Morgunblaðið - 03.01.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.01.2003, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ FISKAFLI íslenskra skipa á árinu 2002 er áætlaður 2.126 þúsund tonn. Það er næstmesti afli sem íslensk skip hafa veitt á einu ári. Aðeins á metárinu 1997 var aflinn meiri en þá var aflinn 2.199 þúsund lestir. Mikill afli uppsjávartegunda, einkum loðnu og kolmunna, skýrir mikinn afla á árinu 2002. Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu var þorskaflinn á síðasta ári 28 þúsund tonnum minni en 2001 eða alls 206 þúsund tonn. Afli flestra annarra botnfisktegunda jókst hins vegar umtalsvert frá fyrra ári. Þannig jókst ýsuaflinn um 10 þús- und tonn, varð alls 50 þúsund tonn, ufsaaflinn varð 43 þúsund tonn sem er 11 þúsund tonna aukning og karfaaflinn jókst um 17 þúsund tonn, varð alls 67 þúsund tonn á síð- asta ári. Afli uppsjávartegunda var mikill á árinu 2002 eða 1.589 þúsund tonn sem er 122 þúsund tonnum meiri afli en árið áður. Loðnuaflinn fór yfir eina milljón tonna en var 924 þúsund tonn árið 2001. Rækjuaflinn 2002 var 34 þúsund tonn og hefur minnkað umtalsvert frá miðjum tí- unda áratug síðustu aldar en þá náði rækjuaflinn hámarki 1997, þegar aflinn var 82 þúsund tonn. Hörpu- diskafli dróst saman um 2 þúsund tonn milli ára, varð alls 5 þúsund tonn. Humarafli jókst um 1 þúsund tonn. Skel- og krabbaafli jókst í heild um 7 þúsund tonn á milli ára, varð alls um 54 þúsund tonn í fyrra. Rækjukvóti á Flæmingja- grunni náðist ekki Aflamark í Norður-Íshafsþorski, úthafskarfa, norsk-íslenskri síld, kolmunna og rækju af Flæmingja- grunni miðast við almanaksár. Þeg- ar aflaheimildir tegundanna eru bornar saman við aflann kemur í ljós að íslenskum skipum tókst í flestum tilvikum að veiða upp leyfð- an heildarafla á árinu 2002. Kol- munnaaflinn varð 286 þúsund tonn eða 4 þúsund tonn umfram aflamark en það skýrist af afla sem veiddist áður en kolmunni var settur undir aflamark í fyrsta sinn 17. mars 2002. Rækjuaflamark á Flæmingjagrunni veiddist ekki upp á árinu 2002 frek- ar en árið áður, kvótinn er 9 þúsund tonn en aflinn varð alls 5 þúsund tonn.                      ! ! ! ! ! !  "#   $  %&&# '(#   ')"  ""  Annað mesta aflaárið til þessa Heildarafli íslenskra fiskiskipa um 2.126 þúsund tonn á síðasta ári LANDSBANKINN spáir 0,4% hækkun vísitölu neysluverðs milli desember og janúar, að því er fram kemur í frétt frá bank- anum. Í fréttinni segir að verð- hækkun sé að jafnaði töluverð í janúar þar sem ýmis gjöld hækka í upphafi nýs árs. „Í fyrra hækkaði vísitala neysluverðs um 0,9% í janúar. Gangi þessi spá eftir mælist verðhækkun innan ársins 2002 einungis 1,5% sam- anborið við 9,4% innan ársins 2001.