Morgunblaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14. Nýtt jóga-
námskeið á þriðjudög-
um og fimmtudögum kl.
9. Nýttt dansnámskeið á
þriðjudögum kl. 11 og
föstudögum kl. 12.45.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan, kl.
13.30 bingó.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
frjálst að spila í sal.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud: Kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bóka-
safnið, kl. 15–16 bóka-
spjall, kl. 17–19 æfing
kór eldri borgara í
Damos. Púttkennsla í
Íþróttahúsinu á sunnu-
dögum kl. 11.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
opin handavinnustofan,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–16.45 alla daga
nema mánudaga.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
applikering, kl. 10–13
opin verslunin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 bað-
þjónusta, kl. 9–16.30 op-
in vinnustofa, myndlist,
gifs ofl. kl. 9.30 göngu-
hópurinn Gönuhlaup
leggur af stað, kaffi á
eftir göngunni, allir vel-
komnir, kl. 14 brids og
almenn spilamennska.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Grafarvogi. Korp-
úlfarnir, eldri borgarar í
Grafarvogi hittast á
fimmtudögum kl. 10,
aðra hverja viku er
púttað á Korpúlfs-
stöðum en hina vikuna
er keila í Keilu í Mjódd.
Vatnsleikfimi er í Graf-
arvogslaug á þriðjudög-
um kl. 9.45 og föstudög-
um kl. 14. Nýir félagar
velkomnir. Upplýsingar
gefur Þráinn í síma
545 4500.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13. „Opið
hús“ spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag aldraðra í Mos-
fellsbæ og nágrennis.
Aðalfundur félagsins
verður í Hlégarði mánu-
daginn 13. janúar. Auk
venjulegra aðalfund-
arstarfa mun Halldóra
Björnsdóttir íþrótta-
fræðingur og Sigurður
M. Grétarsson við-
skiptafræðingur mæta á
fundinn.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Pútt og
brids kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin kl. 10–13 virka
daga. Morgunkaffi,
blöðin og matur í há-
degi. Sunnudag kl. 20
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Skrifstofa félags-
ins er í Faxafeni 12, sími
588 2111.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 9.15 vefn-
aður, kl. 13 bókband.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
baðþjónusta, handa-
vinna, útskurður, fóta-
aðgerð og hárgreiðsla,
kl. 11 spurt og spjallað.
Kl. 14 bingó.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun. Fótaaðgerð, hár-
snyrting. Allir velkomn-
ir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17,
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
alm. handavinna, kl. 10–
11 kántrýdans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30–14.30
Sungið við flygilinn, kl.
14–15 félagsráðgjafi á
staðnum, kl. 14.30–16
dansað í aðalsal.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir, kl.
11.30 matur, kl. 12.30
leirmótun, kl. 13.30
bingó, kl. 14.30 kaffi.
Postulínsnámskeið
hefst 14. janúar, skrán-
ing stendur yfir í síma
561 0300. Kvöldvist
verður 16. janúar kl. 20.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum með
börnin sín á fimmtud.
kl. 13–15 á Loftinu í
Hinu húsinu, Póst-
hússtræti 3–5. Opið hús
og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl. 21
í Konnakoti, Hverf-
isgötu 105. Nýir félagar
velkomnir. Munið göng-
una mánu- og fimmtu-
daga.
ITC Fífa. Fyrsti fundur
eftir áramót verður
haldinn kl. 12 á hádegi í
kaffiteríunni í Gerð-
arsafni, Kópavogi.
Bókakynning, félagið
mun kynna nokkrar
áhugaverðar bækur.
Allir velkomnir. Upp-
lýsingar í síma 698 0144
Guðrún. Heimasíðan er
www. simnet.is/itc.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, m.a. bókband,
frá hádegi spilasalur op-
inn, kl. 14. kóræfing.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, Fannborg
8, kl. 10.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi: Í
Vestmannaeyjum: hjá
Axel Ó. Láruss. skó-
verslun, Vest-
mannabraut 23, s. 481-
1826. Á Hellu: Mosfelli,
Þrúðvangi 6, s.487-5828.
Á Flúðum: hjá Sólveigu
Ólafsdóttur, Versl.
Grund s. 486-6633. Á
Selfossi: í versluninni
Íris, Austurvegi 4, s.
482-1468 og á sjúkra-
húsi Suðurlands og
heilsugæslustöð, Ár-
vegi, s. 482-1300. Í Þor-
lákshöfn: hjá Huldu I.
Guðmundsdóttur, Odda-
braut 20, s. 483-3633.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga, fást á eftirtöldum
stöðum á Reykjanesi. Í
Grindavík: í Bókabúð
Grindavíkur, Vík-
urbraut 62, s. 426-8787.
Í Garði: Íslandspósti,
Garðabraut 69, s. 422-
7000. Í Keflavík: í Bóka-
búð Keflavíkur Penn-
anum, Sólvallagötu 2, s.
421-1102 og hjá Íslands-
pósti, Hafnargötu 89, s.
