Morgunblaðið - 12.02.2003, Síða 1

Morgunblaðið - 12.02.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 41. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 mbl.is Hver hreppir Óskarinn? Nokkrar frægustu leikkonur Hollywood tilnefndar Fólk 50 Átti erindi við fiðluna Una Sveinbjarnardóttir og Anna Guðný í Ými Menning 23 Eldsnemma í boltann Arnór Guðjohnsen stofnar knattspyrnuskóla Íþróttir 46 GEORGE Tenet, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar (CIA), varaði í gær við hryðjuverkaárás á allra næstu dögum. Sagði hann liggja fyrir upplýsingar sem bentu til að hryðjuverkamenn hygðust standa fyrir árás jafnvel fyrir lok þess- arar viku, en þá lýkur Hajj, helstu trúarhátíð múslima. „Þessar upplýsingar eru ekki tilhæfulaust hjal af hálfu hryðju- verkamanna,“ sagði Tenet, sem í gær vitnaði fyrir nefnd Bandaríkjaþings. „Við höfum ekki áður fengið jafnskýr- ar vísbendingar, og þetta er í samræmi við þekkingu okkar á kenningum al- Qaeda og vitneskju okkar um samsæri sem hreyfingin – þ.e. helstu forystumenn hennar – hafa unnið að um margra ára skeið,“ sagði Tenet. Voru þessar upplýs- ingar ástæða þess að bandarísk yfirvöld gáfu fyrir helgi út skipun um aukinn við- búnað vegna hættu á hryðjuverkum. Tenet sagði vísbendingar um að hryðjuverkamenn hygðust nota geisla- sprengju eða efnavopn við árásina og að flest benti til að árásin myndi eiga sér stað í Bandaríkjunum sjálfum, eða á Ar- abíuskaganum, þ.e. í Sádi-Arabíu, Kúv- eit, Bahrain, Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum, Jemen, Óman eða Katar. Varað við hryðju- verkaárás Washington. AFP. Reuters George Tenet (t.v.) og Robert Mueller, yfirmaður alríkislögreglunnar, í gær. RÍKISSTJÓRNIN ætlast til að 6,3 milljarðar sem hún hyggst verja til aukinna vegaframkvæmda, bygging- ar menningarhúsa og til atvinnuþró- unarverkefna á næstu 18 mánuðum stuðli að atvinnu fyrir hundruð manns og dragi úr slaka í efnahagslíf- inu fram að þeim tíma sem áhrifa af framkvæmdum við stóriðju fer að gæta til fulls. Jafnframt verður um- fangsmiklum vegaframvæmdum sem þegar höfðu verið ákveðnar flýtt. Til að fjármagna stærstan hluta hinna nýju verkefna verða öll hluta- bréf sem ríkið á enn í Búnaðarbanka Íslands, Landsbanka Íslands og Ís- lenskum aðalverktökum seld og á sal- an að skila fimm milljörðum króna. Afgangurinn verður fjármagnaður með fé sem þegar hefur fengist fyrir sölu bankanna. Þetta var samþykkt á ríkisstjórn- arfundi í gærmorgun og af þingflokk- um stjórnarflokkanna. Viðbótarfé til vegagerðar er 4,6 milljarðar, einn milljarður fer til byggingar menning- arhúsa á Akureyri og í Vestmanna- eyjum og 700 milljónir verða settar í atvinnuþróunarátak undir stjórn Byggðastofnunar. Á blaðamannafundi í gær sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra að engin dæmi væru til um svo mikla innspýtingu í efnahagslífið. Bersýni- lega væri ekki um að ræða varanlega efnahagslega aðgerð, heldur skamm- tímaaðgerðir sem féllu mjög vel að stórframkvæmdum á Austurlandi sem þegar hefðu verið ákveðnar. Þær framkvæmdir hæfust ekki af fullum þunga fyrr en eftir 18–24 mánuði og því miðaðist samþykkt ríkisstjórnar- innar við næstu 18 mánuði. „Og reyndar er gert ráð fyrir því að þær verði framþungar, þannig að það verði byrjað eins fljótt á þeim og hægt er vegna skipulags, umhverfis- mats og annarra reglna, útboða og þess háttar,“ sagði Davíð. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sagði að ríkisstjórnin hefði ætíð ætlað að verja hluta af því fjármagni sem fengist vegna einkavæðingar í bankakerfinu til samgöngumála, annarra fram- kvæmda og til menningarhúsa. „Við höfum alllengi verið að bíða eftir réttu tækifæri til að ljúka þessu máli. Nú er rétta tækifærið. Það er farið að gera ráð fyrir miklum framkvæmdum 2005, 2006 og 2007. Og það er slaki í efnahagslífinu um þessar mundir, þannig að nú er rétti tíminn,“ sagði Halldór. Um 6,3 milljarðar til að auka atvinnu í landinu Dragi úr slaka í efnahagslífinu DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra sögðu á blaðamanna- fundi sem haldinn var í Ráðherrabústaðnum í gær að aðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem leggur 6,3 milljarða króna í ýmis verkefni á næstu 18 mán- uðum, miðuðu að því að veita vinnufúsum höndum störf og styrkja efnahagslífið. „Við erum með þessum hætti meðal annars að skila af okkur afskaplega góðu búi þó að við höfum ekki sagt síðasta orðið í þeim efnum. En þetta sýnir á mjög góðan hátt hversu gott bú er hjá Íslend- ingum í dag, að við skulum vera fær um að gera svona hluti,“ sagði Halldór Ásgrímsson. Og Davíð Odsson bætti við: „Að það sé hægt að fara í svona útgjöld án þess að hækka nokkurn skatt, það er að minnsta kosti einsdæmi í sögunni.