Morgunblaðið - 07.02.2003, Side 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003 19
Í SUÐURSTOFUM Minjasafnsins á
Akureyri hefur verið opnuð sýning
á brúðum Guðbjargar Ringsted og
stendur hún fram til 15. september
2003.
Guðbjörg er myndlistarmaður á
Akureyri og hefur lengi safnað
leikföngum, einkum dúkkum.
Sá áhugi hennar vaknaði þegar
hún rakst inn á fornsölu þar sem
voru ýmis barnaleikföng sem
minntu á gamla daga. Nokkru síð-
ar skoðaði hún leikfangasafn í
Finnlandi og síðan hefur draum-
urinn verið að opna slíkt safn og
söfnunin miðast að því að það geti
orðið að veruleika.
Brúður Guðbjargar hafa verið á
sýningu í Hafnarfirði og bangsa-
safn hennar á Amtsbókasafninu á
Akureyri. Brúðurnar skipta nú
orðið hundruðum og þeim fylgja
munir sem prýða hvert mynd-
arlegt dúkkuhús.
Við söfnunina hefur Guðbjörg
fyrst og fremst í huga leikföng
sem segja sögu, dúkkur sem börn
hafa leikið sér að og leitað trausts
hjá.
Hún setur ekki fyrir sig þó
dúkkurnar beri þess einhver
merki í útliti.
Sýningin verður opin á laug-
ardögum kl. 14–16 fram til 1. júní
og aðra daga eftir samkomulagi.
Frá 1. júní til 15. september verð-
ur hún opin alla daga kl. 11–17.
Guðrún Kristinsdóttir, safnvörður á Minjasafninu, Guðbjörg Ringsted og
Margrét Björgvinsdóttir, starfsmaður safnsins, skoða brúðusafn Guð-
bjargar, en opnuð hefur verið sýning á brúðum hennar í safninu.
Dansi, dansi dúkkan mín
kvæmdaáætlunar í fráveitumálum
hófst árið 1990 en bæjarstjórn sam-
þykkti tillögur um skipulag fráveitu-
kerfis í apríl 1993. Byggðar hafa ver-
ið dælustöðvar meðfram
strandlengjunni, frá Aðalstræti í
suðri að Glerá í norðri ásamt tilheyr-
andi aðrennslis- og þrýstilögnum en
eftir er að byggja dælustöðvar við
Glerárósa og í Krossanesi.
Fyrirtækið Norðurtak ehf. er að
vinna að gerð grjótvarnagarðsins í
Sandgerðisbót en fyrirtækið átti
lægsta tilboð í verkið; „grjótvörn
Glerá - Sandgerðisbót og Krossa-
nesi“. Norðurtak bauðst til að vinna
verkið fyrir 35,5 milljónir króna, sem
er rúmlega 77% af kostnaðaráætlun.
GV Gröfur ehf. vinna við lagningu
fráveitu frá Glerá í Sandgerðisbót.
Fyrirtækið bauð um 17,3 milljónir
króna í verkið, sem er aðeins 54% af
kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á
32 milljónir króna.
ÞESSA dagana er verið að vinna að
fráveitumálum á Akureyri. Vinna við
lagningu þrýstilagnar niður með
Glerá að vestan, frá brúnni við Hjalt-
eyrargötu og út í Sandgerðisbót er
að fara í gang og norðan við smá-
bátahöfnina í Sandgerðisbót er verið
að byggja grjótvarnargarð. Áður var
búið að leggja grjótvarnargarð með
Gleránni til að verja lögnina. Í Sand-
gerðisbót verður svo fyllt upp innan
við grjótgarðinn og byggð þar skólp-
hreinsistöð á næstu árum.
Jónas Vigfússon, verkefnastjóri á
framkvæmdadeild bæjarins, sagði
að þegar þessi skólplögn verður
tilbúin í vor, yrði allt skólp komið
vestur fyrir Glerá og að það væri
vissulega stór áfangi. Í framtíðinni
verður svo hreinsuðu skólpi frá
væntanlegri hreinsistöð í Sandgerð-
isbót dælt út á um 40 metra dýpi um
500–600 metra langa útrás.
