Morgunblaðið - 07.02.2003, Side 38

Morgunblaðið - 07.02.2003, Side 38
MINNINGAR 38 FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigfús ArnarÓlafsson fæddist 13. mars 1941 í Gröf á Höfðaströnd í Skaga- firði. Hann lést á líkn- ardeild Landspítalans í Kópavogi 30. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ólafur Jóns- son bóndi í Gröf, f. 24. sept. 1898, d. 16. júní 1966, og Svanhildur Sigfúsdóttir húsfreyja, f. 15. okt. 1908, d. 29. maí 1996. Systkini Sig- fúsar eru: 1) Jón tann- læknir í Kópavogi, f. 1938, kvæntur Ingu Svövu Ingólfs- dóttur viðskiptafræðingi, f. 1943, dóttir þeirra er Hildur Karítas doktorsnemi í málvísindum, 2) Sig- ríður starfsmaður í Skógarbæ, f. 1943, gift Þóri Hjálmarssyni sölu- manni, f. 1943, sonur þeirra er Ólaf- ur menntaskólanemi. 3) Edda Jón- ína, dr. í barnalækningum við Haukeland-sjúkrahúsið í Bergen, f. 1954, gift Hafliða Hafliðasyni dr. í jarðfræði, prófessor við Háskólann í Bergen, f. 1953. Börn þeirra eru Svanhildur læknanemi, Hafliði Arnar menntaskóla- nemi og Ólafur Ein- ar nemi. Sigfús varð bú- fræðingur frá Bændaskólanum á Hólum 1959, búfræ- ðikandidat frá Bún- aðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1965 og licentiat í jarðvegsfræði frá sama skóla 1974. Sigfús varð cand. med. frá HÍ 1984 og sérfræðingur í heim- ilislækningum frá Vara og Lidköbing í Svíþjóð 1990. Sigfús starfaði m.a. sem kennari á Hólum og við Bændaskólann á Hvanneyri og jarðfræðiráðunaut- ur hjá Búnaðarfélagi Íslands. Eft- ir sérfræðinám í læknisfræði var hann heilsugæslulæknir á Hólma- vík til haustsins 2001 er hann varð heilsugæslulæknir á Blönduósi. Útför Sigfúsar verður gerð frá Digraneskirkju í Kópavogi í dag og hefst athöfnin klukkan 16. Jarðsett verður í heimagrafreit í Gröf síðar. Fyrstu kynni mín af Sigfúsi var sumarið 1996 þegar ég kom sem nýútskrifaður læknir að leysa hann af á Heilbrigðisstofnun Hólmavík- ur. Þar hafði Sigfús hafið störf sumarið 1991 og vann þar í tíu ár eða til ársins 2001 þegar hann fékk læknastöðu á Blöndósi sem var nær hans heimahögum. Á þessum árum hef ég leyst hann af við nokkur tækifæri og kynntist því störfum hans sem læknis vel. Aðdáunarvert þótti mér hversu vel hann sinnti sínu læknishéraði en læknishérað Hólmavíkur nær yfir stórt land- svæði en Sigfús lét það ekki aftra sér við vitjanir til sjúklinga að þurfa ferðast með sérútbúnum fjallajeppum, snjósleða eða bara á gönguskíðum ef færðin bauð ekki upp á annað. Sigfús var með ein- dæmum rólegur og nægjusamur maður og bjó án alls íburðar. Ekki fór mikið fyrir honum en hann áorkaði þó miklu og má þar sér- staklega nefna hversu vel hann náði að virkja bæjarbúa til íþróttaiðk- unar og þannig forvarna. Það gerði hann fyrst og fremst með eflingu golfíþróttarinnar yfir sumartímann og gönguskíðaiðkunar á veturna. Sigfús var drifkrafturinn í stofnun golffélags og byggingu golfvallar á Hólmavík, sem hann hannaði sjálf- ur. Mikill var því missir Stranda- manna þegar hann hætti störfum þar fyrir tveimur árum og varð ég vör við óöryggi hjá skjólstæðingum Heilbrigðisstofnunarinnar þegar þeir leituðu þangað eftir það. Framtíðin var ótrygg með engan Sigfús á svæðinu. Ég vil votta aðstandendum Sig- fúsar og fyrrum samstarfsfólki hans á Heilbrigðisstofnun Hólma- víkur samúð mína yfir ótímabæru fráfalli hans. Anna Gunnarsdóttir. Við lát Sigfúsar föðurbróður míns sópast að mér minningar allt frá því að ég var lítil stelpa í pössun hjá ömmu minni, en þau Sigfús héldu heimili saman, og til hins hinsta er ég kvaddi hann síðasta kvöldið hans hér á jörðu. Þótt Sigfús hafi verið ókvæntur og barnlaus átti hann samt mikið í okkur systkinabörnum sínum, reiðubúinn hvenær sem var að gera okkur allt til hæfis. Þegar ég var yngri var hann alltaf fús að kenna og leiðbeina og finna mér eitthvað til dundurs. Það var mjög eftir- sóknarvert að fá að gista hjá ömmu og Sigfúsi um helgar og ég hafði oftast skólatöskuna með, því hann var alltaf tilbúinn að hjálpa mér ef á þurfti að halda. Gröf var sveitin hans Fúsa og þar var ég með honum og ömmu nokkur sumur. Sigfús var þá þegar