Morgunblaðið - 03.01.2003, Síða 31

Morgunblaðið - 03.01.2003, Síða 31
Morgunblaðið/Árni Torfason Le Grand Tangó heldur tangótónleika ásamt Agli Ólafssyni í Salnum annað kvöld. EGILL Ólafsson kemur fram ásamt hljómsveitinni Le Grand Tangó á Tí- brártónleikum í Salnum á morgun. Verður þar flutt fjölbreytt tangótón- list, bæði argentínsk lög frá gullald- artíma tangótónlistarinnar í Argent- ínu á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar og úr smiðju Astors Piazzolla, sem og frumsamin tangólög eftir Egil Ólafsson og Olivier Manoury, band- oneonleikara og stofnenda Le Grand Tangó. Olivier hefur jafnframt útsett öll lög efnisskrárinnar fyrir hljóm- sveitina, utan eitt, sem Ríkarður Örn Pálsson hefur útsett. Dramatísk og angurvær lög Samstarf Egils við Le Grand Tangó hófst með tónleikum sem voru hluti af Kammertónleikum á Kirkju- bæjarklaustri sumarið 2001 og hlutu þeir mikla aðsókn. Gefst áheyrendum nú tækifæri til að heyra svipaða efnis- skrá flutta í Kópavogi. „Við fórum þá út í ævintýri sem við vissum ekki hvernig myndi ganga upp. En svo gekk samstarfið mjög vel og útkoman var svona skemmtileg,“ segir Edda Erlendsdóttir píanóleikari hljóm- sveitarinnar. Samvinnan þykir hafa tekist svo vel, að hópurinn vinnur um þessar mundir að gerð geisladisks sem ráðgert er að komi út hjá Eddu – miðlun og útgáfu á þessu ári. „Það er svo gaman að vinna með Agli því hann kemur auðvitað með nýja reynslu inn í þennan hóp, úr dægurlagaheimin- um,“ bætir Edda við. „Við hin í hljóm- sveitinni höfum aftur á móti annan bakgrunn, Olivier út tangóheiminum og við hinir hljóðfæraleikararnir úr klassíska geiranum.“ Ásamt því að syngja með hljóm- sveitinni hefur Egill einnig samið tvö lög á efnisskránni auk þess sem hann hefur þýtt söngtexta argentínsku lag- anna á íslensku. „Þetta eru svo flott ljóð við þessi lög, þannig að okkur fannst gaman að innihald textanna kæmist til skila. Ég tel að þýðingarn- ar hafi heppnast sérlega vel,“ segir Edda, sem segir viðfangsefni laganna yfirleitt vera dramatísk og angurvær. Meðal þeirra tónskálda sem eiga verk á efnisskránni eru Carlos Gardel, Astor Piazzolla og Anibal Troilo. Olivier Manoury stofnaði hljóm- sveitina Le Grand Tangó árið 1992 ásamt Eddu Erlendsdóttur píanóleik- ara. Auk þeirra skipa hljómsveitina Auður Hafsteinsdóttir fiðla, Greta Guðnadóttir fiðla, Helga Þórarins- dóttir lágfiðla, Bryndís Halla Gylfa- dóttir selló og Richard Korn kontra- bassi. Tónleikarnir hefjast annað kvöld kl. 20. Dynjandi tangó í Salnum LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 31 Útsalan hefst í dag GK REYKJAVÍK www.gk.is konur kringlunnimenn laugavegi »STJÖRNURNAR eru fjarlægar sólir, umhverfis þær ganga jarðir á borð við Jörðina og á jarðhnöttum þessum dafnar líf, áþekkt því, sem hér þrífst.« Þetta var tilgáta ítalska trúvillingsins Giordanos Brunos, sem brenndur var á báli hinn 17. febrúar árið 1600. Ekki eru allir fræðimenn þeirrar skoðunar, að þessi orð Brunos hafi verið und- irrótin að því, að hann var tekinn af lífi, heldur miklu fremur ýmis önn- ur villutrú og andóf við kirkjunnar menn. Hin síðari ár hefur þessi ágizkun Brunos um líf í alheimi verið hafin til vegs að nýju eftir að hafa verið hafnað af helztu fræðimönnum 20. aldar. Raunar eru þvílíkar vanga- veltur um lífið miklu eldri en frá tímum endurreisnarinnar og þær hafa lifað með mönnum alla tíð frá tímum Forn-Grikkja. Í tilefni af því, að 400 ár voru lið- in frá dauða Brunos, var boðað til tveggja fræðslufunda hér fyrir rúmum tveimur árum. Á fyrri ráð- stefnunni voru flutt erindi um hug- myndir manna um líf í alheimi en á hinni síðari um ævi þessa manns og endurreisnartímann. Nú eru flest erindin, sem flutt voru á þessum fundum, komin út á bók. Í fyrri hluta bókar ræða Þór Jak- obsson, Thor Vilhjálmsson og Jó- hanna G. Gunnarsdóttir hvert á sinn hátt um hinn vígreifa spámann og Gunnsteinn Ólafsson fjallar um tónlist miðalda, madrígalahefðina. Í seinni hluta greina Þór Jakobsson, Þorsteinn Þorsteinsson og Guð- mundur Eggertsson frá sögu hug- mynda um líf í alheimi, leitinni að lífi á Marz, hugmyndum um upphaf lífs og samstillingu efnisins. Að lok- um er hugleiðing Viðars Víkings- sonar um alheiminn, lífið og listina. Hér er því sannarlega áhugavert efni á ferð og þótt tæplega sé unnt að komast að einni ákveðinni nið- urstöðu er umfjöllunin hin ánægju- legasta lesning. En bókin hefur annað sér til ágætis. Það fólk, sem í hana skrif- ar, er allt prýðilega ritfært, svo að efnið kemst mjög vel til skila, þótt ólík séu tökin. Jafnt lærðir sem leikir mega af henni nema, og ótal spurningar, sem gaman væri að eiga svör við, vakna við lesturinn. Þannig á góð bók að vera. Þekking á eðli og uppruna lífs er enn mjög takmörkuð, og ekkert er hægt að fullyrða um líf í annarri mynd en þeirri, sem við kunnum nokkur skil á. Þrátt fyrir alla nútímavizku er hvorki unnt að hrekja né sannreyna kenningar Brunos um líf á fjarlæg- um jarðhnöttum. Lífið er okkur enn hulin ráðgáta; sem betur fer, vilja kannski sumir bæta við. Af þessari lauslegu upptalningu er ljóst, að bókin fjallar um einkar áhugavert efni, sem án efa hefur leitað á huga hvers einasta manns, um hugsanlegt líf í alheimi, auk þess er hún afar efnismikil og ekki sízt er snjallt að tvinna saman nú- tímavísindum og menningu endur- reisnartímans. Það gefur bókinni aukið gildi, dýpkar viðfangsefnið og höfðar efalaust til mun fleiri en ella. Það er óhætt að mæla eindregið með bók þessari, hún eflir áhuga á heimspeki endurreisnartímans og á mögulegu lífi um allar röðulgrund- ir. Um allar röðulgrundir BÆKUR Náttúrufræðirit Ritstjóri: Þór Jakobsson. 119 bls. Útgef- andi er Háskólaútgáfan, Reykjavík 2002. LÍF UM VÍÐAN STJÖRNUGEIM – GIORDANO BRUNO OG NÚTÍMAVÍSINDI Ágúst H. Bjarnason EINAR Már Guðmundsson fékk á gamlársdag viðurkenningu úr Rit- höfundasjóði Ríkisútvarpsins í at- höfn sem fór fram í Útvarpshúsinu við Efstaleiti og nemur upphæðin hálfri milljón króna. Einar Már sendi fyrir jólin frá sér skáldsöguna Nafnlausa vegi, sem er þriðja sagan í bókaflokki. Fyrri tvær bækurnar eru Fótspor á himnum og Draumar á jörðu. Viðstaddir úthlutunina voru m.a. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri mennta- málaráðuneytisins. Morgunblaðið/Kristinn Skafti Þ. Halldórsson, formaður rithöfundasjóðsins, afhendir Einari Má Guðmundssyni viðurkenninguna í Útvarpshúsinu á gamlársdag. Einar Már hlýtur viðurkenningu Bræðraborgarstígur 16 Síðasta sýningarhelgi er nú á innsetningu Rakelar Steinars- dóttur en hún vinnur aðallega með flotgler, þ.e. rúðugler, speglagler, dichroic gler og ein- angrunargler. Opið verður í dag, á morgun og sunnudag kl. 16–19 og eftir samkomulagi í síma 899 0870. Sýningu lýkur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.