“ Helstu forsendur spár bankans er hækkun bensínverðs í byrjun árs, hækkun leikskólagjalda og hækkun á mjólkurvörum m.a. Einnig er í spánni gert ráð fyrir hækkun húsnæðisverðs. Á móti þessum hækkunum vega áhrif af útsölum sem á undanförnum ár- um hafa byrjað æ fyrr að því er segir í fréttinni. Vísitala neysluverðs Landsbankinn spáir 0,4% hækkun ÚTGERÐ kvótalítilla og kvóta- lausra báta getur ekki staðið undir sér nema með brotum á ákvæðum kjarasamninga sjó- manna og útvegs- manna, að mati Vélstjórafélags Ís- lands. Félagið skor- ar á stjórnvöld að grípa nú þegar í taumana og stöðva viðstöðulaust fram- sal veiðiheimilda til kvótalausra og kvótalítilla útgerðarmanna. Í álytkun aðalfundar Vélstjóra- félags Íslands, sem haldinn var fyrir skömmu, segir að útgerð kvótalítilla og kvótalausra báta sé í raun niðurgreidd af einstökum sjó- mönnum sem á sama tíma und- irbjóði aðra sjómenn á ólögmætan hátt sem hafi neitað að taka þátt í slíkum lögbrotum. Þá liggi fyrir að fjöldinn allur af útgerðarmönnum sem stundi slíka atvinnustarfsemi hafi á síðustu misserum orðið gjaldþrota með tilheyrandi skaða fyrir þjóðfélagið. Í ályktun sinni bendir fundurinn á að stöðug fækkun hafi orðið í röðum farmanna síðustu árin og að farskipaútgerðirnar hafi í æ ríkara mæli leigt til sín farskip á tíma- leigu með erlendum áhöfnum til siglinga til og frá landinu. Í ályktun- inni segir að sú reynsla og þekking sem farmannastétt- in búi yfir hverfi úr landi þar sem sí- fellt fleiri sjómenn frá laglaunasvæð- unum sinna nú farmennsku í þágu Íslendinga. Af þeim sökum skoraði fundurinn á stjórnvöld að unnið verði að lagabreytingum í þá veru að á farskipum sem haldið sé til áætlunarsiglinga innan Evrópu af íslenskum útgerðum eða útgerðum á þeirra vegum, skuli um launa- kjör skipverja fara samkvæmt lög- um og kjarasamningum einhvers þess ríkis sem skipið hefur við- komu í. Fundurinn skoraði ennfremur á stjórnvöld að tryggja Landhelg- isgæslunni strax það fjármagn sem henni er nauðsynlegt til þess að gegna lagalegum skyldum sín- um, þ.e. að tryggja öryggi sjó- manna á hafi úti eins og kostur er. Kvótaframsal verði stöðvað VFSÍ segir útgerðir kvótalítilla skipa brjóta kjarasamninga VERÐ á samheitalyfjum hefur hækkað nærri tvöfalt meira en verð á frumlyfjum í Bandaríkjunum að undanförnu. Þróunin í þessa átt hefur staðið yfir frá því á árinu 2001. Þetta hefur gerst þrátt fyrir að stjórnvöld hafi hvatt landsmenn til að velja frekar samheitalyf en frumlyf, til að draga úr lyfjakostn- aði. Frá þessu var greint í New York Times fyrir nokkru. Þar segir að gert sé ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram á næstu árum því einkaréttur frumlyfjaframleiðenda á nokkuð mörgum vinsælum lyfjum muni renna út og samheitalyfja- framleiðendur geti því sótt um skráningu á lyfjum sínum. Einkaréttur á mörgum frumlyfjum að renna út NYT segir að ástæðuna fyrir meiri hækkun á verði samheitalyfja en frumlyfja megi í fyrsta lagi rekja til þess hve einkaréttur á mörgum frumlyfjum hafi runnið út að undanförnu en verð á samheita- lyfjum sé alla jafna töluvert hærra fyrst eftir skráningu. Þá hafi dreg- ið úr samkeppni á samheitalyfja- markaði vegna sameiningar fyrir- tækja í þeim geira. Þessu til viðbótar skipti einnig máli að smá- salar hafi fundið að þeir geti hagn- ast meira á sölu samheitalyfja en frumlyfja en samt boðið lægra verð. Hækkun á verði samheitalyfja kemur í kjölfar tillögu ríkisstjórnar Bush Bandaríkjaforseta um breyt- ingar á reglugerð sem