Morgunblaðið - 03.01.2003, Side 23

Morgunblaðið - 03.01.2003, Side 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 23 GRAFARHOLT útboð á byggingarrétti fyrir fjölbýlishús, raðhús og parhús Auglýst er eftir kauptilboðum í byggingarrétt á eftirtöldum lóðum í Grafarholti: • Fjórar lóðir fyrir fjölbýlishús (12 – 52 íbúðir pr. lóð) • Níu lóðir fyrir raðhús (3 – 5 íbúðir pr. lóð) • Fimm lóðir fyrir parhús (tvær íbúðir pr. lóð). Byggingarrétturinn er boðinn út til einstaklinga og fyrirtækja. Hæstbjóðandi þarf að vera reiðubúinn að leggja fram upplýsingar um fjármál sín og áætlun um fjármögnun fram- kvæmda við viðkomandi húsbyggingu áður en afstaða verður tekin til tilboðs hans. Kauptilboðum skal skila til skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, fyrir klukkan 16:00 þriðjudaginn 7. janúar 2003. Tilboðin verða opnuð í Skúlatúni 2, 5. hæð, sama dag klukkan 16:10 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Kauptilboðum skal skila í lokuðum umslögum, merktum „Grafarholt - kauptilboð”. Tilboðseyðublöð, útboðsreglur og skipulagsskilmálar fást á skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð. Einnig er hægt að nálgast tilboðseyðublað og útboðsreglur og nánari upplýsingar um lóðirnar á heimasíðu borgarverkfræðings (www.rvk.is/bv) undir mála- flokknum „Lóðir”. Brýnt er fyrir bjóðendum að kynna sér gögnin rækilega. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 563 2310. Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík Reykjavíkurborg • Umhverfis- og tæknisvið Skrifstofa borgarverkfræðings HIMINNINN logaði í bókstaflegri merkingu á gamlárskvöld þegar íbú- ar á höfuðborgarsvæðinu kveiktu í flugeldum og blysum um miðnætti og kvöddu gamla árið með stæl. Alls voru haldnar brennur á sautján stöðum á gamlárskvöld víðs- vegar um höfuðborgarsvæðið og fór brennuhald alls staðar vel fram, að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðis- ins. Slökkviliðið sinnti fjórtán útköll- um á gamlárskvöld, þar af voru þrjú útköll í heimahúsum vegna flugelda sem rötuðu inn um glugga. Í öllum tilvikum hlutust af minniháttar brunaskemmdir. Á nýársdag var slökkviliðið tíu sinnum kallað út vegna elda, mest var um að kveikt hefði verið í rusli á víðavangi eða í ruslagámum. Að mati slökkviliðsins voru ára- mótin frekar róleg og svipuð og í fyrra. Lögreglumönum á höfuðborgar- svæðinu ber saman um að áramótin hafi verið ákaflega friðsæl og engin meiriháttar mál komið upp. Nokkrar líkamsárásir voru þó kærðar til lög- reglu og eitthvað var um að skemmdarvargar notuðu flugelda til að vinna spellvirki. Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu- þjónn í Reykjavík, segir að erill hjá lögreglu hafi ekki verið meiri en um „venjulega helgi“. Frá klukkan 18 á gamlársdag til klukkan níu á nýárs- dag voru sjö slys bókuð hjá lögreglu, öll minniháttar. Á sama tíma sinnti lögreglan 23 verkefnum vegna flug- elda. Friðrik Sigurbergsson, læknir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi, segir að engin meiriháttar óhöpp hafi orðið vegna flugeldanotkunar um áramótin. Nokkrir hlutu þó áverka við augu en þeir brunar voru ekki verulegir. Flest slysin urðu vegna ýmiskonar fikts við flugelda. Mjög góð sala í flugeldum Valgeir Elíasson, upplýsinga- og kynningarfulltrúi hjá Slysavarna- félaginu Landsbjörg, segir sölu á flugeldum hafa verið mjög góða fyrir þessi áramót og síst minni en í fyrra. Þá voru flutt inn 300 tonn af flug- eldum eða svipað magn og fyrir þessi áramót. Valgeir áætlar að það sé um helmingur af því magni sem flutt er inn fyrir hver áramót. Hann minnir á að þetta séu önnur áramótin í röð þar sem engar til- kynningar berast um alvarleg slys á augum sem rekja megi til flugelda- notkunar. Landsbjörg hefur á tveimur árum dreift 130.000 hlífðargleraugum með flugeldum. Valgeir segir að tekist hafi að skapa hefð sem geri gleraug- un jafn sjálfsögð og flugeldana. Friðsæl og óhappalítil áramót Nýju ári fagn- að með flug- eldaskotum Höfuðborgarsvæðið www.nowfoods.com Ókeypis lögfræðiaðstoð öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012 frá okt.-apríl Orator, félag laganema

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.