Morgunblaðið - 17.12.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.12.2002, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 16 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ TILKYNNT var um kaup Baugs ID, fjárfestingar og þróunar, og Eign- arhaldsfélagsins Fengs hf. á 47,9% eignarhlut í AcoTæknivali, ATV, í gær. Félögin munu eiga hlutinn að jöfnu. Félögin kaupa hlut Búnaðar- banka Íslands, en bankinn átti rúm- an 35% hlut í ATV, auk þess sem selt er óútgefið hlutafé að nafnvirði 87,7 milljónir króna. Um helgina ákvað stjórn ATV að ráða Almar Örn Hilmarsson, fram- kvæmdastjóra Banana ehf., sem for- stjóra ATV. Jón Scheving Thorsteinsson fram- kvæmdastjóri Baugs ID segir að kaup Baugs ID á 23,95% eignarhlut í ATV séu venjuleg hlutabréfakaup. „Þetta eru bara venjuleg hlutabréfa- kaup og liður í okkar fjárfestingar- stefnu að leita uppi góð fjárfesting- artækifæri,“ sagði Jón Scheving. Pálmi Haraldsson, framkvæmda- stjóri Fengs hf., vill ekki tjá sig um kaupverð eða fjármögnun þess. Hann segir of snemmt að segja til um hvaða aðgerða reynist nauðsyn- legt að grípa til í rekstri félagsins. „Við höfum mikla trú á þessu verk- efni og fögnum því að hafa fengið að taka þátt í því. Við teljum okkur hafa fengið bréfin á mjög góðu verði,“ segir hann. Pálmi á Eignarhalds- félagið Feng ásamt Jóhannesi Krist- inssyni. Kaup Fengs og Baugs á hlut í ATV er ekki eina verkefnið sem fé- lögin vinna að í sameiningu því Sam- keppnisráð veitti á föstudag sam- þykki fyrir stofnun Græns ehf. um sameiningu á rekstri Ávaxtahússins, sem hefur verið til jafns í eigu Baugs og Fengs, og Banana ehf., sem hafa verið að fullu í eigu Fengs. Félögin eru heildsölufyrirtæki með ávexti og grænmeti. Grænt ehf. verður að jöfnu í eigu Baugs og Fengs. Ný stjórn kosin fljótlega Páll Jensson, stjórnarformaður AcoTæknivals, segir að boðað verði til hluthafafundar í félaginu eins fljótt og auðið er og ný stjórn kosin. Hann segist gera ráð fyrir því að fundurinn verði haldinn annaðhvort milli jóla og nýárs eða strax á nýju ári. Að hans sögn mun hann hætta í stjórn félagsins á þeim fundi. „Stjórn AcoTæknivals fagnar því að hafa fengið jafnöfluga kjölfestufjár- festa eins og Baug og Feng að félag- inu,“ segir Páll. Að sögn Páls er hætt við að skipta fyrirtækinu upp í tvennt eins og til stóð. Mikið verkefni framundan Almar Örn Hilmarsson lögfræð- ingur hefur þegar tekið við störfum hjá ATV og látið af framkvæmda- stjórn Banana ehf. Almar Örn segir ljóst að framund- an sé mikið verkefni og sameiginlegt átak starfsmanna og stjórnenda þurfi til að koma fyrirtækinu á rétt- an kjöl. Hann telur að kaup Baugs ID og Fengs styrki stoðir ATV, enda sé þar um að ræða traust og vel rek- in fyrirtæki. Hann segir ekki á döf- inni að selja verslunarsvið eða aðrar einingar út úr ATV. „Við ætlum að reyna að reka fyrirtækið eins og það er í dag, með það að markmiði að snúa tapi í hagnað. Staða fyrirtæk- isins er mjög slæm eins og flestir vita og ljóst að það þarf ýmsu að breyta og bæta. Það hefur hins veg- ar verið unnið gott starf inni í fyr- irtækinu á síðastliðnu ári og þeir sem þar hafa verið við stjórnvölinn hafa komið fyrirtækinu áleiðis á réttan spöl. Það er síðan mitt verk- efni og annarra starfsmanna félags- ins að halda þessu starfi áfram og ég tel að með tengingu við nýja eigend- ur verði sú vinna auðveldari en ella.