Morgunblaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ NÁLEGA þrír af hverjum fjórum launþegum á almennum vinnumark- aði tóku þátt í lífeyrissparnaði um- fram samningsbundið lágmark í sept- ember síðastliðnum og hafði þeim fjölgað mjög mikið frá því í marsmán- uði eða um 18 prósentustig úr 55% í 73%. Þessar upplýsingar eru byggðar á gögnum Kjararannsóknanefndar og frá þeim skýrt á vef Samtaka at- vinnulífsins. Fram kemur að í mars síðastliðnum voru 45% launþega ein- ungis með lögbundið lágmarksfram- lag í lífeyrissjóð og tóku ekki þátt í viðbótarlífeyrissparnaði af neinu tagi. Í septembermánuði síðastliðnum eða sex mánuðum síðar hafði þeim hins vegar fækkað í 27% sem ekki fengu viðbót umfram samningsbundið lág- mark í lífeyrissjóð af neinu tagi. Fram kemur að framlög vinnuveit- enda í lífeyrissjóð vegna launþega hafa vaxið úr 6,8% í mars árið 2000, áður en samningsákvæði um viðbót- arlífeyrissparnað gengu í gildi, í 8,2% af launum í marsmánuði síðastliðn- um, tveimur árum seinna. Vöxturinn var áfram mjög mikill í fyrrasumar og var hlutfallið komið í 9% af launum að meðaltali í september. Er líkum að því leitt að binding eins prósents við- bótarframlags í lífeyrissjóð 1. júlí síð- astliðinn hafi orðið þeim launþegum hvatning sem ekki höfðu tekið þátt í viðbótarlífeyrissparnaði áður til þess að hefja sparnað. „Það er næsta líkleg tilgáta þar sem vinnuveitendur þurftu af þessu tilefni að inna þá starfsmenn sína, sem ekki voru þátt- takendur í viðbótarlífeyrissparnaði, eftir því hvar þeir vildu koma sparn- aðinum fyrir og það hefur hugsanlega orðið þeim umhugsunarefni og í kjöl- farið tilefni til þess að leggja til hliðar af eigin launum,“ segir á vef SA. Þá segir að ef tæknar og sérmennt- að starfsfólk sé undanskilið séu líf- eyrisframlögin í september orðin afar jafnt dreifð eftir starfsstéttum, eða á bilinu 8,2% - 8,7%. „Það kom raunar á óvart áður, þ.e. þegar gögnin fyrir mars 2002 voru skoðuð, hversu jöfn framlögin voru eftir starfsstéttum en nú kemur í ljós að enn minni munur er milli starfsstétta. Þetta stafar af mikilli aukningu framlaga vinnuveit- enda til sparnaðar verkafólks, um 1,1%, iðnaðarmanna, um 0,8% og þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks einnig um 0,8%. Þannig er ótvírætt að breytingin 1. júlí hafi hrundið af stað mestri hreyfingu á sparnaði þessara stétta af eigin launum,“ segir enn- fremur. Er jafnframt á það bent að athygl- isvert sé hversu mikil aukning sé í hópi þeirra sem fái meira en 2% fram- lög til lífeyrissparnaðar frá vinnuveit- anda. Það bendi til þess að hreyfingin sé í þá veru að launamenn nýti sér til fulls heimildir skattalaga til 4% skattfrádráttar vegna séreignar- sparnaðar. Þrír af hverjum fjórum í umframlífeyrissparnaði                                         !      "   #   $% % %&  %' $% $%( %$ $% %' (%    !  