Morgunblaðið - 31.01.2003, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 12. kl. 5.30 og 9.30. Sýnd kl. 5 og 8. B.i.12.
„Turnarnir gnæfa yfir bestu
myndir ársins“
SV. MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
YFIR 85.000 GESTIR
STEVEN SEGAL MORRIS CNESTNOT AND JA RULE
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. B.i.16 áraSýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Hrikalega flottur
spennutryllir
með rapparanum
Ja Rule og
Steven Seagal
Frábær ævintýra og spennumynd fyrir alla fjölskylduna
Sýnd kl. 8 og 10.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Suma vini losnar þú ekki
við...hvort sem þér líkar betur eða
verr
Frábær gamanmynd um tvær vinkonur sem
hittast aftur eftir 20 ár. Með Óskarsverð-
launaleikkonunum Goldie Hawn og Susan
Sarandon ásamt hinum frábæra
Óskarsverðlaunahafa Geoffrey Rush.
GRÚPPÍURNAR
Frábær mynd frá
leikstjóra
L.A.Confidential
þar sem
rapparinn
EMINEM fer á
kostum í sínu
fyrsta hlutverki.
Kvikmyndir.com
HJ. MBL
Radio X
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 B.i. 14.
Frábær ævintýra og spennumynd
fyrir alla fjölskylduna
KÁTT Á HJALLA
Í HAFNARBORG!
Þessir bráðskemmtilegu tónleikar Tríós Reykjavíkur,
Sigrúnar Hjálmtýsdóttur og Bergþórs Pálssonar
hafa slegið í gegn fyrir vandaðan flutning, glens
og gaman. Vegna anna listamannanna verða
tónleikarnir aðeins endurteknir einu sinni enn
í Hafnarborg sunnudagskvöldið 3. feb. kl. 20.
Missið ekki af
þessari einstæðu skemmtun!
Miðasala frá kl. 10-17 í Hafnarborg
eða í síma 555 0080.
LOFTKASTALINN var sneisafullur
af aðdáendum jaðarvænnar tónlistar
í gær; rapp-, raf- og rokkaðdáendur
hylltu sitt fólk þegar afhending tón-
listarverðlauna Radio X og Undir-
tóna fór fram í fyrsta skipti. Mark-
miðið með verðlaununum er að styðja
hressilega við bakið á svokallaðri jað-
artónlist, tónlist sem mikil gróska
hefur verið í að undanförnu að mati
aðstandenda.
Þeir sem fram komu á hátíðinni
voru Brain police, Singapore Sling og
Call him mr. Kid, Vínyll, Sigurjón
Kjartansson, Ensími ásamt Rottweil-
er og Botnleðja. Kynnir var Einar
Örn Benediktsson og afhentu ýmsir
boðberar fagnaðarerindisins verð-
launin, t.a.m. Frosti Logason af X-
inu, Ísar Logi frá Undirtónum, Árni
Matt. frá Morgunblaðinu og Robbi
Kronik, rapphundur með meiru.
Fóru leikar þannig að hljómsveit
ársins 2002 var valin Quarashi og
jafnframt áttu þeir félagarnir mynd-
band ársins („Stick ’Em Up“) og
plötu (Jinx).
Lag ársins var valið „Jacuzzi Suzy“
með rokksveitinni Brain Police og
var hún einnig valin bjartasta vonin.
Þá var söngvari sveitarinnar, Jens
Ólafsson, valinn söngvari ársins.
Hipphopp-plötu ársins áttu XXX
Rottweiler (Þú skuldar) en besta lag-
ið átti Móri, „Atvinnukrimmi“. Móri
var og valinn rappari ársins. Plötu-
snúður ársins er DJ Sóley og raftón-
list ársins var flutt af GusGus. Þor-
steinn Hreggviðsson (Þossi) fékk þá
sérstök heiðursverðlaun og viðburð-
ur ársins í fyrra var valinn Iceland
Airwaves.
Quarashi sterkir
Bjartasta vonin var valin hljóm-
sveitin Brain Police en sveitin lét
ekki þar við sitja heldur hampaði
einnig verðlaunum fyrir lag ársins
og söngvara ársins.
Morgunblaðið/Jim Smart
Quarashi-félagar sigurreifir eftir að hafa sópað til sín verðlaunum fyrir að
vera hljómsveit ársins, fyrir myndband ársins sem og plötu ársins.
Besti plötusnúðurinn, DJ Sóley, þakkar fyrir sig og veifar til viðstaddra.
Tónlistarverðlaun Radio X og Undirtóna afhent í gær