421-5000. Í Vogum: hjá
Íslandspósti b/t Ásu
Árnadóttur, Tjarn-
argötu 26, s. 424-6500, í
Hafnarfirði: í Bókabúð
Böðvars, Reykjavík-
urvegi 64, s. 565-1630 og
hjá Pennanum - Ey-
mundsson, Strandgötu
31, s. 555-0045.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum í Reykjavík:
Skrifstofu L.H.S. Suð-
urgötu 10, s. 552-5744,
562-5744, fax 562-5744,
Laugavegs Apóteki,
Laugavegi 16, s. 552-
4045, hjá Hirti, Bón-
ushúsinu, Suðurströnd
2, Seltjarnarnesi, s. 561-
4256.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Vesturlandi:
Á Akranesi: í Bóka-
skemmunni, Stillholti
18, s. 431-2840, Dalbrún
ehf., Brákarhrauni 3,
Borgarnesi og hjá Elínu
Frímannsd., Höfða-
grund 18, s.431-4081. Í
Grundarfirði: í Hrann-
arbúðinni, Hrannarstíg
5, s. 438-6725. Í Ólafsvík
hjá Ingibjörgu Pétursd.,
Hjarðartúni 1, s. 436-
1177.
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrif-
stofutíma. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Í dag er föstudagur 10. janúar, 10.
dagur ársins 2003. Orð dagsins: Því
að ekki er Guðs ríki matur og drykk-
ur, heldur réttlæti, friður og fögn-
uður í heilögum anda.
(Róm. 15, 14, 17.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 grannskoðar, 8 keips, 9
látna, 10 eyði, 11 gjálfra,
13 hvalaafurð, 15 poka,
18 sundfuglar, 21 hrós,
22 eyja, 23 sparsemi, 24
gangstétt.
LÓÐRÉTT:
2 kærleikshót, 3 guðs-
þjónusta, 4 gubbaðir, 5
gyðja, 6 baldin, 7 lenska,
12 niðurlag, 14 viðvar-
andi, 15 kræklingur, 16
svæfils, 17 ráðsnjöll, 18
heldur heit, 19 féllu, 20
vond.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skælt, 4 bifur, 7 jakar, 8 rellu, 9 fæð, 11 tínt, 13
skýt, 14 óttan, 15 fálm, 17 ýsan, 20 hró, 22 rúmur, 23
sælum, 24 afræð, 25 ólmur.
Lóðrétt: 1 skjót, 2 Æskan, 3 torf, 4 barð, 5 fölsk, 6 raust,
10 æmtir, 12 tóm, 13 sný, 15 forða, 16 lemur, 18 selum,
19 námur, 20 hríð, 21 ósjó.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
STUNDUM gefa menn eignumsínum viðeigandi nöfn, sem
eiga að gefa eitthvað til kynna um
það til hvers á að nota hlutinn.
Sumar flugvélar Flugleiða bera t.d.
nöfn íslenzkra landkönnuða til
forna, enda fljúga þær um allan
heim. Eigendur flutningaskipsins
Nordic Frost (Norrænt frost) hafa
hins vegar varla velt því fyrir sér
þegar þeir nefndu það hversu
óheppilega viðeigandi nafnið á skip-
inu gæti orðið. En nú er Nordic
Frost sumsé frosið fast á Finnska
flóa í nærri fjörutíu stiga norrænu
frosti, eins og sagt var frá í frétt
Morgunblaðsins í gær. Einkar við-
eigandi, ekki satt?
x x x
VEÐRIÐ á Íslandi hefur veriðeinstakt í vetur og Víkverji
finnur á fólki að því finnst hið bezta
mál að sjá fréttamyndir frá vetr-
arríkinu annars staðar á Norður-
löndum og í Bretlandi og Frakk-
landi. Íslendingum finnst eitthvað
mjög hughreystandi við að sjá að
það sé miklu kaldara og verra veð-
ur í nágrannalöndunum en hér, því
að oftast nær er það öfugt. Það er
kannski ofsagt að veðurblíðan hér
og frosthörkurnar í Skandinavíu
fylli Íslendinga þjóðarstolti, en það
er ekki langt frá því.
x x x
JAFNVEL í Skandinavíu, þarsem menn eru nú ýmsu vanir í
veðurfarinu, hefur verið svo kalt að
lestar, sporvagnar og strætisvagnar
komast ekki í gang, flugvélum
seinkar og þar fram eftir götunum.
Sunnar í álfunni setur smávegis
snjókoma allt úr skorðum.
Á vef norska ríkisútvarpsins las
Víkverji frétt af norskri fjölskyldu,
sem sagði farir sínar ekki sléttar
eftir flug heim til Noregs frá
Bandaríkjunum. Ferðin með Air
France tekur vanalega um ellefu
klukkustundir og er þá millilent á
Keflavíkurflugvelli. Að þessu sinni
var flogið í gegnum París og þar
komst flugvélin ekki í loftið aftur
vegna „stórhríðar“ sem var að sögn
fjölskylduföðurins bara svolítil
snjókoma.