farinn að byggja framtíðarhúsið sitt í Gröf II og gerði mér vegasalt og rólu úr timburbútum sem til féllu. Hann var svo laginn og út- sjónarsamur og heita mátti að hann byggði sjálfur húsið við annan mann. Þessi sumur voru dýrmætur og skemmtilegur tími þar sem ég átti góðar samverustundir með ömmu og Sigfúsi. Síðar fór hann utan í framhalds- nám í heimilislækningum og flutti eftir heimkomu til Hólmavíkur. Þegar Sigfús kom í heimsókn til höfuðborgarinnar eftir það gisti hann ávallt hjá foreldrum mínum. Hver heimsókn var annarri skemmtilegri og var í nógu að snú- ast við að afla aðfanga í nýja húsið og það eldra sem hann vildi hafa sem ættarsetur. Sigfús hafði sterk einkenni Graf- arættarinnar. Hann var eins og amma mín hörkuduglegur, ósérhlíf- inn og umfram allt ærlegur. Hann hafði afbragðsnámsgáfur og var sí- fellt að grúska í fræðiritum. Þegar Sigfús veiktist fyrir réttu ári af krabbameini hafði hann heimili sitt meira og minna hjá for- eldrum mínum, en gat farið um páskana til Portúgals með Gunnari frænda sínum og Kristínu konu hans og auðnaðist að vera í Gröf nokkuð langan tíma í sumar. Hann bjó þá í sínu húsi, en ættingjar sem dvöldu á ættarsetrinu fylgdust með honum. Pabbi og fleiri ættingjar og vinir fóru oft norður til þess að vinna undir hans stjórn að endur- gerð ættarsetursins og þegar Sig- fús að lokum kom suður, fárveikur, fyrri hluta októbermánaðar var ljóst að hann var kominn til að vera. Í byrjun desember varð Sigfús mjög veikur og lagðist inn á krabbameinsdeild Landspítalans um tíma. Eftir þá innlögn komu alltaf reglulega hjúkrunarfræðing- ar frá heimahjúkrun Krabbameins- félagsins heim til okkar og sinntu honum með mikilli umhyggju og kærleik. Rétt fyrir jólin hresstist Sigfús mjög mikið og við áttum saman yndislegt aðfangadagskvöld og jóladag. En á annan í jólum hrakaði honum mjög og nokkrum dögum síðar fór hann til dvalar á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi. Þar var hlúð að honum af mik- illi natni og fyrir það er fjölskylda Sigfúsar ákaflega þakklát. Systkini og frændsystkini Sigfús- ar voru honum mikill styrkur í veikindum hans. Pabbi fór ávallt með honum á spítalann þegar hann fór í rannsóknir og meðferðir og þegar Sigfús átti erfiðar nætur vaknaði pabbi og hugsaði um hann. Sigga systir hans var honum líka stoð, var oft í sambandi við hann, og Edda yngsta systir hans, sem búsett er í Noregi, sýndi kærleika sinn til bróður síns með tíðum heimsóknum, en hún kom fjórum sinnum til Íslands eftir að hann greindist með krabbameinið og hringdi oft til að tala við hann eða fá fréttir af honum. Það var honum og fjölskyldunni ómetanlegur styrkur. Gunnar og Anna Sigga, frændsystkini Sigfúsar, stóðu líka þétt með honum. Þau voru ákaflega náin alla tíð og hjálpuðu Sigfúsi mikið síðustu mánuðina hans. Ég er Guði þakklát fyrir að hafa fengið að vera samferða svo góðum manni. Blessuð sé minning Sigfúsar Ólafssonar. Hildur Karítas Jónsdóttir. Á legstein þekkts uppeldisfröm- uðar er letrað „Allt fyrir aðra, ekk- ert fyrir sjálfan sig“. Þessi orð gætu eins staðið á legsteini Sigfús- ar Arnars Ólafssonar. Sigfús var um margra ára skeið héraðslæknir og raunar eini lækn- irinn í einu stærsta og erfiðasta læknishéraði á landinu. Þá var hann á vakt allan sólarhringinn allt árið, og ætíð reiðubúinn að sinna sjúklingum sínum. Samgöngur í norðurhluta Strandasýslu voru mjög erfiðar á vetrum, vegir lokaðir um margra mánaða skeið og oft ekki lendandi á flugvöllum. Í nokkur skipti þurfti Sigfús að fara á skíðum eða fót- gangandi yfir fjöll og heiðar til að sinna sjúklingum í nauð. Aldrei heyrðist Sigfús kvarta yfir vinnuá- lagi eða erfiðleikum í starfinu, og þarfir sjúklinganna voru ætíð í fyr- irrúmi fyrir hans eigin þörfum. Sigfús var óvenju vel gerður maður, hann hafði framúrskarandi námshæfileika, lauk tveimur há- skólagráðum bæði í landbúnaðar- fræðum og læknisfræði. Hann var kennari um skeið við búnaðar- skólana að Hólum í Hjaltadal og Hvanneyri í Borgarfirði. Sennilega hafa bóndinn og lækn- irinn togast nokkuð á í huga Sigfús- ar, og dreymdi hann um að