Morgunblaðið - 03.01.2003, Blaðsíða 46
MINNINGAR
46 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Málfríður ErlaLorange fæddist í
Reykjavík 5. júlí 1936.
Hún lést á Landspít-
ala – háskólasjúkra-
húsi við Hringbraut
21. desember síðast-
liðinn. Málfríður var
dóttir Aðalheiðar
Fanneyjar Jóhanns-
dóttur, f. 1. maí 1908,
d. 10. ágúst 1995 og
Kai Emils Lorange, f.
18. janúar 1904, d. 30.
mars 2001.
Málfríður giftist
29. september 1956
Gunnari Helga Einarssyni, f. 15.
ágúst 1936, d. 25. júlí 1999. Börn
þeirra eru: 1) Jóhann Ingi, f.
21.maí 1954, maki Guðfinna Nanna
Gunnarsdóttir. Börn: Kristín Erla,
Gunnar Ingi, Steindór Björn og
Indiana Nanna. 2) Steindór, f. 25.
júlí 1956, maki Erna
Benediktsdóttir.
Börn: Einar Þór,
Gunnar Helgi og
Fanney Birna. 3) Að-
alheiður Sigrún, f. 4.
október 1958, maki
Björn Erlingsson.
Börn: Arnar Smári,
Tómas og Andrea.
Að lokinni skóla-
göngu starfaði Mál-
fríður hjá Ritfanga-
verslun Björns
Kristjánssonar þar
til hún réð sig sem
verkstjóri hjá Sjó-
fangi og starfaði þar í 17 ár. Árið
1978 hóf hún störf í eftirlitsdeild
hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna og starfaði þar til dauðadags.
Útför Málfríðar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku mamma. Í dag kveðjum við
þig og göngum með þér hinsta spöl-
inn. Ekki hafði okkur systkinin órað
fyrir því viku fyrir jól að atburðarás
ætti eftir að verða svo hröð. Þú gerð-
ir hlé á vinnu þinni til að fara í lækn-
isskoðun á þriðjudegi, reyndist hald-
in banvænum sjúkdómi og laugar-
daginn í sömu viku varstu farin.
Kannski var þessi flýtir einkennandi
fyrir þig á margan hátt og raunar
segja börnin í fjölskyldunni að þú
hafir verið að flýta þér til að geta ver-
ið hjá afa yfir jólin.
Þú kvaddir okkur svo snögglega að
við hin gátum ekki búið okkur undir
það sem verða vildi. Sorgin hellist yf-
ir, söknuðurinn er sár og minning-
arnar flæða fram. Á stundu sem
þessari rennur upp fyrir okkur að
söknuðurinn er til vitnis um það að
þú tengdist okkur djúpum, sterkum
böndum. Ég velti því fyrir mér hvaða
drættir í fari þínu hafi verið mest
áberandi, hvaða mynd þú hafir skilið
eftir í hjarta mínu og annarra fjöl-
skyldumeðlima. Það er ekki ýkja
flókið að finna réttu lýsingarorðin.
Þeir sem til þín þekktu í lífi og starfi
mundu óhikað minnast fyrst á dugn-
að, ósérhlífni, nægjusemi, ríka rétt-
lætiskennd og vinnusemi. En við sem
betur þekktum þig getum bætt við
lýsinguna tryggð, trausti og hlýleika
góðrar konu með stórt hjarta.
Þið pabbi voruð ung, aðeins 17 ára
þegar ég, frumburðurinn, fæddist.
