Morgunblaðið - 17.12.2002, Síða 18
ERLENT
18 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÍR menn, grunaðir um að
hafa lagt á ráðin um sprengju-
tilræði gegn bandarískum
stjórnarerindrekum, komu fyrir
rétt í Pakistan í gær. Einn
mannanna viðurkenndi að sér
hefði verið ætlað að aka bíl,
hlöðnum sprengiefni, á bíl erind-
rekanna. Voru mennirnir úr-
skurðaðir í hálfs mánaðar
gæsluvarðhald á meðan lögregla
grefst fyrir um hver sé eigandi
vöruskemmu þar sem fannst
efni til sprengjugerðar.
Stríðsherra
deyr
DÆMDUR stríðsherra frá
Tétsníu, Salman Radujev, lést
um helgina í fangelsi í Rúss-
landi, þar sem
hann afplán-
aði lífstíðar-
dóm. Radujev
stjórnaði árás
á sjúkrahús í
Suður-Rúss-
landi 1996 þar
sem 78 manns
féllu. Rúss-
nesk stjórn-
völd sögðu Radujev hafa látist af
eðlilegum orsökum og hvöttu
blaðamenn til að forðast getgát-
ur um annað.
Arafat ekki
til Betlehem
ÍSRAELSKA þingið hefur
ákveðið að Yasser Arafat Pal-
estínuleiðtogi fái ekki að fara til
Betlehem um jólin, að því er haft
er eftir ísraelskum heimildar-
manni. Stjórnin ákvað þetta eft-
ir að hafa ráðfært sig við örygg-
ismálafulltrúa, sagði heimild-
armaðurinn.
Tvisvar í
lukkupottinn
HJÓN í Kaliforníu duttu tvisvar
í lukkupottinn sama daginn ný-
lega og unnu andvirði alls 1,5
milljarða króna í tveimur banda-
rískum lottóum, að sögn dag-
blaðsins San Francisco Chron-
icle. Líkurnar á að þetta geti
gerst eru einn á móti 23 billj-
ónum, að sögn tölfræðiprófess-
orsins Mike Orkin við ríkishá-
skóla Kaliforníu. Hjónin segjast
hafa keypt miða í lottóunum í 20
ár fyrir alls 124.000 dollara, and-
virði 10 milljóna króna.
Friedman nýr
ráðgjafi
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur útnefnt Stephen
Friedman sem nýjan efnahags-
ráðgjafa sinn
en hann kem-
ur í stað
Lawrence
Lindseys, sem
sagði af sér að
beiðni Bush.
Friedman er
64 ára millj-
ónamæring-
ur. Hann
starfaði um
þrjátíu ára skeið hjá Goldman
Sachs-fjárfestingabankanum og
er því talið að Bush vonist til að
skipan Friedmans styrki stöðu
Hvíta hússins meðal fjármála-
sérfræðinga á Wall Street.
STUTT
Lögðu á
ráðin um
tilræði
Stephen
Friedman
Salman Radujev
FLAK norska flutningaskipsins
Tricolor marar í hálfu kafi á
Ermarsundi í gær. Því hvolfdi á
laugardagsmorgun eftir árekstur
við flutningaskipið Kariba frá
Bahama-eyjum.
Enginn slasaðist við árekst-
urinn og Kariba, sem skemmdist
mikið, komst í höfn í Belgíu. Um
borð í Tricolor voru um 3.000
dýrir bílar af BMW-, Volvo- og
Saab-gerð og er talið nær úti-
lokað að bjarga þeim. Sjávardýpi
er um 30 metrar þar sem flakið
er nú.
Flak á
Ermar-
sundi
Reuters
FUNDUR sjávarútvegsráðherra
Evrópusambandsríkjanna hófst í
Brussel í gær en á honum munu
verða ræddar tillögur um mikinn
kvótaniðurskurð í því skyni að
bjarga þorskstofninum. Mun niður-
skurðurinn óhjákvæmilega valda
því, að þúsundir manna missi vinn-
una.
Þorskstofninn í Norðursjó er nú
aðeins 20% af því, sem hann ætti að
vera af allt væri með felldu, og fiski-
fræðingar óttast, að minnki hann
enn, muni hann ekki ná sér aftur á
strik. Sjávarútvegsráðherrarnir
koma hins vegar með það í huga til
fundarins að tryggja sínu fólki sem
besta niðurstöðu. Þeir og aðrir vita
þó vel hvernig fór við Nýfundnaland
þar sem einn stærsti þorskstofn í
heimi hrundi gjörsamlega eftir of-
veiði í áratugi.
Fundurinn átti að hefjast í gær-
morgun og standa fram á fimmtudag
en Mariann Fischer Boel, sjávarút-
vegsráðherra Danmerkur, sagði, að
fundurinn stæði hugsanlega fram í
næstu viku.
„Rányrkjan á síðustu árum og ára-
tugum hefur verið að kippa fótunum
undan fiskiðnaðinum. Allt of mörg
skip eru að eltast við æ færri fiska,“
sagði Franz Fischler, sem fer sjáv-
arútvegsmál í framkvæmdastjórn
ESB, í opnu bréfi til sjómanna í síð-
ustu viku.
Niðurskurður óhjákvæmilegur
Fischler og ráðherrarnir stefna
ekki að því að banna þorskveiðar
með öllu en öllum er ljóst, að ekki
verður komist hjá miklum niður-
skurði. Til málamiðlunar hefur
Fischler lagt til, að hann verði 80%
en sjávarútvegsráðherrunum óar við
því. Áætlað er, að í Skotlandi einu
muni það valda atvinnuleysi 20.000
manna.
