Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 20
ERLENT
20 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STÓRTJÓN varð í eldsvoða í mið-
borg Þrándheims á laugardag og
brunnu meðal annars fjögur fornfræg
timburhús frá 19. öld við Thomas
Angells göngugötuna í miðborginni
og við Nordre-götu til ösku. Mörg
önnur hús skemmdust einnig veru-
lega. Er þetta mesti eldsvoði sem orð-
ið hefur í borginni í 160 ár. Mildi þótti
að enginn skyldi farast en slökkviliðs-
menn voru sumir hætt komnir og
slösuðust a.m.k. tveir þeirra nokkuð.
Sérfræðingar í brunavörnum segja að
orsök hamfaranna hafi verið að reynt
var að slökkva eld í djúpsteikingar-
potti með duftslökkvitæki í stað þess
að reyna að kæfa hann með því að
setja lok yfir pottinn eða nota eld-
varnateppi. Þjóðminjavörður Noregs,
Nils Marstein, sagði í gær að veita
þyrfti sem svarar nær 800 milljónum
ísl. kr. næstu árin til að bæta bruna-
varnir við gömul timburhús í landinu.
Lögregla var á verði við rústirnar í
Þrándheimi í gær til að hindra þjófa í
að hrifsa þar verðmæti en í einu hús-
inu var meðal annars gullsmíðaverk-
stæði. Eigandanum tókst að bjarga
gullinu. Að sögn Aftenposten er tjón-
ið í eldsvoðanum metið á hátt í 250
milljónir norskra króna, um 2.900
milljónir ísl. kr. en ljóst er að menn-
ingarleg verðmæti sem eyðilögðust
verða aldrei bætt eða metin til fjár.
Eldurinn kom upp fyrir hádegi á
laugardag. Um hríð var óttast að tvö
hótel í miðborginni, Britannia og Vik-
ing, yrðu logunum að bráð og voru
gerðar ráðstafanir til að flytja gesti
og starfsfólk á brott. En veður var
kyrrt og tókst mönnum að ná tökum á
eldinum um kvöldið. Flest húsin á
svæðinu eru úr timbri en einnig er
nokkuð um tveggja hæða múrsteins-
hús.
Borgarstjórinn táraðist
Anne Kathrine Slungard borgar-
stjóri tárfelldi þegar hún fylgdist með
slökkvistarfinu og sá göngugötuna í
miðborginni breytast í hamfarasvæði.
Hún faðmaði slökkviliðsstjórann,
Gunnar Aadne Solbakken, en sagði
síðan að svæðið yrði byggt upp á ný
og „það verður ekki stór steinsteypu-
bygging“. Eigendur húsanna hafa
þegar ákveðið að reisa ný timburhús
á lóðum hinna gömlu og arkitektar
hvetja til þess að reynt verði að varð-
veita andrúmsloft og stíl miðborgar-
innar gömlu.
Upptök brunans voru í djúpsteik-
ingarpotti í veitingastaðnum News og
barst lögreglunni tilkynning um hann
stundarfjórðung fyrir ellefu um
morguninn að staðartíma. Tveir veit-
ingastaðir og næturklúbbur voru í
húsinu þar sem hann kom upp. Það
var gert upp fyrir nokkrum árum en
þá var það komið í nokkra niður-
níðslu. Kallað var út aukalið frá
næstu sveitarfélögum og munu alls
70–80 manns hafa tekið þátt í slökkvi-
starfinu. Hart er nú gagnrýnt að of
fáir menn séu á vakt hjá slökkviliðinu
en fækkað hefur verið í liðinu síðustu
árin. Munu 19 manns hafa verið á
vakt á laugardag en fyrir tveim ára-
tugum voru þeir að staðaldri nær 40.
Einn maður var á neyðarvakt við
síma slökkviliðsins er tilkynningin
barst.
Sjálfvirkt slökkvikerfi brást
„Við reyndum að slökkva með
duftslökkvitæki og héldum að það
hefði tekist,“ sagði Geir Haugen,
rekstrarstjóri News. „Allt í einu
blossaði eldurinn upp á ný af miklum
krafti og við áttum ekki annan kost en
koma okkur út og gera slökkviliðinu
viðvart.“ Eldhúsið var orðið fullt af
reyk, að sögn Haugens, og rétt eftir
að fólkið var komið út stóðu eldtung-
urnar út um gluggana. Engir gestir
voru á veitingastaðnum en sjö íbúðir
eru í húsinu auk veitingastaða. Allir
komust út heilu og höldnu.
Kokkurinn sem var á vaktinni,
Viktor Skjærvik, segist hafa skipt um
olíu í pottinum en farið síðan að sinna
öðrum störfum. Skömmu síðar fann
hann brunalykt og kom þá í ljós að
eldur var laus í pottinum sem var ný-
legur og með sjálfvirka stillingu sem
átti að tryggja að ekki gæti kviknað í
honum. Örvæntingarfullar tilraunir
Skjærviks til að slökkva báru ekki ár-
angur.
