Morgunblaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 15
Hagskýrslusvið
Hagstofunnar flytur
Hagskýrslusvið Hagstofunnar sem hefur verið til húsa í
Skuggasundi 3, Lindargötu 9 og Kalkofnsvegi 1 er flutt í
Borgartún 21a, 150 Reykjavík.
Nýtt símanúmer: 528 1000
Nýtt faxnúmer: 528 1099
Þjóðskrá er áfram til húsa í Skuggasundi 3,
150 Reykjavík.
Sími (óbreyttur) 545 9850.
Fax (óbreytt) 562 3312
Fyrirtækjaskrá og hlutafélagaskrá
eru áfram til húsa á Lindargötu 9.
Sími (óbreyttur) 563 7070
Fax (óbreytt) 562 7230
Borgartúni 21a, 150 Reykjavík.
KOMIÐ hefur í ljós að íbúðin í Lund-
únum, þar sem leifar af eiturefninu
rísíni fundust fyrr í vikunni, er í op-
inberri eigu og var notuð til að hýsa
tvo unga hælisbeiðendur frá Norður-
Afríku. Hvatti Iain Duncan Smith,
leiðtogi bresku stjórnarandstöðunn-
ar, til þess í gær, að betur verði gætt
að því hverjum sé hleypt inn í landið.
„Ég held að þetta sýni að við þurf-
um að vera á varðbergi gagnvart
fólki sem er líklegt til að reyna að
grafa undan þjóðfélagi okkar og
fremja hryðjuverk og við þurfum að
gæta betur að því hverjum við hleyp-
um inn í landið,“ sagði Duncan Smith
við BBC.
Breska blaðið The Sun sagði í gær
að unglingarnir tveir, sem voru 16 og
17 ára og bjuggu í íbúðinni, hefðu
fengið tímabundið landvistarleyfi í
Bretlandi eftir að þeir héldu því fram
að þeir sættu ofsóknum í heimalandi
sínu. Sagði blaðið að talið væri að
mennirnir og aðrir þeim tengdir
hefðu áformað að myrða breska
þegna, einkum þekkt fólk. En blöðin
Financial Times og Daily Telegraph
sögðu hins vegar að hugsanlega
kunni áform mannanna að hafa
beinst að öðrum stöðum en Bret-
landi.
Höfðu verið í þjálfun í Georgíu
Sex karlar og ein kona voru hand-
tekin í Lundúnum á sunnudag eftir
að leifar af eitrinu fundust í íbúðinni.
Konunni var síðar sleppt. Á miðviku-
dag var svo 33 ára gamall karlmaður
handtekinn í tengslum við málið.
Lögregla sagði að allt væri fólkið
upprunnið frá Norður-Afríku en
neitaði að staðfesta blaðafregnir um
að fólkið væri frá Alsír.
Heimildir innan frönsku leyni-
þjónustunnar segja að fólkið tengist
íslömskum herskáum hópum sem
hafi fengið þjálfun í Afganistan,
Pankisi-gljúfrinu í Georgíu og einnig
í Tétsníu. Tveir mannanna sem
handteknir voru komu til Bretlands
frá París í síðustu viku.
Rannsókn vegna rísín-fundar í Bretlandi
Höfðu sótt
um hæli sem
flóttamenn
London. AFP.
EKKI er fullkomlega öruggt að Vic-
ente Fox, forseti Mexíkó, muni sam-
þykkja brotthvarf Jorges Castañedas
utanríkisráðherra úr embætti en
Castañeda sagði af sér seint í fyrra-
kvöld. Orðrómur hefur verið á kreiki
um afsögn ráðherrans um nokkurt
skeið en þó að hann hafi notið virð-
ingar erlendis hefur hann verið nokk-
uð umdeildur heima fyrir.
Fox sagði við fréttamenn að hann
væri að velta fyrir sér hvort hann ætti
að krefjast þess að Castañeda drægi
afsögn sína til baka. Sagðist hann til-
kynna um ákvörðun sína í síðasta lagi
nk. mánudag. Dagblöð í Mexíkó
greindu hins vegar frá því að líklegast
tæki Luix Ernesto Derbez, fv. efna-
hagsmálaráðherra, við af Castañeda.
Fox gerði Castañeda, sem er 49 ára
gamall, að utanríkisráðherra fyrir
tveimur árum og var það nokkuð um-
deild ráðstöfun. Töldu margir hættu á
því að samskiptin við Bandaríkin biðu
skaða enda hafði Castañeda þótt afar
vinstrisinnaður og býsna fjandsam-
legur Bandaríkjunum. Er fram liðu
stundir var ráðherrann þó oftar gagn-
rýndur fyrir að vera Bandaríkjunum
of leiðitamur heldur en hitt.
Þannig var Castañeda m.a. kennt
um að slettist upp á vinskap þeirra
Fox og Fidels Castro Kúbuforseta
vegna uppákomu sem varð á ráð-
stefnu sem haldin var í Monterrey í
Mexíkó í mars í fyrra. Vék Castro
skyndilega og í miklu fússi af fundi og
var talið að það hefði verið svo George
W. Bush Bandaríkjaforseti þyrfti
ekki að hitta hann.
Castañeda er hins vegar talið til
tekna að honum hefur tekist að bæta
mjög ímynd Mexíkó í Evrópu og hon-
um er jafnframt þakkað að Mexíkó
skyldi takast að tryggja sér sæti í ör-
yggisráði SÞ.
Utanríkisráðherra
Mexíkó segir af sér
Mexíkó-borg. AP, AFP.
INDVERSKIR verka-
menn vinna við að
brjóta leifarnar af 33
metra hárri stein-
steyptri styttu af hind-
úa-guðnum Krishna í
bænum Narsinghpur í
Gurgaon-fylki á Ind-
landi í gær. Þrír verka-
menn biðu bana er
styttan, sem hafði verið
sex ár í smíðum, hrundi
á mánudaginn.
Hindúa-
guð í
molum
AP