sætta þá endanlega með því að setjast að á eigin jörð að Gröf á Höfðaströnd, og hefja þar smábúskap þegar hann kæmist á eftirlaun, jafnvel með nokkurri lausamennsku sem læknir í afleysingum. Þegar við minnumst Sigfúsar nú leita margar minningar á hugann, sameiginlegar ánægjustundir þeg- ar við vorum við nám í Kaupmanna- höfn; dvöl í sumarbústað hans í Sví- þjóð ásamt skoðunarferð til Stokkhólms; ferð með honum í læknisvitjun norður í Trékyllisvík og nú seinast einkar ánægjuleg ferð til Portúgals um seinustu páska. En seinast en ekki síst vilj- um við þakka allar ánægjulegu samverustundirnar í Gröf á Höfð- aströnd bæði í sumarleyfum og í vinnuferðum. Undanfarin tíu ár stóð Sigfús fyrir viðgerð á gamla íbúðarhúsinu í Gröf. Sigfús var mikill verkmaður og laginn smiður og stjórnaði okkur hinum með einstakri lagni og ákveðni. Þegar okkur óx verkið í augum og vildum kalla til fagmenn sagði Sigfús gjarnan: „Við reynum þetta sjálfir“ og það gekk oftast ágætlega undir hans stjórn. Síðastliðið vor spurðum við hann einhverju sinni hvað hann langaði mest til að gera og stungum upp á heimsreisu eða golfferð til Ástralíu, meira í gríni en alvöru. Sigfús svar- aði fálega, en segja má að hann hafi látið verkin tala í stað þess að svara barnalegum spurningum okkar. Hann hófst sem sagt handa síðast- liðið sumar við meiri framkvæmdir í Gröf en flest undanfarin ár. Tvö íbúðarherbergi voru innréttuð í kjallara ásamt baðherbergi, skipt um alla glugga í kjallaranum og stærstu hlöðunni var breytt í íþróttahús. Við höfum oft velt því fyrir okkur hvers vegna hann stóð í þessum framkvæmdum, búinn að fá krabbamein og vissi áreiðanlega vel að hverju stefndi. Þetta var aug- ljóslega ekki gert til að búa í hag- inn fyrir hann sjálfan, heldur miklu fremur fyrir okkur hin sem eftir lif- um. Sigfús var einstaklega traust- SIGFÚS ARNAR ÓLAFSSON Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tegndafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR SIGURÐSSON forstjóri Loftorku Reykjavík, Vonarholti, Kjalarnesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 11. febrúar kl. 13.30. Sæunn Andrésdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Ólafur Jónsson, Sigurveig Sigurðardóttir, Björn Þráinn Þórðarson, Ari Sigurðsson, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Freyr Sigurðsson, Mercedes Berger, Andrés Sigurðsson, Hjördís Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, BJÖRNS GUÐMUNDSSONAR fyrrverandi flugstjóra. Sérstakar þakkir færum við Kjartani Magnús- syni lækni og starfsfólki krabbameinslækn- ingadeildar 11-E, Landspítalanum við Hringbraut fyrir einstaka umönnun og aðhlynningu. Guð blessi ykkur öll. Þorbjörg Guðmundsdóttir, Þórey Björnsdóttir, Jens Kjartanson, Margrét Björnsdóttir, Jón Hrafnkelsson, Guðmundur Ásgeir Björnsson, Sæunn Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN G.Þ. JÓHANNSSON, áður Óðinsgötu 11, Reykjavík, lést á elliheimilinu Grund þriðjudaginn 4. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðviku- daginn 12. febrúar kl. 13.30. Inga Jóhannsson, Guðmundur Kristófersson, Donna Ilumin, JoJo Ilumin, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, NICOLAI GUNNAR BJARNASON, Kirkjuvegi 11, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 25. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum hlýhug og auðsýnda samúð. Ásta Steinunn Gissurardóttir, Steinar Bjarnason, Sólveig Kristinsdóttir, Nicolai Gissur Bjarnason, Svanhildur Einarsdóttir, Hjördís Margrét Bjarnason, Helgi Jóhannsson, Óskar Bjarnason, Guðbjörg Þóra Hjaltadóttir, Skúli Bjarnason, Emilía Dröfn Jónsdóttir, og fjölskyldur. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og út- för elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, bróður, afa, langafa og tengdaföðurs, GUÐNA BALDURS INGIMUNDARSONAR. Kristín Sigmundsdóttir, Ásta Guðnadóttir, Soffía Guðnadóttir, Kristín Elfa Guðnadóttir, Ingimundur Guðnason, Guðni Arnar Guðnason, Valgerður Guðrún Guðnadóttir, systkini, afabörn, langafabarn og tengdabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.