Morgunblaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 41
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 41 KIRKJUSTARF Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Samkom- ur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíufræðsla. Barna- og unglingadeildir á laugardögum. Létt hressing eftir samkomuna. Allir vel- komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga- samkoma í kvöld kl. 21. Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Samkomur á laugardögum: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu- fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Loft- salurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðs- þjónusta/Biblíufræðsla kl. 11. Biblíurannsókn og bænastund á fimmtu- dögum kl. 20. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðs- þjónusta kl. 11. Biblíurannsókn og bænastund á föstudög- um kl. 20. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs- þjónusta kl. 11. Biblíurannsókn og bænastund að Breiða- bólstað í Ölfusi á miðvikudögum kl. 20. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.30. Safnaðarstarf HNÍFUR er stórhættulegur í hönd- um margra, svo sem alþingismanna, sem hamast við að nota aðstöðu sína til að skera niður þær mikilvægu greiðslur, sem fólk hefur unnið sér rétt á með því að leggja fjármuni sína til hliðar í gegnum árin til elli- áranna. Hér er átt við skerðingar á greiðslum frá Lífeyrissjóði sjó- manna. Nú síðast réðust alþingismenn á makagreiðslur. Það er að segja á líf- eyri sjómannskonunnar, sem hefur eytt mestri ævi sinni sem heima- vinnandi húsmóðir, vegna þeirra að- stæðna, sem henni eru búnar, þar sem eiginmaðurinn er alltaf úti á sjó, og hún hefur ekki átt þess kost að fara á vinnumarkaðinn og byggja upp sinn eigin lífeyrissjóð. Andsvör alþingismanna eru þau, að stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna hafi lagt þetta til. En hvers vegna? Jú, fjárhagsstaða sjóðsins er það slæm að þörf er á aðgerðum til að bjarga henni. Hverjar eru ástæðurnar? Tvær aðalástæður eru svik al- þingismanna á fjármögnun 60 ára reglunnar og hins vegar hið háa álag á sjóðinn vegna örorkubóta. Oftar en ekki hefur Alþingi Ís- lendinga skipt sér af kjaradeilu sjó- manna og útgerðarmanna. M.a. með loforðum um framlög til að milda réttlátar kröfur sjómanna til útgerð- armanna. En útgerðarmenn eru þeir einu vinnuveitendur, sem hefur tekist að láta grátstafi sína ná inn að hjörtum stjórnarmanna lýðveldis- ins. Samkvæmt útreikningi stjórnar Lífeyrissjóðs sjómanna hefur hún krafist 1,4 milljarða, sem er kostn- aður vegna 60 ára reglunnar, sem ríkisstjórnin lofaði en sveik. Málaferli hafa gengið um þennan lið, sem eru komin inn á borð al- þjóða dómstóla. Þetta er ekki sú eina aðferð stjórnvalda sem verið hefur beitt til að rýra kjör aldraða, heldur má einnig benda á þá tvísköttun, sem varð 1988 þegar staðgreiðsla skatta varð að veruleika. Eins og menn rekur minni til urðu launþegar að borga skatt af ið- greiðslum til lífeyrissjóðanna til árs- ins 1994. En þá loksins tókst að sannfæra stjórnvöld um ranglætið, og lögunum var breytt í þá veru að frádráttur varð af iðgreiðslum laun- þega. Á þessu 7 ára tímabili voru greiðslur sjómanna til Lífeyrissjóðs- ins ca. 3,5 milljarðar, og af því var greiddur skattur um það bil 1,4 milljarðar. Þar sem lagbreytingin var ekki afturvirk verður þessi upphæð end- urkrafin af lífeyrisþegum, er þeir fá greiðslur úr sjóðnum. Það er merkilegt við þetta að hér er sama upphæð, sem Lífeyrissjóð- ur sjómanna gerir kröfur til vegna 60 ára reglunnar. Örorkubætur Lífeyrissjóðs sjó- manna eru 43% útgjalda sjóðsins, sem segir okkur að tryggingabætur þær, sem útgerðarmaður kaupir til að annast tryggingu á högum slas- aðra og veika sjómanna, eru alltof lágar. Sú þjóð sem dottar dáðlaus og viljasljó og dillar þeim er ljúga, blekkja og svíkja skal fyrr en varir hremmd í harða kló. Hægt er að festast, bágt