Morgunblaðið - 07.02.2003, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003 11
Útsala
afsláttur
70%
allt a›
Girnilegar tilboðskörfur á
500 kr., 1.000 kr. og 1.500 kr.
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
00
17
0
2/
20
03
STJÓRN Gjafa- og styrktarsjóðs
Jónínu S. Gísladóttur hefur ákveð-
ið að verja árið 2003 rúmum 50
milljónum króna í þágu hjarta-
lækninga á Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi. Þetta fé kemur til við-
bótar um 80 milljóna króna
framlagi sjóðsins til hjartalækn-
inga síðan stofnað var til hans í
júlí 2000.
Jónína S. Gísladóttir er ekkja
Pálma Jónssonar í Hagkaupum og
var sjóðurinn stofnaður með 200
milljóna króna framlagi hennar
auk þess sem hún hefur styrkt
sjóðinn enn frekar um 17 milljónir
króna. Meginhlutverk sjóðsins er
að efla hjartalækningar á Land-
spítala - háskólasjúkrahúsi, segir í
fréttatilkynningu. Á árinu 2003
styrkir sjóðurinn eftirtalin verk-
efni:
Í fyrsta lagi var fyrir tilstuðlan
sjóðsins keypt nýtt hjartaþræðing-
artæki fyrir Landspítala - háskóla-
sjúkrahús árið 2000 og var það
tekið í notkun í ágúst 2001. Sjóð-
urinn hefur lagt fram 40 milljónir
króna vegna kaupanna, þar af 10
milljónir króna nú sem er jafn-
framt lokagreiðsla vegna kaupa á
tækinu.
Í annan stað eru lagðar fram
12,5 milljónir króna til að koma á
fót göngudeild fyrir hjartasjúk-
linga.
Í þriðja lagi eru lagðar fram 15
milljónir króna til kaupa á raflíf-
eðlisfræðibúnaði til rannsókna og
meðferðar á hjartsláttartruflunum.
Í fjórða lagi leggur sjóðurinn
fram allt að 12,5 milljónir króna af
kaupverði nýs ómtækis fyrir
hjartaskurðlækningadeild.
Loks ver Gjafa- og styrktarsjóð-
ur Jónínu S. Gísladóttur 17 millj-
ónum króna sérstaklega til kaupa
á viðbótar vöktunarbúnaði á
hjartalækningadeild spítalans.
Í stjórn Gjafa- og styrktarsjóðs
Jónínu S. Gísladóttur eru synir
hennar, Sigurður Gísli og Jón
Pálmasynir, Helgi V. Jónsson hrl.
og löggiltur endurskoðandi, Magn-
ús Pétursson forstjóri Landspítala
- háskólasjúkrahúss og Guðmund-
ur Þorgeirsson sérfræðingur í
hjartalækningum, skipaður í sam-
ráði við framkvæmdastjórn spít-
alans.
50 milljónir til
hjartalækninga
Samþykkt stjórnar Gjafa- og styrktarsjóðs Jónínu S. Gísladóttur
TALSVERT verður um barnsfæð-
ingar í Þingeyjarsveit á árinu og
fagnar sveitarstjórn sérstaklega
öllum nýjum einstaklingum. Sveit-
arstjórinn, Jóhann Guðni Reyn-
isson, mun heimsækja alla nýbak-
aða foreldra og óska fjölskyldunum
til hamingju með veglegri gjöf, þ.e.
mörgum bleiupökkum handa ný-
burunum. Þessari nýbreytni í Þing-
eyjarsveit hefur verið vel tekið, en
nýlega heimsótti Jóhann Guðni
hjónin á Kambsstöðum, þau Hauk
Þórhallsson og Guðrúnu Gunn-
arsdóttur, sem eignuðust sitt fjórða
barn, Ingu Maríu, og færði þeim
heilan stafla af bleiupökkum. Þá
heimsótti hann einnig hjónin á
Fornhólum, þau Ingvar Olsen og
Hólmfríði Sigurðardóttur, sem
eignuðust tvíburadæturnar Unni og
Árnýju. Svo skemmtilega vill til að
þessar þrjár ungu meyjar fæddust
allar sama daginn. Hjá þessu fólki
þáði sveitarstjórinn kaffi og með-
læti að sveitasið og var gestkoman
vel þegin.
Í Þingeyjarsveit eru íbúar 728
talsins og miklar vonir eru bundnar
við að byggðin eflist við sameiningu
Bárðdælahrepps, Reykjadæla-
hrepps, Hálshrepps og Ljósavatns-
hrepps, enda margt á döfinni í
þessu nýja sveitarfélagi.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Jóhann Guðni Reynisson með fang-
ið fullt af bleiupökkum handa
ungum íbúum Þingeyjarsveitar.
Nýburar
fá marga
bleiupakka
að gjöf
Þingeyjarsveit. Morgunblaðið.
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur í tilefni af skýrslu Láru
V. Júlíusdóttur, setts sak-
sóknara um Geirfinnsmálið
svonefnda, ritað ríkissaksókn-
ara bréf þar sem vakin er at-
hygli á nýjum upplýsingum er
varða atriði sem ekki féllu
undir rannsókn hans. Er það
gert með vísan til þess að rík-
issaksóknari er lögum sam-
kvæmt æðsti handhafi ákæru-
valds í landinu og það sé í
hans höndum að meta hvort
tilefni sé til frekari rannsókn-
ar.
Bogi Nilsson ríkissaksókn-
ari segist hafa fengið skýrsl-
una í hendur og að nú verði
farið yfir efni hennar. Hann
segir ekki liggja fyrir hvenær
mat hans á því hvort tilefni sé
til frekari rannsóknar muni
liggja fyrir en segist þó
vænta þess að sú vinna muni
ekki taka langan tíma.
Skýrslan
komin til
ríkissak-
sóknara