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg „Án þess að hækka nokkurn skatt“ JIANG Zemin, forseti Kína, greindi Jacques Chirac Frakklandsforseta frá því í gær að Kínverjar styddu hugmyndir Frakka, Þjóðverja og Rússa sem vilja víkka út vopnaeftirlit Sameinuðu þjóð- anna í Írak í stað þess að efna til hernaðar gegn ríkisstjórn Saddams Husseins. Fyrr um daginn hafði ónafngreindur, þýskur embættismaður fullyrt að 11 af 15 ríkjum, sem eiga sæti í öryggisráði SÞ, styddu nú hugmyndir um frekara vopna- eftirlit, þ.á m. þrjú sem hafa neitunar- vald; þ.e. Kína, Frakkland og Rússland. Árangurslaus fundur hjá NATO Sendiherrar aðildarríkja Atlantshafs- bandalagsins (NATO) funduðu í Brussel í gær í því skyni að finna lausn á deilu, sem komin er upp meðal aðildarþjóðanna eftir að Þjóðverjar, Frakkar og Belgar beittu neitunarvaldi gegn virkjun varnarskuld- bindinga NATO til handa Tyrkjum vegna hugsanlegs stríðs við Írak. Enginn ár- angur náðist hins vegar á fundinum, en hann stóð aðeins í 20 mínútur. Annar fundur hefur verið boðaður í dag. Kína styður aukið vopna- eftirlit í Írak Peking, Brussel, Berlín. AFP.  Sögulegt/16 ARABÍSKA sjónvarpsstöðin al-Jazeera lék í gær- kvöldi hljóðupptöku sem sögð er geyma nýtt ávarp frá Osama bin Laden, leiðtoga al-Qaeda- hryðjuverkasamtakanna. Í ávarpinu lýsir bin Laden stuðningi sínum við írösku þjóðina og hvetur múslima hvarvetna til að sameinast og verja írösku þjóðina gegn árás Bandaríkjanna. Þá hvetur hann Íraka til að efna til sjálfs- morðsárása gegn Bandaríkja- mönnum því slíkar árásir hræði þá hvað mest. Bin Laden sagði Bandaríkin nú reyna að þvinga Írak til að lúta vilja sínum. Sagði hann að Írakar mættu vænta loftárása af hálfu Bandaríkjamanna en gaf þeim síðan góð ráð um hvernig best mætti verjast sprengjum Banda- ríkjahers. „Ekki hafa áhyggjur af lygum Banda- ríkjamanna, „snjallsprengjum“ þeirra og leysi- sprengjum; þeir ráðast aðeins gegn auðveldustu skotmörkunum,“ sagði bin Laden. „Besta leiðin til að verjast loftárásum þeirra er að grafa fjölda skotgrafa og sveipa þær felubúnaði,“ sagði bin Laden einnig og hvatti Íraka til að nýta sér þannig reynslu al-Qaeda-manna sem barist hefðu við Bandaríkjamenn í Afganistan. Vísaði hann sérstaklega til loftárása Banda- ríkjahers á hella í Tora Bora-fjallgarðinum í Aust- ur-Afganistan, en þar höfðust al-Qaeda-menn við. „Við mælum með því að óvinurinn sé dreginn inn í langa og þreytandi bardaga í návígi, og að menn noti felubúnað til að berjast á sléttum, sveitum, fjöllum og borgum [Íraks],“ sagði bin Laden. Sagði hann óvininn lafhræddan við að þurfa að berjast í návígi í borgum Íraks. Bin Laden sagði að árás á Írak jafngilti árás á alla múslima og bætti hann því við að hvert það múslimaríki, sem styðja myndi hernaðaríhlutun Bandaríkjastjórn- ar, hefði að geyma „trúníðinga“. Hvatti hann múslima í löndum eins og Jórdaníu, Marokkó, Nígeríu, Pakistan, Sádi-Arabíu og Jemen til að steypa núverandi stjórnvöldum, þær væru lepp- stjórnir Bandaríkjanna. „Við núverandi aðstæður er ekkert að því að múslimar fylki liði með sósíalistunum [sem ráða ríkjum í Bagdad] gegn „krossförunum“, jafnvel þó að við teljum og höfum lýst því yfir að þessir sósí- alistar séu trúvillingar,“ sagði bin Laden og vísaði þar til Saddams Husseins Íraksforseta. Fram kom hjá Richard Boucher, talsmanni bandaríska utanríkisráðuneytisins, að þar tryðu menn að hér væri bin Laden á ferð, en sumir hafa talið að hann væri látinn. Sagði hann ummæli bins Ladens sýna að enn stafaði ógn af al-Qaeda sem og að samstarf væri milli Íraks og samtakanna. Bin Laden hvetur Íraka til sjálfsmorðsárása Osama bin Laden Bandaríkjamenn segja ávarp bins Ladens sanna tengsl al-Qaeda við Írak Amman, Doha. AP, AFP.  Núna er rétta/28  Almenn ánægja/12 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.