Undirbúningur að gerð fram-
Allt skólp
vestur fyrir Glerá
með vorinu
Morgunblaðið/Kristján
Unnið að gerð grjótvarnargarðs í Sandgerðisbót. Fyllt verður upp innan
við garðinn og þar byggð skólphreinsistöð á næstu árum.
Unnið við fráveitumál á Akureyri
frá Íslenskum aðalverktökum, ISS á
Íslandi og Landsafli. Gunnlaugur
sagði að sú ákvörðun að hafna tilboð-
unum kæmi ekki á óvart, miðað við
það sem á undan er gengið. Sigfús
sagði einnig að niðurstaðan kæmi sér
ekki á óvart. „Það hefur verið ákveð-
inn málatilbúningur í gangi undan-
farnar vikur og við sáum að hann var
undanfari þessarar ákvörðunar. En
við erum algjörlega ósammála þessari
niðurstöðu,“ sagði Sigfús.
Útboð úrskurðað ógilt
Tilboð beggja tilboðsgjafa fóru fyr-
ir kærunefnd útboðsmála, sem úr-
skurðaði tilboð ÍAV og samstarfsaðila
í bygginguna ógilt. Hins vegar úr-
skurðaði kærunefndin tilboð Ístaks
og Nýsi gilt. Menntamálaráðherra
sagði í Morgunblaðinu í gær að nefnd
um byggingu hússins hefði farið yfir
málið og endurmetið tilboð Ístaks og
Nýsis. Niðurstaða nefndarinnar hefði
verið að tilboð fyrirtækjanna uppfyllti
ekki markmið útboðsins hvað varðar
verð og gæði og að verulegir ann-
markar væru á þeirri lausn sem til-
boðið byggðist á.
Sigfús sagði að þessi sama nefnd
hefði metið tilboðið gilt í upphafi. „Til-
boð okkar er 13% ódýrara en hitt til-
boðið en þar er ekki verið að bjóða
vandaðra byggingarefni eða vandaðri
þjónustu en við bjóðum. Maður fer að
velta því fyrir sér hvort útgjöld rík-
isins skipti engu máli. Er það ekki
hlutverk þeirra sem stjórna hjá ríkinu
að fara vel með fjármuni þess? Ég er
heldur ekkert viss um að það sé lög-
legt hjá þeim að gera þetta með þess-
um hætti. Það eru dómstólar eða
kærunefnd sem geta úrskurðað um
lögmæti þess að hafna tilboðinu,“
sagði Sigfús.
Upphaflega stóð til að hefja fram-
kvæmdir við byggingu hússins sl.
sumar og ljúka þeim næsta haust.
Gert er ráð fyrir að útboðsferlið fram
undan taki um tvo mánuði.
SIGFÚS Jónsson, framkvæmdastjóri
Nýsis, sagðist afar ósáttur með þá
niðurstöðu að tilboði Nýsis og Ístaks í
byggingu rannsókna- og nýsköpunar-
húss við Háskólann á Akureyri skyldi
hafnað og að ákveðið hefði verið að
bjóða verkið út að nýju. Sigfús sagði
að rökstuðningur fyrir þeirri ákvörð-
un væri afar fátæklegur. Hann sagði
að ekki hefði verið tekin ákvörðun um
það hvort fyrirtækin tvö myndu bjóða
í verkið að nýju. „Við eigum eftir að
ráða ráðum okkar með lögfræðingi
varðandi framhaldið.“
Gunnlaugur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Íslenskra
aðalverktaka, ÍAV, sagði að ekki hefði
borist formlegt erindi frá Ríkiskaup-
um varðandi nýtt útboð en hann sagð-
ist þó gera ráð fyrir að boðið yrði í
verkið að nýju. „Við tökum þátt í öll-
um útboðum sem okkur er boðið að
vera með í og við eigum mjög gott hús
sem við getum boðið.“
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
í gær hefur Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra ákveðið að
hafna tilboðunum sem bárust í fram-
kvæmdina og bjóða verkið út að nýju
síðar í þessum mánuði. Tvö tilboð bár-
ust í byggingu hússins á síðasta ári að
undangengnu lokuðu forvali, annars
vegar frá Ístaki og Nýsi og hins vegar
Framkvæmdastjóri Nýsis um nýtt útboð húss HA
Rökstuðningurinn
afar fátæklegur
Tónleikar verða í Kompaníinu,
félagsmiðstöð ungs fólks á
Akureyri, í kvöld, föstudag 7.
febrúar. Fram koma Brain
police og Ensími.
