Morgunblaðið - 07.02.2003, Síða 44
ÍÞRÓTTIR
44 FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„Í FRAMTÍÐINNI verða færri
norskir atvinnumenn í knatt-
spyrnu en áður og norsk félagslið
munu eiga í vandræðum með að
selja sína bestu leikmenn,“ segir
Nils Johan Semb, landsliðsþjálfari
Norðmanna, við fréttastofuna P4 í
Noregi og telur að ástandið muni
vara í mörg ár til viðbótar.
„Fjárhagsstaða knattspyrnuliða
í Noregi er verri nú en á und-
anförnum árum og líkist ástand-
inu sem er ríkjandi í Evrópu. Kraf-
an um mikil gæði en lágt verð mun
verða ráðandi og norskir knatt-
spyrnumenn verða undir í þeirri
baráttu,“ segir Semb og hvetur
leikmenn til þess að reyna að ná
góðum árangri í heimalandinu áð-
ur en þeir fari til annarra landa.
„Knattspyrnulið hafa mjög
ákveðnar skoðanir á því hvaða
leikmenn þeir vilja og þeir vilja
aðeins þá bestu,“ bætir Semb við
og fær stuðning frá Per Mathias
Høgmo, þjálfara 21 árs landsliðs
Norðmanna. Hann segir að norsku
félagsliðin og leikmenn hafi rang-
ar hugmyndir um verðlagningu á
norskum leikmönnum og að sínu
mati sé það verð of hátt.
„Evrópsk lið leita eftir ódýrum
leikmönnum og eru flestir þeirra
mun ódýrari en þeir norsku,“ seg-
ir hann og kennir umboðsmönnum
um hvernig staðan er. „Margir
þeirra hugsa aðeins um að ná til
sín sem mestu fé í stað þess að
horfa á heildarmyndina,“ segir
Høgmo.
FÓLK
BJARKI Sigurðsson, handknatt-
leiksmaður með Val, leikur ekki
meira með liðinu á þessari leiktíð
eftir að hann sleit krossbönd í
vinstra hné á dögunum. Þetta er
mikið áfall fyrir Valsmenn, þar sem
Bjarki hefur verið einn af lykilmönn-
um þeirra.
HRAFNHILDUR Skúladóttir
skoraði 7 mörk fyrir Tvis Holstebro
er liðið gerði jafntefli, 23:23, við Vi-
borg í dönsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik í fyrrakvöld. Tvis Holste-
bro er sem fyrr í næstneðsta sæti
deildarinnar. Hrafnhildur er hins
vegar í 7. sæti yfir markahæstu leik-
menn deildarinnar, hefur skoraði 81
mark.
Á heimasíðu þýska handknatt-
leiksfélagsins GWD Minden er
greint frá því að það hyggist fá Dan-
ann Lars Rasmussen, til að koma í
stað Gústafs Bjarnasonar landsliðs-
manns en reiknað er með að hann
flytji heim til Íslands í sumar. Rasm-
ussen leikur með Ajax/Farum í
Danmörku og er markahæsti leik-
maður dönsku úrvalsdeildarinnar.
STEINAR Ege, landsliðsmark-
vörður Norðmanna í handknattleik,
hefur ákveðið að ganga til liðs við
þýska úrvalsdeildarliðið Gummers-
bach. Ege hefur verið á mála hjá
Kiel frá árinu 1999 en þangað fór
hann frá Gummersbach þar sem
hann lék í tvö ár. Ege á að leysa hinn
42 ára gamla Stefan Hecker af hólmi
hjá Gummersbach en þá er einnig
fyrir hjá félaginu Svíinn Jan Stank-
iewicz.
MATS Olsson, aðstoðarlandsliðs-
þjálfari Portúgals í handknattleik,
segist telja að sínir menn eigi að
leggja Norðmenn í undankeppni EM
í handknattleik, en þjóðirnar mætast
í vor. „Síðari leikurinn er á okkar
heimavelli og það tel ég að ráði úr-
slitum,“ segir Olsson en viðurkennir
að Noregur hafi verið sú þjóð sem
hann vildi síst mæta af þeim þjóðum
sem Portúgal gat dregist á móti.
FRAMHERJINN Daniel Fonseca
hefur rift samningi sínum við ítalska
1.deildarliðið Como aðeins þremur
mánuðum eftir að hann samdi við lið-
ið sem berst fyrir sæti sínu á meðal
þeirra bestu á Ítalíu. Fonseca hefur
lítið fengið að spreyta sig með liðinu
en hann var fenginn til liðsins af
Loris Dominissini sem stýrði þá lið-
inu en var sagt upp störfum tveimur
vikum eftir að Fonseca samdi við
Como. Fonseca, er 33 ára og lands-
liðsmaður Úrúgvæ og hefur leikið
ellefu keppnistímabil á Ítalíu.
SIMONE Inzaghi, framherji Laz-
io, varð fyrir því óláni að handar-
brotna þegar hann lenti í samstuði
við Walter Samuel, leikmann Roma,
í leik liðanna í ítölsku bikarkeppn-
inni í knattspyrnu í fyrrakvöld. Inz-
aghi verður frá keppni og æfingum
næstu tvo mánuðina.
einuðu arabísku furstadæmunum.