Lífsbaráttan var hörð í þá daga en ég
naut þess að fá að alast upp hjá ykkur
og einnig hjá ömmu Fanneyju, Jó-
hanni langafa og Helgu langömmu í
Miðhúsum við Lindargötu, fallega
gamla húsinu sem nú er varðveitt í
Árbæjarsafninu. Það var gaman að
sjá hvað samband ykkar pabba
styrktist með árunum og síðustu
ásratugina má segja að þið hafið ekki
mátt hvort af öðru líta. Pabbi fór
snögglega fyrir þremur árum og þá
breyttist líf þitt í einu vetfangi, erfitt
var að hugsa sér Möllu án Helga. Þá
kom til kasta okkar systkinanna að
standa með þér og styrkja þig og
held ég að ég verði að nefna Heiðu
systur í því sambandi og Arnar
Smára, sem flutti til þín. Heiða hefur
verið í nánast daglegu sambandi við
þig eftir að pabbi dó.
Ég man hvað þið pabbi voruð stolt
þegar þið eignuðust ykkar fyrsta
húsnæði, fyrst íbúð við Eyjabakka og
síðan sjálft draumahúsið við Blá-
skóga. Þá kom skýrt fram drifkraft-
ur þinn, einbeitni og dugnaður. Þú
hélst tryggð við vinnuveitendur þína,
vannst fyrst í 17 ár sem verkstjóri
hjá Sjófangi og síðar 24 ár hjá Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna. Í
vinnunni komu þínir bestu eiginleik-
ar fram, m.a. ríkir leiðtogahæfileikar
sem þykja eftirsóknarverðir í dag.
Þú tókst þátt í störfum fólksins og
stundum var sagt að eitthvað hlyti að
vera að ef Malla tyllti sér niður. Ég
sé nú hvað þessir sterku eiginleikar
þínir hafa mótað bæði mig og okkur
systkinin mikið og fyrir það verð ég
ævinlega þakklátur. Þú kunnir svo
vel að laða fram það besta hjá hverj-
um og einum á meðan þú varst verk-
stjóri. Oft fékkst þú fólk sem aðrir
verkstjórar höfðu gefist upp á til að
vinna vel, þar kom hjartahlýjan til
sögunnar, samúðin með þeim sem
minna máttu sín. Þó má segja að þú
hafir staðið þig best þegar mest á
reyndi, þegar álagið var sem mest og
það þurfti að leggja nótt við dag til að
bjarga verðmætum. Sjálfur hef ég
ferðast mikið og víða um landið und-
anfarin ár og alltaf skal ég rekast á
einhverja sem kalla mig „strákinn
hennar Möllu“ og biðja kærlega að
heilsa. Ég kem þessum kveðjum hér
með enn og aftur til skila, kveðjum
sem sýna þá virðingu og traust sem
þú átt skilið.
Minningarnar hrannast upp. Ég sé
fyrir mér ljóshærða, glæsilega unga
konu með brún augu sem gengur
ákveðnum skrefum niður Laugaveg-
inn. Hún á stefnumót við Helga sinn,
nú skal dansað í Breiðfirðingabúð
eða Þórscafé. Nú átt þú aftur stefnu-
mót við hann Helga þinn og ég veit að
það verður glatt á hjalla. Berðu hon-
um kveðju okkar allra. Far þú í friði,
blessuð sé minning þín, elsku
mamma.
Jóhann Ingi.
Elsku mamma.
Það er með miklum söknuði í
hjarta sem ég sest hér niður til þess
að setja á blað hugsanir mínar til þín
við ótímabært andlát þitt. Það sem
styrkir mig í sorginni er að þú sért
núna hjá pabba og allar þær gleði-
stundir sem við höfum upplifað sam-
an í gengum tíðina. Myndbrotin sem
koma í hugann eru óteljandi; barn-
æskan á Vitastígnum, Bjargar-
stígnum og Freyjugötunni; hreykinn
10–11 ára sonur af mömmu sinni
þegar hann fékk að prófa að vinna í
fiski í Sjófangi þar sem þú varst
verkstjórinn. Þar varst þú dáð fyrir
ósérhlífni og dugnað; þegar við flutt-
um á Eyjabakkann í nýja og flotta
íbúð rétt fyrir jólin 1968; fyrsti bíll-
inn, hvíta Ford Cortinan, sem við
systkinin fengum afnot af til að fara á
rúntinn; Bláskógaævintýrið þegar
þið pabbi festuð kaup á draumahús-
inu, allt gert til að byggja fjölskyld-
unni sem bestan samastað; glitrandi
augu þín þegar börnin okkar Ernu
litu dagsins ljós og margt, margt
fleira.