Sjálfvirkt slökkvikerfi var í húsinu
en Haugen sagði það ekki hafa virkað
af einhverjum ástæðum. Yfirleitt fara
slík tæki í gang þegar hiti fer yfir
ákveðið hámark og úða þau vatni yfir
vistarverur hússins.
Rannsókn brunavarnaeftirlits
stendur enn yfir á upptökum brunans
og er vonast til að hún leiði í ljós hvers
vegna kerfið virkaði ekki. Embætt-
ismaður hjá eftirlitinu, Terje Olav
Austerheim, segir að brunavarnir hjá
veitingastaðnum hafi alls ekki verið
fullnægjandi og dufttæki nægi alls
ekki.
„Þegar notað er duftslökkvitæki á
djúpsteikingarpott myndast þrýsti-
bylgja sem dreifir brennandi olíu um
allt eldhúsið. Sama gerist ef notað er
vatn.“ Segir Austerheim að setja eigi
lokið yfir pottinn eða nota eldvarna-
teppi til að kæfa eldinn. Haugen full-
yrðir hins vegar að slökkviliðsmenn
hafi sagt honum að dufttækin væru
rétta lausnin.
Óbætanlegt tjón í brun-
anum í Þrándheimi
Aftenposten/Geir Otto Johansen
Eldur logar í gömlum timburhúsum í miðborg Þrándheims á laugardag. Sama hverfið brann einnig árið 1842 og voru húsin á myndinni reist eftir hann.
ÍBÚAR í Þrándheimi í Noregi
eru afar slegnir yfir afleiðingum
eldsvoðans, sem varð í miðbæ
borgarinnar á laugardag, en þá
brunnu til grunna nokkur gömul
hús, sem mjög hafa sett svip á
ásjónu miðbæjarins. Bruninn
varð við aðalgöngugötuna í
miðbæ Þrándheims og kviknaði
eldurinn á þeim tíma á laugardag
þegar fjöldi manna var þar á ferð
við jólaundirbúninginn.
„Þetta er auðvitað sorglegt,“
sagði Magnús Halldórsson, ís-
lenskur læknir sem búsettur hef-
ur verið í Þrándheimi undanfarin
átta ár. Magnús starfar á lækna-
stofu í miðbænum, steinsnar frá
þeim stað þar sem bruninn varð.
„Ég kom aðeins í vinnuna í gær
[sunnudag] og þá rauk enn mikið
úr rústunum. Menn voru enn að
vinna að slökkvistarfi. Miðbær-
inn var fullur af reyk og þegar ég
kom hérna upp á skrifstofuna þá
var meira að segja reykjarlykt
þar. Ég geri ráð fyrir að reykur
hafi borist inn í loftræstikerfi
hússins,“ sagði Magnús.
Hann segir mikinn sjónarsvipti
að þeim byggingum sem brunnu.
Tók hann undir að skaðinn væri
ekki síst fólginn í því hve ásýnd
bæjarins væri fátæklegri eftir
þennan bruna. Tjónið væri e.t.v.
sambærilegt við það ef húsin á
Bernhöftstorfunni í miðbæ
Reykjavíkur yrðu eldi að bráð.
„Fólk er frekar slegið yfir
þessu, sér eftir þessu gömlu hús-
um. Það er talað um að 250 millj-
ónir norskra króna hafi tapast,“
sagði Elísabet Helgadóttir, lækn-
ir á kvennadeild sjúkrahússins í
Þrándheimi.
Tjónið væri þó ekki aðeins tal-
ið í peningum. „Sum húsanna,
sem brunnu, voru vernduð, enda
talin fágæt sýnishorn húsagerðar
á fyrri öldum,“ sagði Elísabet en
hún býr ásamt manni sínum og
þremur börnum í útjaðri miðbæj-
arins.
Elísabet sagðist hafa getað séð
eldinn úr stofuglugganum heima.
„Ég var reyndar á ferðinni í bíln-
um mínum er ég sá reykinn frá
brunanum. Þá kveikti maður
auðvitað á útvarpinu til að heyra
hvað væri um að vera. Við fórum
ekkert niður í bæ til að sjá eldinn,
fylgdumst bara með þessu í frétt-
um. Enda var fljótlega lokað á
alla umferð um miðbæinn.“
Elísabet segir að borið hafi á
gagnrýni vegna þess m.a. að eng-
ir brunaveggir voru í lofti þeirra
bygginga sem urðu eldinum að
bráð. „Þannig að um leið og eld-
urinn hafði borist í háaloft fyrstu
byggingarinnar þá breiddist
hann út óheft. Síðan finnst fólki
að e.t.v. hafi of fáir verið á vakt
hjá slökkviliðinu.“
Þá sagði Elísabet að það hefði
vakið eftirtekt, varðandi við-
brögð slökkviliðsins, að slökkvi-
liðsstöðin í Þrándheimi er rétt
hjá þeim stað þar sem bruninn
varð. Það hafi líka verið algert
logn og bjartur dagur og að-
stæður því góðar til slökkvi-
starfs, auk þess sem slökkviliðið
hafi verið kallað til svo til strax.
