Morgunblaðið - 17.12.2002, Síða 60

Morgunblaðið - 17.12.2002, Síða 60
SKAMMDEGIÐ nær senn hámarki og myrkrið ríkir stóran hluta sólarhringsins. Þegar enginn er snjórinn eins og í Reykjavík um þessar mund- ir er myrkrið enn meira en ella, en við Borgar- leikhúsið varpar lýsingin skemmtilegu ljósi, sannkallaðri jólabirtu, á skammdegið. Morgunblaðið/RAX Birta í skammdeginu MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. og möguleikar íbúanna til að hafa áhrif á gang mála í sveitarfélaginu hafi minnkað. Hins vegar telja þeir að þjónusta grunnskólans hafi batn- að. Aðeins liðlega 40% íbúanna á Stokkseyri og Eyrarbakka styðja sameiningu sveitarfélaganna sam- kvæmt könnun sem gerð var fyrir rúmu ári. Svipuð niðurstaða kom fram í könnun sem gerð var í Fjarðar- byggð. Mikill stuðningur er enn við sameiningu á Neskaupstað, en tæp- lega helmingur íbúa á Reyðarfirði styður sameiningu og innan við þriðjungur íbúa á Eskifirði. 75% íbúa á Bíldudal studdu sam- ÓÁNÆGJU gætir meðal íbúa lítilla þéttbýlisstaða með árangur af sam- einingu sveitarfélaga. Þetta kemur fram í rannsókn sem dr. Grétar Þór Einarsson og Hjalti Jóhannesson hjá Rannsóknastofnun Háskólans á Ak- ureyri gerðu á áhrifum og afleiðing- um sameiningar sjö sveitarfélaga víða um land. Samkvæmt símakönn- un sem gerð var á síðasta ári myndu íbúar þessara minni sveitarfélaga fella tillögu um sameiningu ef greidd væru atkvæði um hana á ný. Eyrarbakki og Stokkseyri eru dæmi um staði þar sem óánægju gætir meðal íbúa. Þeir telja að fé- lagsþjónustan hafi almennt versnað einingu sveitarfélagsins við ná- grannasveitarfélög í kosningum sem fram fóru árið 1993. Samkvæmt könnun sem Grétar og Hjalti gerðu á síðasta ári styðja aðeins 5% íbúa á Bíldudal sameiningu við Vestur- byggð. Íbúar stóru þéttbýlisstaðanna og íbúar í sveitunum styðja hins vegar almennt sameininguna. Góður stuðningur er enn við sameiningu í Snæfellsbæ, en þó hefur dregið úr stuðningnum í Ólafsvík. Þess má geta að skrifstofa sveitarfélagsins er á Hellisandi. Rannsókn á sameiningu sveitarfélaga víða um land Íbúar minni staða á móti sameiningu  Óánægja/12 Sundferð hækkar um 10% GJALDSKRÁ sundstaða Reykja- víkurborgar hækkaði 10. desember síðastliðinn þannig að eitt skipti í sund fyrir fullorðna kostar nú 220 krónur en kostaði áður 200 krónur. Áfram verður sama verð fyrir börn, krónur 100. Þá hækkaði gjald fyrir gufubað um 30 kr. í 330 kr. og stakur tími í ljósalampa um 100 krónur, í 650 kr. 10 miða ljósakort hækkaði um 1.000 kr. Sölu 30 miða korta í sund fyrir fullorðna var einnig hætt, sem og sölu 10 miða í gufubað. Áfram verða þó til 10 miða kort fyrir börn og full- orðna og er verð þeirra óbreytt. Anna Kristinsdóttir, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs, segir að gjaldskrá sundstaðanna hafi ekki hækkað frá árinu 1998. Í starfsáætl- un fyrir árið 2002 hafi verið gert ráð fyrir þessari hækkun, hún hafi átt að taka gildi síðasta vor en henni hafi verið frestað þar til nú vegna rauðu strikanna sem sett voru síðasta vor til að vinna gegn verðbólgunni. Anna segir að nauðsynlegt hafi verið að hækka gjaldskrána vegna þróunar almenns verðlags, hækkun- ar launavísitölu og annars kostnað- ar. Engar aðrar hækkanir séu í bí- gerð hjá ÍTR. 3&  7 *  , 1 2*    #   X    83 X  E256 X 25 E *  C C   *   &  &    -**  G ? BLIKUR eru á lofti um framtíð paprikuræktar hér á landi, þar sem bændur telja reynsluna ekki nógu góða eftir að tollar voru felldir niður í febrúar síðastliðnum og hætt var að leggja árstíðabundna verndartolla á ýmsa framleiðslu. Helgi Jóhannes- son, stjórnarformaður Sambands garðyrkjubænda, segir að eins og mál standi nú virðist tekjur af tómöt- um og gúrkum