Um er að ræða kveðjuleik landsliðs-
manns Barein til margra ára,
Khanis Aid. Fregnir herma að leik-
urinn gefi brasilíska landsliðinu
mikið í aðra hönd þar sem fjár-
sterkir aðilar vilja fá liðið og hefur
leiknum því verið frestað þar til
ljóst verður hvað gerist á næstu
FORRÁÐAMENN Heimsmeistara-
liðs Brasilíu í knattspyrnu hafa af-
boðað komu liðsins til Barein hinn
1. apríl nk. af ótta við yfirvofandi
stríðsátök Bandaríkjamanna gegn
Írak. Brasilía hafði þegið boð um að
leika gegn samsettu liði, skipað
leikmönnum frá Barein, Kúveit,
Katar, Óman, Sádi-Arabíu og Sam-
vikum í málefnum Íraka og Banda-
ríkjamanna. Þess má geta knatt-
spyrnusamband Kína hefur komist
að samkomulagi við Brasilíumenn
um að þeir leiki vináttulandsleik
þar í landi í apríl og hafa farið fram
á rúmlega 100 milljónir ísl. kr. fyrir
þann leik. Nú þegar er uppselt á
leikinn sem fram fer í Shanghai.
Brasilíumenn vilja ekki fara til Barein
HINN sænski forseti knattspyrnu-
sambands Evrópu, Lennart
Johansson, gagnrýndi í gær fram-
kvæmd Heimsmeistarakeppni fé-
lagsliða og sagði m.a. að lið frá
Evrópu hefðu lítinn áhuga á að
taka þátt í keppninni. Á þingi hjá
UEFA sagði Johansson að ekki
væri vandamál að skipuleggja slíka
keppni en það væri verra ef flest af
bestu félagsliðum Evrópu hefðu
engan áhuga á að taka þátt. Keppn-
in fór fram í fyrsta sinn árið 2000 í
Brasilíu en næsta keppni á að fara
fram árið 2005. Hinsvegar hafa
styrktaraðilar ekki beðið í bið-
röðum til þess að geta sett fjár-
magn í þessa keppni því að ekkert
varð af keppninni sem fara átti
fram á Spáni árið 2001, þar sem
ekki fengust styrktaraðilar.
Vesturbæingar byrjuðu vel enþegar þeir náðu 17:6 forystu
var eins og þeir héldu að sjálfkrafa
framhald yrði á
góðri byrjun. Svo
var ekki en Tinda-
stóll náði samt ekki
að jafna fyrr en í
lok fyrri hálfleiks. Það var helst
vegna þess að Darrell Flake, sem
dregið hafði vagninn fyrir KR,
meiddist og enginn félaga hans var
tilbúinn til að leiða liðið áfram.
Clifton Cook og Kristinn Friðriks-
son nýttu sér til hins ítrasta fjar-
veru Darrells og skoruðu 23 af 25
stigum Tindastóls í öðrum leik-
hluta.
Þrátt fyrir meiðsli mætti Darrell
til síðari hálfleiks og sem fyrr bar
hann uppi leik KR. Leikurinn var í
járnum og gestirnir yfir, 81:80,
undir lok þriðja leikhluta. Þá kom
að þætti Herberts, sem skoraði tíu
stig á stuttum tíma, og KR náði
öruggri forystu. Tindastólsmenn
reyndu ákaft að jafna en fengu tví-
vegis á sig ruðningsdóm.
„Ég á að taka skotin ef þau bjóð-
ast, það er minn styrkur og stund-
um fer allt ofan í en stundum
ekki,“ sagði Herbert eftir leikinn
en hann skoraði öll sín 23 stig eftir
hlé. „Við byrjuðum af krafti og
náðum góðri forystu en gáfum þá
eftir, það kom deyfð í alla. Við vor-
um samt alltaf sannfærðir um að
vinna leikinn en þetta var alltof
mikið og óþarft basl. Sem betur fer
gerðum við það sem þurfti til að
vinna en það verður að koma meiri
kraftur í liðið ef það ætlar að gera
einhverjar rósir.“ Sem fyrr segir
var Darrell allt í öllu og tók 16 frá-
köst en Baldur Ólafsson átti ágæta
spretti auk þess að Herbert gerði
sitt.
Barátta Tindastóls var góð en
þeir náðu ekki að halda haus síð-
ustu mínúturnar. Clifton, Kristinn,
Michail Antropov og Axel Kárason
voru góðir. Óli Barðdal kom fersk-
ur inná þegar Clifton meiddist og
átti góðan leik en það dugði ekki
til. „Eins og að undanförnu klúðr-
um við leikjum í lokin og dómar
virtust falla KR-megin í lokin. Við
lentum í villuvandræðum svo að við
þurftum að fara í svæðisvörn og
Herbert fékk að skjóta,“ sagði Óli
eftir leikinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Darrell Flake úr KR var ekki á því að láta Óla Barðdal úr Tindastóli handsama knöttinn.
KR slapp fyrir horn
gegn Tindastóli
TVÆR þriggja stiga körfur frá Herberti Arnarsyni rétt fyrir leikslok
þurfti til að kveikja neistann í KR-ingum þegar þeir fengu Tindastól
í heimsókn í gærkvöld. Það dugði til að rífa liðið úr dvala og gest-
irnir frá Sauðárkróki, sem voru komnir í villuvandræði eftir harðan
leik, áttu ekkert svar við því og urðu að sætta sig við 102:92 tap.
Sigur KR, sem var sá sjöundi í röð, skilar liðinu í 2. sæti deild-
arinnar, næst á eftir Grindavík en Tindastóll missti af því að komast
upp um tvö sæti sem kæmi sér vel í úrslitakeppninni.
Stefán
Stefánsson
skrifar
HM fé-
lagsliða
í upp-
námi?
Semb segir norska
leikmenn of dýra