Norska fjölskyldan gisti í flug-
stöðinni og komst heim til Noregs
við illan leik eftir 52 klukkustunda
ferðalag. Ef lent hefði verið í Kefla-
vík, hefði hún líkast til komizt heim
til sín á tilsettum tíma, enda heyrir
til algerra undantekninga að flug
um Keflavíkurflugvöll raskist vegna
veðurs. Þar eru menn ekki vanir að
kippa sér upp við það þótt snjói.
x x x
ANNARS veltir Víkverji því fyr-ir sér hvernig ástandið yrði í
Reykjavík ef skyndilega færi að
kyngja niður snjó. Skrifara sýnist
að ótrúlega margir ökumenn séu á
illa búnum bílum, á sumardekkjum,
sköfulausir og hreint ekki undir ís-
lenzkt vetrarveður búnir. Ef vet-
urinn kæmi skyndilega er hætt við
að algert öngþveiti yrði í umferð-
inni í Reykjavík, lítið skárra en í
París eða London. Úlpur, húfur,
snjógallar og kuldaskór á börn og
fullorðna liggja óseld í verzlunum
og hreyfast ekki einu sinni á útsöl-
unum.
Skjótt skipast veður í lofti og
þótt hér hafi verið hálfgert sum-
arveður að undanförnu er alger
óþarfi að sofna á verðinum.
Siðferði okkar bogið?
EFTIR að ég heyrði hver
hlaut titilinn maður ársins
2002 á rás 2 þá datt mér í
hug: Á hvaða leið erum
við? Er eitthvað bogið við
siðferði okkar þegar við
heiðrum þá sem ganga á
bak orða sinna? Að lokum
legg ég til að forsetaemb-
ættið verði lagt niður og að
eitthvað af þeim miklu
fjármunum sem fara í þá
hít verði látið renna til
Mæðrastyrksnefndarinn-
ar.
211123-7619.
Um gildi sagnanna
ÉG hef verið að lesa bók-
ina Ísland í hershöndum
eftir Þór Whitehead. Í
bókinni segir að skipið
Arctic hafi strandað á
Garðskaga. Hið rétta er að
það strandaði í Stakkham-
arsfjörum á Snæfellsnesi.
Stendur það m.a. í bókinni
Þrautgóðir á raunastund.
Maður efast um gildi allra
sagnanna þegar maður
rekur sig á svona mistök.
Guðmundur Bergsson,
Sogavegi 178.
Rétt ákvörðun
ÍVAR hafði samband við
Velvakanda og vildi hann
koma þeirri skoðun sinni á
framfæri að Ingibjörg Sól-
rún hefði tekið rétta
ákvörðun með því að fara í
landsmálapólitík. Segir
hann að hún sé atvinnu-
manneskja í pólitík og að
það þurfi breytingar og
nýtt blóð í pólitíkina. Segir
hann að hún verði líklega
næsti forsætisráðherra
landsins.
Hvaða viðmið
er notað?
Í VELVAKANDA 6. jan-
úar sl. spyr ein reið hvað
Kristín Rós þurfi að vinna
mörg gull til að vera kosin
íþróttamaður ársins.
Hvaða íslenskur íþrótta-
maður hefur unnið til fleiri
viðurkenninga á liðnum
árum en hún? Ég bara
spyr. Gaman væri að vita
hvaða viðmiðun íþrótta-
fréttamenn nota þegar
þeir kjósa íþróttamann
ársins.
Ein líka reið.
Dýrahald
Páfagaukur
týndist
PÁFAGAUKUR, gráblár,
flaug út um glugga í
Drápuhlíð sl. miðvikudag.
Þeir sem hafa orðið hans
varir hafi samband í síma
562 9128.
Páfagaukar
fást gefins
TVEIR litlir páfagaukar,
gulur og blár, fást gefins
ásamt búri. Upplýsingar í
síma 562 5504 milli kl. 16–
18.
Tapað/fundið
Tannbrú týndist
TANNBRÚ (8 tennur)
týndist í Austurstræti eða
Lækjartorgi 3. desember
sl. Þeir sem vita um afdrif
gómsins vinsamlega hafi
samband í síma 894 2275
eða 431 2275.
Gleraugu
í óskilum
GLERAUGU í svartri um-
gjörð fundust við Miklu-
braut nálægt Grensásvegi.
Upplýsingar í síma
568 1383.
Drengjaúr í óskilum
DRENGJAÚR með
ágröfnu nafni í keðju
fannst í Borgarleikhúsinu í
fyrravor. Upplýsingar í
síma 698 0526.
Hvít perlufesti
týndist
HVÍT perlufesti, 2–3 cm
breið, týndist á bílastæð-
inu í Smáralind 20. des sl.
Hennar er sárt saknað.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 431 1865.
Rauð íþróttataska
týndist
RAUÐ barnaíþróttataska
með fötum týndist, senni-
lega við Hlíðarhjalla í
Kópavogi. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
864 9744.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli