Morgunblaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 8. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 mbl.is
Slettur
meistarans
Jón B.K. Ransu fjallar um arfleifð
Jacksons Pollocks Listir 21
Lífsstíll
með lóðum
Eftir jólin fyllast líkamsrækt-
arstöðvarnar Daglegt líf 4
Úrelt hand-
boltavörn
Heyrir 6/0 vörn íslenska lands-
liðsins fortíðinni til? Íþróttir 4
KJARTAN Jóhannsson, aðalsamn-
ingamaður Íslands á samningafundi
Evrópusambandsins og EFTA-
ríkjanna í Brussel í gær, segir kröfur
ESB um greiðslur í þróunarsjóð al-
gerlega óraunhæfar. Þó lönd, sem
sækist nú eftir aðild að sambandinu,
hafi mikinn áhuga á peningum séu
fulltrúar þeirra heldur dempaðri í
þeim efnum en framkvæmdastjórn
ESB.
Framkvæmdastjórnin fer fram á
að framlög ríkjanna, Íslands, Noregs
og Liechtenstein, í þróunarsjóð ESB,
38-faldist frá því sem nú er. Það svar-
ar til þess að Íslendingar greiði 3,8
milljarða króna í sjóðina árlega.
Kjartan segir tregðu jafnframt
gæta varðandi fríverslun með fisk og
þess sé krafist að opnað verði fyrir er-
lendar fjárfestingar í sjávarútvegi Ís-
lands. Það jafngilti aðild Íslands að
fiskveiðistefnu ESB sem kæmi ekki
til greina.
Ríki njóta góðs af stækkun
Vel á annað hundrað fulltrúar
mættu á þennan fyrsta samningafund
vegna stækkunar Evrópska efna-
hagssvæðisins, þar á meðal frá öllum
umsóknarlöndunum.
Chris Patten, sem fer með utanrík-
ismál í framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins, sagði að öll ríki nytu
góðs af stækkun innri markaðar ESB
og eðlilegt að þau tækju þátt í þessum
kostnaði. „Þar með talin Ísland,
Liechtenstein og Noregur.“
Fjárkröf-
ur ESB
„óraun-
hæfar“
EFTA-ríkin greiði
225 milljarða
íslenskra króna
Mismunun ef/11
BYLTING hefur orðið í meðferð
ákveðinna tegunda langvarandi
hvítblæðis, en fyrir ári kom á
markað lyf sem ræðst eingöngu
gegn krabbameinsfrumunum en
lætur heilbrigðar frumur í friði.
Lyfinu, sem nefnist Glivec, fylgja
sárafáar aukaverkanir og hefur
það stórbætt líðan sjúklinga, að
sögn Magnúsar Karls Magnússon-
ar, sérfræðings í blóðmeinafræði á
Landspítala háskólasjúkrahúsi.
Þau lyf sem hingað til hafi verið
notuð ráðist hins vegar gegn öllum
frumum sem skipta sér og hafi víð-
tæk áhrif á líkamann.
Magnús Karl stýrði rannsókn
við Bandarísku heilbrigðisstofn-
unina, þar sem tókst að einangra
gen sem veldur mjög sjaldgæfri
tegund hvítblæðis. Í ljós kom að
Glivec, sem þá var að koma á
markað við annarri tegund hvít-
blæðis, verkaði einnig á þetta
sjaldgæfa afbrigði og jafnvel betur
en sjúkdóminn sem það var þróað
fyrir. Magnús Karl segir að hvít-
blæðið virðist nú algjörlega horfið
úr viðkomandi sjúklingi, þótt ekki
sé vitað hvort það komi aftur ef
sjúklingurinn hættir að taka lyfið.
Hefur stórbætt
líðan sjúklinga
Ræðst eingöngu gegn/26
Bylting í meðferð langvarandi krabbameins
ATVINNULEYSIÐ í Þýskalandi jókst í
desember síðastliðnum og hefur ekki verið
meira í þeim mánuði í fimm ár, samkvæmt
nýjum hagtölum sem birtar voru í gær.
Hagfræðingar segja að ekki sé útlit fyrir
að rofa fari til í þýsku atvinnulífi á næstu
mánuðum og spá því að atvinnuleysið auk-
ist frekar þar sem engin merki séu um efna-
hagsbata.
4,225 milljónir manna voru án atvinnu í
Þýskalandi í desember, eða 10,1% vinnu-
aflsins, og er það mesta atvinnuleysi í land-
inu í desember frá 1997. Að meðaltali var
atvinnuleysið 9,8% á liðnu ári og jókst úr
9,4% frá árinu áður.