Margt bendir til, að lítill árangur
verði af fundinum nú og Danir, sem
eru nú í forystu innan ESB, vilja, að
ekki verði gengið frá áætlun um upp-
byggingu þorskstofnsins fyrr en í
marslok á næsta ári. Það kæmi því í
hlut Grikkja að stýra því en þá munu
þeir verða í forsæti í sambandinu.
Nýsmíðastyrkir afnumdir
Eitt erfiðasta málið hvað varðar
umbætur á sameiginlegu fiskveiði-
stefnunni er áætlun um að stöðva al-
veg frá næstu áramótum styrkveit-
ingar vegna nýsmíði fiskiskipa. Eru
Frakkar og Spánverjar mjög andvíg-
ir því og þeir síðarnefndu vilja fresta
því til loka 2006. Danir og fram-
kvæmdastjórnin segjast geta fallist á
að bíða með málið til loka 2004.
Í ESB-ríkjunum eru nú um
220.000 sjómenn og jafnmargir vinna
í fiskiðnaðinum og greinum tengdum
honum. Á einum áratug hefur störf-
unum fækkað um 80.000 vegna fisk-
leysis og minni kvóta.
Framtíð þorskstofnsins
í Norðursjó sögð í húfi
Mikilvægur fundur sjávarútvegs-
ráðherra Evrópusambandsins
AP
Veiðar og vinnsla hafa lengi verið undirstaða atvinnulífsins í Peterhead í
Skotlandi. Á því getur orðið róttæk breyting verði tillögur framkvæmda-
stjórnar ESB um 80% niðurskurð þorskveiða samþykktar.
Brussel. AP.
BASHAR al-Assad, forseti Sýrlands,
kvaðst vera bjartsýnn á að ekki kæmi
til stríðs í Írak eftir að hafa rætt við
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, í London í gær. Þriggja daga
heimsókn Assads til Bretlands hófst á
sunnudag og er þetta í fyrsta sinn
sem sýrlenskur forseti heimsækir
landið.
„Ég er bjartsýnn núna,“ sagði Ass-
ad á blaðamannafundi með Blair þeg-
ar hann var spurður hvort hægt yrði
að komast hjá stríði í Írak. „Við höf-
um hingað til séð gott samstarf milli
vopnaeftirlitsmanna Sameinuðu þjóð-
anna og stjórnarinnar í Írak. Við von-
um að þetta samstarf haldi áfram þar
til deilan verður leyst með friðsam-
legum hætti.“
Sýrlendingar eru andvígir hernaði
gegn stjórn Íraks og hafa deilt við
bresk stjórnvöld um ýmis önnur mál,
svo sem viðskipti Sýrlendinga við
Íraka. Í sögulegri heimsókn til Sýr-
lands í október í fyrra greindi Blair og
Assad mjög á um skilgreiningu
hryðjuverka og stríðið í Afganistan.
Blair sagði á blaðamannafundinum
í gær að þá Assad greindi á um Írak
en áréttaði að rétt væri að halda
áfram viðræðum við sýrlensk stjórn-
völd. Assad viðurkenndi að ágreining-
ur væri milli ríkjanna en lagði áherslu
á að þeir Blair væru „sammála í flest-
um mikilvægustu málunum“.
Frá því að Assad tók við völdunum í
júlí 2000 hefur hann aukið tengsl Sýr-
lands við Írak, undirritað viðskipta-
samninga við landið og heimilað olíu-
innflutning frá Írak í trássi við
viðskiptabann SÞ.
Deilt um heimsóknina
Sú ákvörðun Blairs að bjóða sýr-
lenska forsetanum í heimsókn var um-
deild. Breskir gyðingar mótmæltu
heimsókninni og sökuðu sýrlensk
stjórnvöld um að leyfa palestínskum
hryðjuverkamönnum að hafa bæki-
stöðvar í Damaskus.
Financial Times birti í gær grein eft-
ir Blair þar sem hann varði viðræð-
urnar við Assad og lýsti Sýrlandi sem
„mikilvægu og áhrifamiklu ríki“ í Mið-
Austurlöndum og grannríki Íraks. Sú
ákvörðun Sýrlendinga að greiða at-
kvæði með síðustu ályktuninni um af-
vopnun Íraka í öryggisráði SÞ sýndi að
viðleitni Breta til að hafa áhrif á stefnu
sýrlenskra stjórnvalda hefði borið ár-
angur.
„Okkur greinir til að mynda á um
hryðjuverkahópana sem starfa enn í
Sýrlandi,“ skrifaði Blair og skírskot-
aði til palestínskra hreyfinga, svo sem
Hamas og Íslamska jíhad, sem eru
með skrifstofur í Damaskus höfuð-
stað Sýrlands.
Boðið til viðræðna
Blair sagði á breska þinginu eftir
fundinn með Assad að hann hygðist
bjóða leiðtogum Palestínumanna til
London á næsta ári til að ræða um-
bætur á sjálfstjórnarsvæðum þeirra
og hvernig ríki heims gætu aðstoðað
þá. Evrópusambandinu, Rússlandi,
SÞ, Bandaríkjunum og ríkjum í Mið-
Austurlöndum yrði einnig boðið að
senda fulltrúa á fundinn.
Assad bjartsýnn
á að friður haldist
London. AFP.