“ Almar segist ekki geta sagt til um það á þessari stundu hvort grípa þurfi til uppsagna. Það skýrist þegar fram líði stundir. Í hálffimm fréttum Búnaðarbank- ans í gær kemur fram að rekstur ATV hafi verið erfiður undanfarin misseri en fljótlega eftir sameiningu Aco og Tæknivals, um mitt síðasta ár, varð ljóst að samdráttur í fjár- festingum í upplýsingatækni kæmi hart niður á rekstri félagsins. Það sem af er þessu ári hefur velta ATV numið 2,6 milljörðum króna sem er um 30% samdráttur tekna milli ára og hlutdeild fyrirtækisins á tölvu- markaðnum hefur lækkað ef miðað er við tekjuþróun keppinautanna. „Helsta ástæða þessa mikla tekju- samdráttar eru lægri fjárfestingar fyrirtækja í upplýsingatækni auk þess sem almennur samdráttur neyslu í samfélaginu hefur komið niður á verslunarrekstri félagsins. Árangur hefur náðst í að lækka birgðir og kröfur félagsins en enn er nokkuð í land að reksturinn verði arðsamur. Það sem af er ári er af- koma fyrir afskriftir og fjármagns- liði neikvæð um tæpar 140 m.kr. og tap eftir skatta nemur 114 m.kr. Eigið fé er nú neikvætt um 140 m.kr. en meðal eigna er reiknuð skattinn- eign að upphæð 280 m.kr.,“ að því er segir í hálffimm fréttum Búnaðar- bankans. Baugur ID og Fengur kaupa tæplega 48% hlutafjár í AcoTæknivali Hætt við að skipta fyrir- tækinu upp Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Baugur og Fengur hafa keypt 47,9% hlut í ATV. KORTAÞJÓNUSTAN ehf. hefur sent kvörtun til Samkeppnisstofnun- ar vegna VISA Ísland og Europay Ís- land. Í fréttatilkynningu frá fyrirtæk- inu kemur fram að VISA og Europay Ísland hafi reynt að koma í veg fyrir að Kortaþjónustan fái aðgang að svo- kölluðu posakerfi sem starfrækt er á vegum íslenskra fjármálafyrirtækja. Segir í tilkynningunni að það sé mat Kortaþjónustunnar að framferði fyr- irtækjanna sé liður í viðleitni þeirra til að hamla gegn samkeppni á markaði fyrir greiðslukortaþjónustu hér á landi. Kortaþjónustan telur einnig að VISA og Europay hafi haft ólöglegt samráð um aðferðir til að hindra að- gang Kortaþjónustunnar að posa- kerfinu. Óviðunandi samningsdrög Posakerfið er nú starfrækt af fyr- irtækinu Fjölgreiðslumiðlun hf. sem er í eigu banka, sparisjóða og korta- fyrirtækja. Fyrirtækið var stofnað í júní 2000. Í tilkynningu frá fyrirtæk- inu í tilefni af stofnun þess á sínum tíma kom fram að tilgangur þess væri að opna nýjum aðilum aðgang að kerfinu, svo sem nýjum banka eða sparisjóði, nýju kreditkortafyrirtæki eða útibúi slíkra erlendra fyrirtækja hér á landi. Fram kemur í fréttatilkynningu Kortaþjónustunnar að Fjölgreiðslu- miðlun hafi tilkynnt fyrirtækinu að það geti ekki fengið aðgang að kerfinu nema með samningum við VISA Ís- land og Europay Ísland. „Að mati Kortaþjónustunnar er þetta í hæsta máta óeðlilegt enda er um að ræða fyrirtæki sem eru helstu samkeppn- isaðilar hennar,“ segir í fréttatilkynn- ingunni. „Nokkur fyrirtæki hafa nú þegar sambærilegan aðgang og þann sem Kortaþjónustan hefur óskað eft- ir, án þess að hafa gert um það sér- staka samninga við kortafyrirtækin. Má þar t.d. nefna olíufélögin og fyrir- tæki sem þjónusta sjóðsvélar.“ Grunur um ólöglegt samráð Þá segir í fréttatilkynningunni að starfsmaður Europay Ísland hefur sent Kortaþjónustunni drög að samn- ingi um aðild fyrirtækisins að posa- kerfi Fjölgreiðslumiðlunar. Að mati Kortaþjónustunnar séu samnings- drögin algerlega óviðunandi þar sem þau feli í sér hindranir sem virðist hafa það eitt að markmiði að tefja fyr- ir aðild Kortaþjónustunnar að kerf- inu. „Að mati Kortaþjónustunnar jafngilda þessar hindranir því að fyr- irtækinu hafi verið synjað um aðild að posakerfinu og telur Kortaþjónustan að þar með hafi verið brotið gegn ákvæðum 10., 11., og 12. gr. sam- keppnislaga.“ Þá segir í tilkynningunni að Korta- þjónustan hafi fengið umrædd samn- ingsdrög send sem viðhengi með tölvupósti frá starfsmanni Europay Íslands. Í ljós hafi komið að skjalið hafi upphaflega verið samið af starfs- manni VISA Ísland. „Leikur því rök- studdur grunur á að fyrirtækin hafi haft samráð um gerð samningsins, sem telst ólöglegt samráð skv. 10. gr. samkeppnislaga. Hins vegar hefur VISA Ísland sent Kortaþjónustunni bréf þar sem samningi um aðild Kortaþjónustunnar að posakerfinu er alfarið hafnað, sem að mati Korta- þjónustunnar er einkennilegt í ljósi uppruna áðurnefnds viðhengis. Kortaþjónustan kvartar til Samkeppnisstofnunar vegna VISA og Europay Sakar fyrir- tækin um ólög- legt samráð FASTEIGNAFÉLAGIÐ Stoðir hf. hefur gert hluthöfum í Baugi Group hf. tilboð um kaup á bréfum þeirra í því augnamiði að eignast 7% hlutafjár í félaginu. Tilboðið, sem er í gildi til klukkan 16:00 á fimmtudag, hljóðar upp á gengið 11, en fyrir helgi var gengi Baugs 10,5. Baugur er stærsti hluthafi Stoða með 44,25%. Baugur hefur til við- bótar því samið við Kaupþing um kauprétt á 21,4%. Aðrir stórir hluthafar í Stoðum eru Ingibjörg Pálmadóttir með um 15%, Íslenska fasteignafélagið með 8% og Spari- sjóður Reykjavíkur og nágrennis með 3%. Í tilkynningu frá Stoðum segir að félagið sérhæfi sig í fasteigna- rekstri en hafi auk þess fjárfest í öðrum félögum sem tengist fast- eignarekstri með einum eða öðrum hætti. Stjórnin telji að tækifæri sé til að styrkja eignastöðu Stoða enn frekar og tilboðið sé liður í þeirri stefnu. 30% leigutekna frá Baugi Jónas Þorvaldsson fram- kvæmdastjóri Stoða segir að Baugur sé orðinn mjög stór hluti af útleigutekjum Stoða, en um 30% teknanna komi frá Baugi. Þess vegna sé hluti af ástæðunni fyrir fjárfestingunni að styrkja tengslin milli félaganna. Spurður að því hvaða sjónarmið búi þar að baki segir Jónas að Baugur, líkt og Stoðir, sé hlutafélag og þar geti því orðið breytingar í framtíðinni. Þess vegna sé gott fyrir Stoðir að vera hluti af eigendahópi Baugs. Þessu til viðbótar segir Jónas að Stoðir séu þeirrar skoðunar að Baugur sé vanmetinn og því sé um góða fjárfestingu að ræða. Stoðir gera til- boð í 7% í Baugi Baugur á 44,25% í Stoðum og kauprétt á 21,4% til viðbótar 8 -  #( 0  - (# 46B C # * D %2   8 9 46B 3* 9 ,?  3* D 9 E1 25  ,*    %2   F #  9 G 9F +#H 9 E1 25  25 / !/   %!/ / %/  <  )  &  ' ' (  UNDIRRITUN kaupsamnings vegna sölu á 45,8% hlut ríkisins í Búnaðarbankanum hefur verið frestað til 21. janúar næstkomandi, en áður hafði verið tilkynnt um að undirritunin færi fram í síðasta lagi 13. desember. Í tilkynningu frá framkvæmda- nefnd um einkavæðingu segir að vinnu við áreiðanleikakönnun á Bún- aðarbanka sé því sem næst lokið. Gerð kaupsamnings hafi tekið lengri tíma en upphaflega hafi verið gert ráð fyrir og þess vegna hafi undir- skrift kaupsamnings og tilkynningu um þátttöku einnar eða fleiri er- lendrar fjármálastofnunar í kaupun- um verið frestað. Ólafur Davíðsson formaður fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu segir að engin sérstök ástæða sé fyr- ir þessari frestun, en tímaramminn hafi reynst of knappur. Verkefnið sé viðamikið og margir komi að því, bæði innlendir og erlendir aðilar, og því taki ákvarðanir langan tíma. Menn hafi því ákveðið að gefa sér þennan frest til að ljúka málinu að fullu. Samkvæmt upplýsingum úr fjár- málaráðuneytinu mun þessi frestun ekki hafa áhrif á áætlanir um tekjur ríkissjóðs af sölu eigna. Sala á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum Undirritun kaup- samnings frestað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.