Morgunblaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ SJÓVÁ-Almennar tryggingar hf. keyptu í gær 25% hlutafjár í Eignarhaldsfélaginu Stofni ehf., móðurfélagi P. Samúelssonar hf., Kraftvéla, Arc- tic Trucks og P. S. fasteigna sem er félag um fast- eignir félaga sem eru í eigu Stofns. P. Samúelsson er umboðs- og söluaðili fyrir Toyota bifreiðar og einn stærsti bifreiðainnflytjandi landsins. Bogi Pálsson hætti í gær sem forstjóri P. Sam- úelssonar og hefur Emil Grímsson, sem áður var framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu, tekið við sem forstjóri P. Samúelssonar. Sjóvá-Almennar kaupa hlutinn af Páli Sam- úelssyni en hann hafði áður keypt hlut sonar síns, Boga, sem átti tæp 30% í Stofni. Eftir kaupin á Páll og fjölskylda hans 75% hlut í Eignarhalds- félaginu Stofni en að sögn Páls Samúelssonar eru áætlanir um að gefa lykilstarfsmönnum kost á að kaupa hlut í félaginu. Ekki liggur fyrir hversu stór hlutur þeim verður boðinn til kaups. Páll segir að kaupverðið sé trúnaðarmál enda viðskiptin ekki að fullu frágengin þar sem þau komu fyrst til tals sl. mánudag. Hann segir að samkvæmt mati bankastofnana sé Eignarhalds- félagið Stofn metið á 2,2-2,9 milljarða. Samkvæmt því má reikna með því að Sjóvá- Almennar greiði um 600 milljónir króna fyrir hlut- inn. Emil Grímsson segir að ekki séu fyrirhugaðar breytingar á rekstri félagsins en hann hefur starf- að sem framkvæmdastjóri P. Samúelssonar frá árinu 1998. Ekki náðist í Boga í gær en að sögn Páls liggur ekki fyrir hvað hann tekur sér fyrir hendur. Ýmsir hafi leitað eftir starfskröftum hans en það hefur legið fyrir um nokkurn tíma að hann hefði hug á að hætta störfum hjá fyrirtækinu og reyna fyrir sér á öðrum sviðum. Bogi hefur undanfarin tæp tvö ár verið formaður Verslunarráðs Íslands auk fleiri trúnaðarstarfa. „Það er auðvitað eftirsjá að Boga en ég styð hann í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Við er- um líka það heppin að hafa frábært starfsfólk og góður maður sem gjörþekkir rekstur fyrirtækis- ins tekur við af honum,“ segir Páll. Kaupin fjármögnuð með eigin fé Að sögn Einars Sveinssonar, framkvæmda- stjóra Sjóvá-Almennra, eru kaupin fjármögnuð með eigin fé. Hann segir að Sjóvá-Almennar líti á viðskiptin nú sem góðan fjárfestingarkost og þau séu eðlilegur þáttur í þeirra fjármálastarfsemi. „Sjóvá-Almennar hafa átt afar langt og farsælt samstarf og viðskipti við P. Samúelsson til margra áratuga. Þegar Páll Samúelsson, aðaleigandi fé- lagsins, leitaði til okkar um að við kæmum inn sem kjölfestufjárfestir þá skoðuðum við það mál og ákváðum að verða við þeirri beiðni,“ segir Einar. Sjóvá-Almennar tryggingar kaupa 25% í Eignarhaldsfélaginu Stofni Morgunblaðið/Kristinn Sjóvá-Almennar keyptu í gær fjórðungshlut í Stofni, móðurfélagi P. Samúelssonar Félagið metið á 2,2 til 2,9 milljarða króna SÍMINN kynnti nýtt skipurit í gær sem felur í sér töluverðar breytingar á stjórnskipulagi félagsins. Að sögn forstjóra Símans, Brynjólfs Bjarna- sonar, er ætlunin að aðgreina svið fé- lagsins enn frekar og tryggja að saman fari vald og ábyrgð stjórn- enda á hverju sviði fyrir sig. Í nýja skipuritinu eru svokölluð afkomusvið fjögur talsins; talsíma- svið, farsímasvið, gagnasvið, sem hefur umsjón með breiðbandi og nettþjónustu, og loks