Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 29 ER ÞESSI BÓK... ...með svarið sem þú hefur leitað að - en aldrei fundið?! Handbók byggð á reynslu, þekkingu, skilningi og umfram allt kærleika. „Svo kom sá dagur að áhættan sem fylgdi því að vera lokaður blómhnappur varð sársaukafyllri en áhættan sem fylgdi því að opna sig og blómstra.“ Er ekki kominn tími til að gera það bara? „Æðisleg bók sem stelpur á öllum aldri þurfa að eiga. Fann strax við fyrsta lestur ýmsar leiðbeiningar sem ég get notfært mér.“ Sóley Elíasdóttir, leikkona. Bókin er jákvæð, hnitmiðuð og vel orðuð, hvorki of stíf né of væmin. Fjallar um flesta þætti sem konur þurfa að hyggja að til að byggja upp jákvætt og heilsteypt líf.“ Stella Sæmundsdóttir, verslunarstjóri Betra Líf. „Frábær bók. Einföld og raunhæf og auðvelt að fylgja leiðbeiningunum í henni.“ Herdís Finnbogadóttir, sálfræðinemi við Háskóla Íslands. „Yfirgripsmikil og góð handbók sem hentar vel þeim sem vilja breyta um lífsstíl. Í bókinni er fjöldi gagnlegra heimilda og tilvísana. Hún nær kjarnanum úr mörgum mjög merkum fræðum. Það er mikil þörf fyrir þessa bók.“ Anna Katrín Ottesen, sjúkraþjálfari. Þessi „litla“ bók getur breytt „stórum“ hlutum til góðs í lífi þínu - og annarra. ALLUR INNBLÁSTUR KEMUR FRÁ ANDANUM... ... og lögmál hans eru jafn raunveruleg og þyngdarlögmálið! Þetta er bók sem mun fylgja þér svo lengi sem þú spyrð spurninga og vilt fá svör. Dan Millman er þekktur í heimalandi sínu fyrir ótrúlegt andlegt þrek sem hann þurfti að nota þegar hann varð fyrir hræðilegu slysi. Þá skrifaði hann metsölubókina „Way of The Peaceful Warrior“ sem farið hefur sigurför um allan heim. „Við erum í mikilli þörf fyrir bækur eins og þessa. Láttu hana ekki fram hjá þér fara.“ John Bradshaw, höfundur bókarinnar Heimkomunnar. „Þessa bók er ekki hægt að leggja frá sér. Hún er full af andlegum gullmolum.“ Gerald G. Jampolsky, höfundur bókarinnar Fyrirgefningin - heimsins fremsti heilari. Þú getur öðlast dýpri merkingu, tilgang og tengingu við sköpunarverkið með því að taka eitt skref: opna bók sem þú munt leita í aftur og aftur, eftir innblæstri og leiðbeiningum á lífsins leið. LÖGMÁL SEM MUNU HJÁLPA ÞÉR YFIR HVERJA HINDRUN SEM LÍFIÐ LEGGUR FYRIR ÞIG Á LEIÐ TIL MEIRI ÞROSKA! Símar 435 6810, 698 3850 og 891 6811. GUÐNÝ Guðmundsdóttir kons- ertmeistari leikur fjögur einleiks- verk fyrir fiðlu á nýjum geisla- diski, sem hún helgar minningu kennara síns, Björns Ólafssonar fiðluleikara og konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá stofnun hljómsveitarinnar 1950 og fram á áttunda áratug nýliðinnar aldar. Björn var lengi eini fiðlu- kennarinn við Tónlistarskólann í Reykjavík og kenndi kynslóðum íslenskra fiðluleikara. Áhrif hans á íslenskt tónlistarlíf eru því gríð- arlega mikil á hvorum tveggja starfsvettvangi hans. Björn var þó ekki síst áhrifamikill sem einleik- ari og þátttakandi í kammertónlist á þeim árum er tónlistarlíf að vest- rænni fyrirmynd var að skjóta rót- um hér. Þrjú verkanna sem Guðný leikur tengjast minningu Björns beint, Prelúdía og tvöföld fúga yfir nafnið B-A-C-H eftir Þórarin Jónsson, sem Björn hvatti hana til að æfa og spila; Sónata nr. 1 í g- moll BWV 1001 eftir Jóhann Seb- astian Bach, en Guðný segir í um- fjöllun í plötupésanum að Björn hafi leitt sig fyrstu sporin í henni, en hún lék svo verkið á einleik- araprófi sínu frá Tónlistarskólan- um. Þriðja verkið tengt