
Á DEGI heilags Nikulásar, 6. des-
ember, þegar börn í kaþólskum
löndum fengu gjafir frá sínum jóla-
sveini, komu íslenskir jólasveinar
færandi hendi inn í lítil þorp og
borgir í Suður-Bæheimi.
Anna Kristine Magnúsdóttir, sem
stóð í annað skipti fyrir fjáröflun
fyrir Tékkland, kom ásamt frænda
sínum, Vitek Plesnik, hönnuði m.m.,
með peninga sem safnast höfðu í
söfnuninni Neyðarhjálp úr norðri.
Alls söfnuðust rúmar 700 þúsund
kónur með tónleikahaldi á Broad-
way 27. október sl., þar sem fram
komu yfir 200 íslenskir listamenn,
og með frjálsum framlögum ein-
staklinga og fyrirtækja. Anna
Kristine segir sig aldrei hafa órað
fyrir hversu mikið gagn þessir pen-
ingar frá íslensku þjóðinni gera fyr-
ir skólastarf í Tékklandi. „Fyrir
þessa peninga verður hægt að
kaupa kennslugögn og lagfæra
skólana sem við gáfum fé að þessu
sinni,“ segir hún.
„Okkur var afar vel tekið af
skólastjórum og bæjarstjórum, en
mest gladdi okkur þó að heimsækja
sjö þúsund manna þorpið Sobeslav.
Barnaskólann þar sækja 600 nem-
endur og það er með ólíkindum að
upplifa og sjá með eigin augum þær
gríðarlegu skemmdir sem orðið
hafa. Hér var okkar beðið með veit-
ingar og gjafir, börnin hafa gert
dagatal fyrir árið 2003 og auk þess
fært okkur fallegt þakkarskjal frá
skólanum. Mig langar mest til að
við Íslendingar ættleiðum þennan
litla skóla svo skólastarf hér megi
áfram dafna.“
Söfnunarfé Neyðarhjálpar úr norðri afhent á flóðasvæðunum í Tékklandi
Stuðn-
ingur við
barna-
skóla
Með skólastjórum í borginni Pisek og aðstoðarborgarstjóranum. Til Pisek
runnu um 300 þúsund krónur til endurbyggingar barnaskóla og fram-
haldsskóla til hjúkrunarnáms. Með Önnu á myndinni eru Helena Satrova,
skólastjóri Hjúkrunarskólans, Jana Kadlecova, skólastjóri barnaskólans,
og Anna Vinsterova, aðstoðarborgarstjóri í Pisek.
Anna Kristine Magnúsdóttir með
skólastjóra grunnskólans í Sobslav,
Miroslav Dusek. Vatn flæddi inn á 2
hæðir skólans með þeim afleið-
ingum að tölvubúnaður og skóla-
stofur gjöreyðilögðust. Um 200 þús-
und kr. frá Íslandi gera mikið gagn.
Sobeslav, Tékklandi.