fjarskiptanet. Stoðsvið, eða þjónustusvið Símans eru einnig fjögur: fjármála-og rekstrarsvið, starfsmannasvið, markaðssvið og þróunarsvið. Í fram- kvæmdastjórn félagsins sitja, ásamt forstjóra, stjórnendur þessara átta sviða auk yfirmanna lögfræðideildar og almannatengsla. Samkvæmt gamla skipuritinu sátu níu manns í framkvæmdastjórn, fyrir utan for- stjóra, en nú hefur þem fjölgað í tíu. Ekki allir ánægðir Brynjólfur sagði Símann vera með þessu að búa sig undir harðnandi samkeppni á fjarskiptamarkaði. „Ís- landssími hinn nýi er verðugur keppinautur Símans,“ sagði Brynj- ólfur. Hann tók það fram að breyt- ingarnar leiddu ekki til uppsagna starfsfólks en að starfssvið ein- hverra myndi vissulega breytast. „Sumir fengu stöðuhækkun, aðrir fengu ekki þá stöðu sem þeir óskuðu eftir. Eðlilega eru ekki allir sáttir við breytingar sem þessar,“ segir Brynjólfur. Spurður að því hvort einhverjir hefðu sagt upp vegna breytinganna sagði hann svo ekki vera. Þó kvaðst hann vita til þess að einn eða tveir fyrrverandi stjórnendur væru enn að hugsa sinn gang varðandi áfram- haldandi störf hjá félaginu. Þrír nýir stjórnendur Fimm stjórnendur sem ekki hafa áður verið í framkvæmdastjórn taka þar sæti nú, þar af þrír sem ekki hafa starfað hjá félaginu áður. Kristín Guðmundsdóttir tekur við starfi framkvæmdastjóra fjármála- og rekstrarsviðs, en hún starfaði áður sem fjármálastjóri Granda hf. Katr- ín Olga Jóhannesdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Navision Ísland, er nýr framkvæmdastjóri markaðs- sviðs Símans og Orri Hauksson kem- ur inn sem framkvæmdastjóri þró- unarsviðs. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Maskínu. Tveir starfsmenn Símans til margra ára taka nú sæti í fram- kvæmdastjórn. Hilmar Ragnarsson verður stjórnandi talsímasviðs og Jóhannes Rúnarsson mun stýra starfsmannasviði. Aðrir yfirmenn sviða hjá Símanum sem sitja áfram í framkvæmdastjórn eftir breytingar eru Bergþór Halldórsson fjarskipta- neti, Heiðrún Jónsdóttir almanna- tengslum, Magnús Önundarson far- símasviði, Páll Ásgrímsson lögfræðideild og Þór Jes Þórisson gagnasviði. Nýtt skipurit Símans gildir frá 1. janúar sl. og í tilkynningu frá félag- inu segir að innleiðing nýs skipulags sé nú þegar hafin. Nýtt skipurit hjá Símanum Morgunblaðið/Kristinn Forstjóri Símans, Brynjólfur Bjarnason, kynnti breytt stjórnskipulag fé- lagsins í gær. Skipulaginu er m.a. ætlað að auka samkeppnishæfni Símans. SALA farmiða hjá Iceland Express gekk vonum framar í gær, en alls seldust 4.800 flugsæti á þessum fyrsta starfsdegi félagsins. Mikið gekk á hjá þeim ríflega tuttugu starfsmönnum Iceland Ex- press sem stóðu vaktina í gær en símalínur glóðu allan daginn og gríð- arlegt álag var á bókunarkerfið á Netinu. Að sögn Ólafs Haukssonar, tals- manns félagsins, eru þessar fyrstu sölutölur mikið gleðiefni. „Fram- kvæmdastjóri AirKiosk, sem er fyr- irtækið sem sér um bókunarkerfið okkar, segir að þetta sé sambærilegt við að bókuð væru flugsæti á mark- aði fyrir 1,5 milljónir manna. Hann segist dást óendanlega að því hve vel hefur tekist að koma þessu félagi á laggirnar.