Vonast er til að boðuðu verkfalli þriggja
milljóna þýskra ríkisstarfsmanna verði af-
lýst eftir að bráðabirgðasamkomulag náðist
í gær um að laun þeirra yrðu hækkuð um
2,4% í ár. Ríkisstarfsmennirnir höfðu kraf-
ist a.m.k. 3% launahækkunar.
Atvinnuleysi
fer yfir 10%
Frankfurt. AFP.
Efnahagsmál í Þýskalandi
Reuters
Röð atvinnulausra var fyrir utan vinnu-
málastofnun í Berlín í gærmorgun.
ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, veittist í
gær harkalega að Verkamannaflokknum og sakaði
hann um að standa á bak við ásakanir á hendur hon-
um um spillingu og aðild að fjármálahneyksli sem
hefur minnkað líkurnar á því að hann geti myndað
meirihlutastjórn eftir þingkosningarnar í Ísrael 28.
þessa mánaðar.
Sharon lýsti þessum ásökunum sem „auvirðilegum
rógi“ í ræðu sem var sjónvarpað og útvarpað í beinni
útsendingu. Áður en hann lauk máli sínu var útsend-
ingin rofin að fyrirmælum formanns kjörstjórnar Ísr-
aels sem taldi ræðuna kosningaáróður. Samkvæmt
ísraelskum lögum mega sjónvarps- og útvarps-
stöðvar ekki senda út einhliða kosningaáróður síðasta
mánuðinn fyrir kosningar.
Fylgi Likud hrynur
„Ég kom hingað til að svara auvirðilegum rógi sem
borinn hefur verið út um mig í þeim tilgangi einum að
fella ríkisstjórn Ísraels og komast til valda með lyg-
um,“ sagði Sharon í ræðunni. Hann fordæmdi Verka-
mannaflokkinn og sakaði hann um að hafa staðið fyrir
rógburðinum. „Mig óraði aldrei fyrir því að Verka-
mannaflokkurinn myndi hegða sér með svo ábyrgð-
arlausum hætti. Hann reyndi að stimpla okkur sem
mafíu, skipulögð glæpasamtök.“ Sharon skírskotaði
til þess að forsætisráðherraefni Verkamannaflokks-
ins, Amram Mitzna, hafði lýst honum sem „guð-
föður“.
Ný skoðanakönnun blaðsins Haaretz bendir til
þess að flokkur Sharons, Likud, fái aðeins 27 þing-
sæti af 120 í komandi kosningum. Fyrir um mánuði
var flokknum spáð allt að 41 sæti.
Sharon kveðst sæta
„auvirðilegum rógi“
AP
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, flytur sjónvarpsávarp á skrifstofu sinni í Jerúsalem í gær.
Reuters
Andstæðingur Ariels Sharons heldur dollaraseðli að
enninu fyrir framan skilti með áletruninni „Við er-
um dauðþreytt á þér og spillingu þinni“.
Kjörstjórnin rauf útsendingu
ávarps forsætisráðherrans
Leyfa framboð/14
Jerúsalem. AP, AFP.
BRIGITTE Boisse-
lier, forstjóri fyrirtækis-
ins Clonaid, segir að þess
verði ekki langt að bíða
að sannað verði að fyrsta
klónaða eða einræktaða
barnið hafi fæðst á jóla-
dag. Hún neitar því að
um sé að ræða gabb til að
vekja athygli á sértrúar-
söfnuði, sem heldur því
fram að geimverur hafi
komið af stað öllu lífi á jörðinni.
Boisselier segir í einkasamtali við Morg-
unblaðið í dag að foreldrar Evu, klónaða
barnsins sem hún segir að hafi fæðst á jóla-
dag, óttist að stúlkan verði tekin af þeim. Því
vilji þau bíða niðurstaðna rannsókna, sem
sanni að um klónun hafi verið að ræða.
Boisselier segir að tiltölulega lítil áhætta
felist í að klóna menn. Hún tekur ekki undir
að það geti talist siðferðislega rangt. Þvert á
móti sé siðferðislega rangt að koma í veg
fyrir að fólk, sem ekki getur átt börn, fái ósk
sína uppfyllta með þessum hætti. „Foreldr-
ar Evu eru afar hamingjusamir yfir því að
hafa nú eignast dóttur. Þau líta ekki á hana
sem „afritun“ af móðurinni. Hún er einfald-
lega barnið sem þau höfðu þráð svo mjög,“
segir Brigitte Boisselier.
Segir ein-
ræktun ekki
vera gabb
Klónun/27
Brigitte
Boisselier