Þetta eru yndislegar minningar
sem ávallt verða geymdar í hjarta
mínu. Aldrei var sagt nei, ef við
þyrftum pössun fyrir börnin, þau
voru alltaf velkominn og það sem
best var, þeim leið vel í Bláskógunum
í ást og umhyggju ömmu og afa.
Lífskeið þitt mátti verða lengra,
elsku mamma, en ykkur pabba var
greinilega ætlað að vera saman, því
eftir andlát hans fyrir 3½ ári slokkn-
aði stór gleðineisti í hjarta þínu.
Ég veit að sá neisti er kominn aft-
ur við endurfundi ykkar.
Síðastliðin 24 ár starfaðir þú hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
enda vandfundnari betri fagmaður
um gæðamál á fiski. Þar leið þér
mjög vel og varst vel liðin af öllum
samstarfsmönnum þínum. Veit ég að
þeirra söknuður er líka mikill.
Elsku mamma, hjartans þakkir
fyrir allt á lífsleiðnni, ég kveð þig
með sorg í hjarta.
Megi góður guð geyma þig.
Þinn sonur
Steindór.
Elsku mamma mín. Þetta eru erf-
iðir dagar hjá okkur núna. Það er svo
mikið tómarúm, fyrst pabbi og svo
þú. Við höfum öll misst svo mikið og
barnabörnin mest. Ég veit að núna
líður þér vel, elsku mamma mín,
komin til hans pabba, því þú sást
aldrei ljósið eftir að hann fór. En þú
sagðir að þú yrðir að halda áfram, þú
ættir svo góð börn og barnabörn og
þú sannarlega reyndir. Það verður
erfitt að sætta sig við að eiga ekki
fleiri stundir í Bláskógunum því það
hefur verið fastur punktur fjölskyld-
unnar sl. 30 ár. Ég þakka þér fyrir
alla þá ást og umhyggju sem þú og
pabbi gáfuð mér í lífinu og síðan
barnabörnunum, Arnari Smára,
Tómasi og Andreu. Þið höfðuð alltaf
tíma fyrir okkur. Þú varst mér ynd-
isleg móðir og ég var stolt af þér,
elsku mamma mín.
Ég kveð þig með söknuði og skil-
aðu kveðju til pabba. Guð geymi þig.
Þín dóttir,
Aðalheiður.
Elsku amma mín.
Mig langar í stuttu máli að þakka
þér fyrir þessi 21 ár sem við áttum
saman, þó sérstaklega tvö fyrstu og
þrjú síðustu, því þá bjó ég hjá þér.
Frábær kona eru orð sem lýsa þér
best.
Alltaf varstu tilbúin að gera allt
fyrir alla, passa barnabörnin, alltaf
voru allir mínir vinir velkomnir á þitt
heimili. Við sátum að spilum að nóttu
til, horfðum á leiki að degi til og aldr-
ei sagði amma neitt annað en að allir
væru velkomnir á þetta heimili.
Ég á eftir að sakna stundanna okk-
ar í eldhúsinu þar sem við ræddum
um leyndarmálin okkar. Eldhúsið
var líka þinn uppáhaldsstaður fyrir
utan hægindastólinn og sjónvarpið.
Enginn átti von á að þú værir að
fara að kveðja okkur en svona er víst
lífið og allir verða að reyna að sætta
sig við það. Þú ert komin til afa og líð-
ur vel.
Gleymdu því aldrei að ég elska þig
rosalega mikið.
Hvíldu í friði. Þinn
Arnar Smári.