“ Þónokkrar pantanir að utan Ólafur segir að þrátt fyrir að Ice- land Express hafi ekki enn kynnt starfsemi sína utan Íslands hafi þó- nokkrar bókanir verið gerðar frá út- löndum. Telur hann líklegt að um sé að ræða Íslendinga búsetta erlendis. Iceland Express er lággjaldaflug- félag og flugsætin skiptast í sex verðflokka. Hjá félaginu gildir regl- an; fyrstir koma, fyrstir fá. Sæti eru bókuð og greidd samdægurs, fyrst er ákveðinn fjöldi seldur á lægsta fargjaldi, svo hækkar gjaldið í þrep- um eftir því sem vélin fyllist. Síðustu sætin í hverja vél eru því dýrust. Langmest var selt af flugsætum í lægsta og næstlægsta verðflokknum í gær. Í þeim lægsta kostar sætið 4.950 krónur án skatta aðra leið og 7.450 krónur án skatta í þeim næsta fyrir ofan, hvort sem flogið er til Kaupmannahafnar eða Lundúna. Ætla má því að tekjur gærdagsins hjá félaginu hafi numið á bilinu 25 til 35 milljónum króna. Morgunblaðið/Sverrir Íslendingar keyptu flugsæti í gær fyrir tugi milljóna þegar Iceland Express tók til starfa. Söluskrifstofa félagsins er á Suðurlandsbraut 24. Lággjaldaflugfélagið Iceland Express tók til starfa í gær Seldu tæp fimm þús- und sæti á fyrsta degi FRANSKUR athafnamaður, Tawfik Mathlouthi, hefur sett á markað gosdrykkinn Mecca Cola, ætlaðan músl- imum um víða veröld. Ætlun hans er að berjast við „heimsvaldastefnu og síonisma Bandaríkjanna með því að bjóða upp á valkost við bandarískar vörur og auka áhrifamátt þjóða sem sniðganga þær“, segir Mathl- outhi í samtali við BBC News Online. Hann vonast til að múslimar velji frekar Mecca Cola en Coca-Cola, sem hann segir vera tákn heimsvaldastefnu Bandaríkjanna. Á flöskunum er slagorðið „Ekki drekka eins og flón – drekktu af sannfæringu“. Talsmaður Coca-Cola segir að Mathlouthi hafi „kom- ið auga á viðskiptatækifæri sem hagnýtir sér erfitt og flókið ástand í Mið-Austurlöndum“. Í yfirlýsingu frá Coca-Cola segir að á endanum sé valið neytandans. Nú stendur yfir herferð í arabalöndum, þar sem múslimar eru hvattir til að sniðganga bandarískar vörur. Herferðin helgast af reiði múslima gagnvart Bandaríkjamönnum fyrir stuðning þeirra við Ísraela. Útflutningur stórveldisins í vestri til Sádi-Arabíu minnkaði um yfir 40% fyrstu þrjá mánuði síðasta árs vegna hennar. Alls hafa selst tvær milljónir 1,5 lítra flaskna af Mecca Cola og Mathlouthi segir að eft- irspurnin sé gríðarleg, þegar hafi verið pantaðar 16 milljónir flaskna. Sala var hafin í Frakklandi í nóv- ember og nú er gosdrykkurinn fluttur út til Bretlands, Þýskalands, Belgíu, Ítalíu og Spánar. Í næstu viku er ráðgert að hefja sölu í Danmörku og Svíþjóð. Reuters Mathlouthi heldur á flösku af Mecca Cola, sem hann vonast til að komi í stað Coca-Cola í arabaheiminum. Mecca Cola haslar sér völl meðal múslima Virði SH og SÍF metið HAFIN er vinna við fram- kvæmd á mati á rekstrar- og eigna- virði SH og SÍF vegna undirbúnings að form- legum viðræðum um mögu- legan samruna þeirra. Samið hefur verið við Fyrirtækjaþró- un Landsbanka Íslands hf. um að hafa umsjón með gerð skýrslu um verðmatið sem vinnuhóp á vegum félaganna er ætlað að skila. Hópinn skipa forstjórar félaganna og endurskoðendur auk fulltrúa Landsbankans. Gert er ráð fyrir að vinnu hópsins við verðmat félaganna ljúki í lok mánaðarins. Formlegar sam- runaviðræður hafa því ekki enn hafist og munu stjórnir fé- laganna taka ákvörðun um næstu skref í framhaldi af nið- urstöðu verðmatsvinnunar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.