er ætlað að torvelda framleiðendum frumlyfja að koma í veg fyrir skráningu sam- heitalyfja í Bandaríkjunum. Í reglugerðardrögunum er kveðið á um að loka ákveðnum ákvæðum í núverandi skráningarferli sam- heitalyfja, sem snúa að því hvernig málaferlum frumlyfjaframleiðenda gegn samheitalyfjafyrirtækjum er háttað. Bandaríska lyfjaeftirlitið, Food and Drug Administration, fær samkvæmt tillögunum nýtt tæki til að flýta skráningu sam- heitalyfja. Meðalverð á samheitalyfjum hækkaði um 15% í Bandaríkjunum á fyrstu tíu mánuðum ársins 2002 í samanburði við sama tímabil árið áður, úr 12,79 Bandaríkjadölum í 14,70 dali. Á sama tíma hækkaði verð á frumlyfjum um 8,8%, úr 70,79 dölum í 77,02 dali. Þrátt fyrir mikla hækkun á verði samheitalyfja er kostnaður banda- rískra neytenda vegna þeirra tölu- vert lægri en vegna frumlyfja. Á fyrstu tíu mánuðum ársins 2002 greiddu neytendur samtals 19,4 milljarða Bandaríkjadala fyrir sam- heitalyf, jafnvirði um 1.600 millj- arða íslenskra króna. Á sama tíma greiddu þeir hins vegar 98,6 millj- arða dala fyrir frumlyf, um 8.160 milljarða íslenskra króna. NYT segir að nærri helmingur af öllum lyfseðlum í Bandaríkjunum á þess- um tíma hafi verið fyrir samheita- lyf. Þá segir blaðið að sérfræðingar geri ráð fyrir að um tveir af hverj- um þremur lyfseðlum verði fyrir samheitalyf eftir tvö ár þrátt fyrir að verð á þeim hækki hratt. Minni hagnaður neytenda Fram kemur í greininni í NYT, að allir sem komi að framleiðslu samheitalyfja, jafnt framleiðendur sem apótek, hagnist áður en lyfin nái til neytenda. Haft er eftir Ron- ald F. Pollack, framkvæmdastjóra Families U.S.A., sem eru neytenda- samtök, að þó neytendur hagnist á því að versla frekar samheitalyf en frumlyf, þá hafi hagnaður þeirra oft verið töluvert minni en efni hafi staðið til. Í sama streng tekur Vir- en Mehte hjá lyfjaráðgjafarfyrir- tækinu Mehte Partners. Samheitalyf hækka í verði í Bandaríkjunum Tvöfalt meiri verðhækkun en á frumlyfjum UNDIRBÚNINGUR að sölu á Búnaðarbankanum stendur yfir og áform sem kynnt hafa verið um að ganga frá sölunni 21. þessa mán- aðar eru óbreytt, samkvæmt upp- lýsingum frá framkvæmdanefnd um einkavæðingu og S-hópnum, sem ríkið hefur gert samkomulag við um að kaupa bankann. S-hópurinn samanstendur af Eglu ehf., Samvinnulífeyrissjóðn- um og Vátryggingafélagi Íslands hf., en Egla er í eigu Eignarhalds- félagsins Samvinnutrygginga og Kers hf. auk þess sem ein eða fleiri erlendar fjármálastofnanir munu eiga aðild að félaginu. Ekki hefur fengist gefið upp hver eða hverjar þessar erlendu fjármálastofnanir verða. Samkomulagið sem gert hefur verið við S-hópinn hljóðar upp á sölu á 45,8% hlut í Búnaðarbank- anum og mun ríkið eftir söluna eiga 9% í bankanum. Söluverðið er rúmlega 11,9 milljarðar króna og afhending hlutabréfa og greiðslu verður tvískipt, 27,48% við undir- ritun og 18,32% eigi síðar en 20. desember á þessu ári. Núvirt með- algengi hlutabréfa í viðskiptunum er 4,81. Síðasta lokagengi fyrir ára- mót var 4,60. Stefnt að sölu Búnaðar- bankans 21. þessa mánaðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.