minningu Björns er Sónata eftir Hallgrím Helgason, en Guðný segir að flutningur Björns á verkinu á Listahátíð 1974 sé enn greyptur í vit- und hennar. Fjórða verkið á geisladisk- inum er eftir Haf- liða Hallgrímsson, samið fyrir Guðnýju og tileinkað henni: Offerto, Til minn- ingar um Karl Kvaran listmálara. Það er fljótsagt að mikill fengur er að þessum geisla- diski. Verk Þórar- ins, Prelúdía og tvöföld fúga yfir nafnið B-A-C-H, heyrist hér í fyrsta sinn á geisladiski, og það eitt eykur gildi hans. Þó verður varla sagt að verkið sé meistara- verk, – til þess vantar það þann neista sem skapar slík verk. Það er þó vel frambærileg tónsmíð, gamaldags á sinn hátt en þó fag- mannlega gerð. Mest um vert er að skínandi góður leikur Guðnýjar lyftir verkinu og gefur hlustand- anum sýn inn í viðfangsefni þeirra tónskálda sem fyrst hófu að semja hér tónlist eftir að hafa menntað sig á erlendri grund á fyrri hluta síðustu aldar. Hér var hefð í hljóð- færatónlist lítil sem engin, – og hvar áttu íslensk tónskáld að byrja? Að glíma við stíl Bachs var eflaust ekki verri byrjunarreitur en hver annar í þeirra augum. Í fúgunni eru tvígrip og stökk sem augljóslega eru þrælerfið að spila og bera þess merki að þótt kunn- átta hans í kontrapunkti hafi verið góð, hafi þekkingin á fiðlunni og spilatækni á hana ekki verið jafn góð. Það ber þó að fagna því að þetta verk sé nú aðgengilegt í svo góðri hljóðritun og fínni spilamennsku; – skrá- setning íslenskrar tón- listarsögu stendur og fellur með því að þau fáu verk sem til eru frá þessum tíma fái að heyrast. Sónata Hall- gríms Helgasonar er hins vegar samin af mun meiri þekkingu á hljóð- færinu og kunnáttusemi. Þetta verk hefur þegar náð hylli íslenskra fiðlu- leikara og er talsvert oft spilað. Það er einhver angurvær einræna í því; – og lýdíska tónteg- undin í öðrum þætti gefur því þjóðlegt yfirbragð. Guðný leikur þetta verk af sterkri tilfinningu, og mótar fallega andstæðurnar milli miðþáttarins og þeirra ytri og hraðari. Bæði Þórarinn og Hall- grímur eru augljóslega undir áhrifum frá einleiksverkum Max Regers, en þau draga aftur á móti dám af einleiksverkum Bachs. Ein- leikssónata Bachs passar því einkar vel milli þessara tveggja ís- lensku verka. Leikur Guðnýjar í Bach er sérstaklega tær og mús- íkalskur. Fúgan er létt og leikandi og vefur stefjanna skýr milli radda. Sicilianan er íhugul og ljóð- ræn eins og upphafsþátturinn, en lokaþátturinn, hratt prestó, er leikinn af tæknilegu öryggi. Verk Hafliða Hallgrímssonar sýnir okk- ur hver óravegur er á milli ís- lenskra tónskálda á okkar dögum og frumherja eins og Þórarins, sem í músíklegu tilliti stendur nær Bach en Hafliða, þótt hann standi mun nær Hafliða í tíma. Offerto er samið í minningu Karls Kvaran og í fjórum þáttum þess dregur Haf- liði upp myndir eða minningar um Karl. Fyrsti þátturinn, Ritað í sand, er ljóðrænn og leitandi; ann- ar þátturinn, Línur án orða, er ákveðnari og kraftmeiri og línur dregnar í bókstaflegri merkingu í glissando, þar sem fingur fiðluleik- arans rennir sér milli tóna líkt og pensill á lérefti. Þriðji þátturinn, Flug tímans, er einhvers konar perpetuum mobile, – þar sem mús- íkin stígur í stöðugri og jafnri hreyfingu frá fiðlunni, – stundum spennt, stundum afslöppuð, – en alltaf í stefnu að ósýnilegu marki sínu í óræðri framtíð. Lokaþátt- urinn heitir: Allt að því sálmur, og lýsir nafngiftin honum vel. Þetta er heilsteypt og umfram allt fallegt verk hjá Hafliða, örugglega eitt áhrifamesta ein- leiksverk fyrir fiðlu samið af ís- lensku tónskáldi. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um leik Guð- nýjar, hann er fagmannlegur, mús- íkalskur og innblásinn af músík- inni. Hún finnur hverju verki sinn stíl og nálgast þau hvert og eitt með hliðsjón af inntaki þeirra og ólíku tónmáli. Hvað verkin sjálf varðar er fengur að öllum íslensku verk- unum; – verk Hafliða rís þar hæst, – en ekki er síður fengur að því að eiga Sónötu Bachs í svo góðum flutningi framúrskarandi íslensks listamanns. Umbúnaður geisladisksins er fallegur og til fyrirmyndar og textar Guðnýjar í pésanum bæði fróðlegir og upplýs- andi um sýn Guðnýjar á verkin. Bach meðal Íslendinga TÓNLIST Geislaplötur Guðný Guðmundsdóttir leikur Prelúdíu og tvöfalda fúgu yfir nafnið B-A-C-H eftir Þórarin Jónsson, Sónötu nr. 1 í g-moll BWV 1001 eftir Jóhann Sebastian Bach, Sónötu eftir Hallgrím Helgason og Of- ferto: Í minningu Karls Kvaran listmálara, eftir Hafliða Hallgrímsson. Polarfonia Classics 2002. GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR Guðný Guðmundsdóttir Bergþóra Jónsdóttir ALÞJÓÐLEGI mannréttinda- dagurinn er í dag, 10. desem- ber, og efnir Íslandsdeild Amn- esty International til aðventutónleika í Neskirkju við Hagatorg kl. 20. Þar koma fram margir af kunnustu tón- listarmönnum landsins, meðal annars Björn Thoroddsen gít- arleikari, Egill Ólafsson söngv- ari, Guðrún Birgisdóttir flautu- leikari, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Peter Maté píanó- leikari, Signý Sæmundsdóttir söngkona, Þóra Fríða Sæ- mundsdóttir píanóleikari og Þorsteinn Gauti Sigurðsson pí- anóleikari. Dagskráin er ætluð allri fjöl- skyldunni og verða m.a. verk eftir Wolfgang Amadeus Moz- art, Franz Liszt, Atla Heimi Sveinsson, Bjarna Frímann Bjarnason, A.C. Adams, Karól- ínu Eiríksdóttur, Maurice Ra- vel, Sergei Rachmaninoff, Duke Ellington og Chick Corea. Tónleikar Amnesty Inter- national á mannréttindadaginn eru orðnir fastur liður á aðvent- unni og fólk sameinar stuðning við mikilvægt málefni. Miða- verð er 1.500 kr. og rennur ágóðinn til mannréttindastarfs Íslandsdeildar Amnesty Int- ernational. Aðventu- tónleikar á mannrétt- indadegi Þóra Fríða Sæmundsdóttir Egill Ólafsson KAMMERKÓR Reykjavíkur og Kirkjukór Akraness halda tónleika í Vinaminni á Akranesi í kvöld kl. 20. Meðal laga sem flutt verða er nýtt lag eftir Sigurð Bragason, stjórn- anda Kammerkórs Reykjavíkur. Einsöngvarar á tónleikunum eru Sigríður Elliðadóttir, Smári Vífils- son, Ágúst Guðmundsson, Ingvar Kristinsson, Svanlaug Árnadóttir, Sólveig Unnur Ragnarsdóttir, Þor- steinn Þorsteinsson, Arndís Ólöf Víkingsdóttir, Árni Gunnarsson, Sigurlaug Arnardóttir, Erna H. Guðjónsdóttir og Guðrún Lára Pálmadóttir. Stjórnandi Kirkjukórs Akraness er Sveinn Arnar Sæ- mundsson. Kammer- og kirkju- kór syngja í Vinaminni ♦ ♦ ♦ Áfram Ísland er eftir Jón Kristján Sigurðsson. Hér er fjallað um ís- lenska karlalands- liðið í handknatt- leik og árangur þess á síðasta Evrópumóti. Leikir liðsins eru hér krufnir til mergjar, sagt frá því sem gerðist á bak við tjöldin, meðal ann- ars í viðtölum við Ólaf Stefánsson, Sigfús Sigurðsson og Patrek Jóhann- esson. Ljósmyndir Pjetur Sigurðsson. Útgefandi er Bókaútgáfan Hólar. Bókin er 160 bls. Verð: 3.980 kr. Handknattleikur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.