Halló amma mín. Þetta er hún
Indíana Nanna og ég vildi bara segja
þér að ég sakna þín alveg ofboðslega
mikið og ég vildi að þú værir ennþá
hérna hjá okkur. Svo vildi ég bara
segja að ég elska þig af öllu mínu
hjarta. Svo ætlaði ég að biðja þig að
skila kveðju til Gunnars afa, Rúnu
langömmu og Fanneyjar langömmu.
Mundir þú vilja gera það fyrir mig?
Ég vil líka að þú vitir að þú varst al-
veg frábær amma og ekki er hægt að
hugsa sér betri ömmu í öllum heim-
inum.
Manstu eftir því þegar afi Gunnar
keypti fyrir áramótin alveg rosalega
stóra bombu sem var skírð eftir ein-
hverju fjalli. Og svo þegar hann
kveikti í bombunni þá hlupu allar
konurnar í fjölskyldunni inn vegna
þess að þær voru svo hræddar um að
brenna pelsana sína. Svo vildi ég fá
að þakka þér fyrir píanóið sem þú
gafst mér. Og í síðasta sinn ætla ég
að fá að segja þér að ég elska þig af
öllu hjarta mínu. Þú varst alveg frá-
bær og ekki var hægt að hugsa sér
betri ömmu.
Indíana Nanna.
Elsku amma mín. Mig langar að
þakka þér fyrir hvað þú varst alltaf
góð við mig.
Hvað það var alltaf gaman að
koma til þín og afa og hvað þú vildir
alltaf allt fyrir mig gera. Ég sakna
þín mjög mikið en ég veit að núna
hefur þú það gott hjá afa. Mér þykir
ofsalega vænt um þig, elsku amma
mín, og mun aldrei gleyma þér.
Þinn
Tómas.
MÁLFRÍÐUR ERLA
LORANGE
Fleiri minningargreinar um Mál-
fríði Erlu Lorange bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Innilegar þakkir flytjum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
REGÍNU STEFÁNSDÓTTUR.
Guð gefi ykkur gleðilegt nýtt ár.
Kristín Gísladóttir, Hreinn Eiríksson,
Baldur Gíslason, Þórey Aðalsteinsdóttir,
Regína Hreinsdóttir,
Steingerður Hreinsdóttir,
Pálmar Hreinsson,
Stefanía Baldursdóttir,
Gísli Marteinn Baldursson
og langömmubörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, vinarhug og styrk við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GRÉTARS FINNBOGASONAR,
Suðurvangi 14,
Hafnarfirði.
Stuðningur ykkar allra og vinarþel er okkur
ómetanlegur styrkur í raun.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Vigfúsdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns og besta vinar,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
JÓHANNS ÁRMANNS KRISTJÁNSSONAR,
Sólhlíð 19,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heilbrigiðsstofn-
unar Vestmannaeyja fyrir frábæra umönnun og hlýju.
Guð blessi ykkur öll.
Elín Guðlaugsdóttir,
Guðlaugur Jóhannsson, Margrét Gunnarsdóttir,
Ragna Boklund, Jørn Boklund,
Guðný Kristín Jóhannsdóttir,
Jóhann Ellert Jóhannsson, Solveig Krusholm,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og
útför hjartkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
MAGNÚSÍNU GUÐRÚNAR
GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hvassaleiti 56,
Reykjavík.
Erna Agnarsdóttir, Bjarni Ingólfsson,
Helgi Agnarsson, Hrefna Guðmundsdóttir,
Anna Agnarsdóttir, Ólafur Gústafsson,
Agla Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
arhug við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
KLEMENS SÆMUNDSSONAR,
Hólagötu 4,
Vogum.
Guðrún Kristmannsdóttir
Sæmundur Kr. Klemensson, Soffía Ólafsdóttir,
Þóður Klemensson,
Kristmann Klemensson, Þóranna Þórarinsdóttir,
Elís Björn Klemensson, Valgerður Bergsdóttir,
Egill H. Klemensson,
Brynjar Klemensson,
barnabörn og langafabörn.