ÍSHÚS Njarðvíkur hefur frest til þriðjudags til að ljúka við fjármögnun vegna björgunar Guðrúnar Gísladóttur KE-15, sem liggur á 40 metra dýpi við strendur N-Noregs. Annars munu Meng- unarvarnir norska ríkisins grípa inn í og láta dæla olíu úr skipinu á kostnað eigenda þess. Kafarafyr- irtæki, sem unnið hefur að undirbúningi björgunar- aðgerðanna, hefur sagt sig frá verkefinu vegna þess að bankatryggingu vantar fyrir viðbótarkostn- aði. Viðbótarfjármögnun mun vera á lokastigi, en kostnaður við björgunina hefur farið talsvert fram úr því sem áætlað var. Stein-Inge Riise, eigandi Riise Underwater Eng- ineering, segir að fyrirtækið hafi átt að fá banka- tryggingu fyrir viðbótarkostnaði fyrir rúmum tveimur vikum, en því hafi verið frestað æ ofan í æ. „Við erum hættir í verkefinu. Það hafa verið fjár- hagsleg vandamál og við höfum einnig bent á slæma verkefnastjórn. Verkefninu er illa stýrt og það er illa skipulagt,“ segir Riise. Verkefnið hangir á bláþræði Fyrirtæki hans hafi sent Íshúsi Njarðvíkur reikning upp á þrjár milljónir norskra króna og stærsti hluti þess hafi þegar verið borgaður, enda hafi fyrirtækið bankaábyrgð fyrir 3 milljónum. „Eftir standa um 200.000 krónur norskar sem við erum ekki með ábyrgð fyrir,“ sagði Riise. Takist viðbótarfjármögnunin muni hann meta það hvort fyrirtækið komi aftur inn í verkefnið. „Auðvitað verðum við að ræða við þá ef þeir vilja meina að þeim hafi tekist að fá skikk á hlutina. Þá verða þeir bara að leggja málið fyrir okkur og við einfaldlega meta það á ný,“ segir hann. Riise segir að verkefnið hangi á bláþræði. „Aðal- málið er að verkefnið hefur ekki verið fjármagnað nægilega frá byrjun, við rekumst á það aftur og aft- ur. Við höfum alltaf sagt að verkið tæki lengri tíma en Íshúsið hefur sagt. Þeir bættu ekki við tíma fyrir köfunina fyrr en alveg í lokin á undirbúningnum.“ Kafararnir séu enn til taks í Lófóten þar sem Mengunarvarnir norska ríkisins (SFT) hafi borgað þeim fyrir að bíða á staðnum til mánudags svo þeir geti byrjað að undirbúa að fjarlægja olíu úr skipinu ef í ljós komi að Íshús Njarðvíkur geti ekki staðið við verkið. Henri Bertheussen, verkefnastjóri hjá SFT, seg- ir að ef Íshús Njarðvíkur geti ekki fjármagnað það sem upp á vantar grípi norska ríkið í taumana og láti tæma alla olíu úr skipinu á kostnað eigenda. Fyrirtækið hafi frest þar til á þriðjudag að ljúka fjármögnuninni. „Fjármálavandinn hefur skyggt á verkefnið mjög lengi, það var stöðvað í kjölfar fjár- málavanda hinn 20. desember. Veðrið var notað sem ástæða fyrir því að aðgerðum var frestað, en það komu margir fínir dagar eftir það.“ Bjartsýnn á að það náist að leysa málið Ásgeir Logi Ásgeirsson, sem er í forsvari fyrir björgunaraðgerðirnar í Noregi, segist bjartsýnn að það náist að fjármagna það sem upp á vantar, unnið sé ötullega að því að svo megi verða. „Við erum að vinna í því að leysa þessi mál og koma verkefninu áfram. Verkefnið er orðið talsvert dýrara en upp- haflega var ráð fyrir gert, m.a. vegna tafa. Það seg- ir sig því sjálft að það þarf aukið fjármagn til að klára það og ég vona að það sé að gerast.“ Hann gefur lítið fyrir gagnrýni Norðmanna um að verkinu sé illa stjórnað. Það hafi verið til fjár- magn til að halda verkinu áfram síðustu dagana fyir jól, verkinu hafi verið frestað þar sem jólin voru að koma og menn fóru heim í jólafrí. Aðspurður hvort verkefninu hafi verið ætlaður of stuttur tími segir hann að menn geti alltaf verið klókir eftir á. Hann segir Íslendingana sem eru í Noregi tilbúna að hefjast handa á ný um leið og þeir fá grænt ljós. Norska ríkið grípur inn í ef fjármögnun verður ekki tryggð Ljósmynd/Lars Antonsen Stein-Inge Riise, eigandi norsks kafarafyrirtæk- is, segir björgun Guðrúnar Gísladóttur illa stýrt. Kafari segir björgun Guðrúnar Gísladóttur við strendur Noregs illa skipulagða Í ÍSKÖNNUNARFLUGI Land- helgisgæslunnar í fyrradag sást hafís sem kominn er inn fyrir lögsögu Íslands út af Vestfjarða- miðum. Næst landi er hann 48 sjómílur norðvestur af Straum- nesi. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er ísinn tals- vert þéttur. Greina má stóra borgarísjaka sem eru allt að 400 fet á hæð sem jafngildir 120 metrum. Áfram verður fylgst með þróun hafíssins.Ljósmynd/Landhelgisgæslan Þéttur hafís út af Vestfjarða- miðum KAUPHÖLL Íslands hefur óskað eftir upplýsingum frá Búnaðar- bankanum um samning sem Árni Tómasson bankastjóri og Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmda- stjóri verðbréfaviðskipta Búnaðar- bankans (BÍ), eiga að hafa gert um kauprétt til handa Fjárfari ehf. á öllum bréfum BÍ í Straumi en Fjárfar var í eigu Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar og fleiri aðila. Greint var frá tilurð þessa leyni- samnings í fjórða og síðasta hluta greinaflokks Agnesar Bragadóttur um átökin um Íslandsbanka í Morgunblaðinu í gær. Fram- kvæmdastjóri Kauphallarinnar segir að af lýsingum í grein Morg- unblaðsins megi ætla að um til- kynningaskyldan gjörning hafi verið að ræða. BÍ upplýsi hvort rétt sé með farið „Í greininni í Morgunblaðinu er greint frá ákveðnum samningi sem hefur í það minnsta það yfirbragð að vera hugsanlega tilkynninga- skyldur til Kauphallarinnar,“ segir Þórður Friðjónsson, framkvæmda- stjóri Kauphallar Íslands. „Við munum því óska eftir staðfestingu frá Búnaðarbankanum hvort rétt sé farið með í Morgunblaðinu og ef svo er munum við óska eftir því að fá að sjá þennan samning. Á þeim grundvelli munum við síðan taka ákvörðun um viðbrögð Kauphall- arinnar. En eins og þessu er lýst í Morgunblaðinu virðist þarna hafa verið um tilkynningaskyldan gjörning að ræða.“ Þórður segir að í þessu efni sé stuðst við lög um starfsemi kaup- halla og skipulegra tilboðsmark- aða, einkum 26. grein þar sem kveðið er ýtarlega á um flögg- unarreglur, svo og reglur Kaup- hallarinnar um upplýsingaskyldu. „Við teljum því að það sé full ástæða til þess að fá upplýsingar um málið án þess ég sé með því að kveða upp neina dóma fyrirfram. Fyrst viljum við fá að vita hvað þarna var á ferðinni og í framhaldi af því munum við taka ákvörðun um viðbrögð,“ segir Þórður. Kauphöllin krefur Bún- aðarbank- ann um skýringar FJÓRIR menn hafa verið hand- teknir vegna innbrota og fíkni- efnabrota og hefur þýfi úr inn- brotunum verið endurheimt. Málið hófst á mánudag með tilkynningu um innbrot í hús í Breiðholti í Reykjavík. Stolið var fartölvu, heimabíói, þráð- lausum síma og fleira. Daginn eftir var umráðamað- ur bíls handtekinn. Við leit hjá honum fannst þýfi úr innbroti í gullsmíðastofu í Grindavík 12. desember. Maðurinn sagðist hafa lánað tveimur félögum bif- reiðina á mánudagsmorgun. Við leit heima hjá öðrum þeirra fannst fartölva sem var úr innbrotinu í Breiðholti. Þá fundu lögreglumenn 45 marí- júanaplöntur auk annarra fíkni- efna. Mennirnir voru handtekn- ir og viðurkenndi annar þeirra innbrotið í húsið í Breiðholti og vísaði á enn annan félaga sinn sem hafði verið með honum. Sá var síðan handtekinn og vísaði hann einnig á hluta þýfisins. Handtekn- ir fyrir maríjúana- ræktun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.