Í DAG
OA-samtökin á Akureyri verða
með opinn kynningarfund laug-
ardaginn 8. febrúar. OA-sam-
tökin eru samtök fólks sem á við
mataróreglu af öllu tagi að
stríða. Á fundinum munu tveir
OA-félagar segja sögu sína. Allir
velkomnir. Fundurinn verður
haldinn kl. 15 í sal í kjallara
Glerárkirkju, gengið inn að
norðan. Einnig er bent á heima-
síðu samtakanna www.oa.is.
Danssýning verður í Deiglunni,
Listagili á morgun, laugardag-
inn 8. febrúar, kl. 17 til 18. Alma
Dís, safnafulltrúi Listasafnsins á
Akureyri, sér um tónlist.
Á MORGUN
Síðasta sýningarhelgi á sýning-
unni „Veiðimenn í útnorðri“,
sem staðið hefur í Ketilhúsinu,
er nú um komandi helgi, en
henni lýkur á sunnudag, 9. febr-
úar. Sýningin er sögulegt sjón-
arspil sett saman af færeyska
listamanninum Edward Fuglö.
Um tvö þúsund börn á Akureyri
hafa sótt sýninguna auk fjölda
fullorðinna.
Á NÆSTUNNI
landsflugs á mánudögum og
fimmtudögum og verður Boeing
757-200 þota félagsins notuð en hún
tekur um 170 manns. Flogið verður
frá Akureyri um hádegi og komið
síðdegis til Kaupmannahafnar og
sagði Hólmar að ferðalangar gætu
því tekið tengiflug þaðan nánast
hvert sem væri.
Hólmar sagði að óljóst væri á
þessari stundu upp á hvaða verð fé-
lagið byði. „Menn verða auðvitað að
spila með á þeim verðum sem eru í
boði á markaðnum hér og forsvars-
menn Grænlandsflugs gera sér
grein fyrir því að hér er að minnsta
kosti tímabundinn slagur um þessar
mundir,“ sagði Hólmar. Hann benti
STJÓRN Grænlandsflugs sam-
þykkti í gær að ganga til samninga
um beint áætlunarflug milli Akur-
eyrar og Kaupmannahafnar og er
gert ráð fyrir að fyrsta flug milli
staðanna verði 28. apríl næstkom-
andi. Atvinnuþróunarfélag Eyja-
fjarðar hefur unnið að þessu máli
um nokkurt skeið eða frá því í des-
ember 2000 að sögn Hólmars
Svanssonar framkvæmdastjóra
þess. „Það eru nokkur tæknileg mál
eftir en stjórn félagsins hefur
ákveðið að af þessu verði,“ sagði
Hólmar.
Stefnt er að því að flogið verði
tvisvar í viku milli Akureyrar og
Kaupmannahafnar á vegum Græn-
á að lág fargjöld sem nú stæðu til
boða nýttust landsbyggðarfólki ekki
að sama skapi og höfuðborgarbúum,
því leggja þyrfti í umtalsverðan
kostnað við að koma sér suður til
Keflavíkur.
„Við treystum á heimamarkaðinn
þetta árið, svona á meðan verið er
að byggja þessa leið upp, en þetta
er svo nýtt að enn er ekki farið að
auglýsa þennan ferðamáta úti í
Danmörku,“ sagði Hólmar. Hann
sagði flugið opna marga möguleika
fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi.
„Þetta er stórkostlegt tækifæri og
gaman að þetta mál skuli nú í höfn
eftir langan undirbúning,“ sagði
Hólmar.
Beint áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar
Flogið tvisvar í viku
frá og með vorinu
www.islandia.is/~heilsuhorn
Kelp
Fyrir húð, hár og neglur
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
Námskeið til aukinna ökuréttinda hefst á Akureyri
föstudaginn 14. feb.
Ath.: Sum stéttarfélög veita félagsmönnum námsstyrk.
Innritun og upplýsingar Hreiðar Gíslason s. 892 0228 og 462 1141
og Kristinn Örn Jónsson s. 892 6133 og 462 2350
Aukin ökuréttindi