Morgunblaðið - 07.02.2003, Page 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMKVÆMDIR við niðurrif
hússins að Stakkahlíð 17 voru stöðv-
aðar samkvæmt úrskurði úrskurðar-
nefndar skipulags- og byggingar-
mála sl. föstudag á meðan umdeilt
byggingarleyfi, sem heimilar bygg-
ingu tvílyfts fjölbýlishúss með 10
íbúðum, væri til meðferðar hjá
nefndinni. Forsenda úrskurðarins er
sú að birting auglýsingar á breyttu
aðalskipulagi á svæðinu, sem sam-
kvæmt lögum skal vera ákvörðun um
byggingarleyfi til grundvallar, hafði
ekki birst í Stjórnartíðindum í tæka
tíð. Skipulags- og byggingarnefnd
afturkallaði byggingarleyfið sam-
kvæmt úrskurðinum á fundi sínum á
þriðjudag en gaf leyfið út aftur á
sama fundi.
Sjálfstæðismenn telja
óánægju íbúa réttmæta
Íbúar í Bogahlíð höfðu krafist
ógildingar byggingarleyfisins, en
samkvæmt því mun rísa íbúðarhús í
stað verslunarhúss en til langs tíma
hefur félagsheimilið Drangey verið
til húsa í Stakkahlíð 17. Hafa íbú-
arnir m.a. mótmælt hæð hússins sem
mun rísa, að ekki hafi legið fyrir
deiliskipulag áður en byggingarleyf-
ið var veitt í október á síðasta ári og
að niðurrif hafi hafist áður en kæra
þeirra hafi verið tekin fyrir í úr-
skurðarnefnd skipulags- og bygg-
ingamála.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks
greiddu atkvæði gegn því að bygg-
ingarleyfið yrði samþykkt að nýju og
hörmuðu málsmeðferðina á fundi
skipulags- og byggingarnefndar.
„Við höfum ítrekað lýst yfir and-
stöðu við þessa framkvæmd,“ sagði
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, í samtali
við Morgunblaðið. „Við lýstum einn-
ig yfir andstöðu á fundinum vegna
málsmeðferðarinnar. Mistökin sem
leiddu til ógildingar byggingarleyf-
isins eru til þess fallin að gera málið
enn verra og auka enn frekar á
óánægju íbúanna sem við teljum
réttmæta.“
Hanna Birna segir að þar sem
byggingarleyfið hafi verið endurnýj-
að verði íbúarnir sem kærðu upphaf-
lega byggingarleyfið að kæra á nýj-
an leik vilji þeir halda málinu áfram.
Ekki hefur skort á
kynningu, segir R-listinn
Fulltrúar R-listans sögðust í bók-
un sinni á fundi skipulags- og bygg-
ingarnefndarinnar harma að málið
hafi farið á þann veg sem fram kem-
ur í úrskurði úrskurðarnefndarinn-
ar. Því sé hins vega alfarið hafnað að
skort hafi á kynningu og samráð við
hagsmunaaðila í málinu. Auk
tveggja ítarlegra grenndarkynninga
hafi verið haldnir fundir með hags-
munaaðilum. Samráð við íbúana hafi
orðið til þess að gerbreyta tillögum
að húsinu hvað varðar hæð, staðsetn-
ingu hússins á lóðinni, fjarlægðir frá
nærliggjandi húsum auk þess sem
bílastæðum hefur verið komið fyrir
neðanjarðar o.fl.
Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála stöðvaði niðurrif Stakkahlíðar
Hlíðar
Morgunblaðið/Þorkell
Búið er að rífa niður milliveggi og innréttingar í húsinu í Stakkahlíð 17 en framkvæmdir við niðurrif hafa legið
niðri síðan um áramót. Byggingarleyfi fyrir tveggja hæða nýbyggingu hefur nú verið gefið út að nýju.
Byggingarleyfið fellt úr
gildi en veitt að nýju
SKIPULAGS- og byggingarnefnd
Reykjavíkur hefur fallist á að deili-
skipulagi fyrir veitingahúsið Kaffi
Nauthól í Nauthólsvík verði breytt
þannig að hægt verði að stækka
veitingahúsið. Þá eru einnig uppi
hugmyndir um að byggja hótel á
svæðinu í tengslum við ylströndina
en málið er enn til meðferðar hjá
skipulags- og byggingarnefnd.
Í greinargerð Lyngbergs sem
rekur Kaffi Nauthól kemur fram að
viðtökur almennings við þjónustu
veitingahússins hafi verið mjög
góðar, en hins vegar sé orðið ljóst
að húsið er of lítið til að anna eft-
irspurn á álagstímum. Hugmyndir
Lyngbergs ganga út á að byggja við
núverandi hús og bæta þannig þjón-
ustu við útivistarfólk á svæðinu. Þá
eru einnig uppi hugmyndir um að
byggja hótel á lóð gömlu „transit“
hótelanna og reka það samhliða yl-
ströndinni.
„Hótel með ylströnd í höfuðborg
Íslands norður við heimskautsbaug,
mun að öllum líkindum vekja al-
þjóðlega athygli og hafa mikið að-
dráttarafl fyrir ferðamenn,“ segir í
greinargerð Lyngbergs sem lögð
var fyrir skipulags- og bygging-
arnefnd. Á hótelinu yrði að sögn
Lyngbergs lögð áhersla á útivist og
hreyfingu auk þess sem spennandi
væri að sjá hvort möguleiki væri á
tengslum við flug og siglingar.
Stærð hótelsins þyrfti að mati
Lyngbergs að vera um 100 herbergi
í fyrsta áfanga með möguleika á
stækkun í 200 herbergi síðar.
Morgunblaðið/Golli
Breytt skipulag og
stækkun Nauthóls
Nauthólsvík
ENN eitt aðsóknarmetið var sleg-
ið í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum í janúar síðastliðnum. Þá
sóttu 4.388 gestir garðinn og féll
gamla janúarmetið sem var frá
árinu 1997 þegar gestir voru
4.156.
Á síðasta ári voru tvö ný að-
sóknarmet sett þegar metfjöldi
heimsótti garðinn í október- og
desembermánuðum. Leiða má lík-
ur að því að tíu ára afmæli nauts-
ins Guttorms og einmuna veð-
urblíða hafi haft áhrif á
aðsóknina. Þá eru margir gest-
anna áhugasamir um hvernig
storkinum Styrmi reiðir af en
hann dvelur nú í garðinum.
Morgunblaðið/RAX
Húsdýragarðurinn
Aldrei
fleiri gestir
í janúar
Laugardalur
STEFNT er að því að birta gagn-
virk gönguleiðarkort og bæjarkort
á vef Garðabæjar með vorinu.
Bæjarráð hefur samþykkt að
semja við fyrirtækið Teikn á lofti,
um gerð kortanna. Tvö kort verða
sett á vefinn, gönguleiðarkort sem
nær yfir allt land Garðabæjar og
götukort af bænum. Gert er ráð
fyrir að hægt verði að skoða kortin
á skjánum og prenta þau út. Þá
verður hægt að nálgast upplýs-
ingar um merka staði með því að
smella á þá á kortunum.
Gagnvirk göngukort
af bænum í smíðum
Garðabær