mun úr að víkja. Þannig kvað Jón Helgason. Hann bendir okkur á það að barátta gegn ranglæti, svikum og mismunun þegna þjóðfélagsins má aldrei dvína. Allir eiga að berjast gegn ranglátum gjörðum, hvort sem þær verða til hjá ríkisstjórn landsins eða í sölum Alþingis. Einnig skal barist gegn afli vinnu- veitandans, sem gerir allt sem hann getur til að varna því, að hinir al- mennu launþegar, öryrkjar sem og eldri borgarar hafi þau laun, sem þeir geta lifað af. Svo ég víki að skerðingu á maka- lífeyri frá Lífeyrissjóði sjómanna fer ég að velta fyrir mér hlut alþing- iskvenna að þessu máli. Er einhver alþingiskona dóttir sjómanns og hefur í sinni barnæsku staðið við hlið móður sinnar niðri á bryggju og beðið komu skipsins, sem faðirinn er á? Jafnræði meðal alþingiskvenna og íkvenréttindafélagi hefur verið bar- áttumál þeirra. Ég hlýt að spyrja. „Er það jafn- ræði í hugum þeirra kvenna sem komast í áhrifastöður að níðast á sínum kynsystrum og jafnvel mæðr- um?“ Áramótaræður þjóðhöfðinga þessa lands beindust að fátækt og trausti. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, ræddi um þann blett á velferðarríki Íslands, sem er aukin fátækt. Er hér ekki ein aðgerð stjórn- valda til að stækka þann blett? Forsætisráðherra minnist á traust. Ég vil spyrja hann „Er það traustsins vert, ef annar aðilinn er með krosslagða fingur fyrir aftan bak í hvert sinn er hann tekur í framrétta hönd?“ INGVI R. EINARSSON, fyrrverandi skipstjóri og fyrrver- andi formaður Skipstjóra- og stýri- mannafélagsins Kára í Hafnarfirði. „Einn komma fjórir milljarðar“ Frá Ingva R. Einarssyni: www.nowfoods.com C vítamín 400 mg með sólberjabragði Bragðgóðar tuggutöflur. Eflir varnir. Nýtt frá Biomega Fæst í apótekum Góðir skór Skóbúðin Miðbæ Háaleitisbraut 58-60  Sími 553 2300 Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15. Ísak og Helga Dögg DANS ER SKEMMTUN FYRIR ALLA, Á ÖLLUM ALDRI! Dansfélagið Hvönn HK-húsinu við Digranesveg, 200 Kópavogur,sími 862 6168, Netfang: hvonn@islandia.is danshusid@islandia.is, www.islandia.is/danshusid Hildur Ýr danskennari Samkvæmisdansar, barnadansar, gömlu dansarnir, línudansar, kántrýdansar, salsa, tjútt og swing, hóptímar, einkatímar, sérnámskeið fyrir fyrirtæki, hópa og þroskahefta. Kennarar og leiðbeinendur á vorönn: Hildur Ýr, Óli Geir, Arna Björg, Helga Dögg og Ísak Innritun stendur til 12. janúar, Kennsla hefst laugardaginn 11. janúar Tilboð í barnadansa 20% afsl. ef tveir skrá sig saman. „Námið í Rafiðnaðarskólanum hefur nýst mér mjög vel, mun betur en ég átti von á. Í starfi mínu hjá Umferðarstofu nýtist öll sú þekking og færni sem ég öðlaðist hjá Rafiðnaðarskólanum. Ég mæli hiklaust með þessu námi.“ Eva Gunnarsdóttir nemandi í Tölvu- og rekstrarnámi 1999 Tölvu- og rekstrarnám hjá Rafiðnaðarskólanum Fyrir þá sem vilja ná árangri Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · www.raf.is Afmælisþakkir Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig á 90 ára afmæli mínu, 3. janúar síðastliðinn, með heimsóknum, gjöfum og skeytum. Guð blessi ykkur öll. Bergþóra Þorsteinsdóttir. KYNNING á stefnu og starfi Guðspekifélagsins laugardaginn 11. janúar kl. 15 í húsi félagsins að Ingólfsstræti 22. Guðspekifélagið er 128 ára félags- skapur, sem helgar sig andlegri iðkun og fræðslu. Félagið byggir á skoðana og trú- frelsi ásamt hugsjóninni um bræð- ralag alls mannkyns. Starfsemi félagsins fer fram yfir vetrartímann og felst m.a. í opinber- um erindum, opnu húsi, námskeið- ahaldi, námi og iðkun. Einnig býður bókaþjónusta þess mikið úrval sölubóka og bókasafnið bækur til útláns fyrir félaga. Íslandsdeild félagsins býður áhuga- fólki um andleg mál að kynnast starfi félagsins. Einkunnarorð félagsins eru: „Engin trúarbrögð eru sannleik- anum æðri.“ www.gudspekifelagid.is Hugræktarnámskeið Guðspeki- félagsins hefst fimmtudaginn 16. janúar kl. 20.30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.