verða svipaðar og þær voru í fyrra. Hvað snertir papr- iku sé staðan hins vegar mun lakari og teikn á lofti um að ræktun á henni gæti jafnvel alveg lagst af. Um 15 bændur framleiða papriku hér á landi. „Það eru stórir framleið- endur á leiðinni út, annaðhvort í úreldingu eða sölu og þá hugsanlega í aðra ræktun. Þannig að það er orðið mjög tvísýnt um paprikuna,“ segir Helgi. Hann bendir á að hætti bænd- ur paprikuframleiðslu snúi þeir sér að annarri ræktun og það geti komið markaðinum úr jafnvægi og valdið offramleiðslu. „Þetta er afleiðing af tollabreytingunum, paprikan hrein- lega virðist ekki ætla að standast samkeppni við innflutninginn. Það er að einhverju leyti í höndunum á inn- flutningsaðilunum og verslunum hvernig varan er sett fram. Í sumar var flutt inn annars og þriðja flokks paprika, lítil og mjög ódýr og nið- urgreidd af Evrópusambandinu og pökkuð í handhægar umbúðir. Menn virðast ekki gera sömu kröfur til papriku og til gúrku og tómata, um að það sé afdráttarlaus gæðamunur á íslensku og innfluttu paprikunni,“ segir Helgi. Beingreiðslur til garðyrkjubænda sem komu í staðinn fyrir tollana hafi ekki dugað til í paprikunni þar sem neytendur virðist ekki vera tilbúnir til að borga hærra verð fyrir íslenska papriku sem þó sé ræktuð án eitur- efna og ferskari en sú erlenda. Tollabreytingar og beingreiðslur til garðyrkjubænda hafa ekki dugað til Paprikuræktun hér gæti lagst af GEORG Ottós- son, garðyrkju- bóndi á Jörfa á Flúðum, segist vita um tvo paprikufram- leiðendur sem hafa ákveðið að hætta framleiðsl- unni. „Annar er að ljúka við að selja sína stöð og hún fer í aðra fram- leiðslu en hinn hættir. Ég er sjálfur að velta vöngum yfir því akkúrat þessa dagana hvað ég eigi að gera því maður þarf að fara að kaupa fræ því við sáum í kringum jólin,“ segir Georg en hann ræktar papr- iku á um 2.500 fermetrum og er með stærri paprikuframleiðendum í landinu. Paprikan virðist koma hvað verst út úr aðlögunarsamningi um starfs- skilyrði framleiðenda garðyrkju- afurða. Menn íhuga al- varlega að hætta Hockney hrífst af íslenskri birtu DAVID Hockney, einn þekktasti myndlistarmaður Breta, sótti Ísland tvisvar heim á árinu. Í samtali við breska blaðið The Times segist hann hafa heillast af birtunni hér á landi. „Í júní sest sólin varla og maður hefur útsýn yfir landslagið allan sólarhringinn. Ég heillaðist gjör- samlega af þessu,“ segir Hockney.  Ísland í verkum/28 Esja verður Nordica NAFNI fyrrum Hótel Esju verður breytt í Nordica Hotel eftir gagn- gerar breytingar og stækkun sem nú er unnið að. Ráðgert er að hótelið verði opnað í mars á næsta ári. Að sögn Kára Kárasonar, fram- kvæmdastjóra Flugleiðahótelanna, má segja að verið sé að breyta hót- elinu úr „ferðamannahóteli í við- skipta- og ráðstefnuhótel“ en áætlað er að um 100 þúsund gestir gisti þar á hverju ári. Þar af yrðu erlendir gestir um 90 þúsund.  Nafninu breytt/22 SAMKEPPNI er enn mikil í bóksölu viku fyrir jól, samkvæmt nýjustu verðkönnun Morgunblaðsins. Um er að ræða 50 jólabækur og var verð oftast lægst í Bónusi, eða 32 sinnum. Bókabúð Lárusar Blöndal var næst- oftast með lægsta verð, eða sex sinn- um. Hæsta verð var oftast í Máli og menningu, 33 sinnum, og næstoftast í Eymundsson, Hagkaupum og Pennanum, 17 sinnum. Verðmunur hefur aukist milli 21 bókar og minnk- að milli 22 titla frá síðustu könnun. Verðmunur á Eyðimerkurdögun var til að mynda 1.100 krónur 4. desem- ber og 1.481 króna í gær. Hefur lægsta verð á Eyðimerkurdögun hækkað úr 2.480 krónum í 2.499 krónur milli kannana og hæsta verð úr 3.580 krónum í 3.980 krónur. Bókaverð á stöðugri hreyfingu  Enn mikil samkeppni/26 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.