Tjónið ekki aðeins
talið í peningum
JOHN Snow, nýskipaður fjármála-
ráðherra Bandaríkjanna, er nú for-
stjóri járnbrautarisans CSX, og
fyrrverandi embættismaður í sam-
gönguráðuneytinu. Líkt og forveri
hans, Paul O’Neill – sem var forstjóri
álfyrirtækisins Alcoa áður en hann
varð fjármálaráðherra – á Snow að
baki langan feril í viðskiptaheimin-
um.
Fréttaskýrendur segja hann lunk-
inn í mannlegum samskiptum, en
það hafi einmitt verið skortur á þeim
hæfileika sem hafi ekki síst orðið
O’Neill að falli. Snow fái nú það hlut-
verk að sannfæra kjósendur um
ágæti einkafjárfestinga því að for-
setinn sé að breyta þeirri stefnu
sinni að hvetja til og liðka fyrir fjár-
festingum fyrirtækja.
The Washington Post hefur lýst
Snow sem rétta manninum til að
uppfylla þörf Hvíta hússins „fyrir
einskonar staðgengil forsetans…
sem getur talað máli hans og stefnu
hans jafnt í sjónvarpi, á Wall Street
og við kjósendur“.
Snow fæddist í Toledo í Ohio-ríki
1939, er þriggja barna faðir með
doktorspróf í hagfræði og gráðu í
lögum. Í forsetatíð Geralds Fords
var hann aðstoðarráðherra í sam-
gönguráðuneytinu. Frá 1991 hefur
hann verið forstjóri CSX, sem er
stærsta járnbrautarflutningafyrir-
tækið í austurhluta Bandaríkjanna.
Snow er ennfremur stjórnarmað-
ur í stálfyrirtækinu US Steel, fjar-
skiptarisanum Verizon og lyfjafyrir-
tækinu Johnson og Johnson.
Langur ferill
í viðskiptum
Washington. AFP.
John Snow
Á SAMA tíma og svartsýni fer vax-
andi í Tyrklandi á aðildarhorfur að
Evrópusambandinu sagði tyrkneski
utanríkisráðherrann Yasar Yakis í
gær að Tyrkir gætu fallizt á hálfs árs
frest á því að ESB ákvæði hvenær
teknar skyldu upp aðildarviðræður
við þá.
Með þessum ummælum ráð-
herrans hurfu tyrknesk stjórnvöld
frá fyrri kröfu um að á leiðtogafundi
ESB í Kaupmannahöfn í lok þessarar
viku yrði tekin ákvörðun um dagsetn-
ingu fyrir upphaf aðildarviðræðna við
Tyrki. Yakis viðurkenndi að undir
núverandi kringumstæðum hefðu
forsvarsmenn ESB ástæðu til að taka
slíka ákvörðun ekki strax.
„Það er skiljanlegt að leiðtogar
ESB vilji sjá hvernig tekst til með
framkvæmd umbótanna,“ sagði hann
í viðtali við tyrkneska dagblaðið
Radikal. Vísaði hann með þessum
orðum sínum til lagabreytinga sem
nýverið hafa verið samþykkt á tyrkn-
eska þinginu og miða að því að færa
tyrkneskt þjóðfélag nær því að upp-
fylla skilyrði ESB. „Við teljum að
hálft ár sé nægilegur tími til að sjá
þetta,“ sagði Yakis og benti á að
næsti leiðtogafundur ESB, sem fer
fram í júní 2003, verður haldinn í
Grikklandi, en Grikkir hafa heitið
„erfðaféndum“ sínum Tyrkjum
stuðningi við inngöngu í sambandið.
Fá ekki dagsetningu
Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur sem fer
með formennskuna í ESB fram til
áramóta, sagði í Kaupmannahöfn í
gær að stjórn hans mundi leggja
fram málamiðlunartillögu um aðild-
arviðræður við Tyrki á leiðtogafund-
inum í vikunni. Tyrkir muni þó ekki –
eins og þeir hafa farið farm á – fá
neina fasta dagsetningu um það hve-
nær viðræður skuli hafnar.
Helzta verkefni leiðtogafundarins í
Kaupmannahöfn verður að ganga frá
aðildarsamningum við átta ríki í Mið-
og Austur-Evrópu auk Miðjarðar-
hafseyríkjanna Kýpur og Möltu.
Tyrkir
slaka á
kröfum
Ankara. AFP.
♦ ♦ ♦