Morgunblaðið - 17.12.2002, Qupperneq 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 13
…til a› fullkomna
augnabliki›
kringlan/leifsstö›
sími 588 7230
w w w . l e o n a r d . i s
jólaleikur leonard
ver› kr.6.900
ver› kr. 4.900
ver› kr. 7.300 ver› kr. 5.300 ver› kr. 5.700
IÐNSKÓLINN í Reykjavík út-
skrifar á næstunni fyrstu marg-
miðlunarfræðinga sína. Sextán
manns eru að ljúka tveggja ára
námi og kynntu lokaverkefni sín
á föstudag.
Fólust þau í gerð hreyfimynda
þar sem krafist var framsetn-
ingar á góðri hugmynd sem nem-
endur áttu að skila af sér í fag-
lega unninni tæknilegri útfærslu
sem sýndi hæfni þeirra.
Á námstímanum hafa nemend-
urnir m.a. hannað bæklinga,
veggspjöld, nafnspjöld og fleira
til prentunar. Einnig hafa þeir
hannað vefútlit og smíðað gagna-
grunnstengda vefi og hljóðsett
margmiðlunarefni. Þá hafa þeir
búið til margmiðlunardiska,
tölvuleiki, stuttmyndir og tví- og
þrívíðar hreyfimyndir.
Ari Knörr Jóhannesson þrí-
víddarhönnuður og umsjón-
armaður með lokaverkefnunum,
segir margskonar kröfur gerðar
til nemenda í hreyfimyndagerð-
inni. „Það þarf að skilgreina
verkefnið nákvæmlega, búa til
handrit og teikna upp myndina.
Einnig þarf að gera verklýsingu
og tímaáætlun áður en sest er við
tölvuna,“ segir hann.
„Nemendurinir þurfa að sýna
fram á að þeir geti unnið verk-
efnið eftir þessari áætlun á sem
hagkvæmastan hátt. Þá þarf að
skila kennurum vinnuskrám og
þeim skjölum sem unnið hefur
verið með.
Við lítum á þau til að athuga
t.d. hve auðvelt væri fyrir aðra
að halda áfram að vinna með
sömu skjöl.“
Um er að ræða fullt nám og
rúmlega það. Auglýsingastofur
og vefstofur eru dæmi um starfs-
vettvang þar sem margmiðl-
unarfræðingar geta nýtt menntun
sína, að sögn Ara. Einnig segir
hann það færast í vöxt að stór og
meðalstór fyrirtæki opni sínar
eigin margmiðlunardeildir og
framleiði þar t.d. sjónvarps-
auglýsingar og prentað efni, sem
áður var í höndum auglýs-
ingastofa.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sextán margmiðlunarnemendur útskrifast fyrir jól í margmiðlunarfræði að loknu tveggja ára námi.
Fyrsti margmiðlunarhópur
Iðnskólans að útskrifast
Þrívíð hreyfimynd eftir Saku Petteri Pekonmaki er eitt lokaverkefna.
ALÞINGI hefur samþykkt nýja
heildarlöggjöf um fjármálafyrir-
tæki en hún kemur í stað nokkurra
eldri laga á þessu sviði. Meðal
helstu breytinga frá núgildandi
lögum er að Fjármálaeftirlitið
veitir og afturkallar starfsleyfi
fjármálastofnana í stað viðskipta-
ráðherra nú.
Þá hefur ákvæðum um spari-
sjóði verið breytt, frá því sem nú
er, í því skyni að treysta yfirtöku-
varnir þeirra. Ennfremur eru í
lögunum ákvæði um að sparisjóður
skuli breyta rekstrarformi sínu í
hlutafélag áður en samruni við
aðrar tegundir fjármálafyrirtækja
geti átt sér stað.
Ný heildarlöggjöf um
fjármálafyrirtæki